Ísafold - 10.09.1910, Page 3
ISAFOXD
231
ág.—i. sept. um 10.000 á dag. —
Var svo komið í mánaðarbyrjun, að
bæði skorti tunnur og salt.
Keisara-skurður.
Einn lækna vorra, Matthías Einars-
son spitalalæknir gerði keisaraskurð á
konu hér i bæ fyrir tæpum ‘/2 mán-
uði. — Bæði kona og barn lifa og
líður eftir atvikum vel.
Keisaraskurður hefir eigi verið gerð-
ur hér á landi siðan um miðja síðast-
liðna öld. Þá gerði hann Jón land-
læknir Hjaltalin. En bæði kona og
barn dóu það sinni.
Silfurbrúðkaup
halda þau Ólafur Ólafsson prófast-
ur í Hjarðarholti og frú hans Guðrún
Pálsdóttir ii. þ. mán. — Brullaup
það sækja ýmsir ættingjar og vinir
þeirra hjóna hér sunnanlands, svo
sem Jens prófastur Pálsson og frú
hans, Karl Nikulásson verzlunarstjóri
með frú sinni og móðir silfurbrúð-
gumans og stjúpfaðir, þau frú Kristin
og Óiafur Runólfsson bókhaldari.
Mundu?
Mundu margir stjórnmálaflokkar
heimsins una því að hafa að aðalleið-
togum:
vísvitandi ósannindamenn — marg-
sanna að sök — og
mannorðsþjófa —f
Þvi í dauðanum
flytur ekki Lögrétta staðfesta út-
skrift — úr einhverju bréfanna, sem
ritstj. þykist hafa fengið frá A. }.
Johnson — og var að vísa til orða
úr í sumar; — eða gerir eitthvað í
þá átt að sanna ummælin um greina-
ógrynnin frá þessum manni?
Það er hið eina, sem frelsað getur
ritstj. frá »visvitandi ósannindamanns«-
stimplinum.
Vottorð Jóns Þorlákssonar,
Lögr.birtir, væri pd fyrst nýtilegt,
J. Þ. hefði sjáljur séð greinar A. J. J.
— Jón byggir aðeins á orðum ritstj.
sjdlýs, en allir vita nú hvers virði þau
eru.
t.
Já
'setTaKa
t, ef ^)á
Prestsvigsla.
Herra Þórhallur biskup vigir á
morgun prestaskólakandidatana Lárus
Thorarensen og Harald Jónasson. —
Lárus verður prestur Garðarsafnaðar
vestra, en Haraldur aðstoðarprestur síra
Jónasar Hallgrímssonar á Kolfreyjustað.
Sira Bjarni Jónsson lýsir vígslunni,
Lárus Thorarensen prédikar, dóm-
kirkjupresturinn fer fyrir altari.
Heilsuhælið.
Það tók til starfa á mánudaginn
eins ogtilstóð. Þangað eru þegar komn-
ir 16 sjúklingar, en fjölgar sjálfsagt
mikið áður langt líður.
Smiðinni er nú lokið, en óunnið
margt utanhúss. T. d. verður sjálf-
sagt óhjákvæmilegt að gera götuslóða
nokkuð víða — handa sjúklingum.
Bókafregn.
Fylgsni, III þáttur af HeiðarbýU Jóns
Trausta, nýútkominn. Nánara minst
sföar.
Á gnðs vegnm, hin heimsfræga, gull-
fagra skáldsaga Björnstjerne Björnsons
kom á bókamarkaðinn í gær — í ís-
lenzkum búningi. Bjarni frá Vogi hefir
þýtt. Hennar verður minst betur hór
í blaðinu. síðar
Eine Reise nach Island und den
Westmánnerinseln, heitir ferðabók um
ísland eftir herra E. Sonnemann.
Hann ferðaðist hór um land árið 1908
— til Þingvalla, Geysis, Heklu og Eyr-
arbakka. Dvaldist langdvölum að Niel-
sens-hjónanna og fær eigi ofsögum sagt
af gestrisni þeirra.
»Almannagjá er stórkostlegri en alt
annað, sem eg hefi sóð« •— segir höf.
Yfirleitt mjög hrifinn af veru sinni
hór. — Bókin er prýðileg að frágangi
öllum.
Skipaferðir:
Sterling fór frá Leith 8. þ. mán.
árdegis. Kemur væntanlega hingað
miðvikudag — fimtudag.
Ekko, aukaskip frá Thorefólagi fór
frá Leith 8. þ- mán. síðd. beint til
Rvíkur.
Ceres fer vestur í dag. Sigurjón
Jónsson skólastj. með frú sinni, Rögn-
valdur húsameistari Ólafsson og Helgi
Svein8son bankastjóri taka sór fari m. a.
Hvernig á að verjast
yfirgangi botnvörpnnga ?
Það hefir oft verið rætt og ritað um
strandvarnir Dana hór við land, og mun
flestum koma saman um það, að þær
sóu allsendis ónógar. Til þeirra hefir
hingað til verið notað eitt Bkip, sem þó
hefir haft ýmsar frátafir með köflum.
Þó að eitt skip væri altaf á ferð dag
og nótt og skipstjórinn á því gerði alt,
sem í mannlegu valdi stendur, yrði þaö
altaf svo langtum of lítið. Ef vel
ætti að vera gætt landhelginnar, myndu
skipiu þurfa að vera að minsta kosti 3
eða fleiri.
En eru nú engin ráð fyrir hendi, til
að bæta úr þessu, með ekki ókleifum
kostnaði?
Eg held vafalaust að svo só.
F y r s t a ráðið, sem mór hefir dottið
í hug er, að sem flestum sjómönnum
verði kent að þekkja landhelgislínuna,
og ætti það að vera vel framkvæmanlegt
með þvi að vnrðskipið tæki með sór
2—3 íuenn úr hverri veiðistöð í björtu
veðri, svo að þeim gæfist kostur á að
taka glögg mið af landhelgislínunni.
Mór er vel kunnugt um, að fæstir af
sjómönnum okkar hafa ljósa hugmynd
um hvar landhelgislínan er, þessvegna
kæra þeir ekki sekan útlending fyr en
skipið er komið æðilangt inn fyrir tak-
mörkin, til að eiga ekki á hættu að
kæra þeirra verði ógild. í öðru lagi
stafa oft af því ýms óþægindi að kæra
hiun seka, tímatöf og aflamissir og ef
til vill ferðalag, til að mæta fyrir rótti
til að eiðfesta framburð. Svardaga vilja
og allmargir helzt vera lausir við, og
loks er borgunin fyrir þessi ómök ein-
att svo lítil, að naumlega er hún næg til
að greiða mönnum kostnaðinn. Ef nú sem
flestum sjómönnum væri kunnugt hvar
landhelgislínan er og þeir fengju svo ein-
hvern nánara ákveðinn hluta af sektum
og upptækum afla t. d. l/1() hluta, væri
komin hvöt fyrir sjómenn til að kæra
þá seku. Það hefir oft sýnt sig, að
botnvörpungar hafa forðast róðrarbáta
þegar þeir hafa verið að ólöglegri veiði,
t. d. sett fullar. kraft á vólina þegar
ítarnir hafa nálgast og þá verður
angur skipsins svo mikill, að róðrar-
átar draga ekki skipið uppi, en alt
öðru máli er að gegna um hraðskreiðan
mótorbát; hann getur dregið uppi botu-
vörpunga svo lengi, sem netið er í botni.
Eru því mjög miklar líkur til, jafnvel
full vissa, að væri mótorbatur á Faxa-
flóa frá aprílbyrjun til septemberloka,
mundi það að mestu leyti koma í veg
fyrir yfirgang botnvörpunga á flóanum.
Þetta ætti ekki að vera ókleifur kostn-
aður. Eg ætla, að fá mætti bát hæfan
til þessa með 4 mönnum fyrir 25 kr.
á dag, eða f 6 mánuði 4500 kr. Ef nú
þessi bátur gæti komið sekt á 1—2
botnvörpunga með afla innanborðs, væri
kostuaðuriun máske þar með fenginn,
og þá eigi talið alt það ómetanlega
gagn, sem af því leiddi, að fiskur og
veiðarfæri fengi að vera í friði fyrir
yfirgangi útlendra ránsmanna.
Sjómaður.
Reykjavikur-annáll:
Aðkomufólk síðnstu d&ga: Sira Jóhann
próf. Þorsteinsson frá Stafholti, Böðvar
kaupm. Þorvaldsson frá Akranesi, Helgi
bankastj. Sveinsson frá ísafirði
Aflabrögð hér syðra eru yfirleitt góð.
Skipin ekki komin inn, en frézt, að afli
þeirra sé góður. T. d. var Björgvin fyrir
nokkurum dögum búinn að fá 16.000
Botnvörpunga-afli bærilegur. Tveir botm
vörpnnganna, Freyr og Yalurinn fóru norð'
ur til sildfanga um daginn og eru nýkomn-
ir aftur. Fekk annar 2300 tn., en hinn
2700. I
Dánir: Ragnar Kristinn Sæmnndsson
ungbarn, Bergstaðastræti 48. Dó 25. ág.
Sigurbjörg Benediktsdóttir, 15 ára gömul
stúlka, frá Litladal i Húnavatnssýslu. Dó i
Landakotsspitala 1. sept.
Fasteignasala. Þingl. 8. sept.
Jóhann kaupm. Jóhannesson fær uppboðs-
afsal fyrir húseigninni Sundi fyrir 1210 kr.
Dags. 7. sept.
Sigurður Þorkelsson og Þorlákur Hall-
dórsson steinsmiðir selja hótelstjóra Pétri
Þ. J. Gunnarssyni húseign sina við Lauga-
veg með erfðafestnlandi, svokölluðum Ara-
bletti fyrir 8000 kr. Dags. 30. ágúst.
Ferðalög: Bjarni Jónsson viðskiftaráðu-
nautur og frú hans eru nýkomin úr ferða-
lagi vestur um Dali.
Guðsþjónusta: í Dómkirkjunni á hádegi:
Prestvigsla (sjá annarsst.i bl.)
Engin siðdegismessa.
í Frikirkjunni: Hádegismessa.
Hjúskapur: Ottó Jakob Havsteen bókh.
og ym. Emma Marie Julie Johanne Möller,
frá Randers i Danmörku. Gift 8. sept.
Ingólfur, Faxaflóagnfubáturinn, varð að
snúa við, við mynnið á Borgarfirði á mið-
vikudaginn var sakir óveðurs.
Kappglíma.
Uugmennafélag Reykjavíkur stofnar til fegurðarkapp-
glímu, er háð verður i Iðnaðarmannahúsinu miðvikudaginn þann 5. n. m.
— Kept verður um þrenn verðlaun, er veitt verða fyrir fegurðarglimu, þeim
er þá reynast beztir glímumenn.
Þeir sem vilja keppa um verðlaun þessi, gefi sig fram við undirrit-
aðan fyrir lok þessa mánaðar.
Reykjavík 10. september 1910.
Fyrir hönd U. M. F. R.
Guðm. Sigurjönsson
Smekklegar
vörur!
Vandaðar
vörur!
selur
Yerzlnnin Bjöm Kristjánsson
um nokkurn tíma með
10—20°/o afslætti.
Alrar vörur seldar, aö vanda, með
hinu afarlága verði.
Alt nýjar vörur, þar sem verzlunin
kaupir ekki inn legnar eða skemdar
vörur.
\
Ódýrar
vörur!
Notið því
tækifærið!
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
Regnkápur.
Nýkomið afarstórt úrval:
Kvenkápur, áreiðanlega vatnsheldar frá kr. 10.00
Telpukápur,léttar og laglegar frá kr. 6.50
Karlmannakápur, frá kr. 10.00, áreiðanlega vatnsheldar.
Drengjakápur, mjög hentugar á skóladrengi: kr. 3.25,
3.75, 4.50, 5.25 6.75.
Brauns verzlun Hamborg,
Aðalstrætl 9.
□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□□
ur
Nýr doktor. Helgi Jónsson grasafræðing-
frá Vogi fer ntan i þesmm mánuði til
Útsalan hjá
Th. Thorsteinsson & Co.
stendnr yfir að eins
til 20. þ. m.
Komið því i tíma!
Kennarar, sem ætla að sækja
um kenslu við Kvennaskólann á kom-
andi vetri, gjöri svo vel, að senda um-
sóknir sinar hið fyrsta.
Reykjavik io. sept. 1910.
Ingibjörg H. Bjarnason.
3 herbergi og eldhús til leigu
á Laugaveg 40.
Til leigu 2 herbergi með hús-
gögnum 1. október í Tjarnargötu 11
(Hentugt fyrir skrifstofu).
Tapast hefir úr porti hér i bæn-
algrdr hestur með miklufaxi, 16 vetra,
með stórum hófum, lélegum járnum
og múlbeisli við.
Finnandi skili honum í Þingholts-
stræti 27 gegn fundarlaunum.
að sækja doktorshatt fyrir ritgerð um þara-
tegundir (Alkevegetation), sem hann hefir
samið nýveriö.
Samkvæmni:
í Þjöðólfl a. sept. er ráðgjafi skammaður fyrir
að hafa ekki látiB höfða sakamálsrannsókn
gegn Jóni Jsnssyni yfirdómara fit af kærum
Brillouins konsúls.
í Þjððólfl 9. sept. lýsir ritstj. þvl yfir, »að
hann furði sig ekki á þvl þótt ráðherra hafi
ekki þótt Arennilegt að skipa sakamAlarann-
sókn gegn Jóni Jenssyni. — út af hinni sömu
kæru — og skammar hann nú fyrir að hann
hafi œtlað að gera það (sbr. orð bln »loforö rAð-
herra til Brillouins, um að neyta embættisvalds
sins gegn saklansum manni i hrainu*einka-
mAli<].
Þótt blahið segi það tvart, sem i næsta blefti
A undan rar sagt hvitt — skiftir engu — éf ah-
eins eitt hefst upp úr þvi: ab fA tækifæri til
að illyrha rAðgjafannl
Blaðamenska i lagi — það tarnal
ern framtíðaráhöld, —
þau eru einu áhöldin er þola til lengdar
gaselda; eru hreinlegri og skrautlegri
en öll önnur samskonar áhöld úr öðr-
um málmum.
Margar tegundir af slíkum áhöldum
— nokkrar strax upp seldar —
fást nú í
Liverpool,
Talsími 43.
Eldhúslampar,
Náttlampar,
Lampabrennarar,
Lampaglös
nýkomið til
Guðm. Olsen.
Tombólu
heldur
hið íslcnzka kvenfélag
um næstu mánaðarmót. Agóðinn renn-
ur í styrktarsjóð kvenna.
Nýkomið í Lækjargötu 4 marg-
ar tegundir af barna-höfuðfötum mjög
fallegum og ódýrum.
Til ieigu2-
götu 4.
-3 herbergi í Lækjar-
2 herbergi til leigu fyrir ein-
hleypa, Stýrimannastig 8.
Uppboð
verður haldið á
Hveríisgötu
15, þriðjudaginn 13. þ. m., kl. 11,
á margs konar Búðarvörum.
Engin verzlun
í bænum selur meira af
Kexi
Og
Kaffibrauði
en
„Liverpool“.
Nýtízku regnkápur
komu með s/s »Ceres« í
verziun
Th. Thorsteinsson & Co.,
Hafnarstræti.
Þær eru vandaðar, smekklegar og
ódýrar.
2 duglegar þvottakonur
geta fengið vist á Hotel ísland
frá 1. október nk.
Þl’jú ágæt herbergi á góðum
stað í vönduðu húsi nál. miðbænum,
hentug fyrir einhleypt fólk, fást til
leigu frá 1. október, eða strax ef
óskað er. Geta fengist sérskilin. Inn-
gangur um forstofu. — Ritstj. vísar á.
Aður en menn festa kaup
á íiskilínum, netagarni og
manilla,
ættu þeir, sem það brúka, að líta á
sýnishorn af þessum vörum i
verzlun Jóns Arnasonar,
Vesturgötu 39.
Mjólk, rjómi, egg!
Þeir sem vilja selja Hótel ísland
mjólk, rjóma og egg eftir 1. okt.
sendi undirrituðum hótelstjóra tilboð
sln fyrir 15. þ. m.
P. í\ J. Gunnarsson.
Mórauður hundur með hvít-
um blett neðan á hálsinum (mark:
standfjöðnr aftan hægra, biti fr. vinstra)
er í óskilum á Laugaveg 40.
Til leigu 3 herbergja íbúð á góð-
um stað í bænum frá 1. okt. Ritstj.
vísar á.
Silfurbrjóstnál fundin, vitja
má i Skólabæinn.
Loftherbergi til leigu á Smiðju-
stig 6.
2 stofur til leigu á Hotel ísland.
Herbergi
fyrir • einhleypa, með eða án húsgagna
til leigu. Sömuleiðis geta 2 reglu-
samir piltar fengið fæði, húsnæði og
þjónustu á sama stað, Stýrimannastig 9.
Skrautlegir Pálmar
og ýmsar blómsturplöntur mjög ódýrt
Stýrimannastíg 9.
Ostar
beztir og ódýrastir í
LiverpooL
Haukur,
Heimilisblað með myndum,
hefir nú flutt sig aftur til Reykjavíkur,
og kemur hér út eftirleiðis.
Síðustu tölublöð vi.bindis, sem ýmsra
orsaka vegna hafa ekki verið send kaup-
endum, verða send þeim með næstu
póstferðum.
Kaupendur hór i bænum, sem ekki
hafa fengið þau, geri svo vel að vitja
þeirra sem allra fyrst í Þingholtsstr. 3,
svo að kaupendaskráin verði leiðrétt.
Svo er til ætlast, að VII. bindið
komi út í haust, og VIII. bindið byrji
í janúar næstk.
Hvert bindi verður fyrst um sinn
eins og áður, 30 arkir, auk auglýs-
ingablaða. Verð að eins 2 kr.
Nýir kaupendur gefi sig fram
sem fvrst.