Ísafold - 08.10.1910, Side 3
ISAFOLD
251
Skólarnir
Mentaskólinn almenni: Þar eru
126 lærisveinar.
Læknaskólinn: Nemendur eru þar
19. 5 af þeim nýsveinar.
Prestaskólinn: A honum eru 6 nem-
endur. 3 í hvorri deild e. d. og m. d.
Lagaskólinn: A honum eru 14.
7 í elstu deild, 3 í miðdeild, og 4 í
yngstu deild.
Kvennaskólinn: A honum eru nú
þegar 105 stúlkur, og búist við nokkr-
um fleirum. í fyrsta bekk eru 25, 2
b. 25, 3. b. 24, 4. b. 19. Hússtjórn-
ardeild 12.
Barnaskólinn: A honurn eru 800
börn.
Barnaskóli Asgr. Magnússonar: Þar
eru í nátni 60 börn í 3 deildum. Bú-
ist við, að 4 deildin verði stofnsett
bráðlega.
»Um áfengiguautn
sem þjóðarmein og ráð til að út-
rýma henni«, heitir bók sem nýlega
er komin á prent, eítir Guðm. Björns-
son landlæknir. I henni eru fyrir-
lestraf og aðrar hugvekjur er hann
hefir haldið um skaðsemi áfengisins;
vel rökstudd erindi á lipru og aðgengi-
legu máli. Kostnaðarmaður er herra
Sigurður Eiriksson regluboði, og hefir
hann ásamt. höf., ákveðið að allur
ágóði af sölu bókarinnar renni til
heilsuhælisins á Vífilsstöðum. Ekki
ætti bókin síður að seljast fyrir það.
Meiðyrð am álin.
í fyrradag féll dómur í 20 af þeim
málum, er Björn Jónsson ráðherra
höfðaði gegn ritstj. Lögréttu Þorsteini
Gíslasyni, fyrir meiðyrði, og var Þ.
G. dæmdur í 570 kr. sekt als, og
385 kr. í málskostnað, og ummælin
dæmd dauð og ómerk. Sektin var
frá 20—50 kr. í hverju máli. Sýkn-
un var aðeins í einu af þessum mál-
um.
Landvarnarfélagið.
Það hélt aðalfund sinn sl. mánu-
dagskvöld. I stjórnina voru kosnir;
Gísli Sveinsson cand. jur., formaður,
Guðm. læknir Hannesson, Jakob
Möller, Grímúlfur Ólafsson og Jón
Baldvinsson.
Ingólfur
er afargleiður yfir því, að getið er
um í sögu »Franska bankans«, að að-
flutningsbannið hafi valdið örðugleik-
um á því, að fá fé hjá Frökkum.
En hyggilegra væri fyrir hann, áður
en hann springur af kæti yfir þessu,
að gæta að því, að lánstilboð fekst
hjá Fr.ökkum, þrátt fyrir aðflutnings-
bannið, og að lánstilboð þetta stendur
enn til boða, samkv. skýrslu peninga-
málanefndarinnar. »Sönnunin«, sem
hann svo kallar, fyrir því »að hin
fyrirhugaða áfengislöggjöf vor, spilli
fyrir viðskiftum vorum við Frakkland«
og þar með að hann hafi rétt fyrir
sér að þessu leyti, hefir því við ekk-
ert að styðjast.
Skipaferðir:
Austri kom á laugardaginn úr hring-
ferðinni. Fjöldi farþega var með skip-
inu. Fór samdægurs í slðustu strand-
ferð.
Kong Helge kom frá útlöndum
(Hamb.) á þriðjudagsmorguninn. Far-
þegi: Benedikt Kristjánsson, búnaðar
ráðunautur.
Frem, aukaBbip frá Thorefól. kom
Sama dag. Skipið fór i dag norður um
land, áleiðis til útlanda.
Hata og holdsveikin.
Svohljóðandi símskeyti barst ísafold
í morgun frá Khöfn:
Hata hefir verið reynt við fjölda
holdsveikissjúklinga á Rússlandi. Ár-
angur æskilegur í flestum tilfellum.
Slys
Tveir Norðmenn druknuðu hér á
höfninni á mánudagskvöldið. Merin
vita það síðast um þá, að þeir lögðu
irá einni bryggjunni í hálfrökknu um
TÓMSTUNDÍR ERU Því A©
EÍNS MÖQULEQAR,
að Sunlight sápan sje notud.
Hún f jölgar tómstundum vegna
þess, að hun sparar vinnu.
hin hreinasta sápa.
1589
C-w .f r>Tiwiif■■ |
Bókauppboð
miðvikud. 12. þ. m. kl. 11 f. h. (Good-
Templarahúsið). Fjöldi ágætra
íslenzkra hóka (og útlendra), er
verið hafa eign verzlunarstjóra Sigurð-
ar Jónssonar frá Gautlöndum.
Áhöld og útbúnaður til þess að
geta rekið »special«verzlun með brent
og malað kaffi fæst nú þegar til kaups
með góðum skilmálum. — Menn snúi
sér til
Magnúsar Sigurðssonar,
lögfræðings.
Hin nýja verzlun mín
a Laugavegi 24
eg hefi gefið nafnið Frón selur alls konar vörur með sanngjörnu verði.
Vona eg að háttv. bæjarbúar, sveitamenn og aðrir noti hin góðu kjör,
verzlunin býður.
Rvík 7/10 1910. ,
Arni Einarsson.
Karlmannafataverzlun
Th. Thorsteinsson & Co,
Prjónavéíar!
Einkaútsala á hinum beztu prjónavélum, sem til landsins flytjast, er hjá
Tí). Tfjorsfeinsson, Ingóífsfjvoíi.
Upplýsingar viðvíkjandi vélunum gefur prjónakonan
Hafnarstræti,
hefir nú aftur fengið hin marg-eftirspurðu
Yinnuföt,
og er i þeirri grein aftur orðin betur birg, en nokkur önnur hérlend verzlun.
Bláir vinnujakkar frá 1,60. \ Buxur úr sama efni 1,40.
Krisfín Tfjoríacius, Bókfjföðustíg 10.
En alfatnaðurinn að eins 2,85.
Notið þurmjölk.
Ef menn nota þurmjólk hafa menn jafnan við hendina nægilega mjólk
í mat og bakstur og þó engu dýrari. Þurmjólkurduft það, sem eg hefi til
sölu, er búið til úr áreiðanlega hreinni, hitaðri nýmjólk, án nokkurrar auka-
viðbótar. Umboðssali sér um söluna.
Köbenliavn.
Sct, Jacobsgarte 9.
S. Bonnaire-Lorentzen.
Mjög sterkar búskinns-buxur, brúnar, hvítar og mislitar frá 4,00
— — ---- jakkar frá 4,50.
Verkrn annskyrtur úr sterku efni 2,50.
Einnig stórt úrval af hlýjum og sterkum
Yetrarnærfötum.
I»að áreiðanlega marg-borgar sig að skifta við
kvöldið Áttu að fara út í kolaskip
á höfninni. Hvassveður var, og er
gizkað, á að þeir hafi siglt sig um.
Reykjavikur-annáll:
Aðkomumenn eru fjölda margir hér, um
þessar mundir. Meðal þeirra er Isafold
hefir orðið vör við eru bændurnir: Sigurð-
ur Guðmundsson Selalæk, Lórður Guðm.
fyrv. alþm. Hala, Jónas Árnason Reynifelli,
Olafur Olafsson Lindarhæ, JÞorsteinn Einars-
son'Köldukinn o. fl.
Guðsþjónusta á morgun: í Dómkirk-
junni kl. 12 (hémessa og altarisganga) slra
Bjarni JónssOn, kl. 5 sira Jóhann Þorkels-
son.
í Fríkirkjunni kl. 12 Fríkirkjuprestur-
inn verður fyrir altari en eand. theol.Þórður
Oddgeirsson prédikar.
Hjúskapur: Magnús Þorsteinsson kaupm.
Bankastræti 12 og ungfr. Guðrún Emilía
Smith. Gift 1. okt.
Andrés Andrésson klæðskerameistari Skóla-
vörðustig 35 og nngfr. Halldóra Þórarins-
dóttir- Gift 7. okt.
Þórarinn Einarsson frá Bergskoti á Vatns-
leysuströnd og ungfr. Guðrún Bjarndís Þor-
valdsdóttir. Git't 7. okt.
Guðmundur meistari Finnbogason byrjar
heimsspekisfyrirlestra sína þriðjudaginn 18.
þ. m Um fyrirkomulag fyrirlestranna skýrir
Isafold nánar frá í næsta blaði.
Euskukensl;i. Þeim er ensku
vilja nema, viljum vér benda á aug-
lýsingu ungfrú Sigríðar Hermann hér
í blaðinu. Hún hefir ágætan vitnis-
burð fyrir enskukunnáttu frá hærri
skólum í Edinborg á Skotlandi.
Gísli Sveinsson
og Vigfús Einarsson
yfirdómslögmenn.
Skrifstofutími IH/2—1 og 5—6.
Þingholtsstræti 19. Talsimi 263.
Aðalstræti 14.
Eg undirritaður hefi nú um mánað-
armótin opnað
Skósmíðavinnustofu
í Aðalstrœti 14 og mun eg gjöra mér
far um að leysa vinnuna sérlega vel
og smekklega af hendi bæði á nýjum
og gömlum skófatnaði; þess vegna
ættu allir þeir bæjarbúar, sem vilja fá
góða vinnu fyrir peninga sína, að
gjöra svo vel og reyna vinnustofuna
í Aðalstræti 14.
Virðingarfylst
Ármann Eyólfsson.
Nýtt! Nýtt!
Nýtt bakarí er byrjað í Fischers-
sundi 3. Ágæt brauð og ódýrari en
annarstaðar. Komið og reynið það
borgar sig.
Vetrarstúlka óskast i Tjarn-
argötu 26.
Fæöi og kúsnæði fyrir 2 ein-
hleypa menn á Bókhlöðustíg 6 A.
Brúnn hestur viljugur, klár-
gengur gamaljárnaður með mark: stýft
h., tapaðist úr Hafnarfirði h. 16. sept.
síðastl.
Hver sem kynni að finna hest þenna
er vinsaml. beðinn að koma honum
til undirritaðs gegn ómakslaunum, eða
gjöra viðvart.
Hafnarfirði 8. okt. 1910.
Oddur St. tvarsson.
2 stofur fást til leigu í Þing-
holtsstræti 18.
Góður bókaskápur til sölu í
Austurstræti 5.
Th. Thorsteinsson & Co.
Mikli-skáli.
Húseignin »Mikliskáli« á Þingvöllum er til sölu. Þeir, er vildu kaupa
íúsið, snúi sér til stjórnarráðs íslands hið fyrsta.
Stjórnarráð Islands 6. október 1910.
Námsskeið fyrir stúlkur.
Eg undirrituð kenni stúlkum nokkrar almennar námsgreinar, svo sem: ís-
lenzku, dönsku, ensku, reikning, heilsufræði og söng. Námsskeiðið byrjar 15. okt.
Hólmfríður Arnadóttir,
Þingholtsstræti 1. (Heima kl. 6—8 síðdegis).
FATAEFNI,
og alt annað, sem að iðn minni lýtur fekk eg
með s|s Kong Helga.
Ludvig Andersen,
K i r k j u s t r æ t i 10.
Áðvörun til sjómanna.
í stað klukkuduflsins utanvert við Örfirisey hefir
til bráðabirgða verið sett annað dnfl, er enga klukku
Herbergi fyrir einhleypa með
forstofuinngangi til ieigu nú þegar.—
Afgreiðslan ávísar.
og þjónusta fæst á
Skólavörðustíg 10.
2 herbergi góð, ásamt aðgangi
að eldhúsi, eru til leigu nú þegar í
Þingholtsstræti n. Semja má við
Odd Gíslason, yfirdómsmálfl.mann.
Gott herbergi til leigu, með
eða án húsgagna, Hverfisgötu 15.
Har. Nielsson.
Stúlka getur fengið vist i Báru-
húsinu.
Brúkuð íslenzk frímerki kaupir
hærra verði en áður. — Kristján
H. Bjarnason, Hverfisgötu 2 B.
Silfurbrjóstnál fundin. Upp-
lýsingar i afgreiðslu ísafoldar.
Snemmbær kýr til sölu nú
þegar. Semja má við S. Á. Gíslason.
Talsími 236.
Tapast hefir karlmanns-silfurúr á
svæðinu kringum „Iðnó“. Finnandi
er beðinn að skila því á afgreiðslu
þessa blaðs gegn fundarlaunnm.
Tapazt hefir úr Reykjavík rauð-
ur hestur, vakur, mark: heiírifað hægra
og biti aftan.
Skilist til H. ^A. Fjeldsted, Kirkju-
stræti 8, Reykjavík.
Síðari ársfundur
Búnaðarfélags Seltirninga
verður haldin í þinghúsi hreppsins,
laugardaginn 15. þ. m. kl. 12 á há-
degi.
Sijórnin.
Breiðablik
landinu að kaupa og lesa — og aðrir
þeir, er trúar- og kirkjumdl Idta til sín
taka. — Andvirðið (4 kr. auk burðar-
gjalds út um land) greiðist fyrirfram.
Utsölum.: , ,
bankaritari Tírtll JofjanUSSOU.
hefir. —
Hafnarnefndin.
Dansk-svensk Staal Aktieselskab,
Köbenhavn öl. Kongevej 88.
Stærsta og ódýrasta útvegunarverzlun
á Norðurlöndum.
Buldog-marghleya kr. 3.70. Vasahnífar 0.50—1.50. Hár-
klippur 2.75. Rakhnífar úr bezta stáli 1.00. Rakvélar 2.40.
Steinolíusuðuvélar 3.60. Steinolíu netbrennarar 3.55.
Brauðskurðarvólar 2.35. Stórar axir 1.30. Strokjárn 0.85.
Kolaausur 0.25. Stór skæri 0.60. Eldhúsvogir 1.85. Vek-
jaraklukkur með 2 ára ábyrgð 1.85. Saumvélar ágætar 35.00.
Leðurvðrur. Grammofónar frá 13.00. Fonografar 7.25.
Alls konar hjól og lijólhlutar. Brauðhnífar 0.75. Borðhnífar
og gaflar. Vasaúr með 1 árs ábyrgð 4.50.
Skrifið eftir aðalverðskrá vorri. Hún verður send yður algerlega ókeypis.