Ísafold - 01.01.1911, Side 2
r
ISAFOLD
Gísli Sveinsson
og Vigfús Einarsson
yfi rdómslögmenn.
Skrifstofutími II1/,—I og 5—6.
Þingholtsstrseti 19. Talsími 263
Þá heldur G. H , að 50 kr. verð á
skipp. sé skilyrði fyrir þvi að litgerð-
in borgi sig. Það er eins og það
komi málinu ekkert við, hve mikið
fiskast. Þar að auki bendir hann á
veginn til að forðast hættuna, sem sé
þann, að skipin fari með aflann fersk-
an til útlanda, og annað fyrirkomu-
lag á kaupgjaldinu. — Síldarveiðun-
um er hann ekki alveg fráhverfur,
sem athvarfi, ef illa gengi með fisk,
og er eg hissa á því um jafn varkár-
an mann. — Yfirleitt mundi eg ráða
mönnum frá því að byggja nokkuð á
þeim.
Eg held að »skuldapostularnir« hugsi
sem næst svo: Botnvörpuútgerðin á
að aukast; en hvort sem nú á að reka
þær með helming eða tveim þriðju
fjárins að láni, þá er það ekki hægt
nema að fá útlent fé. — Eins og nú
er komið bankamálum vorum, þá er
ekki hægt að fá þetta fé nema litið
eitt, og það sem fæst, er frá Dan-
mörku. Danir þurfa sjálfir að fá fé
að láni, geta því ekki verið annað en
milliliður fyrir oss. Því hlýtur að
vera heppilegast fyrir oss að opna oss
sjálfir veg að peningamarkaðinum.
— Annað mál er það, hvort þetta
hepnast.
G. H. fer háðungarorðum um af-
borgunarlausu lánin — »eilifu lánin*,
sem hann kallar, og segir að þau verði
til þess að menn geti aldrei eignast
neitt, og að útlendingar, helzt Danir,
eignist allar fasteignir hér á landi.
Ekki eru þetta nú neitt annað en
slagorð, eins og fleiri staðhæfingar G.
H. í þessum greinum. Og að það
yrðu Danir, sem eignuðust allar fast-
eignirnar, ef lán yrði tekið hjá ein-
hverri annari þjóð (og það er nú ein-
mitt það, sem verið er að ráðgera, og
þar að auki áreiðanlega ekki hægt að
fá féð hjá Dönum) — það verður víst
öllum óskiljanlegt nema G. H. — Og
getur líklega jafnvel ekki hann skilið
það á annan veg en að það sé »slag-
orð«, sem á að hræða menn frá að
taka lán.
Þótt lánin standi afborgunarlaus, þá
gerir það ekkert til. Getur ekki haft
áhrif á það, hvort menn eignast nokk-
uð. Ef lánin borga sig — og það
verða þau að gera, ef hægt á að vera
að borga afborganir — þá er auðsætt,
að það er bezt að þau standi sem
lengst. Því fé, sem annars yrði varið
til afborgana, yrði þá varið til að auka
rekstursféð, og mundi það leiða til
þess, að menn einmitt eignuöust meira
og 3’rðu æ betur færir um að leysa
veðið, ef láninu yrði sagt upp. — Al-
veg þveröfugt við það, sem G. H.
heldur fram.
Maður, sem býr á leigðri jörð eða
í leigðu húsi, getur vel orðið auðug-
ur, þótt hann eignist aldrei jörðina eða
húsið. Og það er staðleysa ein, að
veðhafi eigi veðið; ef lánþegi stendur
i skilum með það, sem hann samkv.
samningnum á að borga, þá er hann
fyllilega ráðandi yfir veðinu.
Til þess að sjá annað eins og þetta,
þarf ekkert annað en að trúa á það,
að það sem heilbrigð skynsemi segir
manni sé það rétta.
Eg hefi þegar minst á löng lán til
búskapar, og á það sama auðvitað við
um allan atvinnurekstur, sem borgar
sig sæmilega. — Sömuleiðis hefi eg
drepið á lántökur til húsabygginga á
jörðum, og sama verður sagt um
nauðsynlegar húsabyggingar til hvaða
atvinnureksturs, sem er: að ef lánar-
drottinn tekur lægri vöxtu af fé sinu
heldur en atvinnureksturinn gefur, þá
er hyggilegt að láta svo há lán hvíla
á öllum fasteignum, sem unt er og
svo lengi sem unt er — ef fyrirtækið
þá er sæmilega örugt.
Þá er að minnast ofurlítið á löng
lán til húsabygginga í kauptúnum. —
Er nú nokkurt vit í því, að lánin
»lifi« sem næst því jafn lengi og hús-
ið stenduri
Ef ekki væri unt að fá nein lán til
húsabygginga, þá gætu að eins vel
efnaðir menn bygt hús. Afleiðingin
af því yrði, að húsaleiga yrði mjög
há, svo að leigjandi yrði að borga
margfalda vexti af húsinu.
Nú er ekki nóg að geta fengið lán
til að byggja hús — það þarf að borga
það aftur. — Og skilmálarnir verða
að vera svo vægir, að lántakandi geti
staðið í skilum, ef hann á að hafa
gagn af því.
Og meiningin með því að veita
löng lán til húsabygginga er sú, að
koma þvi til leiðar, að menn geti
fengið húsnæði fyrir sanngjama »húsa-
leigu«. Húsin þurfa ekki að ýendast
lengur en það, að það sé vist að lán-
ið borgist með því, sem væri sann-
gjörn leiga af þvi. — Og þótt eig-
andi hússins aldrei eignisthúsið skuld-
laust, þá getur hann verið búinn að
græða stórfé á því, þegar það fellur
— í lægri húsaleigu.
Hér er verið að hugsa um það eitt,
að sjá fátækari mönnum fyrir ódýru
húsnæði.
Skrif G. H. er hér úti á þekju. —
Hann hefir alls ekki vitað, hvað hann
var að tala um.
Eg ætla ekki að þessu sinni að
segja neitt um hafnargerð hér í Reykja-
vík, — en ætla að eins að skjóta
þeirri spurningu til G. H., hvort þessi
bryggja hans eða garður, sem á að
byggja út frá battaríinu muni koma
að tilætluðum notum, ef höfnin verð-
ur ekki að öðru leyti fullgerð. — Eða
hvernig stendur á því þá, að fagmað-
urinn, sem fenginn var til þess að
rannsaka og gera tillögu um þetta
mál, stakk ekki upp á því, sem ein-
um ódýrum veg til bráðabirgða, að
byggja þenna garð ?
Eg er ekki fagmaður í hafnargerð,
og skal því ekki deila við G. H. um
þetta atriði.
En eg er algerlega mótfallinn nið-
urjöfnunarkenningu G. H., vegna þess,
að það yrðu þá einmitt þeir menn
að borga höfnina, sem ef til vill hefðu
mjög lítið gagn af henni. Auk þess
sér hver heilvita maður, að það er al-
veg ógerlegt að jaína niður öllum
slíkum kostnaði, sem bærinn eða land-
ið verður að leggja í. —
Hvað halda menn um útsvörin hér
í bænum, ef jafnað hefði verið niður
öllum vatnsveitukostnaðinum og gas-
kostnaðinum ?
Það er eins og G. H. haldi að það
séu engin takmörk fyrir því, hve
miklu er hægt áð jafna niður. — En
eítir því sem útsvör eru hærri, eftir
því veróa fleiri þeir menn, sem verð-
ur að taka þau lögtaki hjá, flfeiri þeir
menn, sem ekki borga neitt, fleiri þeir
sem verða þurfamenn, fleiri sem flýja
úr bænum. En það væri léleg fjár-
málapólitík, að flæma burt gjaldend-
urna og rýja þá sem eftir kynnu að
verða — inn að skyrtunni.
Annars dettur liklega fáum þessi
barnaskapur í hug, og G. H. þorir
heldur ekki að halda því til streitu.
Að endingu skal eg að eins benda
á, að G. H. heldur að þessi þremils
garður út frá battaríinu, muni borga
sig SVO vel þegar á fyrstu árum, að
hann gefi 5°/0 af helming þess, sem
öll höfnin mundi kosta, og þannig
hjálpa að byggja það sem eftir yrði.
En ef það reynist svo, þá skil eg ekki
annað en að fullkomin höfn borgi
sig vel, þegar siglingar hingað hafa
aukist um helming — sem áreiðan-
lega má búast við að verði mjög bráð-
lega eftir að höfnin er fullger.
/-
Sóttkveikja í fötum?
Á Lltla-Pjslli i Mýrasýslo andaðist hinn
18. náv. 1910 einkabarn hjónanna þar og
olli það foreldrunnm, eins og nærri má geta,
mikils harms. Barnið dó úr harnaveiki. Að
sóttkveikjunni hefir verið leitað og ekki
fnndist, nema ef ske kynni, að hán hefði
getað leynzt i föggum manns nokkurs úr
Roykjavik, er nefndi sig Ólaf. Eann rann
hér um héraðið og rakti hæ: til að hjóða
og selja varning sinn. Maður þessi kom að
Litla-Fjalli nálægt 10 dögum áður en harn-
ið veiktist og leysti þar upp farangur sinn,
en hann var meðal annars kápa af harni
og sjal, hvorttveggja óhreint og hrúkað.
Hvorugt var að sönnu keypt þar, en mað-
urinn lét þess getið, að óhætt væri að kanpa
sjalið, það væri af beilbrigðum.
Eg skýri frá þessu þeim til athugunar
sem kanpa vilja varning af farandmönnum,
sem enginn veit deili á.
4/la 1910. '
J. G.
Minnisvarðamálið.
Svo skipaðist til á miðvikudaginn,
að í ncfnd þeirri, er forgöngu á að veita
framkvæmdum um minnisvarða yfir
Jón Sigurðsson urðu x8 manns —•
eins og sjá má undir ávarpi nefndar-
innar hér í blaðinu.
Fyrst voru kosnir á þingmanna-
fundi þeirTryggvi Gunnarsson, Hann-
es Hafstein, biskupinn og Jón Jens-
son og skyldi Stúdentafélagið tilnefna
5. manninn í nefndina. — En þessir
4 menn þóttu of einlitir í stjórnmál-
um — og'jþvi eigi að búast við svo
góðum árangri af starfi þeirra, sem
æskilegt væri.
Stúdentafélagið gekk því i það, að
fá fjölgað mönnum í nefndinni, svo
að við bættust 4 menn úr meirihluta-
flokknum. Kaus flokkurinn þá Björn
Kristjánsson,- Bjarna frá Vogi, Ara
Jónsson og sira Ólaf Ólafsson. Enn
var svo bætt við i nefndina forsetum
alþingis — og formönnum nokkurra
félaga.
Nefndin er þannig nú orðin laus
við flokkaríg allan — svo sem vera
ber í öðru eins alþjóðarmáli.
Nú skiftir mestu máli, að fljótt
verði brugðið við af hálfu allra þeirra,
er falin hefir verið forgangan út um
land, þvi að eigi er það oss vansa-
laust, að láta 17. júní 1911 svo hjá
líða, að eigi verði kominn upp rninn-
isvarði yfir þetta »óskabarn íslands«.
Einar Jónsson listamaður mun þeg-
ar um nokkurn tíma hafa unnið að
mynd af forsetanum, svo að frá hans
hálfu mun naumast á verkinu standa.
— Nefndin mun þegar hafa símað
til hans um að fá sýnishorn af mynd-
inni sent.
Einstaka raddir hafa heyrst um það,
að ganga fram hjá Einari við mynd-
argerð þessa. En þær eru ískrandi
hjáróma. Enda væri Einari með því
sýnt ástæðulaust vantraust — úr körð-
ustu dtt.
Fjárglögg bæjarstjórn.
Eins og nú er orðið knnnngt hér i hæn-
nm hefir bæjarstjórnin hér hafnað boði hr.
Júlínsar Halldórssonar, læknis, nm að gegna
heilbrigðisfnlltrúastarfinn hér næsta ár, af
þvi að hann vildi fá starfið goldið með
1000 kr. á ári, i staðinn fyrir 800 kr. —
»Isafold« sem kom út 17. þ. m. (siðasta
langardag), telnr þessa ráðstöfnn hæjar-
8tjórnarinnar tjón fyrir bæinn, og er það
fyllilega réttmætt.
Áður en hr. Júlins Halldórsson tók við
heilbrigðisfulltrúastarfinu hér, hafði hæjar-
stjórnin reynt 2 heilbrigðisfnlltrna, annan
launaðan með 600 kr. á ári, hinn með 800
kr. á ári. — Eg þori að fnllyrða, að varla
nokknr bæjarbúa vissi af þessum mönnnm
sem heilbrigðisfulltrúum, af þvi þeir
gerðu eklci neitt sem slikir. — En hr. Júl-
ins Halldórsson hefir aftur á móti gegnt
starfa þessnm með mesta dugnaði, áhuga
0g árangri. — Þetta tvent þarf eg ekki að
fara að rökstyðja með dæmum, þvi þetta
vita allir bæjarbúar að er satt. En sann-
anir eru fyrir hendi. — Eg, sem skrifa þess-
ar línur, hefi haft tækifæri, vegna stöðu
minnar, til að fylgjast með störfum heilhrigð-
Í8fulltrnanna og get þvi vel dæmt um þetta
af eigin reynd. Og gaman væri að vita
bvort bæjarfógeti, formaður heilbrigðisnefnd-
ar, teldi ekki þessa ályktun hæjarstjórnar-
innar dálitið heimsknlega.
Mergurinn málsins er i fáum orðum þessi:
Bæjarstjórnin galt 600 kr. og 800 kr fyr-
ir Btarf, sem ekki var unnið. Svo geldur
hún 800 kr. fyrir starfið, manni, sem vinn-
ur starfið vel, og betur en hún (bæjarstjórn-
inj hefir vist nokkurn tima ætlast til eða
bana hefir dreymt um að ætti að gera.
Þessum manni vill hún ekki gjalda 200
kr. launaviðhót, þótt hann, hæði vegna
sérstakra skilyrða (er læknir) og alþekts
dugnaðar, gegni starfinu eins og það út-
beimtir. Nú vill hæjarstjórnin fá nýjan
heilbrigðisfulltrúa fyrir 800 kr. — Hver
hann verður, veit enginn En það sýn-
ist þó heldur skynsamlegra að hafa engan
heilbrigðisfulltrúa heldur en þann, sem allra
hluta vegna ekki getur gegnt starfinu. Þvi
þeim peningnm, sem honum eru veittir að
launum, er sannarlega kastað i sjóinn. En
það er nú svona fyrir hlessaðri bæjarBtjórn-
inni (meiri hlntanum) að hún vill heldur
launa manni, sem ekkert gerir, 800 kr., en
1000 kr. þeim manni, sem bæði vegna þekk-
ingar og atorku gerir mikið. — Er það
ekki dásamleg stjórnvizka, sem lýsir Bér í
þessu, hvar sem er?
20. des. 1910.
Bœjarbúi.
Leikhúsið.
Kinnarhvolssystur
Sjónleikur 1 8 þáttum
eftir Carsten Hauch.
í fyrradag hljóp af stokkunum fyrsti
nýi lcikurinn á þessum vetri —- og
í fám orðum sagt: hann var Leikjélag-
inu til sóma yjirleitt.
Kinnarhvolssy stur heitir
leikurinn.
eið leikinn,náðifrúin sér betur og bíétnr
niðri og leikurhennar í siðasta þaétti,
er hún kemur upp ár »unslirsljápBn-
um« er áreiðanlega einhver laezta /list,
sem kostur hefir verið á í leikhésinu
hér. Gerfið, látseðið og ró*«ria*
bar alt á sér einkenni góðrar lisiaf.
Og sá leikur skyggir yfir ý»*» s«á-
bresti þá, er sumstaðar bar á i fyrri
hluta leiksins. Þótt cigi Tacrí fjrir
neinu öðru að gangast, borgar það
sig að fara í leikhúsið til að sjá frú
Efnið. — Dætur Jóns bónda á Kinn-
arhvoli (Stef. Run.) Ulrikka (Stef. Guð-
mundsdóttir) og Jóhanna (Emilía
Indriðadóttir) eru lofaðar ungum mönn-
um þar í sveitinni, Jóhanni (Helgi
Helgason) og Axel (Friðf. Guðjónsson)
Jón gamli vill, að þær fari að kom-
ast í hjónaband, en önnur hjónaleys-
in (Axel og |óh.) brestur allmjög cfni
til þess, en fyrir hinum er það svo,
að Ulrikku f i n s t sig og Jóhann
bresta þau, þótt hún hafi rokkinn
þeytt um árabil og spunnið sér klæða-
stafla og Jóhann eigi kot að búa á.
Ulrikka er ímynd fjárgræðgi og hóf-
lausrar sparsemi. Og þetta er það,
sem höfundur vill feigt. Hann gerir
Ulrikku að aðal-persónu leiksins og
spinnur forlög hennar af mikilli snild.
— Hann lætur Ulrikku ná sambandi
við bergkonunginn (Bjarni Björnsson,)
drottin gullsins. Hann býður henni
í bergið til sín og fær hún að spinna
þar gull svo sem hana lystir. Lætur
bergkonungur efla að henni seið, svo
að eigi fær hún greint tímann, hvern-
ig hann liður. Éina mælisnúran, sem
hún hefir til að fara eftir, er gullvef-
urinn. — En henni finst hún aldrei
ætla að fá nægju sina. Og þarna
situr hún 25 ár og spinnur gull og
veit ekkert hvað tímanum liður —
heldur að hún hafi dvalist þar i lengsta
lagi nokkurar vikur. Hún raknar þá
fyrst við sér, er hún heyrir sálmasöng
uppi á berginu, brúðkaupssöng. Held-
ur hún að þar sé nú Jóhanna systir
sin að ganga til brúðkaupsins i kirk-
juna og vill nú úr berginu. Kallar
á bergkonung og hann leiðir hana
úr berginu.
Þá stendur svo á, að Jóhanna syst-
ir hennar er að halda silfurbrúðkaup
sitt. Henni og festarmanni hennar
hafðibergkonungurinn hjálpaðfyrir það,
að Jóhanna tók honum vel eitt sinn
er hann kom á heimilið í förumanns
gerfi og Úlrikka vildi láta út reka betl-
arann. Hún er nú á leið til kirk-
junnarmeð manni sínum og dóttur.
Boðsgestir hafa áð þarna á berginu.
Þá sjá þeir koma þar haltrandi eld-
gamla nornarmynd, svo ellihruma, að
hún má naumast sig hræra og sér
tæplega í andlit henni fyrir hrukk-
um. , %
Þetta er Úlrikka.
Svo hafði bergloftið, gullgræðgin og
rokksetan 25 löng ár með hana fnrið.
Vitaskuld þekkir hana enginn boðs-
gestanna. En hún gengur að Ingi-
björgu dóttur Jóhönnu, sem er lifandi
eftirmynd móður sinnar og ávarpar
hana: Þarna er þá Jóhanna systir
mín.
Fólkið alt fyllist skelfingu, er það
verður þess víst. að þar er komin
svona útleikín Úlrikka, sú er allir töldu
löngu dauða. Sjálfri bregður henni
svo við, er hún fær hið sanna að vita
og sér spegilmynd sina, að hún má
naumast á fótum standa; kveður hún
lífslind sina þrotna, líf sitt í eyði lagt
fvrir gullgræðgina, hallast hún svo að
barmi fornunnusta síns, Jóhanns, og
biður hann leiða sig heim í föður-
garð, því að þar vilji hún deyja. En
forlög Úlrikku leiða Ingibjörgu, sem
var að komast út á villibraut ágirnd-
arinnar, á rétta leið.
Þetta er í stuttu máli efnið. Sjálf-
ur segir höf. í formála leikritsins, að
sú sé ætlun sin með leiknum að reyna
að ræta upp, ekki að eins ágirndina
heldur yfirleitt alla einhliða viðleitni
mannsins í ytri efnum’, sem gerir að
engu fyrir honum hið eiginlega and-
lega ætlunarverk, sem honum er ætl-
að að vinna. Hversu mikið sem mað-
urinn fær áorkað á yfirborðinu, þá
stendur hann samt rauninni í stað, ef
hann vanrækir innri framþróun sína,
því að tíminn hleypur frá honum. —
ímynd allrar þessarar litils nýtu ytri
viðleitni á Úlrikka að vera. Og hvort
sem maður situr í berginu við skrif-
borðið, í höllinni eða sefur í legu-
bekknum — alt kemur i einn stað, ef
ei er hirt um hina innri framþróun.
Stefaníu — i leikslok.
Bergkonungurinn er crfitt hlntverk.
Hann bregður sér i ýms gerfi, kemur
fram sem málmnemi, gamall betlari
og drottinn undirdjúpanna. Hið stóf-
fenglega, háleita og mikilúðlcga, sein
ímyndunaraflið íklæðir svo veldHgan
»anda« er eigi hægt aðgöngu að sýna,
svo að á verði trúað — og þá sizt á
leiksviðinu hér, þar sem ytri hjálpar-
tæki eru svo nauða-fáskrúðug og lé-
leg. — Því fór sem vænta mátti, að
sízt tókst Bjarna »konungurinn í allri
sinni dýrð« — en i betlaragerfinu var
leikur hans nákvæmur og réttur, lát-
æði gott og framburður hans var
jafnan í bezta lagi, skýr og áherzlú-
góður, og mættu aðrir leikarar vorir, sér
að meinalausu, festa sér það i minni.
Enn hefir Bjarni sér til ágætis, að
hann býður af sér góðan þokka á
leiksviðinu. Góðir leikkraftar meðal
karlmannanna hafa verið mjög af
skornum skamti undanfarið. Það er
því gott til þess að vita, að félaginu
hefir bæzt svo nýtur leikari og til
góðs líklegur sem Bjarni er.
Emilía Inriðadóttir fór vel með sitt
hlutverk (Jóhönnu) svo sem hennar
var von og visa. Hún er ein af þeim
leikkonutn, sem leikhús má ekki án
vera, ein af þeim leikkonum, sem
jafnan má treysta, að skilji hlutverk
sitt, og leiki aldrei illa. Guðrún Ind-
riðadóttir leikur Ingibjörgu snyrtilega,
en lítið hægt annað að gera úr því
hlutverki.
Stefdn Runóljsson leikur Jón bónda.
Gerfi hans er gott, en sá er ljóður á
ráði þessa leikara, að hann er oftast-
nær á leiksviðinu eins og maður, scm
kemur í hús fyrsta sinni, og veit eigi
almennilega hvernig hann á að sitja
eða standa.
Friðfinnur Guðjónsson finst manni
vera eins og »utan garna« í hlutverki
Axels, — hlutverkið fer honum ekki
vel og Helgi Helgason hefir litlum
tökum náð á Jóhanni. Það er eins
og honum sé ekki snerpan gefin á
leiksviðinu. Leikur hans er alt of til-
breytingarlítill. Maður verður t. d.
alls ekki var við, hvorki i látæði
né málfæri, að honum búi nokkur
reiði í brjósti, er hann þýtur burtu frá
Úlrikku — í reiðil
Þá hefir Jónas H. Jónsson lítiðhlut-
verk með höndum, Gústaf bónda, bið-
il Ingibjargar. Það skal sagt fortaks-
laust að Jónas hefði aldrei átt að sér
að taka þetta hlutverk. Svo nauða-
illa liggur það fyrir hann.
Leiktjöld eru öll ný — máluð af Bjarna
Björnssyni og Jónasi H. Jónssyni — og
að því erleikmaðurfær um dæmt mikið
velafhendi leyst.— Hellirinn var dimm
ur og draugalegur, svo sem vera bar,
þar sem aldrei sér sól, en saggi og
hverskyns svæla gagnsýra alt. Þar
skorti á baktjald, er hyldi Ulrikku,
unz bergkonungurinn hefir mælt fyrir
seiðinn, þvi að svo mælir leikritið
fyrir.
Fjalllendið undir Kinnarhvoli er
frítt — gleður augað — og setstof-
an í bæ Jóns er sérstaklega góð.
. Ego.
Það þarf verulega góða meðferð á
leiksviði — þetta leikrit, ef það á að
njóta sin. Svo góðri meðferð sætti
það yfirleitt, að vel mátti við það
una. Og þau hlutverkin, sem lang-
mestu skifti um, bergkonungurinn og
Úlrikka, fóru þeim’ Bjarna Björnssyni
og Jrú Stejaniu að sumu leyti mikið
vel úr hendi.
Eg hélt í byrj un leiksins að Úlrikka ætl-
aði að lenda í brotujn fyrir frú Stefaníu
— myndin ætla að verða óskýr, tökin
á leiknum fálmandi. En eftir því sem á
Fáninn og Ungmenuafélðg-
in. Svohljóðandi tillaga var sam-
þykt á fundi Ungmennafélags Akur-
eyrar 16. þ. mán.:
Til að hrinda Jánamdlinu áleiðis
álítur Jélagið heppilegt að lógleiddur verði
sérstakur staðarjdni og ákveður pvi að
heita sér Jyrir að skorað verði d ncesta
alpingi að sampykkja lög pess ejnis og
telur ceskilegt að lögin geti öðlast gildi
Jyrir /7. júni ipn.