Ísafold


Ísafold - 04.03.1911, Qupperneq 2

Ísafold - 04.03.1911, Qupperneq 2
50 ISAFOLD Gísíi Sveinsson og Vigfús Einarsson yfirdómslögmenn. Skrifstofutimi ll1/2—I og 5—6. Þingholtsstræti 19. Talsimi 263 að leg^ja til ókeypis eða ódýrt vinnu- lið. A þenna hátt yrðu regluleg og góð not að starfskröftum skógræktar- mannanna — og vel unnið fyrir þeim launum, sem greidd eru af landsfé, í stað þess að nú verða starfsmennirnir að þeysa úr einum staðnum í annan, til að líta eftir — og líta eftir — i raun og veru til smárra nytja, þangað til búið er að gera það, sem að ofan greinir. En ef eiuu sinni er búið að ljúka þessu verki um alt landið, yrði umsjónin allan annan veg, og nóg yrði þá að gera við viðhald og annað. Bændur mundu og líta öðru visi á skógræktina, ef farið væri að þessum ráðum, því að það sem nú veldur miklu um tortrygni og trúleysi þeirra á skógræktinni og jafnvel kala til henn- ar, er krafan sú, að þeir eiga að hlýða friðunarboðinu, en eru 'eigi að neinu studdir til að koma girðingum i verk. Eigi mundi á löngu liða, að hjá þeim kviknaði áhugi, þegar kjarrið tæki að vaxa á þá lund, sem reynslan þegar hefir sýnt að verða mundi — ef girt væri. Þetta árið var valið dálítið kjarr- lendi á hverjum bæ, er friða skal. Ef úr girðingum yrði, mundi víða henta bezt, að bæirnir slægju sér saman og létu af hendi sameiginlegt skógarlendi til að láta girða, reiknað út eftir brenni- þörfum o. s. frv. hverrar jarðar um sig. Brenni er nú hægt að taka — á sem svarar 120—200 dagsláttum alls. Fer það eftir gæðum kjarrsins. Ef litið er á fjárhagslega hlið skóg- ræktarmálsins, er það auðsætt, að skógræktin muni eigi svara kostnaði um margra ára bil. En flestum mun ljóst, að eg held, að til eru margar hliðar á því máli, eigi minna verðar. Hr. landritari, Klemenz Jónsson, skýrði mér frá því í vetur, að lands- stjórnin væri óánægð með fyrirskip- anir mínar; það færi of mikið í ferða- kostnað og stjórnin hefði litlar tekjur af skógum þeim, sem keyptir hefðu verið. A Hallormsstað mætti selja all- mikið, en það hefir eigi verið nægt fé fyrir hendi til að láta höggva það, sem hægt mundi að selja. A Vöglum er erfitt að selja brenni, af því bænd- urnir eiga nægan skóg sjálfir. í vetur verða tilraunir gerðar til að flytja hrís yfir heiðina til Akureyrar, en eg efast um, að það svari kostnaði. Til ferða- laga hefir eigi verið eytt meiru en óhjákvæmilegt var — það sé eg full- vel. Sjálfur hefi eg eigi einu sinni notað það, sem eg átti tilkall til, því að eigi verður þess krafist af embættis- mönnum á landi hér, að þeir fari langferðir fylgdarlaust. En eg fór þó fylgdarmannslaus frá Egilsstöðum til Akureyrar og frá sýslutakmörkum Austur- Barðastrandarsýslu yfir Kalmans- tungu til Reykjavíkur og ennfr. um Arnes- og Rangárvallasýslur. Það var vitaskuíd ekki mikið í sölur lagt af minni hendi, því að mér líkar vel að ferðast einn, þar sem mér er það unt, en 300 kr. sparnaður var það þó. Landritarinn sagði meira að segja, að mér yrði eigi endurgoldinn einn eyrir af þvi, er eg hafði lagt út fyrir fæði og gisting, þótt ráðinn sé eg upp á það, að ferðakostnaður sé mér gold- inn — og svo hefir einnig verið síð- ustu árin, án þess fundið væri að af neinum. Sanngjarnara virðist mér, að eg fengi að sæta sömu kjörum eins og símastjórinn og landsverkfræðing- arnir, því að lengstar ferðir og erfið- astar allra embættismanna hefi eg. Væri það þó dálítil uppbót fyrir auka- kostnað þann, er ferðalög jafnan hafa i för með sér. Eg hefi þvi góða samvizku — gagnvart þessarri kvörtun yfir mér. Eg er sannfærður um, að eg hefi beint skógræktarmálinu á rétta braut — og eg mundi þræða þá braut áfram, ef stjórnin veitir það fé til þess, sem þarf. Stjórnarskifti á Frakklandi. Símfregn frá Khöfn 3. marz ’ll. Aristide Briand er látinn af stjórn í Frakklandi. Hann og ráðuneyti hans var felt í þinginu fyrir nokkurum dög- um og hefir nú fengið lausn. Njrtt ráðuneyti er þegar myndað. Yfirráðherrann nýi heitir Monis. Hann var dómsmálaráðherra í ráðuneyti Waldeck-Rousseaus 1902. Um Sauðárkrókslæknishörað sækja þess- ir: Friðjón Jensson, Halldór Stefánsson, Ingólfnr Gislason, Jónas Kristjánsson 0g Magnús Jóhannsson. Fyrirniyndar-meginregla í embættisrekstri. Það var eitt með öðru talið hinum fyrri Landsbankagæzlustjórum til afsök- unar í neðri deild um daginn, að þeim hefði verið svo illa launað, að engin nærgætni væri að ætlast til að þeir verði meiri tíma til starfs síns við bankann en þeir gerðu: að jafnaði 1 stund á dag. Þetta var hjáverk, er þeir unnu auk embættis síns, sem er allvel laun- að, öðrum 4.800, en hinum 2.800 kr., en embættið hvorugt tiltakanlega erfitt nétímafrekt, annað dómarastarfvið yfir- dóminn, en hitt aðallega svonefnd for spjallsvísindakensla við æðri námsstofn- anirnar hér, alla nemendur þar í einu lagi, og það aðeins 8—9 mánuði. Sumir menn halda því fram, að því ríflegar sem embættismenn fá launað það af landssjóði sem þeir gera, hvort sem mikið er eða lítið, hvort sem þeir verja til míklu eða litlu af venjulegum vinnutíma, hvort heldur t. d. 9/io> 5/10 eða jafnvel aðeins Vio> því dýrra eigi þeir að selja sömu stofnun, landssjóði, það sem þeir vinna í hjáverkum sínum. Þeir e i g i tíma-afganginn frá landsvinnunni. Og því minni (styttri) sem tíminn sé, því hærra sé kaupið um kl.stundina. Það geti orðið ekki allfáar kr. í há- launuðum embættum. En það sé að svíkja sjálfa sig, ef ekki sé sett við- líka mikið upp á hjávinnuna. Það sé að selja eign sína, tímaafganginn frá embættum, óþarflega og heimsku- lega ódýrt. Þess vegna hafi verið alveg rétt af gæzlustjórunum, að vinna ekki lengri tíma á dag í þarfir bankans en þeir gerðu, en það hefði orðið að gera, ef þeir hefðu unnið meira en tíðast gerðu þeir: að líta á fasteignarlán- beiðnir og fasteignarveðskjöl, en láta aðrar lánbeiðnir, aðallega víxillán og ábyrgðarlán, eiga sig að mestu, þ. e. lofa þeim að ráða slíkum lánum al- einum,bankastjóranum eða hinum óæðri starfsmönnum bankans. Þá hafi ekkert varðað um það, þó að bankalögin segi ekkeit lán löglega veitt nema bankastjórn-w geri það, þ. e. bankastjórinn og gæzlustjórinn annarhvor eða báðir. Ur því að starfið sé svona skammarlega illa launað, ekki nema 2 Va kr. um tímann, a u k mikið góðra embættislauna, þá hafi verið alveg rétt af þeim að vera ekki að leggja meira á sig en þetta. Þeim hafi ekki komið hót við, þó að ábyrgð- arlausir óæðri starfsmenn bankans lánaði eftirlitslaust út svo hundruðum þúsunda kr. skifti út á víxla, sem enginn sæi í bankanum nema þeir. Þeir séu raunar skipaðir af alþingi eftirlitsmenn við bankann, þ. e. qœzlu- stjórar; en gæzluskyldan nái alls ekki það langt, úr því að kaupið fyrir gæzlu þeirra séu slikar hundsbætur, sefn þær séu. Aðrir hafa raunar þá hérvilluskoðun, að vel fari á því, að ríflega launaðir landsþjónustumenn vinni eitthvað dá- lítið í almennings þarfir fyrir litla sem enga þóknun, og vitna í það, að þetta geri býsna-margir hinir óæðri starfs- menn þjóðarinnar, meðal annars allar hreppsnefndir á landinu og mesti fjöldi annarra opinberra nefnda. En um það segja þeir að sé öðru máli að gegna. Það séu almúgamenn, ólærðir og ómentaðir alþýðumenn, en hitt höfðingjar, sem kostað hafi ógrynnum fjár og varið mjög mikl- um tíma til að gera úr sjálfum sér svo hámentaða, hálærða og mikla menn, sem þeir séu. Mér skilst sem þeir hafi meira en lítið fyrir sér, sem þessu halda fram, enda veit eg að þeir eru sjálfir yfirleitt háiærðir og nálaunaðir höfðingjar! Fyrnefnd regla um að skamta land- inu úr hnefa sér tíma og fyrirhöfn við embættisrekstur eftir því, hvort embættismanninum finst launin vera ríf eða óríf, bjargleg eða óbjargleg, höfðingleg eða kotungsleg — hún er afarhandhæg. Mér liggur við að dást að henni. Sýslumaður á t. d. að halda mann- talsþing í 12 hreppum. Þyki honum nú launin vera helmingi lægri en ætti að vera, sleppir hann 6; hleypur yfir þau. Eða hann á að annast tollheimtu í 3 kaupstöðum, sjáifur eða með að- stoð umboðsmanns. Finnist honum nú laun sin vera þriðjungi minni en vera ætti, lætur hann 1 kauptúnið eiga sig; o. s. frv. Prestur á að þjóna 2 kirkjum. Því skyldi hann vera að þjóna nema ann- ari, ef hann telur sér vanlaunað I Með messufjölda fer hann alveg eins. Já, víst er það handhæg regla og einföld, aðdáanlega handhæg. Þingmaður. ---------- Nýir botnYörpungar. T-veir — heldur en einn eru nú að bætast í hóp botnvörpunganna reykvísku. Er þá full tylftin. Thor Jensen kaupmaður keypti fyr- ir skömmu botnvörpung í Hull — og kom sá hingað í fyrradag. Skírður er hann: Snorri %oði — og mun fengsæll verða ef hann ber nafn með rentu. Hinn nýja botnvörpunginn kaupa eigendur Jóns forseta. T y 1 f t af botnvörpungum gerð út í höfuðstaðnum — það er gott for- dæmi. Fjármagnið til útgerðar þessarra nýju botnvörpunga, sem og til hinna eldri, mun fengið hjá íslandsbanka. Það er gleðilegt, að bankinn hefir getað teygt sig þetta langt einmitt til þessarra fyrirtækja. Því að flestum mun ljóst, að botnvörpuveiðarnar eru arðvænlegri atvinnuvegur en flest ann- að hér um slóðir. -J=====*=====fr Sitt af hverju hvaðanæfa. Cook Norðurpólssvikari hefir nýverið ritað 3 greinar í ameríska blaðið Hampton Magazine. Hann fær 27000 kr. fyrir hverja grein. Skrifstofa Júlíu. Stead, hinn heims- frægi ritstjóri og spíritisti, hefir stofnað útibússkrifstofu — frá skrifstofu Júlíu 1 London — í París, Málefnið — ekki maðurinn! Spörkunarliðið neytir allra bragða til þess að festa hönd á einhverju, er nota megi til afsökunar frumhlaupinu mikla, næturvíginu alræmda. Það sem þeim verður næst fyrir er þá þetta, að ráðherra hafi horfið frá stefnu flokksins, brugðist málstað sjálfstæðis- manna. Því hafi þeim þótt óverjandi að fylgja honum lengur.— Þeir séu ærlegir drengir og hreinlyndir — peir fylgi málefnum en ekki mönnum! Þessi afsökunin er ofboð áferðar- snotur á pappírnum. En haldlaust hjóm — þá er krofin verður til mergjar. Hvernig stóð á því, að þessir mál- e/wwdýrkendur — létu það uppi lengi vel, að þeir mundu engan óróa gera ef meiri hluti sjálfstæðisflokksins á þiugi vildi halda B. J. við ráðherra- dæmið? Hvar var málejnisdýrkunin í þann svipinn? Var ekki jafn óverj- andi fyrir brennumenn að svíkja mál- efnið — þótt meiri hluti flokksins fylgdi manninum ? Vitaskuld — eý hér væri um þunga miðjuna að tefla — eý þetta málefnis — afsökunarskjal væri eigi yfirdreps- skapur fyrir flestum spörkunarliða. Ráðherra hefir sem sé í en%u brot- ið í bág við stefnuskiá flokksins. Það hafa verið Slnávægileg ágreiningsmál, sem í milli hafa borið oýan á, svo litilsvirði flestöll, að naumast voru eldhúsdags-efni. Ágreiningurinn aðal- lega um aðýerðina, sem beita eigi gegn Dönum. Þann ágreining mátti ræða og athuga — láta óskir í ljósi um hvatlegri aðferð, ef þurfa þætti — en að nota þetta lítilvæga ágreinings- hrófatildur til þess, sem gert hefir ver- ið — er með öllu ótækt. Að gera þann óvinafagnað fyrir slíka smámuni — að sverjast í lag við ýadda fjandmenn stefnuskrár flokksins um að steypa foringja flokksins — manninum sem mest hefir fyrir flokk- inn unnið, — manninum sem allir játa, að langmest sé að þakka sigur sjálfstæðismanna 1908, — manninum sem mest á ítakið í þjóðinni allra forustumanna flokksins — livaða vit var í því? Og út yfir allan þjófabálk tekur — að gera þenna hégóma og óánægju- gutl —- að slíku kappsmáli nú, á síð- asta þingi fyrir kosningar, nokkurum mánuðum áður en þjóðin er kvödd til dóms. Hvað lá á að drýgja þetta óhappa- verk nú? Þvi ekki að lofa þjóðinni að skera úr ? Spörkunarliðið gat stöðvað hvert það mál, er það vildi á þessu þingi alveg eins þótt eigi tæki það til þessa óyndisúrræðis? Því þá eigi að bíða kosninga? Með því móti hefðu sjálfsagt sparast ein ráð- herraeftirlaun. En ef til vill hefir pað eigi »passað í kramið*. Mér finst, hvernig sem þessu at- hæfi er fyrir sér velt, ein og sama hliðin snúa upp: Fljótráðið, misráðið, glaprœði, óhappaverkl Enda er frægðarverkið fram haft með pví einu móti að gera samsæri við Uppkastberserkina. Því að sam- særi var það og er, hversu oft sem hinir sí afsakandi spörkunarliðar reyna yfir það að breiða. Er pað ekki nægilegt til að fylla alla góða menn óhug. Að nota fulltingi óvinanna, þeirra er feigt vilja af öllum mætti máleýnið, er klofningarnir telja ráðherra dauða- sekan fyrir að hafa eigi sótt nógu fast — hvað á að kalla svo gráan leík? Er hægt að bera traust til þeirra manna um ýorustu, er eigi víla slíkt fyrir sér? Hefði það verið rétt af ráðherra að fleygja forustunni í hendur þessara manna, leggja sig eins og tusku und- ir fyrsta lag, krjúpa lúpulega inn í skel fyrir fyrsta innanflokksáhlaupi ? Neil Hið eina sjálfsagða var að krefjast þess að fá spilin lögð á borðið á þing- inu, frammi fyrir allri þjóðinni. Hennar er það svo að skera úr. Og ef dæma má eftir hljóðinu hér í bænum og þaðan af landinu sem frézt hefir, þarf eigi þvi að kvíða, að þjóð- in láti sitt eftir standa um að hreinsa til við næstu kosningar og: ýleygja hisminu, en hirða kjarnann. Karl í koti. Frá alþingi. Síðustu dagana ekkert markvert gerst í umræðum. Fundir stuttir. Mest- um tíma þingmanna varið til nefndar- starfa. Þessar nefndir hafa skipaðar verið frá því á miðvikudag — aliar i neðri deild: Vegalaganeýnd: Ólafur Briem, H. Hafstein, Sig. Sigurðsson, Björn Þor- lákssoti, Einar Jónsson. Neýnd til að athuga skógrœktarmál: Sig. Sigurðsson, Pétur Jónsson (skrif- ari), Ól. Briem, Sig. Gunnarsson (form.), St. Stefánsson (Eyf.). Neýud til að ýjalla um eýtirlaun ráð- herra: Jón Þorkelsson, Björn Sig- fússon (form.), Bjarni frá Vogi (skrif- ari). Rottulaganeýnd: Björn Þorláksson, Jón Þorkelsson, Óiafur Briem. Kirkjujarðaneýnd (til að athuga nú- gildandi iög um sölu kirkjujarða): Björn Sigfússon (form.), Stefán Stef- ánsson Eyf., Hálfdan Guðjónsson, Jón Þorkelsson (skrifari), Eggert Pálsson. Lambaneýnd (til að athuga afnám fóðurskyldu Maríu og Péturslamba, Ólafur Briem, Jóh. Jóhannesson, Jón Jónsson frá Múla, Bened. Sveinsson, Stefán Stefánsson (Eyf.). Lœknaneýnd (til að íhuga breyting á Iæknaskipunarlögum): Skúli Thor- oddsen, Jón [ónsson S. M. (skrifari), Ólafur Briem (form ), Eggert Pálsson, Sig. Gunnarsson. Reykjavikur-annáll. Dansleikur. Reykjavikur-klúbbur efnir til mikillar danaveizlu i kvöld i Hótel Reykjivik. Fiskifloti Reykjavikur er nú lagðor út að mestu. £>etta úrið ganga héðan 39 þibkip og 12 botnvörpungar. Fríkirkjuprestur getur ekki messað & morgun vegna hæsi. Hjúskapur: Ingimundur Ögmundsson (frá H&lsi) Túngötu 50 0g ym. Auðbjörg Árna- dóttir, 2. marz. Halldór Hansen stud. med. og ungfrú Ólafia Þórðardóttir. Gift 1. marz. Messur i frikirkjunni á morgun: Kl. 10. sira Jóh. Þorkelsson. Kl. 4 síra Bjarni Jónsson. » Þórólfur I Nesi, islenzki leikurinn verður leikinn i kvöld og á morgun — og svo ekki söguna meir. Því miðnr eigi unnist tæki- færi fyrir Isafold til að rita itarlega um leikinn að svo stöddu. Þeir sem ekki hafa séð leikinn — ættu eigi að láta þessi slðustu forvöð vannotuð. Hörmuiegt slys. Á mánudaginn urðu úti á heimleið frá Blönduósi tveir merkisbændur Húnvetninga, þeir fíjörn Sigurðsson frá Litlu-Giljá og Bjórn Kristóýersson frá Hnausum. Blindhríð var á. Björn Kristófersson fanst af tilvilj- un á þriðjudaginn — skamt frá Blöndu- ósi. Var þá leitað Björns Sig. og fanst hann eftir skamman tíma. Bj. S. var bróðir Sigurðar á Húns- stöðum, er lézt voveiflega 27. jan. — Varð réttur mánuður milli bræðranna. Ráðherraeftirlaun. Þeir Ben. Sv., Jón Þorkelsson, Vog- Bjarni, Hvannár-Jón og Sig. ráðun. bera fram frumv. um, að ráðherra- eftirlaun skuli vera 1200 kr. á ári jaýnmörg ár og pjónað hafi. Lögin eiga að öðlast gildi pegar i stað. Þetta ákvæði, pegar í stað, hefir verið misskilið heldur hrottalega af sumum — meira að segja þingmönnum. Það var verið að benda einum sparnaðarpostulanum i spörkunarliðinu á, að hann væri ekki hræddur við að bæta við eftirlaunamennina; enginn hlutur væri vissari en að ráðherrann, sem næstur yrði, sæti ekki stundu fram yfir kosningar! Hann var nú á því — »en«, sagði hann, — »hann fær ekki nema nokkur hundruð kr. í eftirlaun einu sinni fvrir alt* I Svo? Já, hefirðu ekki séð nýja frumvarpið? — 1200 kr. í eftirlaun — jafnmörg ár og þjónað hefirll Ef þeir væru margir slíkir — lög- gjafar vorir!

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.