Ísafold - 08.03.1911, Side 4
56
ISAFOLB
Þangað er þá Skiili kominn!
Hvert verður næsta sporið?
»Nii er öldin önnur,
öll af dygðum snauð!
Mér hefir komið vísuerindið að
tarna í hug hvað eftir annað, síðan
hann Skúli og þeir félagar komu með
vantraustsyfirlýsinguna á hendur ráð-
herranum, gerðu bandalag við Heima-
stjórnarmenn og feldu með þeim hætti
Björn Jónsson frá völdum.
Öldin er önnur nú en þegar hann
Skúli kom úr utanförinni frægu, sam-
bandslaganefndarferðalaginu, og mikill
meiri hluti þjóðarinnar vegsamaði
hann fyrir að hafa ekki látið glepjast
af hylliboðum Dana og ginnast út í
innlimunarforaðið. Þá var hann þjóð-
inni þarfur maður, það má hann jafn-
an eiga. Þá stóð hann sig og átti
þjóðarþökk skilda.
En — »Adam var ekki lengi í
Paradisc.
Það varð, því miður, dauft eftir
múkinn hjá Skúla, og — þó taka
óhappaverkin síðustu yfir alt annað.
Allan þann tima, sem um endilangt
land var háður bardaginn móti inn-
limunaruppkastinu sæla, þar sem marg-
ir góðir drengir gengu fræknlega fram
og hlífðu sér hvergi, þá sat Skúli
steinþegjandi hjá öllum þeim vopna-
viðskiftum og gerði ekkert, sem tel-
jandi sé, til að afla sigurs hjá þjóð-
inni þeim málstað, sem hann þó
hafði tekið að sér suður í Danmörku.
Margan furðaði á því móki og
hlutleysi; en aðrir fyrirgáfu honum
þó, vegna þess að hann í Kaupmanna-
höfn spyrnti við innlimunarfjötrinum
danska, sem flokksmenn hans í nefnd-
inni urðu að gjalti fyrir.
En meðan þetta mók var á Skúla og
honum virtist á sama standa, hvort
uppkastið yrði ofan á eða ekki, þá
var annar maður, sem ekki svaf, ekki
dró sig í hlé, ekki lét sverð sitt ryðga
í slíðrunum.
Og — sá maður var Björn Jónsson.
Hann blés í lúðurinn svo hátt, að
þjóðin vaknaði; hann barðist sjálfur
og sparaði ekki sjálfan sig, og hann
'hvatti aðra til að ganga fram í orust-
una.
Að svo miklu leyti, sem það var
nokkrum einum manni að þakka, að
baráttan móti uppkastinu endaði með
sigri, þá var sigurinn Birni Jónssyni
að þakka. Sagan mun votta það á sín-
um tíma, hvað sem þeir segja, sem
veitast að honum.
Fyrir þessa skuld var hann kjörinn
til ráðherra, eins og verðugt var.
Og pjóðina er ekki jarið að iðra pess
enn.
En þó að Skúli breiddi feld að
höfði sér, meðan öll þjóðin skiftist i
tvær sveitir og barðist um uppkastið,
þá er það orðið heyrinkunnugt, að
nú er hann vaknaður og af honum
mókið.
Og hvað hefir hann þá afrekað síð-
an hann nú vaknaður og albrynjaður
kom fram á völiinn ?
Hann hefir með nokkrum öðrum
rofið þann flokk, sem áður barðist
sem einn maður móti sameiginlegum
óvini, rofið hann á óhentugasta og
óhappasælasta tíma, og felt þann
manninn frá völdum, sem með frá-
bærum dugnaði barðist á hólminum
móti innlimuninni dönsku, meðan
allur landslýður vissi ekki um Skúla,
hvort hann væri í þessum heimi eða
öðrum.
Svo langt er Skúli kominn, að hann
með góðfúsri(l) aðstoð Heimastjórnar-
manna hefir feldan þann foringjann,
sem hafði dug og dirfð að taka upp
merkið og bera það fram til sigurs,
er það féll úr hendi Skúla við heim-
komu hans.
Það hreystiverk mun líka á sínum
tíma, eins og öll önnur, skráð á spjöld
sögunnar.
Þangað er þá Skúli kominn!
En hvert verður næsta sporið?
Sumir spá, að hið næsta muni að
fallast i faðma ennþá frekara við Heima-
stjórnmenn, til þess að geta flotið á
áraburði peirra upp í ráðherrasessinn,
eða til að ljá peim hönd til að koma
ÍAðalfundur í hlf. Skíðabrautin
verður haldinn laugardaginn n. þ. mán. kl. 872 síðd. í húsi K. F. U. M.
Þar verða lagðir fram reikningar félagsins; skýrslur yfir hag og starfsemi þess
á siðasta ári; skýrsla félagsstjórnarinnar um framkvæmdir á næsta ári; upp-
dráttur og kostnaðaráætlun um endilega skíðabraut.
Hluthöfum verður þar úthlutað hlutabréfum sínum. — Allir ungmenna-
félagar hafa aðgang að fundinum. Stjórnin.
dcunska
smjörlilri cr
BiðjiÖ um fegundírnar
„Sólcy” „Ingótfur’* „Heh[a”eða Jsafolcf
Smjörlikið einungij frat
Otto Mönsted ‘fr.
Kaupm^nnuhöfn oa/frd5um
i Danmðrku.
Margföldunartaflan,
æfintýri handa börnum (til að læra minni margföldunartöfluna)
eftir Sigurbjörn Sveinsson, fæst hjá bóksölum, verð 15 aura.
^bragðgott nœrinaargott endingargott
O njiiiiiiiiiimHHi v 0111111101111110101 UI hiiuubhiUíUUi h miiiuiniiuuini » «rmiunuuiiuiD* n aiuuiuiiinimu <11 mnnnnmmwm r tliilUIUilllllliikV =>
Miklar birgðir af Télum og áhöldum
3 tii heimilisþarfa og eldhusnotkunar. Stálvörur úr
fínasta og bezta efni. Verðskrár eftir beiðni.
0. €^fí. %3tom & 0o.
cJioBGnfíavn c3.
Póstkorta-album
í bökverzlun Isafoldar.
einhverjum peirra gæðing, Kr. J. eða
öðrum, til hinnar sömu tignar.
Tíminn mun sýna, hvort þessi spá
rætist.
En fari svo, þá verður fróðlegt að
sjá þá L. H. B. og Skúla ganga undir
sama jarðarmen og blanda blóði sam-
an; og haldið hefði maður það ein-
hvern tíma, hérna á árunum, þegar
ísafjarðarmálin voru á prjónunum, að
Skúla þætti heldur dýr og óaðgengi-
leg sú vara, sem kostaði það, að hann
ætti í kossaflensi við L. H. B. og
yrði að leggjast flatur í duftið við
tærnar á Heimastjórnarskurðgoðunum.
En — »Nú er líka öldin önnur,
og — öll af dygðum snauðc.
Víga-Styr.
tft um landið!
Isajold er þegar farið að berastbréf
frá málsmetandi stjórnmálamönnum
utan Reykjavíkur um það hvernig litið
er á nœturvígið 25. Jebrúar. — Vér
höfum og átt tal við ýmsastjórnmála-
menn í síma og kveður allstaðar við
sama hljóðið:
Hvaða vit er í pessul
Þetta var meira óhappið!
Hvað hugsa mennirnir, o. s. frv.
Vér birtum að þessu sinni bréfkafla
úr Arnessjslu og annan frá manni ein-
um í grend við Rvík, er all mjög hefir
verið við stjórnmál riðinn.
Árnessýslubrétið hljóðar svo:
»Vandræðamennirnir.
Áreiðanlega er nú ekki nm annað talað
viðsvegar um land alt en tíðindi þau, er
nú kafa gerst ú alþingi Islendinga. Menn
geta ekki almennilega úttað sig á fréttunum,
geta ekki trúað sínum eigin eyrum. — Og
kvern gat órað fyrir þvi, að slík firn mnndu
fréttast frá alþingi. Það er hörmulegra en
orðum verði að komið, að landvarnar-
menn skyldu eiga það erindi á alþing að
sverjast í fóstbrœðralag við uppkasts-
kappana sælu til þess að steypa Birni
Jónssyni frá völdum. Og þetta skeður fá-
úm vikum áður en 100 ára afmælisdagur
Jóns Signrðssonar rennur upp.
Yilja ekki vandræðamennirnir, (— svo eru
klofningsmenn alment nefndir hér) líta yfir
liðinn tima, líta á hvað Bjprn Jónsson
hefir gert fyrir sjálfstæðismál IslaDds. Yerða
þeir þá ekki að játa, að hefði hann ekki
barist jafn drengilega 0g hann gerði 1908,
þegar hættan mikla vofði yfir, að þá væri
Uppkastið sæla i sinni fyrstu og verstu
mynd orðið að lögnm á landi voru, — fóst-
urjörðin fjötrnð um aldur og æfi.
Og á móti þessum manni mynda þeir
samsæri með hans verstu fjendum og steypa
honum frá völdum. Sakir þær, sem þeir
hafa á hendur honum eru svo smávægilegar
að naumast mundi hatursmönnum hans
hafa komið til hugar að nota þœr til van-
transtsyfirlýsingar.
Hvað hafa svo þessir brjóstumkennanlegn
menn gert. Þeir hafa stofnað velferðarmál-
inu mikla í hersýnilegum voða, gert þingi
Islendinga mikla smán — og sýnt að sjálf-
ir éiga þeir ekki heima á löggjafarþingi
hinnar islenzku þjóðar.
Hér eru menn einróma um, að rjúfa eigi
þingið — svo þau kjördæmi sem kosið hafa
þessa menn, fái þegar i stað tækifæri til
þess að senda aðra sjálfstæðismenn i þeirra
stað.
Það er merkilegt, að eg heyri engan mann
þeim liðsyrði, hvorki sjálfstæðismenn
né heimastjórnarmenn. Margir heimastjórn-
armenn hafa sagt við mig þessa dagana líkt
þessu: »Yið vildum Björn frá völdum, —
en á œrlegan hátt. Yið bjuggumst við að
hann »lægi« á bankamálinu,en ekki áódreng-
skap sinna eigin flokksmannna*.
Svona liggur þá málið fyrir. Það er á-
reiðanlegt, að þjóðin mun verða samtaka í
því, að kveða þenna ódrengskap niður,
láta vandræðamennina fá makleg málagjöld.
Það eru, sem betur fer, til margir ærlegir
menn i báðum stjórnmálaflokkunum, þó heit
sé orustan stundum.
Burt með vandræðamennina af þingil
Hrólfur gamli.i
Hinn bréfkaflinn hljóðar svo:
»Það liggur við, að eg óski þess stund-
um þessa dagana, að vera orðinn þingmað-
ur, ef eg mætti víkja i minn stað af þing-
inn hverjnm sem eg kysi helzt. Annað veif-
ið hefi eg þó svo mikla andstygð á þvi,
sem verið er að gera, að eg vildi helzt
komast hjá þvi að hugsa um það. Eg get
ekki betur séð en að verið se að ráðast
aftan að þjóðinni til þess að niðast á —
og koma á eftirlaun — þeim manninum, sem
þjóðin á mest gott að þakka af öllum nú-
lifandi mönnum. — Og mun hún fyr eða
síðar láta þakklæti i ljósi? Hvað ætli
kjósendur samsærismanna segi? Eða vita
þeir það sjálfir.c J.
------9S6-----
Frá alþingi
Neðri deild: Laugardagur 4.
marz. Sjö mál á dagskrá — til 1.
eða 2. umræðu — og engin þeirra
stórmál. Meðal þeirra frumvarp frá
öllum Múlasýsluþingmönnum um að
stofna bændaskóla á Eiðum með sama
fyrirkomulagi eins og Hvanneyrar- og
Hólaskóla. — Þá voru og til umræðu
frumvörp um að lóggilda verzlunarstað
að Hámundarstöðum við Nýpsjjörð og
að stœkka verzlunarlóðina í Gerðum.
— Kosin var nefnd til að athuga lög-
gildingafrv.: Sig. Gunnarsson, Jón
Sigurðsson, Þorl. Jónsson, Bjarni Jrá
Vogi og Steján Stejánsson.
Mánudagur 6. marz. Elleju mál á
dagskrá. Meðal þeirra frumvarp frá
þrímenningunum dr. Jóni, Benedikt
og Bjarna frá Vogi, um lögskráning
mannanafna þ. e., að í öllum opinber-
um skrám skuli jafnasn rita manna-
nöfn þann veg, að skírnarnafn standi
á undan föðurnafni, nema ættarnójn
sé um að tefla. Skal enginn maður
skyldur að greiða reikning, nema á
þenna hátt sé hann ritaður. — Út úr
frv. þessu urðu allstækar orðahnipp-
ingar milli þeirra dr. Jóns og Bjarna
öðrum megin, en Jóns Ól., Jóns frá
Haukagili, Hannesar Hafstein og Jóns
Magnússonar hinum megin. Þeir Jón
og Bjarni töldu vera um að tefla pjóð-
ernis-mál, það væri ófær sapakattar-
háttur« að hafa föðurnafnið skráð á
undan t. d. Jónsson frá Vogi Bjarni!
— í stað B. J. frá Vogi o. s. frv. —
Hinir vildu lítið úr þjóðernishliðinni
gera — töldu það hvorki gera til né
frá — í því tilliti, hvernig mannanöfn-
in væru í skránum rituð; — það sem
á ylti væri að fá sem haganlegast fyr-
irkomulag — og þá væri bezt, að
hafa föðurnafnið fyrst. — Allmjög var
farið út í aðra sálma í umræðum þess-
um. Jón frá Haukagili beindi þeim
orðum að dr. Jóni, að af frumvarpinu
legði sdragsúg misskilins þjóðernis-
rembingsc og flutti því næst erindi
um kínverska múrinn og Japana —
sagði, að Japanskeisari væri »mesti
maður á hnettinumc o. m. fl. Var
hann hávær mjög. Stóð þá upp Jón
dr. og kvaðst svara þeim J. Öl. og
H. H. — en aðrar rxður hejði hann
ekki heyrt. Var það skens til Mýra-
þingm. og varð að hláturl — Nefnd
var skipuð í málið: Bjarni, Jón dr.
og Jón 01.
Önnur mál helztu á dagskrá: frv.
frá þingmönnum Reykvikinga um að
kjósa skuli borgarstjóra í Reykjavík til 6
ára aj öllum atkvœðisbœrum kjósendum
til bæjarstjórnar, frumvarp frá fjárlaga-
nefnd um að veita Torja í Olajsdal
iyoo kr. ejtirlaun frá ársbyrjun 1912
og fyrirspurn til ráðherra frá Jóni
Hvannár um hvað gert hefði verið í
málinu um aðskilnað ríkis og kirkju.
Ráðherra svaraði, að ekkert hefði gert
orðið í því efni, engin atkvæðagreiðsla
getað farið fram, sökum þess, að ekk-
ert fé hefði verið fyrir hendi til þeirra
framkvæmda.
Þriðjudagur 7. marz. Tíu mál á
dagskrá. Allmiklar umræður urðu um
frumvarp, sem Jón Magnússon flutti
um, að áskilja öllum leyfi landlaknis,
er stunda vilja lœkningar. Böndin eru
þar reyrð allmjög að smáskamtalækn-
um og þótti sumum þingmönnum
(B. Kr. og sira Eggert) það miður, en
aðrir töldu sjálfsagt (Vog-Bjarui, Jón
M. og Jón Ól.). Frumvarpinu var
loks vísað til 5 manna nefndar og í
hana kosnir: fíjörn Kristjánsson, Þor-
leijur, dr. Jón, Jón Magn. og Jón jrá
Múla. — Állmiklar umræður urðu um
hið nýja frumvarp um búpeningskoð-
un og heyásetning (frá Sig. Sig.). Því
vísað til 2. umræðu eftir i1/^ tíma
stapp. Skýrt betur frá frv. seinna. —
Frest þann, er Hafnarlögfræðingum á
að veita til prójs þar, án aukaprófs
við lagaskólann — vill Jón Magn.
lengja um i1/^ ár og flytur frv. í þá
átt. Því vísað til 2 umræðu — Nýtt
læknishérað í Norðjirði vilja Múlasýsl-
ungar hafa. — Því vísað til lækna-
nefndar. Jón Þorkelsson vill láta
landssjóð kaupa Skálholt. Því máli
vísað til 2. umr.
Efri deild heíir lítið að starfa,
enda veikindi lagt 1. og 3. forseta x
rúmið nokkura daga — og er 3. for-
seti lasinn enn. — Engir fundir laug-
ardag og sunnudag. Þriðjudagsfundur
stuttur; — fjallaði um stýrimanna-
skólalög ný og dánarskýrslur.
6 duglegir menn
geta fengið atvinnu við þil-
skipaútveg á Vesturlandi frá því
seinni hluta marzmánaðar til miðs
septembermánaðar. Upplýsingar hjá
ritstjóra.
ForskriY selv
Deres Klædevarer
direkte fra Fabrik. Stor Besparelse.
Enhver kan faa tilsendt portofrit
mod Efterkrav 4 Mtr. 130 Ctm.
bredt sort, blaa, brun, grön og
graa ægtefarvet ftnulds Klæde
til en elegant, solid Kjole elkx
Spadserdragt for kun 10 Kr.
(2.50 pr. Mtr.). Eller 3x/4 Mtr.
135 Ctm. bredt sort, mörkeblaa
og graanistret moderne Stof til
en solid og smuk Herreklædning
for kun 14 Kr. og 50 Ore.
Er Varerne ikke efter Önske tages
de tilbage.
Aarhus Klædevæveri,
Aarhus, Danmark.
Ofn til sölu (reykbrennari), er
kostað hefir 120 kr., fæst með mikl-
um afslætti.
Verzlun Lindarg. 7.
Þrifln stúlka getur fengið vist
í Báruhúsinu uppi. Gott kaup.
Chika
er áfengislaus drykkur og hefir beztu
meðmæli.
Martin Jensen,
Kjöbenhavn.
Zinkhvftu-umboð.
Duglegir, álitlegir umboðssalar, kunn-
ugir málunarsölu, óskast til að selja
blýhvítu og zinkhvítu, þura og rifna
í oliu, í umboðssölu til kaupmanna
og stórnotenda á íslandi.
A/S. Christiania
Blyhvidt og Zinkhvidtfabrik.
Tækifærisg-jafir
í bókverzlun ísafoldar
AJmælisdagar, í skrautbandi. . . 3.00
Andvökur St. G. St. I.—III. . n.oo
Björnson, Á guðs vegum innb. 4.50
Bréf frá Júlíu...........— 2.50
Hafblik E. Ben...........— 3.50
Ljóðmæli Stgr. Th......— 4.50
Ofurefli E. H............— 5.00
Sálmabókin, gylt í sn., í hulstri 4.00
—---- í flauelisbandi . . 6.50
Vestan hafs og austan E. H. ib. 3.00
Maria Grubbe (Jónas Guðlaugs-
son þýddi) í skrautbandi . 4.50
Jólabókin II eftir Á.J. og Th.Á. . 0,50
Toilett-pappír
kominn aftur í bókverzlun ísafoldar.
2—3 herbergi og eldhús ósk-
ast til leigu 14. maí nk. í vesturbæn-
um eða á Laufásvegi.— Ritstj. visar á.
Budda fundin í fyrradag í mið-
bænum. — Afgr. visar á.
Vinum okkar og vandamönnum nær og fjær
tilkynnist hérmeð, að okkar elskaða dóttir,
Elln Ingunn, andaðist að heimiti okkar I. þ.
mán. Jarðarför hennar fer fram föstudag-
inn 10. þ. mán. kl. 3 e. hád. frá Túngötu 48.
Ingim. Ingimundsson.
Ragnhildur Ásmundsdóttir.
Innilegt þakklæti votta eg öllum þeim, sem sýndu hluttekningu við jarð- arför fósturmóður minnar Önnu sál- ugu Breiðfjörð. • Carólfna Hannesson. 1
Stjning
gripa Jóns Sigurðssonar.
Til minningar um Jón Sigurðsson
íorseta er efnt til sýningar í Safna-
byggingunni á húsgögnum, gripum og
öðru, er hann hefir átt, myndum af
honum o. s. frv. Áætlað er að selja
aðgang að sýningu þessari og að á-
góðinn renni í samskotasjóðinn til
minnismerkis Jóns Sigurðssonar.
Allir þeir, sem eiga eða umráð hafa
yfir gripum eða öðru, sem Jón Sig-
urðsson hefir átt, eða eru honum við-
komandi á einhvern hátt, eru vinsam*
lega beðnir að efla sýningu þessa með
því að ljá alt þess háttar til hennar;
menn geri svo vel að gefa sig fram
við undirritaðan.
JTlattfjías í>órðarson,
fornmenjavörður.
Ritstjóri: Ólafur Björnsson
ísafoldarprentsmiðja.