Ísafold - 18.03.1911, Blaðsíða 3
ISAFOLD
67
skurðað væri löngu fyrir fram,
en ræður til þess e i n s gerðar, að
p r j ó n a einhverja 1 e p p a til að sk/la
skynsemisnekt þess, er fram skyldi haft
með o f r í k i — með atkvæðum hinna
sakbornu gæzlustjóra s j á 1 f r a og bróð-
ur annars þeirra !
En með því að þá tók til máls annar
hinna sakbornu gæzlustjóra, og það ein-
mitt sá, er ætlaði að láta þingdeildina
beita valdi atkvæða til'að setja sjálf-
a n s i g i n n í bankastjórnina, sneri
ráðherra aftur til sætis sins, hlýddi það-
an ræðu Kr. J. og svaraði henni. Gekk
síðan út aftur, en skaut því að marg-
nefndri þingmannsge^semi (LHB) í
ræðulok, að það væri mark á um rag
menni, að þeir brigzluðu jafnau ö ð r u m
um bleyðiskap. Sjálfir rynnu þeir jafn-
an af hólmi, ef á herði, og yrði að gjalti
fyrir hræðslu sakir, ef þeim væri tekið
almennilegt tak. Þá kiknuðu þeir í
knjáliðunum og gætu í hæsta lagi kreist
upp úr sór næsta vesalmannlegan fífla-
hlátur.
Það var auðsóð á áheyrendum, að
þeim fanst ráðning þessi koma maklega
niður. Enda hreif hún í þ a ð sinn.
Áheyrandi.
Aðflutningsbaiin áfengis.
Eftir Jóli. Þorkelsson.
IV.
Fimta kafla svars síns til mín byrjar
hr. M. E. með því að halda því fram,
að »eins og kunnugt só, hafi bannmenn
margsannað sjalfum sér ))á vísindalegan
hátU að i viðskiftum áfengis og manna
só mennirnir engu ráðandi«.
Nærri mundi liggja að mann setti
hljóðan af undrun, er þessar setningar
hr. M. E. eru lesnar — í svo mikinn
bág ríða þær við sannleikann og við
sjálfan hr. M. E. líka, — ef ekki væri
áður búið að marg-ganga úr skugga um
það, að nálega er hvergi hægt að styðja
svo gómi á allan rit-líkama hr. M. E.,
að ekki d/i allstaðar og láti undau;
svo er hann holgrafinn af villum og
mótsögnum.
Sönnun þess, að þessi staðhæfing hr.
M. E. só í mótsögn við sannleikann er
lögtekuing bannlaganna. Bannlögin
grundvallast einmitt, meðal annars, á
þeirri skoðun, að vór höfum ráð áfeng-
isins í höndum vorum á svo víðtækan
og gagngerðan hátt, sem mest má verða:
að vór getum útrymt því, og npprætt
það úr landinu. Auðvitað samkvæmt
skilgreiningu bannlaganna á áfengi.
Og sönnun þess, að hr. M. E. só hér
í mótsögn og tvísögn við sjálfan sig, er
það, að litlu seinna eignar hann bann-
mönnum þá skoðun, að hægt só að út-
rýma öllu áfengi (ekki einasta úr land-
inu heldur) úr heiminum. Svo segir
hann: »Hvílíkur barnaskapur er ekki
fólginn í þeirri ímyndun, að hægt sé
að útrýma úr heiminum öllum tilbún-
ingi áfengis, allri alkóhólmyndun«.
Greinilegri tvísögn og mótsögn við
sjálfan sig er, held eg, tæplega hægt
að hugsa sór heldur en hr. M. E.
hefir auðnast að framleiða hór. Húu
er viðhafnareintak. Fyrst segir hann
að bannmenn haldi því fram að í við-
Bkiftum mannanna við áfengið só menn-
irnir engu ráðandi, og nokkrum línum
síðar segir hann að þeir haldi þeim
barnaskap fram að geta útrýmt öllu
áfengi úr heiminum!
Eg vil annars fara að hætta við hr.
M. E., því sannast að segja er ekki það
niðurlag í honum, andlega talað, að
kostnaði svari að leggja hann í einelti.
Samt hlýt eg að halda svolítið áfram
ennþá.
Hr. M. E. segir að það só barnaskap-
ur að ætla sór að útrýma öllu áfengi
úr heiminum, og sýnir fram á með mikl-
um lærdómi, að það myndist stöðugt af
sjálfu sór; til þess þyrfti að útr/ma
öllum sykri, mjöli o. s. frv. En hver
hefir sagt að hægt só að útrýma ö 11 u
áfengi úr heiminum? Enginn. Það er
ekki annað en heilaspuni hr. M. E.
sjálfs. Yór bannmenn höldum því ekki
fram einu sinni, að það só hægt að út-
rýma ö 11 u úr landinu. Vór höldum
oss við skilgreiningu bannlaganna á
áfengi, og skiljum við það drykki er
meira hafa af áfengi í sór en 2* 1/4 oj
Óáfengari drykki munu bannmenn álíta
ósaknæma til þess að gjöra, því eftir
smekk andbannsmanna, og á máli þeirra,
eru þeir ekkert annað en: »helvítis vatn«.
1 svari mínu gegn ásökuninni um
ófrelsi bannlaganná hafði eg viðurkent
að þau takmörkuðu frelsi manna, eins
og hávaði laga gjörði. Eg sýndi fram
á, að með þeim væri bannaður aðflutn-
ingur eins verzlunarvöruflokks. Slíkt
væri ekki óþekt hjá oss áður, og færði
eg til, að innflutningur á alidýrum væri
bannaður til landsins; á þessum lögum
væri enginn eðlismunur, heldur megins-
munur, er þýðingarlaus væri í þess'u
efni. Þessi samanburður segir hr. M.
E. að só villandi, sökum þess, að alþingi
hafi eigi ennþá samþykt tilbúningsbann
á kindum og kálfum eins og þegar er
gjört um áfengið. Eg vænti þetta só
nú rétt hjá hr. M. E. Nei, ekki ná-
kvæmlega, vegna þess, að um leið og
oss er af alþingi fyrirmunað flutningur
erlends kvikfjár inn í landið, um leið
er oss bannaður »tilbúningur« kinda og
kálfa af erlendu kyni.
Undir endalokin kemst hr. M. E. inn
á landasvið lögfræðinnar og farast hon-
um þá þannig orð: »Bannmönnum ætti
ekki síður að vera það kunnugt en öðr-
um mönnum, að öll löggjöf hjá siðuð-
um þjóðum miðar að því að verja ein-
staklinginn t’yrir árásum annara eða heild-
arinnar,eða heildina fyrir einstaklingnum.
Sú þjóð, sem tekur upp á því að setja
lög til þess að verja einstaklinginu fyr
ir sínum eigin árásum er ofviti í lög-
gjóf«.
Vel má vera að þetta só góð lögfræði
á hinum fjarlægari st.jörnuþokum og
góð lýsing á löggjafarástandinu þar.
Slíkt hlýtur hr. M. E. að vera kunn-
ugra en mór sökum hinnar ótakmörk-
uðu þekkingar sinnar. En eg held því
fram að hún eigi ekki við löggjöf vora
eins og hún hefir verið, eða að líkind-
indum nokkurrar siðaðrar þjóðar. I
henni mun bera töluvert á lögum, sem
sett eru til þess að verja einstaklinginn
fyrir sínum eigin árásum. Þannig hafa
lengi verið hjá oss og öðrum þjóðum f
gildi lög, er hafa það fyrir markmið,
að koma f veg fyrir þjófnað og ógæfu
þá, sem hann hefir í för með sór. En
hvervetna þar er stuldur fer fram, er
það tvímælalaust þjófurinn, er fyrir
langtum stærri ógæfunui verður heldur
en sá, sem stolið er frá.
Þessvegna er það með róttu sagt um
þessi lóg, að vernd þeirra gengur að
meiru leyti til að vernda einstaklinginn
(þjófinn) íyrir árásuin sjálfs sín.
í niðurlagi löggjafarhugleiðingar siun-
ar talar hr. M. E. um þrælalöggjöf, og
er þá orðinn fullur af mikilli og heilagri
reiði: »En þrælalög eru hver þau lög,
sem hafa í sór fólgið eitthvert það
ákvæði, sem gerir mönnum ómögulegt
að brjóta þaú lög, sem ræna manninn
frjálsræðinu að velja og hafna, valfrels-
inu, þeirri guðsgjöf, sem hverju barni
var gefin í vöggugjöf«, og til þessara
þrælalaga telur hann bannlögin.
Eg er hér á annari skoðun en hr. M.
E. Eg held það só kostur á hverjum
lögum, að erfiðleikar só á því að brjóta
þau, en einmitt ókostur ef mjög er auð-
velt að yfirtroða þau. Slíkt er að leiða
menn í freistni. En oss er kent að
biðja skaparann þess að leiða oss eigi í
freistni; og só þáfe vont að vera leiddur
i freistni af góðum guði, þá mun hitt
þó enn verra að vera leiddur í freistni
af misjöfnum mönnum. Nú er hver
freisting tækifæri fyrir oss og áskorun
til vor um að velja og hafna, nota val-
frelsi vort, og ættu þær því, samkvæmt
kenningu hr. M. E. að vera góðar og
eftirsóknarverðar. En af þeirri kenn-
ingu leiðir líka að fella þarf úr 6. bæn-
ina í Faðir vori, og fer að verða skiljan-
legt að hr. M. E. eigi mótstöðu að mæta
í flokki prestanna ; en á henni hafði hr.
M. E. fuiðað sig á einum stað í grein
sinni.
Samkvæmt skilgreiningu hr. M. E. á
þrælalögum eru lögmál náttúrunnar, t.
d. þyngdarlögmálið einnig þrælalög,
því í því er fólgið »eitthvert ákvæði,
sem gjörir mönnum ómögulegt að brjóta
það«. Fyrir hinum stranga dómstóli
hr. M. E. lendir skaparinn þvf í sömu
fyrirdæmingunni og alþingi íslendinga.
Yerður þar báðum líklega sætt sameig-
inlegt skipbrot.
Ofan á alt þetta bætist svo það, að
þessi staðhæfing hr. M. E., að bannlögin
hafa »eitthvað það inn í sór er gjöri
það að verkum að þau verði ekki brot-
in«, er í svo mikilli mótsögn við sjálf-
an hann, sem frekast verður á kosið. 1
hinni nafnfrægu Andvara-ritgjörð sinni
hólt hánn því fram, að þá er fram
í sækti og frá liði mundum vór »liggja
álíka flatir fyrir »eldvatninu« og blökku-
menn á vorum tímum. Eftir þessu er
þá hægt að brjóta lögin lítilsháttar, og
þá eru þau heldur ekki nein þrælalög-
gjöf eftir kenningu hr. M. E.
En nú hætti eg alveg við hr. M. E.
og er þó mikið eftir í svari hans, sem
engu betra er en það, sem eg hefi hór
að framan mirist á.
Eg vonast eftir svari, og hlakka til
þess, því eg efast ekki um að það verði
tilkomumikil sjón þegar hinn sjösaga
og ótakmarkaði kemur brunandi fram
úr fílabeinshöllinni. Nl.
Síðustu þingfréttir.
Lojtskeytasambandið við Vestmann-
eyjar samþykt með 14 atkv. gegn 10
— við 2. umræðu fjáraukalaga í neðri-
deild, — fjárveiting til starjrakslu há-
skólans á næsta hausti — sömuleiðis.
Efri deildar hneykslinu mót-
mælt. Á hinum almenna fundi
á Patreksfirði 15. þ. mán. var einnig
□ □□□
□
□ □□!□
Tilkynning.
Gasstöö Reykjavíkur * samráði við gasnefndina ákveðið eftirfarandi verð fyrir inn-
!L-"- ... 1 — lagningu frá 1. júní þ. á.
1 m. í lögðum pípum ásamt nauðsynlegum „Fittings" á að kosta
Stærð pípna
Verð kr. | 1.50 | 1.65 | 1.90 | 2.40 | 3.20 | 3.90 | 4.80
Undanskilin verði þessu er öll málara-, trésmiða-, járnsmiða- og múrara-vinna, svo og borun gata á
tré- og steinveggi.
Allar Skriflegar pantanir, er afhentar verða gasstöðinni frá þessum degi og til 31. maí þ. á.,
verða framkvæmdar á komandi sumri og fyrir það verð er nú gildir.
Eyðublöð undir pantanir fást á skrifstofu gasstöðvarinnar daglega kl. 10—xx árdegis.
Gasstöðin útvegar
eldavélar,
lampa,
hreyfivélar
0. fl.
rætt um efri deildar hneykslið 0: inn-
setning Kr. J. i gœzlustjórastarjið.
Lýsti fundurinn óánægju sinni yfir
því tiltæki deildarinnar.
Skipaferðir;
Sterling fór á fimtudag til útlanda.
Farþegar: Jónas Guðlaugsson, Nicholi
námnfræðingur, Hanson kaupm., 9 verk-
menn til Afríku, nokkurir vesturfarar.
Botnia væntanleg í nótt, Ask á morg-
un eða svo.
Reykjavikur-annáll.
Alþýðufræðsla stúdentafélagsins. Gaðbr.
Jónsson flytur á morgun erindi nm brezka
þingið, sbr. angl. hér i blaðinu.
Borgarstjórakosning. Bæjarstjórn vill, að
breytt verði frnmvarpi því nm kosning borg-
Hér með auglýsist, að stjórnarráð
landbúnaðarmálanna dönsku hefir í
samráði við stjórnarráð íslands ákveðið,
að söluverð á bráðapestarbóluefni skuli
framvegis vera 3 kr. 50 a. i hverjar
100 kindur.
Herra dýralækni Magnúsi Einarssyni
í Reykjavík hefir verið falið að annast
sölu bóluefnisins og annað, sem þar
að lýtur, og ber mönnum því að snúa
sér til hans með pantanir sínar, og
annað er viðvíkur bráðapestarbólu-
setningu.
Stjórnarráð íslands,
15. marz 1911.
arstjóra, er þingmenn Reykvikinga hafa
fyrir þingið lagt, þann veg, að bæjarstjórn
velji úr 3 umsækjendum og sé einn þeirra
kosinn af öllum atkvæðisbærnm kjósendnm
bæjarins.
Brunabótavirðingar samþ. á siðasta bæjar-
stjórnarfnndi:
Húseign Jóns Setbergs og Eyv. Árna-
sonar 5800 kr.
Hnseign B. H. Bjarnason, Aðalstr. 2500 kr.
Fasteignasala. Þingl. 2. marz.
Halldór Glslason Yitastig 15 selnr Har-
aldi Guðmundssyni Lindarg. 43. húseign nr.
15 við Yitastig. Dags. 28. febr.
Haraldnr Guðmundsson Langav. 79 selur
trésmið Sigurjóni Signrðssyni Lækjarg. 10C
húseign nr. 15 við Vitastig með tilh. Dags.
1. febr.
Pétnr Gunnarsson hótelstjóri selur hanka-
bókara Jens B. Waag húseign sina ásamt
erfðafestulandi, sem nefnist Arablettur, fyrir
8167 kr. Dags. 30. janúar.
Skiftaráðandi i Reykjavik selnr Önnn M.
Hjaltesteð Ldg. 20 B. húseign þrotabús
Bjarna trésmiðs Jónssonar, nr. 8C við Lind-
argötu, fyrir 5000 kr. Dags. 20. febr.
en það, sem á umboðunum hefir
þetta skrásetta vörumerki:
Þá er fullnægt fyrsta skilyrðinu
fyrir traustri og vandaðri steinbygg-
ingu.
Cementið er sent á hverja höfn
kringum alt land beint frá verksmið-
junni.
Umboðsmaður á íslandi er verk-
fræðingur
K, Zimsen, Reykjavík.
Þingl. 9. marz.
Ágúst skósm. Eiríksson Bergst.str. 85,
selur Jóni skósm. Lárnssyni húseign nr. 35
við Bergstaðastr. með tilh. fyrir 5320 kr.
Dags. 15. febr.
Jóhann kanpm. Jóhannesson selnr skrif-
ara Ben. Þ. Gröndal húseignina Tóttir með
tilh. fyrir 5000 kr. Dags. 7. marz.
Þingl. 16. marz.
Jóbann kanpm. Jóhannesson selur Sam-
úel trésmið Jónssyni húseiga nr. 33 við
Skólavörðustig fyrir 5000 kr. Dags. 14.
marz.
Guðsþjónusta á morgnn i Fríkirkjnnni:
kl. 10 slra Jóh. Þ.
kl. 1 síra Ól. Ól.
kl. 4 sira Bjarni J.
& Rottueitrun: ^Bæjarstjórn skoraði á síðasta
fundi á þingið að samþykkja ekki rottn-
eitrunarfrv. sira Björns Þorlákssonar — eða
nndanskilja minsta kosti Reykjavik.
Simnefni: Ingeniör. Talsimi 13.
Alþýðnfræðsla Stúdeptaféiagsins
Guðbrandur Jónsson
flyturerindi um
Brezka þingiö
í Iðnaðarmannahúsinu sunnud. i^.marz
kl. 5 siðdegis.
-----Inngangseyrir 10 aurar. — —
Jlöfuðbækur og
Jiíadcíar
fást í Bókverzlun ísafoldar
Mál verkasýning
Einars Jónssonar
verður opnuð sunnud. 19. þ. m. i
gamla Hótel Reykjavík, Vesturgötu 17.
Opið kl. 11—4V2-
Leikfélag Reykjavikur
ímyndunarveikin
verður leikin
sunnudag 19. þ. m.
í Iðnaðarmannahúsinu kl. 8 sd.
Aðeins leikið þetta eina skifti.
r
Agætt
saltkjöt
selur ódýrast verzl.
%
„Liverpool“.
í jS> A B O Eí D er blaða bezt
íýsABODD er fréttaflest
íj^ABOEiD er lesin mest.
Nýir kaupendur fá í kaupbæti:
Fórn Abrahams (700 bls.),
Davíð skygna, hina ágætu
sögu Jónasar Lie og þar
tð auki söguna
. sem nú er að koma
1 bl., sérprentaða, þegar
hún er kornin öll.
ísafold mun framvegis
jafnaðarlega flytja myndir af
merkum mönnum og við-
burðum.
Ágæt Ijósmyndavél er kostað hefir
400 kr. fæst nú með tækifærisverði.
Peningaskápur stór og ný saumavél,
hvorttveggja ódýrt, fæst einnig á
Skólavörðustíg 22.
Til leigu frá 14. maí 2—3 her-
bergi, hvort heldur fyrir einhleypa eða
fjölskyldu. — Laugaveg 49 A.
Vinnukona óskast strax. Upp-
lýsingar á afgr. ísafoldar.