Ísafold - 20.05.1911, Blaðsíða 3
ISAFOLD
127
Reykjavik Teater.
BBMaBBaaBBBMBaannBaB>BnHB
Det danske Teaterselskab
aabner en Forestillingsrække af
norske og danske Skuespil
Söndag d. 21 Maj kl 8
med Opförelse af Hcnrik Ibsens
berömteste Skuespil:
€í IbuRRofíjom.
(Nora: Anna Boesen).
Billetter á 2 kr., 1.50 og 1
kr. kan faas og forudbestilles
hos Isafolds Expedition.
Til denne Forestilling sælges
ikke Börnebilletter.
íþróttamótið.
Fresturinn til þess að sækja um þátt-
töku í íþróttamóti U. M. F. íslands
er lengdur til i. júni n. k.
Eýmig er hérmeð auglýst að sá,
sem sigrar í fegurðarglímu iþrótta-
mótsins, hlýtur að sigurlaunum silfur-
bikar til æfinlegrar eignar.
Framkvæmdarnefndin.
Sundkensla.
Þeir sem vilja læra sund hjá undir-
rituðum, gefi sig fram sem fyrst. Nán-
ari upplýsingar hjá mér, Guðbr. Magn-
ússyni og Sigurjóni Péturssyni.
Björti Jakobsson,
Laugaveg 18 A, daglega heima kl. 3—4 siðd.
Flöskur
kaupir með bæjarins /a«<diæsta verði
verzl. B. H. BjarDason.
Pening'ar
fundust þriðjudaginn 16. þ. mán. Rétt-
ur eigandi helgi sér þá í Brauns
verzlun.
Millu-armband tapaðist á
sunnudaginn i kirkjugarðinn, eða frá
garðinum að Hverfisgötu Skilvís finn-
andi er vinsamlega beðinn að skila
því á Laugaveg ii.
Hérmeð tilkynnist vinum og vanda-
mönnum, að sonur minn Jón Andrésson
stud. art. andaðist 15. þ. m.
Jarðarför hans er ákveðin miðviku-
dag 24. þ. m. kl. 12 frá heimilí minu
Laugaveg II.
Guðlaug I. Jónsdóttir.
Hérmeð þökkum við innilegu öllum
þeim, sem með návist og annari hlut-
tekningu veittu okkur sóma og huggun
við fráfall og jarðarför okkar elskuðu
eiginkonu og móður, Guðriðar Sigurð-
ardóttur. Sérstaklega vildum við með
þakklæti mega nefna kaupmann Jes.
Zimsen og skipstjóra Hjalta Jónsson
ásamt konu hans meðal þeirra, er
styrktu okkur og hugguðu í hinni miklu
sorg okkar.
Fyrir hönd mfna og barna minna.
Guðmundur Einarsson,
Laugaveg 35.
Innilegt þakklæti votta eg öllum sem
heiðruðu útför sonar mins Kristm. Júl.
Guðmundssonar með návist sinni eða
á annan hátt sýndu mér hluttekningu
vfð fráfall hans.
Ingveldur Kjartansdóttir.
Laugaveg 22 A.
Á Laugarnesspítala er til sölu með
vægu verði ýmislegt til vatnsveitu,
svo sem járnpípur af ýmsum víddum,
Kranar ýmiskonar, útbúnaður til að
reka brunndælur eða aðrar vélar með
hestkrafti (d: Hesteomgang) og fleira.
Lysthafendur snúi sér til ráðsmanns
spitalans, 8—ii f. h.
cSarnaRerrurnar
marg eftirspurðu nýkomnar til
Jónatans Þorsteinssonar.
Laugaveg 31.
Frammistööustúlka óskast
nú þegar. Einnig ung stúlka til innan-
hússtarfa. Ritstj. vísar á.
Rafmagnsljös.
í>eir menn efta bæjarfólög hér á landi sem hafa i hyggju ab koma upp rafmagnsstöftYum til
lýsinga og annars, livort sem er með vatnsafli eöa ööru afli, cettu aö snúa sór sem fyrst til
rafmagn8fræöing3 Halldórs Guðmundssonar
í Reykjavík, Vesturgötu 25 B,
sem gefnr áreiðanlegar upplýsingar um alt að þessu lútandi.
7. P. T. Bryde,
Kaupmannaf)öfn,
Sfrandgade 34,
tekur að sér umboössölu á alls konar íslenzkum afurðum.
Skilagrein verður send um liæl og kostnaður og sölulaun
afar-lág.
Ef þess er óskað, verða ýmsar útiendar vörur útvegaðar og séð um
sendingu á þeim.
Símnefni: Islandsk Köbenhavn.
Konungl. Hirö-verksmiöja
Braðurnir Cloetta
mæla með sínum viðurkendu Sjókólade-tegundum
sem eingöngu eru búnar til úr
fínasta Kakaó, Sykri og Vanille.
Ennfremur Kakaópulver af beztu tegund.
Ágætir vitnisburðir frá efnarannsóknarstofum.
Btjggingarvörur og járnvörur
af öllu tagi hefir verzlun undirritaðs í stærstu, fjölbreyttustu og ódýrustu úr-
vali, t. d. ágætar innstemdar Hurðarskrár á 75 a. Hurðarhandtök frá 40 a.
HurOarhandtök úr látúni sterk og falleg frá kr. 1.70. Kanthurðarhjarir, parið:
4" á 30 a. 4^/2" á 35 a. og allar aðrar stærðir með samsvarandi verði. Glugga-
beslög með hornjárnum og öllu tilh. á 35 a. Loftrósettur, stórar frá kr. 1.30.
Reyr til að negla undir gibslög aftan á stiga og fl. Málaravörur af öllu tagi,
þar á meðal Italienskt Rautt 'á kr. 12.00 pr. % pd. Ultramarinblátt á 60 a.
pd. Blýhvíta, Zinkhvíta, Terpentína, Fernisolía og allskonar hökk með til-
tölulegu verði. Beztu teg. af Trélími einkar ódýrt. Taurullur, Olíuvélar og
öll Búsáhöld með óheyrt lágu verði.
Hefla, Axir, Hefiltannir, Sporjárn og öll önnur verkfæri, að eins frá
heimsfrægum verksmiðjum, svo ódýr að öll samkepni er gersamlega útilokuð
bæði hvað verð og gæði snertir. Sterk vírnet, einkar ódýr.
Rakhnifarnir og Skærin frægu frá Eskilstúna, sem hvorttveggja er fyrir
löngu heimsfrægt orðið fyrir hið góða bit og lága verö.
Af Ljáblöðunum landsfrægu er von á 75 tylftum um miðjan n.
m. — Gæði og verð á blöðum þessum er fyrir löngu orðið svo landsfrægt
að óþarft mun vera að gera ráð fyrir, að bændur, sem bezt vita hvers virði
það er, að slá með góðum ljá, láti ginnast til að kaupa blöðin annarsstaðar,
en hjá undirrituðum, þar sem menn hafa fengið 13 ára samfleytta reynslu
fyrir því, að bit blaðanna þaðan er hið bezta, sem kostur er á að fá og verðið
þó engu að síður hið langlægsta.
Enda kaupir verzlanin ein útaf fyrir sig langtum stærri birgðir árlega,
en allir aðrir kaupmenn bæjarins til samans.
Brýni, Brúnspónn, Ljáklöppur og Hnoð i ljábakkana koma með
sömu ferð. —
Það er öfgalaust, að engin verzlun hér í bæ getur selt vörur sínar
ódýrari en verzlun undirritaðs; væntir hún því, að bændur sem borgarmenn
leiti þangað áður en fest eru kaup annarsstaðar.
í stærri kaupum ávalt afsláttur.
B. Ji. Bjarnason.
Góð tíðindi.
Blýhvíta og
Zinkhvíta,
af beztu tegund, með bæjarins lang-
lægsta verði, er nú komin aftur til
verzl. B. H. Biarnason.
Kaffihúsið
Vegna stöðugrar verð-
lækkunar á kaffi verður
aö hækkað upp 1 20 aura
olliun frá 21. þ. mán., að
æim degi meðtöldum.
JEuðvicj Jiruun.
mestar birgðir
hefir verzlun undirritaðs i alls konar
postulíns og leirvarningi, sem
seldur er með bæjarins langlægsta
verði, t. d. Bollapör frá 12 a.,
Diskar frá 7 a. — Smjör-
krukkur úr leir, ýmsar stærðir, og
Blómsturpottar með blátt áfram
gjafverði.
Alls konar Búsáhöld, gleruð, tinuð
og lakkeruð, t. d. Mjólkurfötur, Færslu-
fötur, Mjólkurbrúsar, Mjólkursigtin
frægu, Kaffibrennarar, Kaffikvarnir,
Strokkarnir frægu, Vírnet og alt annað
sem nöfnum tjáir að nefna. Alt að
vanda langódýrast í
verzl. B. H. Bjarnason.
Bökaskil.
Hér með er skorað á þá, sem hafa
bækur að láni frá mér, að skila þeim
sem allra fyrst til frú Ástu Hallgríms-
son, Templarasundi 1.
Einkum skal getið um:
A. L. Kjelland: Saml. Værker III. og
IV. bindi.
Henrik Ibsen: Saml. Værker, minni
útg. III. bindi.
Svanhvít.
Ljóðmæli eftir Grím Thomsen (Gyl-
dendal) o. fl.
Guðm. T. Hallgrímsson.
Auglýsing.
Hin stærsta heimska og ósannindi
guðfræðinga vorra eru þau trúaratriði
kirkjutrúarinnar, að vor sanni guð og
meistari alheimsins hafi verið deyddur
og grafinn á Gyðingalandi og þar hafi
alheimsfrelsarinn risið upp úr gröf.
Slíkri kenning um sannan guð og
herra lífsins mótmæli eg; enda mun
enginn guðfræðingur íslenzku þjóðar-
innar geta rökskýrt ritning sína á
þann hátt, að spámaðurinn frá Nazaret
hafi kent drottinn himins og jarðar
sem dauðlega verul
St. Reykjavík í maí 1911.
Ritstjóri »Ljóssins<
Einar Jochumsson.
Laus stjsían.
Ein næturvarðarsýslanin hér
í bænum.
Árslaun 800 krónur.
Umsóknir um sýslan þessa stýlaðar
til bæjarstjórnar sendist undirrituðum
bæjarfógeta innan 28. þ. mán.
Bæjarfógetinn í Reykjavík,
19. maí 1911.
Jón JTJagtiússoti.
Nýtt
kaffi- og matsöluhús
verður opnað laugardaginn 20. maí
á efra lofti í Hafnarstræti 22
(Sivertsenshúsi). Þar geta menn feng-
ið fult fæði um lengri eða skemmri
tima, einnig einstakar máltíðir.
Sérstakar stofur fyrir kaffiveitingar,
súkkulaði o. s. frv. Ennfremur er
hægt að fá þar haldnar veizlur, hvort
heldur matarveizlur eða súkkulaði og
kaffi, fyrir alt að 30 manns. Vönduð
matreiðsla, lærð á »den kgl. Skyde-
bane* i Khöfn. Skemtileg herbergi.
Ágætt útsýni. Sanngjarnt verð.
»
Klæðaverksmiðjan Alafoss
pr. Reykjavík
tekur að sér
að kemba ull, spinna og tvinna.
— búa til tvíbreið fataefni úr ull.
— þæía heima-ofin einbreið vaðmál, lóskera og pressa.
— lita vaðmál, band, ull, sokka o. fl.
Alafoss
Álafoss
Álafoss
Alafoss
Álafoss
Álafoss
kembir ull hvers eiganda út af fyrir sig.
vinnur alls ekki úr tuskum.
vinnur einungis sterk fataefni úr íslenzkri ull.
notar einungis dýra og haldgóða (egta) liti.
gerir sér ant um að leysa vinnuna fljótt af hendi.
vinnur fyrir tiitölulega mjög lág vinnulaun.
Heilsuhælið á Vífilsstöðum.
Þeir sem næsta ár frá 20. júlí n.k. að telja, kynnu að vilja selja Heilsu-
hælinu ensk kol (ekki skozk kol), c. 1700 skpd. flutt í hús hælisins, sendi
undirrituðum tilboð um lægsta verð fyrir 31. þ. m.
Heilsuhælinu á Vífilsstöðum, 31. maí 1911.
Jón Guðmundsson.
Vagnhestur,
viljugur og duglegur brokkari, óskast
til kaups nú þegar. Ritstj. vísar á.
2 berbergi með góðum hús-
gögnum til leigu nú þegar í Tjarnar-
götu 11.
Bruun hestur í óskilum á
Brekku á Álftanesi, ómarkaður og ó-
járnaður, vetrarafrakaður og vel útlít-
andi — óskast hirtur sem fyrst.
Tapast hefir rauður hestur afrak-
aður, ójárnaður, vakur, mark: gagn-
bitað vinstra. — Finnandi vinsamlega
beðinn að koma honum annaðhvort
til mín, Br. Ólafssonar Sjónarhól
Vatnsleysuströnd, eða til Andr. And-
réssonar klæðskera Þingholtsstræti 1.
Kven-upphlutur, vandaður, til
sölu fyrir 1 á g t veið og kvenúr, sem
er í ábyrgð. Uppl. í afgr. blaðsins.
Manschettu-hnappur — úr
gulli — hefir nýlega tapast. Finnandi
skili sem fyrst, til Lúðviks Andersen
klæðskera.
dan$ka -rsmjörlilii erbe^h.
Biðjið um le^undírruar ^
.Sóley” „ lnyólfur ** w Hekla ** eða Jsafokf
Smjðrlikið fcosh einungis frai
Oífo Mönsted s
Kaupmannahðfn oa/fnosum jár'
i Oanmðrku. ’
Ttuka-TJlþitigiskjörskrá
Reykjavíkur 19 n —1912 liggur almenningi til sýnis á bæjar-
þingstofunni 15—23. þ. mán.
Skrifstofu borgarstjóra Reykjavikur, 15. mai 1911
Páíí Einarsson.
KlædevæYer Edeling, Viborg, Danmark,
sender Portofrit 10 Al. sort, graat, mkblaa, mkgrön, mkbrun finulds Ceviots-
klæde til en flot Damekjole for kun 8 Kr. 85 Öre, eller 5 Al. 2 Al. br.
sort, mkblaa, graanistret Renulds Stof til en solid og smuk Herredragt for
kun 13 Kr. 85 Öre. — Ingen Risikol — Kan ombyttes eller tilbagetages.
**** Uld köbes 65 Öre Pd., strikkede Klude 25 Öre Pd. ****