Ísafold - 24.05.1911, Qupperneq 2
130
ISAFOLD
Gísít Sveittsson og
Uigfús Einarsson
yfirdómslögmenn.
Skrifstofutimi ll1/^—I og 5—6.
Þingholtsstræti 19. Talsimi 263
Peim hinum mörgu nœr og fjœr,
sem baði með heillaóskum og á annan
hátt haja auðsýnt mér samúðar ogvin-
semdarmerki á áttugasta ajmæiisdegi
minum, 19. p. m., votta eg hér með
mitt innilegasta pakklæti.
Stgr. Thorsteinsson.
og fara frá vinnu sinni stundvíslega.
Af því sem nú hefir sagt verið er
það hverjum manni Ijóst: að bank-
inn hefir unnið álit og traust utan-
lands og innan undir stjórn nýju
bankastjóranna; það sýna hækkandi
innlög almennings, og vaxandi inn-
heimtur og viðskifti út á við, a ð
bankanum er nú stjórnað af miklu
meiri gætni og reglusemi en nokkru
sinni áður, og miklu meiri alúð lögð
við stjórn hans, og a ð viðskifta-
mönnum er nú miklu hagfeldara og
þægilegra að skifta við bankann en
áður, þar sem hann er nú opinn tvisvar
á hverjum degi, og bankastjórn til
viðtals helmingi lengri tima en áður,
og alt af við, ef á liggur.
Skrif Jónatans um »gróða bankans«
er ekki svaravert, svo mikil botnlaus
lokleysa er það. Má t. d. benda á
að í annari setningunni segir hann:
»Væri þetta tap ekki (ca 15000 kr.),
þáværigróði ársins 34716,15«, (þess-
ar tölur ættu nú reyndar að vera
44,372,16) en í næstu setningu á
eftir: »hefði ekkert tapast vœri rekst-
ursgróði pessa árs samtals tíu púsund
tvö hundruð og sextán krónur og ij
aurar«. Hver skilur þessa vitleysu?
Er ekki líklegra að gróði bankans
væri fremur hærri en lægri, ef ekkert
tap hefði þurft að taka af honum ?
Eg skal gjarnan taka undir það með
Jónatan, að þetta séu »sorglegar tölur«v
— NB sorglega vitlausar.
Annars má í sambandi við gróða
bankans þetta ár benda á þetta:
1. að stjórnarkostnaður við hann,
ásamt eftirlaunum Tr. G. er n. þús.
kr. hærri en áður samkvæmt lögum.
2. að bankinn hefir orðið að setja
á árinu háa fjárhæð að veði fyrir veð-
deildunum og fær 1 8/4 °/0 minni
vexti af helmingnum, en 3/4 °/0 minna
af hinum helmingnum af þvi fé en
ef það væri í útlánum, og nemur sá
vaxtamismunur talsverðri fjárhæð, auk
þess sem það fé er bundið, og tapast
því frá veltu bankans.
3. að ágóði af rekstri útbúanna er
um 8 þús. kr. lægri en næsta ár áð-
ur. Sömu bankastj. eru þó þar og
að undanförnu.
í næsta blaði eða svo, mun eg
heilsa upp á Jónatan aftur, og sýna
fram á rangfærslur hans og blekking-
ar í sambandi við síðari hluta þessar-
ar Ingólfsgreinar.
Þór.
Leikhúsið.
Fyrsta leikkvöld hinna dönsku leikenda.
Henrik Ibsen: i>Et dukkehjem«.
Þeir léku fyrsta sinni á sunnudags-
kvöldið hinir dönsku leikendur.
Úr hlaði riðu þeir með hvorki meiri
né minni klyfjar en hið heimsfræga
leikrit skáldkonungsins Dofrafjalla: Et
dukkehjem.
Það er ekki heiglum hent að íklæða
það leikrit holdlegum, lifandi búningi.
Því ánægjulegra var að geta sagt
með sanni, að leikurunum tókst miklu
betur en í meðallagi að gera fólkið á
»brúðuheimilinu« að lifandi menskum
verum.
Et dukkehjem hefir verið, svo sepi
mörg önnur listaverk »sfinxins« norska,
þrætuepli hins mentaða heims: tákn-
ið sem á móti var mælt — skurð-
goðið, sem lotið var blint og dýrkað
og fórnað til.
Hér er hvorki staður né stund til
að fara út í þá sálma og rökræða gildi
leikritsins í sjálfu sér — hvorki til að
vísa Ibsen út í yztu myrkur, né upp-
himins sala fyrir það. Bókmentadóm-
ararnir um það.
En eitt er víst, að leikritið ber leik-
sviðsskáldsins ómenguð einkenni. Það
fer með afbrigðum vel á leiksviði, en
gerir og þær kröfur fremur mörgum
öðrum leikritum, að leikendur fari vel
með hlutverkin.
Og Boesens-leikararnir gerðu það
yfirleitt mikið vel.
Fram úr þeim skaraði þó kona leik-
flokksstjórans jrú Anna Boesen í aðal-
hlutverki leiksins, jrú Nóru Helmer.
Hún lék svo blátt áfram og tilgerðar-
laust, að ánægja var að. Hún bjó til
óvenju eðlilega, lifandi mynd af Nóru.
Hr. Fritz Boesen lékHelmer; hans
leikur var og á köflum sérlegat góður.
Einkum er orð gerandi á leik hans í
fyrri hluta þriðja þáttar, er þau hjón-
in koma heim af dansleiknum — hann
vel við skál. En yfirleitt fanst mér
hr. Boesen gera Helmer óþarflega
hráan og hrottalegan, svo að ilt var
að fá nokkurn samúðarneista með hon-
um, sem þó bregður fyrir við lestur
leikritsins.
Frú Linde var látlaust og greindar-
lega leikin af frk. Cörlu Mtiller og
Krogstad í höndum hr. Carls Groth,
skuggaleg mynd af manni, sem fyrir
viðburðanna rás hefir lent á örvendri
hlið lífsins. En leikur hr. Groths
mundi græða á því, að hann væri
nokkuð hæglátari á leiksviðinu.
Hr. Lakjer hafði í hlutverki Ranks
læknis náð tungutaki hins ágæta leik-
ara þess hlutverks við kgl. leikhúsið,
P. Jerndorfs, en annað fór eigi þar
eftir.
Byrjunin var góð hjá leikflokknum.
Fari annað eftir henni megum vér
eiga von á ánægjusamlegri leikhúsvist
næstu vikurnar.
Ego.
vtm
íf.J'
) J
• - • . 1
•■ ••■ . -
,
, - " ji
- ,* J'UA
T,
b 1 * v ' j
ú V \ Tú C. |
>,■ > • 'f * , <r.
V/v Á ** lL ■>.!'*#,-''■ : ■ ;. 'ÁíinÁP
Krýninqcirkápci Georgs Bretakonungs.
»• * •■'
Aths. Reikning Landsbankans fyrir
árið 1910 höfum vér nýlega fengið og
munum vér þegar »Þór« hefir lokið
grein sinni um hann hér í blaðinu,
— sem skýrir hann vel frá ýms-
um hliðum — athuga hann stuttlega,
og skýra frá hvað oss finst einkum
einkenna hann o. s. frv. Ritstj.
Þjóðólfur gamli
átti það fyrir sér á gamalsaldri að
verða uppboðsgóz. Það var gert fjár-
nám í honum fyrir skemstu og krafist,
að seldur yrði á opinberu uppboði.
Það uppboð kvað fram eiga að fara
9. júní næstkomandi. Eigandi hans
hr. Pétur Zophoníasson er látinn af
öllum störfum við blaðið. Jón Ól.
stundar það fyrst um sinn og býr
undir uppboðið.
Látin
er í Khöfn síðast í apríl, ekkjufrú
Jóhanna Frederiksen, ekkja A. Frede-
riksens, sem hér var lengi bakari og
dáinn er fyrir nokkurutn árum. Frú
Jóhanna var ættuð úr Vestmanneyjum.
Af börnum hennar lifa Hjörtur tré-
smiður, Edvard bakari, Rósa kona L.
Jörgensen málara og Inger í Khöfn.
Ýms erlend tíðindi.
----- Kh. 13. maí ’ll.
Frá Mexíkó og Marokkó er alt við
sama. í Mexíkó hafa orðið allskæðar
orustur. Díaz forseti kvað ætla að segja
af sór bráðlega. M a d e r 0 uppreisnar-
foringi hefir myndað bráðabirgðastjórn,
Bandaríkin segjast ekki ætla að skifta
sér af óeirðunum fyr en útséð só um,
að þær verði sefaðar.
Fez, höfuðstaöurinn í Marokkó er enn
umsetinn af uppreisnarmönnum og borg-
arbúar sagðir hart haldnir af vistaskorti
og skotfæra.
Stolypin, yfirráðherra Rússa, hefir nú
fengið þann dóm hjá rússnesku dúm-
unni með 202 atkv. gegn 82, að hann
hafi gert sig sekan um grundvallarlaga-
brot, þá er hann lagði fyrir keisara til
staðfestingar lög, er ríkisráðið (nokkur
hl. efri deildar) hafði felt — og að þetta
hafi verið lögleysa.
Stjórnarblaðið, »Novoje Vremja« segir
að dúman hafi með þessari atkvæða-
greiðslu fyrirgert tilverurótti sínum
enda muni þetta athæfi verða henni
dýrt.
Zahle, fyrverandi yflrráðherra Dana
er orðinn borgarstjóri i Stege á eynni
Möen.
Krjningarhátíðin á Bretlandi.
Stórkostlegnr viðbúnaður.
---- Kh. 13. maí’ll.
Á Englandi er þegar hafinn viðbún-
aður mikill út af krýningunni, sem
fram á að fara síðari hlutanæsta mán-
aðar. Úr öllum löndum heims er bú-
ist við miklum ferðamannastraumi, m.
a. frá Ameríku um 100.000 manns.
Úr öllum brezku nýlendunum koma
herflokkar og þingmenn til þess að
vera viðstaddir athöfnina. Á leið þeirri
er konungshjónin fara um krýningar-
daginn er þegar farið að leigja glugga
fyrir afarverð. í Westend hafa ein-
stakir gluggar verið leigðir á alt að
600 pd. sterling eða 10,800 kr.
Allan júnímánuð gengur ekki á öðru
en eilífum hátíðum, sýningum o. s.
frv. Á undan krýningunni er t. d.
allsherjar hestasýning, dansleikur í
Shakespearesbúningum í Albert Hall
20. júni o. fl.
Lávarðalögin.
Endurbótafrumvarp Lansdownes.
---- Kh. 13. maí’ll.
Nú er frumvarp Asquiths, um af-
nám á neitunarrétti efri málstofunnar
loks samþykt í fulltrúadeildinni og af-
greitt til lávarðanna. Hvernig alt fer
er enn óvíst. Lávarðarnir hafa sjálfir
á prjónum frumvarp til laga um nýtt
fyrirkomulag á efri málstofunni, en
það er svo úr garði gert, að þeir úr
stjórnarflokknum, sem frið vilja semja,
geta eigi gengið að því.
Lansdowne lávarður bar frumvarp
þetta fram nýverið. Eftir því eiga
sæti í efri málstofunni 350 lávarðar.
Af þeim eiga erfðasæti 150, kosnir af
lávörðum þeim, sem nú eru erfðaþing-
menn og kjörgengi bundið því skil-
yrði, að þingmannaefnin gegni ein-
hverjum opinberum starfa eða hafi sér-
staka tign í her eða flota. 100 lávarða
eiga sérstakar kjörstjórnir að kjósa.
Landinu á að skifta í kjörhéruð og í
hverju héraði á kjörstjórnin að vera
skipuð þingmönnum neðri málstofunn-
ar, þeim sem kosnir hafa verið í öllum
þingmannakjördæmum innan kjörhér-
aðsins. Þá eiga hinir síðustu 100 lá-
varðar að vera konungkjörnir.
Stjórnin hefir lýst yfir, að hún muni
sjálf leggja fyrir frumvarp um fyrir-
komulag lávarðadeildarinnar, ef tími
verði til á þessu þingi, en vilji fyrst
koma í gegn frumvarpi sínu um af-
nám neitunarréttarins.
-----1------
Kopar-nánm-ósannindin. Einhvern
tíma fyrir mörgum mánuðum var Lögr.
að finna upp á því af venjulegri ósann-
inda ástríðu sinni, að einhver koparnáma
í Vestmanneyjum væri fundin og að
Björn Jónsson fyrv. ráðherra hafi ekki
veriö lengi að tryggja sór hana handa
sór og fjölskyldu sinni — auövitað átti
almenningur að halda að hann í því
skyni hefði misbeitt embættisstöðu sinni.
— Lögr. lót sór eigi annað nægja en
að bendla einnig ómálga börn, sem eitt-
hvað voru í ætt við B. J. við þetta
námu-rán(I). Oss datt eigi í hug þá að
anza þessum þvættingi einu orði frem-
ur en flestu öðru þess kyns dóti, sem
á borð er borið úr því horni.
En nú er búið að sjá svo um, að
þessi uppspunafregn hefir verið breidd
út um alla Danmörku — dönsk blöð
full af frásögnum um þetta — og ekki
nóg með það: út fyrir endimörk Dana-
veldis — í þ/zk biöð er þetta bull komið.
Og vinir vorir Færeyingar eru líka bún-
ir að fá fróttina á borð borna. D i m m a-
Tveim dögum síðar, 22, júni, fer
krýningin fram í Westminsterkirkjunni
og næstu daga á eftir gerist það sem
hér segir: 23. stóreflis akstrarför um
borgina, 24. flotasýning, 26. viðhafna-
leikur í Covent Garden, 27. »Garden
Party i «Buckinghamhöllinni viðhafnar-
leikur í »His Majestys Theatre« og
átveizla hjá Derby lávarði, 28. afar-
stór gripasýning hjá »Royal Agricul-
tural Society« í Noiwich, 29. dagverð-
ur í Guildhall og guðsþjónusta í Páls-
kirkjunni, og loks 30. júní hátið, er
konungshjónin halda skólabörnum í
London í Krystalhöllinni og átveizla
hjá yfirráðgjafanum. Síðan kemur í
júlíbyrjun ferð konungshjónanna til
Dublin, eyjarinnar Man, ýmsra borga
í Wales og Edinborgar.
A myndinni sést hópur af skrödd-
urum, sem eru að sauma aðra krýn-
ingarkápuna. í hvora kápu fara 500
hreysikattarskinn (hermelin) og 650
rófur.
1 æ 11 i n g, innlimunarblaðið þeirra, hef-
ir gripið fréttina glóðvolga og kallar
jgraverende Beskyldning« um
embættismisbeiting — af hálfu B. J.
Fyrir því þykir oss rótt að geta þess,
að ekki er nokkurminstifót-
ur fyrir því, að B. J. eigi eyr-
isvirði í umræddri námu, nó
hafi trygt sór af henni nokk-
u r hlunnindi. Það er eins og ann-
að flest úr heimastj.áttinni staðlaus
ósannindi, uppspunnin frá rótum.
Algleymings-hégóminn einhver mesti i
LHB-rannsóknar-skýrslunni alræmdn var
flagreiðin i svokölluðn »simamáli« — út úr
grein einni í ísafold í fyrra nm, að borið
hefði verið út um bæinn hér, að hankamenn-
irnir dönsku simuðn til Danmerkur, að alt
væri »udmærket« í Landsbankanum.
Hvað mundi annað eins og þetta mál
koma við stjórnarathöfnum B. J.? Hvað
mundi sýna betur árása-vandræðin en það,
að hún fór að þvæla um svo algeriega óvið-
komandi mál?
Eg bjóst við, að enginn mundi treystast
til að gerast jórtari þessarrar aumlegu tuggu
LHB. En ráðherra-skjaldsveininum verður
af fæstu bumbult. Honum flökraði eigi við
að bera fram bláköld sannanleg ósannindi
í afturköllunarmálinu og stjórnarskrárbrots-
málinu, svo sem getið var i næstsiðasta
blaði — og hann heldur trúlega áfram upp-
teknum hætti -- i stjórnarmálgagninu.
Hann segir berum orðum, að ráðherra
hafi búið til söguna um simskeytauppljóstr-
unina — og sagt bankastjórunum dönsku.
En sjdlfir segja þeir, að hr. Magnús Sig-
urðsson hafi fyrstur haft orð á þessu og
spurt þá hvort satt væri það setn sagt væri
i bænum, að þeir simnðu, að alt væri »ud-
mærket«. — Og sjálfur hr. M. S. segir
bls 18 i skýrslunni ekki »hafa haft fyrir-
spurnarefnið frá ráðherra«. — Eigi að sið-
ur dirfist skjaldsveinninn að bera fram svo
bldköld ósannindi.
Orð hans um, að ráðherra hafi fengið
bankastjórana til að gefa út ‘skammar-
yfirlýsingu« um landssimastöðina eru stað-
laus reykur — þegar af þeirri ástæðu, að
ekki er eitt einasta skammaryrði i yfirlýs-
ingu þeirra — þvert á móti. Og loks er
það endileysan tóm, að það »virðist sannað<
að B. J. fyrv. ráðherra hafi ritað umþrátt-
aða grein i Isafoid — hygt á þvi einu, að
ritstj. Isaf. neitaði að standa fyrir rann-
sóknarrétti LHB. um atriði, sem honum og
nefndinni kom ekkert við — i máli, sem var
algerlega óviðkomandi starfi nefndarinnar.
Kdri.
Hafísinn á ílótta.
Allar horfur á, að nú séum vér að
verða lausir við vágestinn úr höfum
norður.
Skipagöngur tálmalausar af hafísn-
um síðustu daga. Vestri er á Húna-
flóa í dag. Hafði aðeins orðið var
við eitthvert lítilsháttar ísrek — en
meira ekki. Austri komst klaklaust
til Akureyrar og hélt þaðan suður aft-
ur i fyrradag.
En svalur er hann eigi að síður um
land alt — heitast á Akureyri 6 stiga
hiti — ella þetta 3—4 stig.
íslandsbanki 1910.
Ársreikningur íslandsbanka fyrir árið
1910 er nýlega kominn.
Endurskoðendur bankans, þeir Ind-
riði Einarsson og Júl. Havsteen, segja
m. a. um bankann:
»Bankanum hefir á hinu liðna ári
tekist að bæta töluvert úr peninga-
eklunni, sem enn gerir vart við sig,
og að styðja atvinnurekstur lands-
manna. Bankanum hefir að voru
áliti verið stjórnað með sama dugn-
aði og fyrirhyggju, sem að undan-
föinu. Nytsemi bankans fyrir landið
og áreiðanleik hans hafa margir lands-
menn viðurkent, meðal annars með
því að kaupa hlutabréf hans miklu
meir en áður, bæði fyrir sjálfa sig og
fyrir sjóði opinberra stofnana.«
Hér skulu taldir helztu liðir í banka-
reikningnum, eins og þeir voru í árs-
lok 1910: Viðskijtavelta bankans og
útbúanna hefir numið alls nál. 59
miljónum (rúmum 5 milj. meira en.
í fyrra). Hlaupareikningsinnlög námu
í árslok 1910 662000 kr. (1909: rúm
1 miljón). lnnstæða af innlánuui nam
rúmum 1590 þús. (í fyrra rúmum
1350 þús.). Sparisjóðsjé (hjá útbúun-
um) nam (innstæðan) 444 þús. (í fyrra
352 þús.). Handveðslán námu 284
þús. (í fyrra 258 þús.), sjálfsskuldar-
ábyrgðarlán nál. 467 þús. (í fyrra 484
þús.), reikningslán 1612 þús. (i fyrra
1766 þús.), víxillán 3.2 milj. (í fyrra
2.9 milj.), ávisanir á erl. banka og
aðra utanbæjarviðskiftavini námu nærri
6 milj. (í fyrra nál. 4 milj.), innheimtur
hafa numið 2.7 milj.
Seðlaumjerðin hefir numið mest nál.
1.6 miljón (í októberlok), en minst
569 þús. (í marzlok). Málmjorðinn
hefir jafnan verið talsvert meiri en
lögákveðið er (3772% af seðlaum-
ferð). Minstur var hann 37.76% í
sept., en mestur 45.27 % í mat.
Vetðbréjiti námu í árslok 421000 kr.
— Bankinn skuldaði erl. bönkum o. fl.
nál. 674000, en átti hjá »ýmsum
skuldunautum« 622000.
Bankareksturinn hefir kostað rúm
72000 kr., tapið af afsögðum víxlum
talið 12.5 þús., en arðurinn numið
nál. 241000. Af honum fær lands-
sjóður rúm 12000, hluthafar alls 180
þús. kr. eða 6 %> varasjóður nál. 40
þús. og skift er milli fulltrúa og
framkvæmdarstjórnar 8,500 krónum,
þannig, að hinir 7 fulltrúar fá alls
4,250 kr. eða rúmar 600 kr. hver og
framkvæmdarstjórnin 4,250.
Reykjavikur-annáll.
Aflabrögð. Blessaður þorskurinn ætlar
eigi að gera endaslept við Faxaflóa-útgerð-
irnar. Mokafli enn, svo að dæmalaust mú
heita. Þeir eru nýkomnir inn báðir leigu-
botnvörpungar Thorsteinssons-hræðra annar
(skipstj. Jón Jóhannsson) með 63000, en
hinn með 50,000. Þá er og nýkominn inn
Jón forseti með 57000.
Afli Jóns Jóh. mun vera mestur að tölu,
sem á nokkurn botnvörpung hefir fengist.
Aflinn er stórfiskur að meiru en helming —
en einnig allmikill stútungsfiskur o. s. frv.
— Mest verið aflað fram nndan Austfjörð-
um — suðurfjörðunum.
Dönsku leikararnir. Troðfult hús var á
sunnudaginn — fyrsta sinni, sem þeir léku
— og fram yfir það. — Hitasvækjan i leik-
húsinu var þá allsófær — enda leið yfir
hraustustu menn af óloftinu; — þyrfti endi-
lega að bæta loftræsinguna. — I gærkveldi
var ekki eins ásett í husinu og þvi betur
viðunandi — loftið.
í kvöld leikur flokkurinn leik eftir danska
skáldið Hjalmar Bergström: Lynggaard
& Co. — fyrirtaks vel samið leikrit og
skemtilegt. Það var leikið á þjóðleikhús-
inu i Khöfn fyrir nokkurum árum og var
tekið svo ve), að leika varð mánnð eftir
mánuð.
Dánir: Ekkja Guðrún Eiriksdóttir, Lv.
74, 58 ára. Dó 20. mai.
Júhann Pétur Ásmundsson tómthúsm.,
Klapparstíg 18, 58 ára. Dó 20. maí.
Guðsþjánusta á morgun:
I dómkirkjunni: kl. 12 sira B. J.
(AltarÍBganga).
kl. 5 sira Jóh. Þ.
í fríkirkjnnni: kl. 12 sira Ól. Ól.
Hjúskapur: Helgi Guðmundsson Njáls-
götu 13 og ym. Einarína Eyrún Helgadótt-
ir. Gift 17. mai.
Björgvin Brynj. Jónsson snikkari Bjarg-
arstig og ym. Kristin Maria Guðmundsdóttir.
Gift 20. mai.
Leiðr. í síðasta biaði misprentaðist nafn
eitt: Jón Ág. Jónsson, á að vera Guð-
mundsson.
Skipaferðir: Vesta fór á mánudag aust-
ur á firði og til útlanda. Meðal farþega
Guðm. Guðmundsson, skáld frá Isaf., Þorst.
Gislason ritstj., Pétur Zophoníasson og Þor-
varður Þorvarðsson prentsmiðjustj. — allir
á stórstúkufund á Seyðislirði.
Ceres kom i gærkveldi frá Austfjörðum
og útlöndum —1 með allmargt farþega.
Frá Þýzkalandi kom Olafur Jónsson
myndamótari.