Ísafold - 27.05.1911, Qupperneq 3
ISAFOLD
135
Glaðlyndi hressir og fjörgai*
hugann eins og heilnæmt
læknislyf hressir likamann
Sunlight sápan visar á bug
deyfð og drunga.
Hun gjörir bjart yfir
heimilinu og gjörir erfiði
dagsins ljuft og ánægjulegt.
SUNLIGHT SAPA
2241
Aldarminning Forseta.
Hátíðarhaldið í höfuðstaðnum.
Nefndir þær, er bæjarstjórn og ýms
félög bæjarins kusu til þess að gang-
astfyrir hátíðarhaldi Reykjavíkur á aldar-
afmæli Jóns Sigurðssonar, hafa ný-
verið átt með sér sameiginlegan fund,
til að koma sér niður á, hvernig deg-
inum skuli hagað.
ísajold hefir í dag aflað sér vit
neskju um ráðagerðir forstöðumanna
— fullnaðarákvarðanir mega það þó
d^íheita, því að breytingar eru hugsan-
legar.
Svona lítur hin fyrirætlaða dagskrá
eða beinagrind hátíðahaldsins út.
Um morguninn kl. nál. 81/2—9:
Afhjúpað málverk af Jóni Sigurðssyni
í mentaskólanum með ræðum og söng.
Iðnsýningin opnuð í barnaskólanum
kl. 10.
Háskólinn settur kl. 12 — liklega í
alþingishúsinu.
Að þeirri athöfn lokinni er tilætl-
unin, að allur bærinn, konur jafnt sem
karlar, börn og gamalmenni — allir
sem vetling valda, og fleiri þó —
safnist saman á Austurvelli eða þar í
nánd og gangi í skrúðgöngu með fán-
um og annari prýði, hljóðfæraslætti
o. s. frv. suður að kirkjugarði og
verða þá lagðir blómsveigar á leiði
Forseta — en engin ræða haldin þar.
Að því loknu verður skrúðgöngunni
beint niður á Austurvöll eða ef til
vill — verði vont veður — suður í
Barnaskólagarð. A öðrum hvorum
þessum stað verða svo aðal minning-
arræðurnar haldnar og minningarljóð-
in sungin.
Siðari hluta dagsins (likl. um 4 leytið)
heldur svo Bókmentajélagið minningar-
samkomu.
Þar á eftir (kl. 5) verður Iprótta-
rnótið opnað suður á íþróttavellinum
og fara þar fram margs konar íþrótta-
sýningar.
Loks verður um kvöldið efut til
jagnaðarsamkvama i samkomuhúsum
bæjarins. Bærinn er svo illa birgur
af stórum samkvæmissölum, að ókleift
er að hafa samkvæmið eitt og á sama
stað. — Því miður.
En aðalminningin verður svo sem
áður getur, um miðjan daginn — og
par geta allir verið með — og skiftir
það mestu máli.
Reykjavikur-annáll,
Aðkomumenn: Pétur Jóhannsson hóksali,
Seyðisfirði, Sig. Sigurðsson kennari Hólum.
Guðsþjðnusta 4 morgun:
í dómkirkjunni: kl. 12: Jóh. Þork.
kl. 5: síra Bj. J.
í frikirkjunni: kl. 12: sira 01. Ól.
Altarisganga.
Hjúskapur: Hjörtur Hansson verzlm. og
ym. Hna Brandsdóttir. Glift 24. mai.
íþróttavöllurinn. Honum miðar óðum á-
fram. Að öllu forfallaiausu verður hann
fullger i næstu viku, svo að hægt verður
líklega að fara að nota hann á hvitasnnn-
nnni. — Mun íþróttasamhandið hafa í
hyggju að efna til einhverrar viðhafnar i
þvi skyni á hvitasunnudag. — Annan hvita-
sunnudag ætlar svo Iþróttafélagið að halda
þar iþróttaeýningu.
Leikhúsið er troðfult á hverju kveldi hjá
dönsku leikendunum. Á miðvikudag og
fimtudag léku þeir Lynggaard & Co — og
var svo mikið nm fögnuð áhorfenda, að
sýna urðu þeir sig oft — að leikslokum. —
Á morgun leika þeir tvö smáleikrit, Hr.
Alphonse eftir Alex. Dumas og En Pokkers
Tus (Ærsladrósin) eftir Erik Bagh. Þessa
leika ætla þeir og að sýna á þriðjudag.
En á fimtudag stendur til að leika hið
hugðnæma leikrit Heibergs: Elverhöj.
Silfurbruðkaup héldu þau hjón Thor Jen-
sen kaupm. og frú hans 21. þ. mán. —
Kjörgripur sá er Magnús Erlendsson gull-
smiður smíðaði, gullbeltið, sem getið var
um daginn var gjöf til silfurbrúðurinnar
frá manni hennar.
Skólapiltar fóru i gær skemtiferð upp að
Ártúnum — loka-leiðangur skólaársins. Voru
þar haldnar ræður og skemt sér við gleði
og gaman ýmislegt. En kalt i lofti og
vindasamt og gerði það nokkurn gleðiskort.
Skipaferðir. Austri var i gær á Mjóa-
firði i suðurleið, á áætlunardegi. /Sterling
kom til Leith í gærmorgun, Ask væntan-
legur að vestan i dag og fer svo til út-
landa.
Hólar komu í fyrra dag frá útlöndum,
Ceres fer á mánudag út.
Fræðslumálið.
Nokkrar athugasemdir við grein
Ólafs próf. Ólafssonar,
eftir Signrð Jónsson kennara.
---- Nl.
Þá kemur til athugunar það sem eig-
inlega er mergurinn málsins í grein pró-
fastsins.
Gersamleg breyting alls fræðslufyrir-
komulagsins, heimafræðsla eingöngu til
14 ára aldurs, en síðan unglingafræðsla
með styrk af latidssjóði.
Það er alveg óskiljanleg tröllatrú, sem
ýmsir virðast hafa á heimafræðslunni,
óskiljanleg vegna þess, að sú litla heima-
fræðsla, sem áður átti sór stað, hefir nú
á síðustu áratugum sífelt farið þverr-
andi.
Þegar lögin um fræðslu barna í skrift
og reikningi komust á fyrir 30 árum,
varð það brátt ljóst, að heimilin gátu
ekki fullnægt kröfum þeirra hjálparlaust.
Heimilin höfðu aldrei alment gert ann-
að en kenna börnunum lestur og »kver«
og þegar bezt lót eitthvað dálítið að
að draga til stafs. Og mjög var þessi
kensla öll ófullkomin. Fjöldi fólks varð
aldrei það sem kallað er »bænabókar-
fær« og kverið lærðu börnin eins og
þulu án nokkurra útskýringa. Þetta
var öll heimafræðslan, þegar hún var ein
um hituna. Annað eða meira eti þetta
gátu heimilin alment ekki veitt og voru
því neydd til að fá aðstoð til að geta
fullnægt nýjum kröfum. Þá byrjaði far-
kenslan og komst á smátt og smátt í
flestum héruðum landsins meira eða
minna, löngu áður en hin nýju fræðslu-
lög komu til sögunnar. Tilætlunin var
auðvitað sú, að heimilin gerðu eftir sem
áður það sem þau væru fær um, en
farkennararnir bættu það upp, einkum
fræðsiuna t' skrift og reikningi. En
reyndin varð önnur. Heimilin lögðu víða
alveg árar í bát og vörpuðu allri sinni
áhyggju upp á farkennarana, og það
jafnvel sum þau heimili, sem færust voru
til að annast fræðsluna sjálf. Eg veit
að svona var það til sveita undir hinum
eldri lögum, og það mun lítil breyting
hafa orðið á því til batnaðar á síðari
árum. Heimiliu standa þar líka enn
ver að vígi nú en áður, vegna fólks-
fækkunar.
Nú gera gildandi lög ráð fyrir, að
heimilin annist fræðslu barnanna til 10
ára aldurs, og ákveða, hvað þau eiga þá
að hafa lært. Kröfurnar eru ekki meiri
en svo, að engin ofraun ætti sæmilegum
heimilum að vera að fullnægja þeim.
En hvernig inna þau nú þessa skyldu
af hendi? Þar sem eg þekki til, gera
mörg þeirra það mjög slælega, og alls
ekki fá þau heimilin, sem ómögulega
geta það af sjálfra sín rammleik. Auð-
vitað eru margar heiðarlegar undantekn-
ingar og sum 10 ára gömul börn hafa
lært heima miklu meira en lögákveðið
er. En yfirleitt gefur ástandið að þessu
leyti enga ástæðu til að ætla að barna-
fræðslunni væri vel borgið með því að
fela hana heimilunum. Ástæðurnar eru
margvíslegar; sumstaðar fákunnátta heim-
ilisfólksins, en oftar þó aðrar kringum-
stæður. Fátækir einyrkjar hafa ærið að
starfa að afla fjölskyldunni viðurværis,
mæðurnar eða húsmæðurnar meira en
nóg við innanhússstörfin. Eldri systkini
hafa ekki tök á þeim yngri, þótt þau
vildu leiðbeina þeim eða gætu það. Þó
þekkingarskilyrðin sóu fyrir hendi, skort-
ir þá eldri oft ýmislegt annað til þess
að geta látið Ijós sitt. skína fyrir öðrum.
Það er sitt hvað að kunna sjálfur og að
geta kent öðrum.
Af því, sem nú hefir sagt verið, virð-
ist það ljóst, að þekking unglinganna
mundi verða mjög svo mismunandi og
sundurleit við 14 ára aldur, ef heim-
ilin ættu ein að sjá um hana, og
mundi það valda stórkostlegum örðug-
leikum við unglingafræðsluna. Sízt skal
eg neita nytsemi unglingaskólanna; en
til þess að þeir geti komið að veruleg-
um notum, útheimtist sæmilegur grund-
völlur til að byggja ofan á.
Að ætla unglingafræðslu að koma að
miklu leyti í stað barnafræðslu og byrja
fyrst að kenna einföldustu atriði bóklegra
fræða eftir 12 eða 14 ára aldur er að
vísu gömul hugmynd; en hún hefir þó
ýmsra orsaka vegna aldrei verið fram-
kvæmd.
Fyrst er nú það, að of mikill tími af
mannsæfinni fer til ónýtis, ef öllum æsku-
árunum er slept, án þess neitt só numið.
Og þegar svo unglingarnir eru orðnir
14 ára, þurfa margir þeirra að nota
tímann til að starfa að öðru en lög-
bunduu námi, annaðhvort að lótta undir
með foreldrum sínum eða vinna fyrir sór
sjálfir. Margir ráðast þá þegar í vist
og þarf tæplega að gera ráð fyrir að
húsbændur mundu alment taka því vel
að sleppa þeim úr vistinni um marga
mánuði til að ganga i skóla. Háværar
kvartanir um fólkseklu til sveita virðast
benda til þess, að flestir hafi nóg að
starfa, sem komnir eru á þann aldur.
Aðrir eru bundnir við að búa sig undir
einhverja ákveðna lífsstöðu og verða að
stunda sérnám í því skyni, og venju-
legast er sérnáminu þannig varið, að það
getur ekki samrýmst hinu almenna ung-
lingaskólanámi, og útheimtir auk þess
oft nokkurn veginu góða barnafræðslu
sem undirbúning.
Þar næst er annað að athuga, sem
ýmsum þeim, er ræða og rita um fræðslu-
málið, hættir við að sjást yfir, eða hafa
sumir ef til vill aldrei gert sór ljósa
grein fyrir. Það er þetta, að tilgangur
barttafræðslunnar er ekki einungis að
að fræða, veita þekkingu eða leikni í
ákveðnum námsgreinum, heldur einnig
og engu síður að uppala barnið. Mörg-
um hættir til að miða notagildi fræðsl-
unnar eingöngu við það beina gagn,
sem maðurinn hefir af henni síðar í líf-
inu. Þeir telja t. d. reikning nytsama
námsgrein að eins vegna þess að svo oft
þarf til hans að grípa í öllum viðskift-
um manna á milli, en gæta ekki hins,
að reikningsnámið hefir auk þess afar-
mikla þýðingu í þá átt að þroska hugs-
unina, venja á að hugsa Ijóst og skipu-
lega. Sögunám telja þeir óþarft, af því
að það komi svo sjaldan að beinum not-
um,“menn komist tæplega í þær kring-
umstæður, að það skifti miklu, hvort
þeir þekkja nafn, æfiferil eða dánarár
einhvers mikilmennis sögunnar o. s. frv.
Hitt er ekki íhugað, hve mikil og víð-
tæk áhrif sögunám hefir á hugsunarhátt
nemandans og skilning hans á mannlíf-
inu yfir höfuð. Að sjálfsögðu á þetta
ekki við um alt nám jafnt; kenslan get-
ur verið þannig, að þessi þýðing hennar
komi lítið til greina. En það á við um
allar námsgreinar meira og minna, sóu
þær rótt kendar.
Því er haldið fraro, að mikið af því,
sem börnum er kent, gleymist fljótt.
Þetta er satt. En það á ekki við um
börnin ein. Megnið af því sem menn
læra, þótt fullorðnir sóu, týnist bráðlega,
bó því ekki haldið við. Mun ekki
t. d. allmikill hluti þess, sem menn læra
í mentaskólanum, vera gleymt að nokkr-
um árum liðnnm, hafi ekki sérstakar
ástæður verið til að rifja það upp? En
þetta gerir í raun og veru ekki svo mik-
ið til. Hafi kenslan á annað borð verið
í lagi, þá hefir námið haft þau áhrif á
hugsunarhátt nemendanna, að hann er
talsvert frábrugðinn hinna, sem ekkert
hafa lært, víðsýnið meira, hugsunin Ijósari
og skilningurinn gleggri. Þau áhrif hald-
ast, þótt einstök atriði námsgreinanna
gleymist. Atidlegi þroskinn, sem námið
veitir, verður varanleg eign, og það
er aðalatriðið.
En það er einmitt þetta, sem ekki
má dragast fram á fullorðinsárin, að hafa
áhrif á hugsunarháttinn og þroska and-
ann, gróðursetja og glæða hið góða og
fagra, en reyna að útrýma því illa. Til
þess er hentugasti tíminn, meðan barns-
aldurinn stendur yfir; börnin eru mót-
tækilegri fyrir öllum slíkum áhrifum,
heldur en hálfvaxnir eða fullvaxnir menn.
Sú hugmynd að flytja barnafræðsluna
að mestu leyti til unglingsáranna, mundi
þannig, eins og nú hefir verið bent á,
reynast óframkvæmanleg, nema þá jafn-
framt væri til mutia vikið frá þeirri
stefnu að ákveðinnar fræðslu skuli allir
njóta. Og þótt hún væri framkvæman-
leg, þá er hún alls ekki æskileg frá upp-
eldisfræðilegu sjónarmiði.
Um kostnaðinn við það fyrirkomulag,
sem próf. stingur upp á, skal eg ekki
margt segja. Erfitt að áætla hann svo
að ekki geti miklu skeikað. En það
sýnistmór ljóst, að 10 mánaða skóla-
skylda á aldrinum 14—18 ára hljóti að
kosta meira en 8 mánaða f r æ ð s 1 u-
skylda á aldrinum 10—14 ára. Það er
hvorttveggja, að tíminn er lengri, enda
meiri kraftar teknir frá öðrum störfum.
En árangurinn yrði líka margfalt meiri,
munu menn segja. Þar til er því að
svara, að það er alt undir því komið,
hvernig undirbúning börnin fengju á
heimilunum. Og eg endurtek það, sem
eg sagði áður, að hann mundi reynast
afar mismunandi, og í samræmi við það
sem höf. segir frá sinni 30 ára reynslu,
get eg einnig af talsverðri reynslu borið
um það, hve erfitt er að kenna í einu
mörgum nemendum á misjöfnu stigi.
Þori eg að fullyrða, að meiri árangur
skal að öðru jöfnu verða af námi 12—*
14 ára barna, sem öll hafa sama undir-
búning, heldur en 14—18 ára unglinga
með mjög misjöfnum undirbúningi. En
ætti nú bæði að lögbjóða unglingafræðslu
og svo þar á ofan veita heimilunum
hjálp til að búa börnin undir hana, þá
yrði þess varla langt að bíða, að kvart-
anir heyrðust um gífurlega útgjaldahækk-
un og óbærilegan útgjaldaþunga.
Það andar dálítið kalt frá orðum próf.,
þegar hann minnist á »hörmungasjón-
ina« þá, er ókunnugir eða óviðkomandi
menn ala manninn í hlýindum baðstof-
unnar sem fræðarar og æskuleiðtogar
barnanna, en faðirinn sjálfur er að fást
við fjósaverkin og önnur útistörf. »Hörm-
ungasjónin« þessi byrjaði nú ekki með
fræðslulögunum frá 1907, og það er
meira að segja hverjum manni opinn
vegur samkv. þeim lögum að fá undan-
þágu og kenna börnum s/num sjálfur.
Nei; »hörmungasjónin« er blátt áfram
sprottin af því algilda lögmáli, að menn-
irnir eru misjafnlega hneigðir til hinna
mismunandi starfa eða misjafnlega til
þeirra hæfir., Margir eru svo gerðir, og
það þótt feður séu, að þeir hafa hvorki
lægni nó þolinmæði til að kenua börn-
um og vilja því alt annað fremur gera.
En sjálfsagt verður fræðslustarfið ekki
ánægjulegt nó ávaxtasamt, nema unnið
só að því af alúð og með fúsu geði af
mönnum, sem finna hjá sór sérstaka
köllun til þess.
Kennarar og foreldrar barnanna eru
samverkamenn að því háleita og þýðing-
armikla starfi að gera úr börnunum
sanna menn, nytsama og góða borgara
þjóðfólagsins. Kennararnir taka að sór
þann hluta þessa starfs, sem foreldrarn-
ir af einhverjum ástæðum eiga erfitt
með að leysa af hendi. En því að eins
getur árangurinn orðið góður, að sam-
vinnan só góð og samúð milli hlutað-
eigenda, að þeir skilji hlutverk sitt og
meti rótt hvor annars vilja og viðleitni
á að rækja það.
Þess er full þörf, að allir geri sór
þetta ljóst og leitist við að koma öðrum
í skilning um það. Á því byggist að
miklu leyti áranguiinn af fræðslu barn-
anna og uppeldi þelrra yfir höfuð og þá
jafnframt framtíð þeirra öll; en framtíð
barnanna er framtíð þjóðarinnar. Hitt
væri hörmungasjón, ef þess sæist vott-
ur, að nokkuð væri gert til að spilla
góðri samvinnu og samuð milli kennara
og foreldra; því tækist það, þá er fram-
tíðarheill þjóðarinnar í veði.
Reykjavík 29. apríl 1911.
Sími til Vestmanneyja.
Allar horfur eru á því að Vestmann-
eyingar fái síma út til sín á þessu
sumri.
Þeir vilja sjálfir leggja hann á sinn
kostnað — hugsa sér að mynda hluta-
félag í því skyni — eru þegar búnir
að ná allmikilli fúlgu til þess og sagt,
að þeir hafi trygt sér lán í öðrum
bankanum, ef á kynni að vanta hluta-
féð.
Gert hafa þeir út sendinefnd frá sér,
þá Gísla JohnSen konsúl o. fl. til að
sækja um einkaleyfi og koma málinu
áleiðis. Eru sendimenn hér þessa
dagana — og hefir ísafold haft tal af
einum þeirra. Sagði hann að einka-
leyfið mundi vera að fœðast.
Þeir um það — Vestmanneyingar,
ur því þeir vilja sjáljir hætta fé sínu
í símafyrirtæki. — Gott, að landssjóð-
ur slapp við það.
Verði úr þessu — er sjálfsagt að
snúa sér að því að fá öfluga loftskeyta-
stöð hér í höfuðstaðnum. Loftskeyta-
lausir megum vér eigi vera lengur úr
þessu — svo eru þau mikils um verð
t. d. fytir veiðiskipin umhverfis strend-
ur vorar.
Landar erlendis.
Frú Sigr. Ásgeirsson, móðir Ásgeirs
etazráðs, varð áttræð 16. þ. mán. og
hafði hún þá boð mikið inni í bústað
sínum í Hellerup við Kaupmannahöfn.
Frúin er vel ern.
Pétur Jónsson söngvari er nú á ferða-
lagi um Vesturheim með danska stú-
dentasöngfólaginu. Þegar úr þeim leið-
angri kemur er ferðinni heitið hingað
heim, og mun Pótur hafa f hyggju að
syngja fyrir fólkið einhvern tíma í júlí.
Jón Þ. Sivertsen, fóstursonur Guðm.
Magnússonar læknis, hefir nýlega lokið
prófi við kaupmannaskólann í Kaup-
mannahöfn með hárri fyrstu einkunn.
Mannalát.
Látin er nýlega læknisfrú Sigriður
Sigurðardóttir í Skálhoiti kona Skúla
Arnasonar læknis en dóttir Sigurðar
heit. Magnússonar bónda á Kópsvatni.
Hún var á fertugsaldri, mesta myndar
og gæða kona.
Reykjavik Teater.
(Det danske Teaterselskab).
Söndag ss/6 \ J Hr- A|Ph<>nse
> Kl. ö1/,: < oir
Tirsdag S0/6 ) \ En Pokkers Tös.
Olíumálverk
prýðisfalleg hjá
Eyvindi og Jóni Setberg.
Háisiíii
manchetskyrtur (Royal), hálsbindi og
slaufur nýkomið í verzlun
H. Andersen & Sön.
Groquet og Diabolo
í verzlun
B. H. Bjarnason.
Tvö hjól
mjög ódýr hjá
Cyvindi cflrnasyni.
2 stúlkur
vanar fatasaumi óskast nú þegar á
saumastofu
H. Andersen & Sön.
Hjartanlega þakka eg öllum þeim, sem veittu mér aðstoð og samhygð i legu, fráfalli og jarðarför sonar mins, Jóns Andréssonar. Guðlaug 1. Jónsdóttir.
Beztu legsteinar
úr
Granít og marmara
hjá
Cyvinéi & c7. SafGery.
Próf verður haldið í hússtjórnar-
deild Kvennaskólans 29. maí íd. n
f. h. til 3 e. h.