Ísafold - 03.06.1911, Blaðsíða 2
142
ISAFOLD
Gísít Sveinsson og
Vigfús Einarsson
yfirdómslögmenn.
Skrifstofutími II* 1/,—!I og 5—6.
Þingholtsstræti 19. Talsimi 263
Carl Kiichler.
In Lavawiisten und Zau-
berwelten auf Island.
Bls. IX-f233+107 myndir.
Berlin.
Kuchler var þá enn í lærða skól-
anum í Grimma, en hugur hans drógst
að íslandi og bókmentum þess. Og
hann hefir aldrei getað slitið sig fr;.
þessu viðfangsefni síðan, því að hann
hefir felt svo ríkan ástarhug til þess
starfs, að hann má ekki af því láta
og allar fegurstu vonir hans og end-
urminningar eru við það bundnar. —
En örlög hans hafa verið lík örlög-
um flestra íslenzkra rithöfunda að þv
leyti, að hann hefir ekki átt þess kost
fyrir fátæktar sakir að verja öllum
sínum miklu starfskröftum til þess
verksins, sem honum er kærast. Hefir
hann orðið að vinna allerfiða vinnu
til framfærslu sér og sínum fyrst við
ferðabækur Badekers og síðan í skóla
þeim í Varel (frb. Farel), sem hann
er nú kennari í.
Þó hefir á honum sannast að mikið
má, ef vel vill. Því að æði mikið
liggur eftir hann af þýðingum úr ís-
lenzku fornri og nýrri, af ritum um
bókmentir vorar og leiklist og auk
þess þrjár ferðabækur allstórar og
mjög vandaðar. Er þessi hin siðasta
mest og vönduðust. Hér er sem i
öðrum ritum hans að ást hans á landi
og lýð hlær við oss í hverri línu.
En ást sér gegnum hóla, og því sér
hann oft gott þar sem öfundsjúk augu
innlendra þjóðníðinga sjá ilt eitt. Og
oftastnær sér hann réttar, sem vænta
má, enda ættu íslendingar sízt að
kvarta yfir, þótt velvild hefði ein-
hverstaðar glapið honum sýn.
Hann hefir unnið landi þessu hið
mesta gagn með ritum sínum um
það og aukið þekking annara þjóða
á oss og landi voru, háttum vorum
og menning. Hefir hann bæði ritað
um þetta vel og ljóslega og látið
fylgja mesta fjölda af ágætlega gerð-
um ljósmyndum af fögrum og ein-
kennilegum stöðum hér á landi.
Því fremur ættum vér íslendingar
að þakka honum mikið og gott starf
til hags og heiðurs landi voru, sem
hann á erfiðara heima fyrir. Þvi að
menn þar í landi unna honum ekki
að fá lengt sumarleyfi sitt til ferða-
lags hingað og vilja banna honum
svo mikla aukavinnu, sem þarf til
slíkra verka.
En eg veit að honum mundi hin
mesta gleði, ef hann yrði þess var,
að hann hefði vakið nokkura endur-
ást hjá íslendingum, þeirri þjóð sem
hann ann mest og vildi helzt vinna
fyrir.
Hafi hann þökk fyrir starf sirt og
vináttu og veiti hamingjan honum
mátt til nýrra verka.
Reykjavík 2. júní 1911.
Bjarni Jónsson
frá Vogi.
Mannslát.
Frú Leopoldína Friðriksson, ekkja
Halldórs Friðrikssonar yfirkennara —
(f 1902) lézt hér í bænum í gær 2
stundum eftir hádegi — í hárri elli,
85 ára og 7 dögum betur.
Hún var af dönskum ættum (f.Degen)
— giftist Halldóri Friðrikssyni 1849.
Síðustu árin þjáði hana mjög van-
heilsa, en hún bar sjúkdóm sinn með
þolgæði og hugprýði, og hafði lengst-
um fótavist.
Af börnum hennar og þeirrahjóna
eru á iífi Július læknir, Moritz læknir
f Vesturheimi, frú Anna kona Hall-
dórs yfirdómara, frú Sigríður kona
síra Janusar Jónssonar og frk. Þóra
kennari.
-----f----
Þjóðvinafélagið.
Eg sé að fyrv. bankastjóri Tryggvi
Gunnarsson hefir sett svolátandi aug-
lýsingu í »Lögréttu« 31. maí þ. á.:
»Af því margir menn hafa skrifað mér
með nú nýkomnnm póstum, og aðrir mnnn-
lega sagt mér, að þeir vildu nú þegar segja
sig úr Þjóðvinafélaginu, þá vil eg hér með
gera kunnugt, að eg verð við nefnt félag
til næsta nýjárs og að alt er að ölln óhreytt
frá þvi, sem verið hefur, bæði með afhend-
ing bóka og móttöku peninga, og vil eg
þvi biðja alla viðskiftavini félagBÍns, að
halda áfram þetta ár sömu trygð við mig
og félagið sem hingað til.«
Þó að eg þykist vita að auglýsing
þessi sé sjálfsagt birt í því skyni, að
bæta fyrir Þjóðvinafélaginu, þykir mér
þó varlegra að auka því við að biðja
alla félagsmenn og viðskifta vini þess
að halda trygð og velvild góðri við
félagið ekki einungis til næsta nýjárs,
heldur og framvegis. Það mun
verða reynt að sjá um að bækurnar
verði eins vel úr garði gerðar og Jult
svo óhlutdrægar, Jjölbreyttar að ejni og
sketntilegar ejtirleiðis sem hingað til.
Þessu held eg, ofmetnaðarlaust sagt,
sé óhætt að treysta.
Að öðru leyti skal eg geta þess, að
Tryggvi Gunnarsson hefir ákveðið það
sjáljur að skila ekki af sér félaginu í
mínar hendur fyrri en um næstu ára-
mót, og sjálfur ætlaðist eg ekki til
þess af honum fyrri. En á flokks-
fundi meiri hluta þingmanna, sem hald-
inn var næstur eftir að forsetakosning
í félaginu fór fram, var gerð fundar-
samþykt og bókuð í fundarbók flokks-
ins, þar sem skorað var á mig að sjá
um það, að Tryggvi Gunnarsson
skilaði Jélaginu af sér sem Jyrst í mín-
ar hendur. Margir flokksmenn kröfð-
ust þess að afhendingin færi fram
þegar í stað og að Tryggvi Gunnars-
son hefði enga meðgerð með þessa
árs bókum, en eg fékk snúið orðalagi
samþyktarinnar svo, að ekki væri frek-
ar að kveðið en að þetta skyldi gert
»sem fyrst«, því að mér var ógeðfelt
að það þyrfti að vera öðruvísi en með
nokkurnveginn samkomulagi.
Hvenær eg kann að fara fram á það
að gera framkvæmd úr fundarsamþykt
þessari hefi eg ekki enn ráðið og veit
þó ekki hvort það er vítalaust. En
eitt verð eg að biðja Tryggva Gunn-
arsson um nú þegar, og það er að aug-
lýsa ekki neitt eftirleiðis fyrir félags-
ins hönd, án þess að láta mig sjá það
áður, því að eg sé að annars getur
kanske farið svo — þótt í góðri mein-
ing sé gert — að það líti svo út með
auglýsingum hans eins og hann sé að
gefa mönnum undir fótinn að segja
sig úr félaginu, þegar hann sé ekki
lengur orðinn forseti þess.
Það vita allir, sem mig kusu til
forseta í félaginu, að eg sóttist ekki
eftir að verða það. A undirbúnings-
fundi meirihlutaflokksins á þingi
undir forsetakosninguna var mönnum
svo gjörsamlega horfinn hugur frá því
að hafa Tryggva lengur, að hann fékk
þar eitt einasta atkvæði, og það var
mitt eigið atkvæði. En hitt er mér
nú áhugamál, að gamli forsetinn vinni
félaginu enga óþörf um leið og hann
fer frá.
Félagsmönnum mun verða auglýst
innan skamms, hvenær þeir eigi að
hætta að snúa sér til Tryggva Gunn-
arssonar um málefni Þjóðvinafélags-
ins.
Jón Þorkelsson.
Stýrimannaskóliun.
Hinu meira stýrimannaprófi luku
þar þessir 4 lærisveinar skólans 13.
þ. m. (mai):
Jón O. V. Jónsson, Rvík ioj^stig
Gísli Guðmundsson, Dýraf. 91 —
Guðbj. Ólafsson, Patreksfirði 91 —
Gísli Þorsteinsson, Garði . . 89 —
Hæsta einkunn við próf þetta er
112 stig, en til þess að standast það
>arf 48 stig.
Prófdómendur voru síra Eiríkur
3riem, skipstj. Hannes Hafliðason og
cand. juris Magnús Guðmundsson.
x) Enginn hefir áður náð jafnhárri
aðaleinkunn við próf þetta.
Leikhúsið.
Otto Benzon: Eu Skaudale.
Dönsku leikararnir léku á fimtudag-
inn fyrsta sinni Hneykslið, eftir Otto
Benzon. Höfundurinn er lyfsali í
Khöfn og hefir skáldskapinn í hjáverk-
um. Hann hefir samið allmörg leik-
rit, sem öll eða flest hafa náð óvenju
mikilli leikhúshylli. Heldur þar til,
að maðurinn er meinfyndinn á köfl-
um, en gamanið græskulítið oftast
nær.
Benzon hefir mikla andstygð á öll-
um broddborgaraskap og snobba-
hætti — og dregur dár að þeirri ó-
svinnu af öllum vilja.
í þessu leikriti er skotskífa hans
etazráðsheimili eitt í Kaupmannahöfn,
þar sem húsráðendur og annar sonur-
inn eru á kafi í snobbalátum og tildri.
En hinn sonurinn, sem er Iæknir, er
álveg fagnstæður í öllum skoðunum
bæði i orði og — á borði. Hann
verður ástfanginn af þjónustumey af
lágum stigum þar á heimilinu og horf-
ir ekki í að hugsa til kvonfangs við
hana. Bróðir hans kemst á snoðir
um þetta, segir foreldrum sínum frá
því. Þau standast eigi reiðari og gera
nú alt sem í þeirra valdi stendur til
að stía þeim sundur. Til sögunnar kem-
ur aðalsmannsræfill einn, á biðilsbuxum
til hinnar ríku etazráðsdóttur — og
ber nú heldur en eigi vel í veiði, er
hann lætur það uppi, að hann hafi
dregið stúlkuna, sem um er að tefla
á tálar. Hún er rekin burt — hin
»fallna« stúlka — meðan unnusti
hennar er á ferðalagi — af etazráðs-
hjónunum.
Er nú svo komið, að aðalsmaður-
inn, sem tælt hefir hina umkomulausu
stúlku — er að verða tengdasonur et-
azráðshjónanna, en sjálf er stúlkan
rekin burtu, aj pví að son þeirra lang-
ar til að eiga hana.
En sama kvöldið og trúlofunin á að
verða heyrinkunn, kemur læknirinn
heim og tekur þá í taumana, segir
systur sinni, hvern mann unnusti henn-
ar tilvonandi hafi að geyma — og
verður það til þess, að hún rekur
unnustann út.
Leikurinn endar á því, að etazráðs-
hjónin og hinn sonur þeirra eru á
glóðum að bíða eftir samkvæmisgest-
unum — dauðhrædd við hneykslið, sem
af þessu muni stafa fyrir sig.
Um leikendur er það að segja, að
þeim tókst sízt við þenna leik afþví,
er enn hafa þeir sýnt.
Ekki nógu mikið fjör hjá þeim —
persónurnar eigi svo glögglega dregn-
ar upp, sem átt hefði að vera.
Leikstjórinn sjálfur leysti hér sem
ella bezt af hendi hlutverk sitt, lækn-
irinn. Hispursleysið og festan lýsti
sér mikið vel i leik hans.
Arthur Hansen hefir höf. lagt i
munn ýmsar ágætis hugleiðingar og
smellin orð. Af þeim fór of mikið
fyrir ofan garð og neðan hjá áheyr-
endum — vegna þess að leikandinn
(Hr. Stöckel) hafði eigi lag á að fara
með eins vel og skyldi — eins og
hann væri feiminn og þyrði eigi að
sleppa sér.
Etazráðið lék hr. Groth. Hann hefir
sérlega mikið lag á að leika á hlátur-
vöðva áheyrenda — og beitir þvi ef
til vill um of í þessu blutverki. Og
etazráðið er naumast önnur eins logn-
húfa og hr. Groth gerir hann.
Frk. Fahl er yfirleitt smekklega leik-
in af frk. Cörlu Miiller, en sjálfsagt
mætti bera meira á gremjunni við hús-
bændur hennar í 3. þætti.
Frk. Alger nefir náð allgóðum tök-
um á dótturinni, en hr. Lakjer miklu
síður á aðalsmanninum og gerfi hans
er alls eigi gott.
Etazráðsfrúna leikur frú Boesen —
auðvitað vel, en síður fer henni þetta
hlutverk en önnur, sem hún hefir haft
með höndum.
Lgo.
--------------------
Eftlrlitsmaður Silfurbergs-
náma af landsins hálfu, kvað
skipaður, Páll T. Halldórsson — að
því er stjórnarbl. segir.
Uilarverkun.
í fjárlögum var veittur 1200 kr.
styrkur næstu tvö ár til manns til að
kynna sér verkun og flokkun á ísl.
ull undir markaðinn erlendis og ferð-
ast síðan um landið og kynna bænd-
um meðferð á ull til útflutnings á
markaðinn.
Til þessa starfs hefir verið kjörinn
Sigurgeir Einarsson verzlm. og fór hann
utan um daginn í þessu skj ni.
f Hans Danaprins
bróðir Kristjáns konungs 9 og föð-
urbróðir konungsins sem nú er —
er sagður látinn — fyrir nokkrum
dögum. Hann var hálfníræður.
Ráðherrann og skilnaðurinn
í þýzka myndablaðinu »Die Woche*
er myr.d af þingræðis(!)ráðherranum
okkar og fylgja nokkur orð um það,
að honum sé ætlað að Jylgja Jram
skilnaðarhreyjingum landa sinna móti
persónusambands-ráðagerðunum.
Altaf heyrir maður eitthvað nýtt!
Raflýsing Eskiiijarðar.
Sá er falið hefir verið að sjá um
raflýsing bæjarins er hr. Paul Smith
landsímamaður, en eigi hr. Halldór
Guðmundsson eins og sagt var í síð-
asta blaði. En Halldór stendur fyrir
smíðinni fyrir hönd Smiths.
Þingmenskuframboð.
Bjarni frá Vogi var á ferð vestur
í Dölum nýverið. Hann hélt þar 7
fundi með kjósendum. Bjarna var
vel tekið á öllum fundinum; andróð-
ur enginn. — Bjarni skildi eftir vestra
þingmenskuframboð.
Sagt að Guðjón Guðlaugsson, stranda-
þingm. fyrv., eigi að elta ólar við
Bjarna i Dalasýslu, en lítt mun honum
tjá það.
Reykjavikur-annáll.
Aflabrögð: I fyrradag komu tveir botn-
vörpnngar inn á Seyðisfjörð með ógrynni
fiskjar. Lord Nelson (skipstj. Hjalti Jóns-
son) með 65000 og annar botnvörpnngnr,
sem Þorsteinn frá Bakkabúð stjórnar með
68000.
Brunabótavirðingar samþ. á siðasta bæjar-
stjórnarfnndi:
Húseign Gnðm. Gnðmnndssonar
Bræðraborgarstig 3 . . kr. 4445
----Guðm. Magnússonar
* Grnndarstig 15 ......— 10567
----Guðrlðar J. Jónsdóttur
Langaveg 33 .........— 4406
Dánfr. Ym. Guðlina Jóhannesdóttir frá
Hliðartúni í Dalasýsln, 12 ára. Dó 30. mai.
Elverhöj, hið nafnkunna æfintýraleikrit
danska skáldsins J. L. Heiberg verður leik-
ið á 2. hvitasnnnudag og næstn daga af
dönskn ieikurnnnm.
Eins og flestnm mnn kunnugt gerist það
leikrit á dögum Kristjáns 4. í Danmörku.
Sjálfnr er Kristján 4. aðalpersónan i leikn-
nm (leikinn af hr. Fritz Boesen) — en auk
þess koma margir höfðingjar þar i landi
við leikinn. Mikið er um skraut — fagra
búninga o. s. frv. — Leikið verður undir
af 5 manna hljóðfæraflokk: 2 fortepianó,
1 harmóníum og 2 fiðlur.
Leikflokknrinn hefir fengið nokkura ís-
lendinga til að leika með sér i Elverhöj.
Bjarni Björnsson leikur þar eitt hlntverkið.
Fischerssund vill Gunnar Gunnarsson
kanpm. fá framlengt upp að Hildibrands-
húsi við Garðastræti og býðst til að kosta
vegargerðina og greiða */, matsverð á lóð-
inni, sem nndir það þarf að taka. Bæjar-
stjóm samþykti að verða við beiðni G. G.
Guðsþjónusta nm hvitasunnuna.
í dómkirkjunni:
Hvitasunnudag kl. 12, sira Bj. J.
kl. 5, slra Jóh. Þ.
2. hvitasnnnndag kl. 12, sira Jóh. Þ.
kl. 5, sira Bj. J.
(Dönsk messa).
í frikirkjunni ;
Hádegismessa báða helgidaga: síra Ól. Ól.
Harald Krabbe prófessor faðir Þorvalds
Krabbe landsverkfræðings kom hingað á
Botniu í morgun kynnisför til sonar sins.
Hótel ísland. í veitingasalnum þ»r er
frú Valborg Einarsson farin að leika
undir fiðluspili hr. Oscars Johansen. Frúin
er einkarvel fær i þeirri list. Oft hin mesta
unun að hlnsta á hljómleika þeirra. Þau
eru hvergi smeik við að leggja út i þunga
kafla nr söngleiknm Bizet, Wagners, Gounod,
Verdi 0. s. frv.
íþróttavöllurinn. Hann er nú það langt
kominn að hægt verðnr að byrja að nota
hann dálitið til leika á hvitasunnunni eða
svo. En fullger verðnr hann eigi fyr en
um næstu helgi.
Skipaferðir. Botnia (skipstj. Aasberg)
kom hingað frá útlöndum i morgun. Meðal
farþega: frú Margrét Zoega, Ól. Árnason
kaupm., nokkurir Yestnr-íslendingar: Jón
Yopni, Guðjón Ólafsson 0. fl. Ennfremur
nokkurir Englendingar.
Sandgræðslumál.
í 50. tbl. »Þjóðólfs« 60. árg. er stutt
hugvekja um sandfok. Eg minnist þess
ekki, að hafa séð þessu máli hreyft
opinberlega s'ðan, að öðru leyti en því,
að skömmu seinna flutti sama blað of-
urlitla ádrepu sama efnis. Alþingi, sem
háð var seinna á þeim vetri, tók málið
ekki til meðferðar og skal engum get-
um um það leitt, hvernig á því hefir
staðið.
Af þessu má nú meðal annars ráða
það, að annaðhvort á þetta mál 5>for-
mælendur fá«, eða þeir eru nauða fram-
takslitlir. Eða þá að mönnum er málið
annaðhvort ekki nægilega ljóst til þess,
að þeir geti um það hugsað að gagni
og lagt orð í belg, eða að það er ekki
þess vert, að því só gaumur gefinu. Með
því að sumar af þessum getgátum eru
engar getgátur, og með því að svona
lítið hefir verið um það rætt, þá mun
varla hregt að kalla það, að bera íbakka
fullan lækinn, þó að nú séu rifjaðar
upp helztu orsakir sandfoksins á landi
voru, bent á hættuna, sem af þvi getur
stafað, ef ekkert ei að gert og helztu
ráðin, sem hugsanlegt er að beita megi
til að afstyra henni. Það gæti þá ef til
vill orðið til þess, að einhver færi að
líta í kring um sig, gæta að, hvort ekki
væri hætta á ferðum við tærnar á hon-
um, hætta, sem hann hefði ekki tekið
eftir áður. Og þó að það væri ekki
nema einn — en það er víst, að þeir
verða fleiri, — sem sú athugun gæti
orðin til góðs, þá er betur farið en
heima setið.
Fáir, sem búnir eru að slíta barna-
skónum, munu bera svo glögg merki
heimaeldisins, að ekki hafi þeir oftar en
einu sinni gengið upp á eina eða aðra
hæð í grendinni. Eflaust hefir fátt ný-
stárlegt borið fyrir augun, nema k/rnar
og kindurnar og hestarnir, sem alt af
voru sitt á hverjum stað í hvert skifti.
Nú skulum vór, lesari góður, fylgjast
að upp á einhverja hæð, þar sem slótt-
ar mýrar eru alsstaðar umhverfis, en
skeytum ekkert um búfónaðinn rótt á
meðan. Setjum svo, að þetta só á
þurrum, lygnum vordegi.
Við stöndum þá þarna uppi á hæð-
inni, hressum okkur á hreinu loftinu
og dáumst ef til vill að einu og öðru,
sem fyrir augun ber. En þegar minst
varir sjást sk/hnoðrar hór og hvar á
himninum, sem áður var alheiður. Það
fer að hvessa. Grasið á m/rinni geng-
ur í bylgjum fyrir vindinum. En upp
úr miðjum ölduganginum rís hár, mó
rauður strókur. Við könnumst við hverju
það sætir: það er moldrok eða sandfok.
Sandfok í miðri myrinni? Það skilj-
um við ekki. Við verðum að fara og
rannsaka, hvernig á því stendur og
spyrjast fyrir um það.
Við höldum heim að bænum, sem
næstur er blettinum, sem rauk úr. Ef
til vill getum við fengið fullorðinn mann,
sem dvalið hefir á þessum bæ í 25—50
ár, til að fylgja okkur. Og jafnframt
því, sem við athugum sjálfir, spyrjum
við hann spjörunum úr.
Þegar við nálægjumst flagið sjáum
við, að upp úr því standa háir moldar-
hnausar — miklu hærri en grasborðið
umhverfis. Þarna hefir þá ef til vill
verið hæð eða bunga áður en blástur-
inn byrjaði. En þeir hafa líka getað
hækkað eftir þann tfma, einkum um
það leyti, sem grassvörðurinn, sem kring
um þá var, fauk í burtu. Nokkrir
þeirra eru stórir um sig — heilar torf-
ur — aðrir minni og sumir virðast ekki
öllu gildari en þrekinn maður. En allir
eru þeir líkir í vaxtarlagi: svipaðir fífl-
um. Að neðanverðu, eða um miðbikið
eru þeir mjóstir, en miklu gildari efst,
llkt og karfa — höfuð — fífiísins. Vind-
urinn hefir sópað, og sópar moldinni
úr hliðunum, en grasræturnar hamla
því, að hann nái að flytja hana í burtu
úr efstu brúnunum, því að allir eru
hnausarnir grasi vaxnir að ofanverðu.
Þeir mjókka nú meir og meir að neðan,
þangað til hálsinn getur ekki lengur
borið þuuga höfuðsins — grasrótina.
Hálsinn brotnar, höfuðið fellur niður,
mylst í sundur, fúnar og f/kur í burtu.
Á milli hnausanna og grasblettanna
er gróðurlaus sandur og mold, því að
þar er hreyfingin svo mikil á kornun-
um, þegar vindur er, að ekkert fræ nær
að festa þar rætur. Alt þetta og ymis-
legt fleira getum við leeið í lófa okkar,
ef við höfum kynst einhverjum öðrum
svipuðum bletti og tekið eftir hvernig
þar breyttist, og því getum við einnig
nokkuð ráðið, hvernig fara muni hór
En eitt er okkur óljóst: hvernig á því
stendur, að grasrótin bilaði og hór byr-
jaði áð blása upp, því að alt er grasi
vafið umhverfis og bletturinn ekki mjög
stór.
Við snúum okkur því að gamla mann-
inum og spyrjum hann, hvort hór hafi
verið nokkurt flag, þegar hann mundi
fyrst eftir. Nei, þar var ekkert flag
og ekki meira en 18—20 ár síðan það
myndaðist. Við rengjum hann og höld-
um þvf fast fram, að einhversstaðar hafi
þó sést í mold. Hann brosir við og
segir: »Jú, auðvitað í götunni«. Hnút-
urinn er leystur og nú fáum við að vita,
að hór var fjölfarin gata, sem menn
fóru um á leið til kaupstaðarins áður
en »n/i vegurinn« var lagður. — Hafa
margir af lesendunum gert sór í hugar-
lund, að n/ju vegirnir geti firt oss þeim
vandræðum, sem uppblástur landsins
veldur?
Eg verð að taka það fram hór, að
þessi I/sing er enginn tilbúningur út i
bláinn. Eg hefi haft ákveðið svæði fyr-
ir augum, þar sem einmitt þannig hefir
gengið.
Og þannig er það oft og víða, að