Ísafold - 23.09.1911, Síða 1
Kenmi út tvisvar 1 vikn. Verfi árg. (80
arkir minst) l kr. orlendio B kr, eBa 1 */»
dollar; borgist fyrir mibjan júli (erlendis
fyrir fram). _________
ISAFOLD
Uppsðgn (skrifleg') bnndin við úramót, ei
ógild nema komin sé til útgefanda fyrir
1. okt. ng aaxpandi sknldlans, vib blabib
Af'jreiBsla: Anstnrstrseti 8.
XXXVHI. árg.
Reykjavík 23. sept. 1911.
58. tölublað
I. O. O. P. 921189
Bókasafn Alþ. lestrarfél. Pósthússtr. 14 5—8.
Forngripasafn opiö hvern yirkan dag 12—2
íslandsbanki opinn 10—2 V* og 51/*—7.
K. F. D. M. Lestrar- og skrifstofa frá 8 Ard. til
10 söd. Alm. fundir fsd. og sd. 8 */* síhdegis.
Landakotskirkja. öuösþj. 91/* og 8 á helgum
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 10 V*—12 og 4—5
Landsbankinn 11-2 */a, öVi-ö1/*. Bankastj. yib 12-2
Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—8
Landsbúnaóarfólagsskrifstofan opin trá 12—2
Landsféhirbir 10—2 og 5—6.
Landsskjalasafniö á þrd. fmd. og ld. 12—1
Landsiminn opinn virka daga 8 árd. — 9 siðd.
helga daga 8—11 og 4—6,
Lækning ók. i lœknask. þribjd. og föstd. 11—12
Náttúrugripasafn opib 1 */*—2»/a á sunnudögum
Ókeypis eyrna-, nef- og hálslækning Pósthús-
stræti 14 2. og 4. fimtud. i hv. mánuöi. 2—8.
Stjórnarráösskrifstofurnar opnai 10-4 daglega.
Sýning gripa Jóns Sigurössonar i Safnahúsiuu
opin kl. 12—2 hvern dag.
Tannlækning ók. Pósth.str.14, 1. og 8.md. 11—1
Vifilsstaöahæliö. Heimsóknartimi 12—1.
Taxaftóagufubát. tngótfur
fer til
Borgarness 23. 27. sept.
Garðs 30. sept.
Gjalddagi ísafoldar var
15. júlí.
Barnaskapurinn
frá Arnarholti.
»Uppkast« þeirra Heimastjórnar-
manna er að verða þeim að vandræða-
barni. Nii vill þingflokkur þeirra
sem fæst um það tala. Hann lofar
öllu fögru, ætlar ekki að demba því
á þjóðina, nema með mestu varhygð
o. s. frv. Einn höfðinginn, sem var
allra-æstastur með því fyrir þrem ár-
um, telur nú það sem graut, sem
þjóðin hafi hrækt í og ekki komi til
mála, að hún fari að gæða sér á því
góðgæti- hér á eftir. Skiljanlegt, að
svona sé hentugra að tala á undan
kosningunum.
En til eru barnalegar sálir, sem láta
sér ekki skiljast þetta. Kænska þess-
ara Heimastjórnar-höfðingja er meira
dýpi en svo, að þær fái stikað það.
Þeim finst, að úr því að þær elski
Uppkastið, þá megi þær seqja það.
Og ekki ættu Sjálfstæðismenn að
kvarta undan þeirri einlægni. »Glögt
er það enn, hvað þeir vilja«, segir
skáldið. Heimastjórnarmenn vilja
Uppkastið. Þeir vilja að það sé eng-
um tvímælum undirorpið, að við sé-
um partur af »det samlede danske
Rige* eins og þar stendur. Ekki er
það nein mótgjörð við oss, að til séu
Heimastjórnarmenn, sem segja það nú
sem glöggvast. Annað mál er það,
hve mikil þægð flokki þeirra er í þeim
glöggleika.
Ein þessara barnslegu sálna er í
sýslumanninum í Arnarholti. Hann
er sennilega ekki i raun og veru æst-
ari Uppkastsmaður en aðrir innlimun-
armenn. En hann er svo hreinskil-
inn, að hann sýnir það þjóðinni á 64
prentuðum blaðsíðum, að þegar hann
fer að hugsa um 100 ára afmæli Jóns
Sigurðssonar, þá verða allar hans
hugsanir um Uppkastið — Uppkastið
— og ekkert annað en Uppkastið 1
Þessar hugsanir sínar kallar hann
Afmælishugleiðingar.
En þó að hreinskilnina beri að
virða á betra veg, þá er ekki því að
leyna, að hugleiðingar hans eru jafn-
barnalegar og hreinskilnin — furðu-
vitlausar með öðrum orðum — og
orðbragðið sumstaðar ekki sem gæti-
legast né prúðmannlegast.
Alt er hjá honum á þeirri staðhæf-
ing reist, að með Uppkastinu hefði
stefna Jóns Sigurðssonar unnið algerð-
an sigur — ef íslendingar hefðu þegið
það.
Svo virðist, sem höf. hefði átt að
geta búist við þvi, að þessi grund-
vallarstaðhæfing hans væri ekki af öll-
um lesendum talinn sjálfsagður sann-
leikur — að einhvern kynni að furða
á því, að Jón Sigurðsson hefði aldrei
neitt viljað annað en Uppkastið —
svo að hentugra hefði verið að reyna
að sanna þetta. En fyrir því hefir
hann ekki með einu orði.
Hann lætur sér nægja að fullyrða
þetta — og svo að skamma menn
fyrir, að þeir hafi ekki viljað Uppkast-
ið, þar sem Jón Sigurðsson hafi vilj-
að það.
Aðrir menn hafa sannað það, að
stefna Jóns Sigurðssonar var svo fjar-
læg stefnunni í Uppkastinu, sem austr-
ið er vestriau. Nú síðast hefir land-
ritari gert það í Skírni i sumar. Sýslu-
maðurinn i Arnarholti ætti einhvern-
tíma að lesa þá ritgjörð, þegar hann
hefir frið til þess fyrir Uppkasts-hug-
leiðingum.
Ef hann getur einhverntíma á heil-
um sér tekið fyrir gremjunni út af
því, að við skyldum ekki játa okkur
part af »det samlede danske Rige«,
ætti hann að lesa um það, þegar Jón
Sigurðsson var að mótmœla þvi, »að
ísland væri hluti úrríkinu* (bls. 192).
Og þegar ofsann i honum við Sjálf-
stæðismenn lægir um stund, ætti hann
að hugleiða það, sem landritari bendir
á, að Jón Sigurðsson hafi ekki hugsað
sér nein önnur mál vor sameiginleg
við Danmörk en konung og konungs-
erfðir, nema eftir samkomulagi, og að
hans fyrirkomulag hafi verið »í raun-
inni ekki langt frá persónusambandi«.
(Bls. 193).
Ekkert þvílíkt hugleiðir sýslumaður-
inn, engan sögulegan sannleika;
ekkert, sem vit er í. Hann fyllist að-
eins heift út af óförum Uppkastsins,
hleður óvirðingar og hatursorðum á
menn, sem ekkert hafa til saka unnið
annað en vera Uppkastinu mótfallnir.
Einkum svalar hann geði sínu á
nokkrum heldri þingmönnum — auð-
vitað á Birni Jónssyni framar öllum
öðrum, og ekki sízt á Bjarna Jónssyni
frá Vogi fyrir það, að þingið vildi af-
stýra því, að viðskiftaráðunautsstarfið
yrði fengið í hendur einhverri Dana-
sleikjunni, sem gerði sjálfstæðismáli
voru ógagn i útlöndum, og sá ekkert
ráð til þess að setja undir þann leka
annað en það að binda fjárveitinguna
við Bjarna Jónsson. Af utanþings-
mönnum atyrðir hann mest Einar Hjör-
leifsson, og mun það eiga 'að vera
kvittun fyrir Galtarholtsfundinn fræga.
E. H. talaði þar. Og sýslumaðurinn
vann þar hvorki sigur né frægð.
En almennir kjósendur fara ekki
heldur varhluta af geðsmunum sýslu-
manns. Hér er ofurlítið sýnishorn
frá bls. 25:
»Hverjum skyldi nú þetta vera að
þakka? (0: að vér áttum þess kost,
að ná takmarki Jóns Sigurðssonar með
Uppkastinu). Ætli það sé að þakka
sauðsvörtum almúganum ? Var það
hann, sem knúði Jón Sigurðsson til að
byrja þá ferð, sem nú er að enda?
Nei, það var Jón Sigurðsson, sem
tók i höndina á sofandi lýð og neyddi
hann dottandi og dettandi út af í öðru
hvoru spori, til að fara að hugsa um,
hvað til síns friðar heyrði og setja
sér takmark til að keppa að. Var það
almúginn, sem tók upp merkið, þeg-
ar það féll úr hönd Jóns Sigurðsson-
ar, og bar það fram á leið og hélt
öllu í horfinu? Ó, nei, ekki varþað
hann, það vorum vér, lærisveinar
hans, mentuðu mennirnir, sem skiln-
inginn höfðum og vissum hvað Jón
Sigurðsson fór. Vér kölluðum það
þjóðarvilja, sem vér vorum að fram-
kvæma, til þess að gera það meira f
munni og til þess að múgurinn geng-
ist upp við það; en það var reyndar
vor vilji, sem múgurinn fór eftir. —
Það væri gaman að sjá, hvað hann
er, þessi múgur, án okkar«, o. s. frv.
Getið skal þess til skýringarauka, að
sýslumaðurinn er hér að gera Sjálf-
stæðismönnum upp orðin. En það
leynir sér ekki að í þessu efni telur
hann sjálfstæðismenn hafa verið furðu
skarpvitra. Allur hugsunarferillinn í
hugleiðingum hans stefnir að því, að
Sjálfstæðismenn hefðu með engu móti
getað fengið þjóðina til að hafna Upp-
kastinu, ef hún væri ekki svo ótrú-
lega lítilsigld og vitlaus.
Svo að það er ómótmælanlegt, að
með þessum tilfærðu línum kveður
hann upp sinn eigin dóm um þjóð-
ina.
Vér látum ósagt, hve margar mann
hæðir sýslumaðuinn i Arnarholti kann
að vera hafinn upp yfir þennan »múg«
sem hann talar svona um — þó að
enginn hafi séð til hans nein furðu-
leg afreksverk.
En er það samt sem áður ekki
barnaskapur að vera að fara upp á
svona háan vegg og gala svona gíf-
urlega um fyrirlitning sina fyrir kjós-
endum þessa lands?
Og er það ekki barnaskapur að
verða svona reiður við þjóðina — út
af því einu, að hún vill verða sjálf-
stætt riki, þó að hún sé lítil, og neit-
ar að gerast »húsmenskukona hjá
maddömu Sörensen*, eins og skáldið
komst að orði ? * * *
Fl okksvilli ngarnir.
Hvers vegna Sjálfstæðismenn hljóta
að vinna á móti kosningu þeirra ein-
stakra manna á þing, er reynzt hafa
flokknum ótrúir, ýmist brugðist hon-
um að meira eða minna leyti, eða
algert svikið hann í trygðum?
Um það ætti ekki að vera spurn-
ing.
Eða hverir þeir eru?
Það er ekki óféleg fyiking. Og
fyrst skal frægan telja:
Kristján Jónsson. Um afglöp hans
þarf ekki að fjölyrða hér. Hann er
þegar orðinn þjóðkunnur og meira til
fyrir hermdarverk sín, síðan hann lét
eigingirnina draga sig út af braut
Sjálfstæðismanna. Maður, sem met-
ur meira eigin hagsmuni og illa fengna
stundartign en dýrmætustu réttindi
þjóðar sinnar, — maður, sem í augna-
blikshita teflir sjálfstæði þjóðar sinnar
í voða, hann er allra manna sízt verð-
ur að bera Sjálfstæðismannsheiti.
Það væri því ekki einungis hlutað-
eigandi kjördæmi, heldur öllu landinu
og þjóðinni hneisa, ef hann næði
aftur kosningu á þing. Enginn kjós-
andi ætti að glepjast á honum, og
allra sizt Sjálfstæðismenn.
Það er sízt fyrir að synja, að hann
tilnefni sjdljan sig í konungkjörinn
sess, ef kjördæmið hafnar honum, —
sbr. hans eigin ummæli um að gera
þá konungkjörna, sem þjóðin vill ekki
líta við. En það væri honum ekki
meira en makleg virðingl
Hannes Þorsteinsson. Stjórnmála-
syndir hans eru svo stórar og þess
eðlis sumar hverjar, að það liggur við
meiðingum og mannskemdum, ef við
þeim er hróflað. En þar sem alt er
talið til mannkosta á mælikvarða
»heimastjórnar«-manna, sem hér er
talið til lasta, þá ætti það að jafna
sig og persónan sjálf að ganga heil
af hólmi.
Þjóðóljssalan í hendur »heimastjórn-
ar«-manna er eitt drengskaparbragð(l)
þessa flokksvillings. Að vísu gerir
hann Sjálfstæðismönnum falt blaðið.
En hann heldur því i sliku afskaplegu
gejpiverði, að engum heilvita manni
gat til hugar komið að sæta því boði.
Það var auðsætt málamynda-tilboð til
Sjálfstæðismanna, þannig stilað, að
ekki gat komið til mála, að þeir gengju
að því. Það er kunnugt um alt land,
að eigandi blaðsins (H. Þ.) hafði gert
sérstaklega ítarlegar ráðstafanir til að
innheimta það, sem fáanlegt var af
útistandandi skuldum þess sumarið
áður (1909), svo að blaðið — með
skuldum — var miklu verðminna þá
en áður. Þó hélt hann því í 17500
kr. — seytjdn púsund og fimm hundruð
krónum. Loks færði hann þó verðið
niður í 14JOO kr. Og niður úr því
var ekki að þoka. Ekki við það kom-
andi, að Sjálfstæðismenn fengju eins
eyris frekari tilslökun1). En viti menn:
Um sama leyti selur hann blaðið í hend-
nr andstceðinganna, theimastjórnart-
tnanna jyrir 10 pús. kr. — 4500
krónum lægra verð! Svo miklu betri
kosti gefur hann þeim! — Með öðr-
um orðum: Hann fórnar 4500 krón-
um til þess að gera sjálfstæðismáli
þjóðarinnar einn hinn versta óleik,
sem í hans valdi stóð að vinna I En —
þetta er dygð á metaskálum »heima-
stjórnarinnar« 11
Þingmálajundargerðin að Ölfusárbrú
i október f. á. er enn í fersku minni.
Þingmaðurinn (H. Þ.), sem þá taldist
enn til Sjálfstæðisflokksins, lét sér sæma
að að draga yjir eða nema burtu álykt-
un, sem þar var gerð og gekk Sjálf-
stæðismönnum í vil (um það hvenær
alþingi skyldi koma saman) bókjærð
og undirskrijuð aj jundarstjóra og skrij-
ara, enda margir tugir kjósenda par
sjónar- og heyrnarvottar, og ályktunin
sérstaklega dréttuð og staðjest aj hlutað-
eigendum síðar, er fundargerðin kom
að þessu leyti rangjærð fyrir almenn-
ingssjónir og ósannindin höfðu verið
símuð Dönum, ráðherra Birni Jóns-
syni til óþurftar og til að koma í veg
fyrir þingfrestun, sem Sjálfstæðisþing-
menn höfðu þó bundið fastmælum.
Fréttaburðurinn til konungs við ráð-
herraskiftin í vetur mun þó vera
eitthvert hið eftirminnilegasta afrek
Hannesar Þorsteinssonar — skeytið,
sem hann sendi konungi um fylgi
ráðherraefnanna. Það hefir verið nefnt
jals-skeyti, — var svo nefnt bæði utan
þings og innan, þó að ekki hafi það
heiti komist í alþingistíðindin. En
hvort sem heitið er rétt eða ekki, þá
mun þó það tvent óafmáanlegt úr
hugum allra kunnugra manna: að í
skeytinu séu ekki gefnar vandlega
réttar og óvilhallar upplýsingar um
afstöðu þingmannanna2 og að þessar
upplýsingar (og aðrar samkyns) hafi
að meira eða minna leyti valdið því,
að ráðherranum tókst að brjóta á oss
þingræðið. Og þeir menn, sem vald-
ir eru slíkra ódæma misgerða við þjóð
sína, þeir eru engra góðra hluta mak-
legir — nema ef vera skyldi með-
aumkvunar.
En hvað skeður? Eftir þessi af-
reksverk(l) þingmannsins fær »heima-
stjórnar*- -liðið — með ráðherrann i
broddi — því til vegar komið, að
honum (H. Þ.) er veitt jooo — jimm
púsund króna verðlaun aj almannajé
(2500 á ári næstu tvö ár fyrir »að
semja æfisögur lærðra manna íslenzkra
á siðari öldum« I).
Að fengnum þessum spikfeita bitl-
ingi hefði þingmaðurinn gert það rétt-
ast, að draga sig algjört i hlé — set-
jast að dúsunni úti í horni og totta
hana þar í kyrþey.
En þar sem hann lætur þetta
ógjört af sjálfsdáðum, en tranar sér
enn fram til kosninga að nauðugum
miklum þorra kjósendanna, verða þeir
að hafa ráð fyrir honum og lofa hon-
‘) Þetta blaö var ná nýlega selt á npp-
boði, og varð enginn til aö bjóða i það
meira en 50 kr., nema þeir, er neyddir voru
til að halda þvi hærra, sökum þess, að þeir
áttu hjá blaðinu stórfé.
a) I skeytinn telnr flannes fylgismenn
Skúla aðeins 19. En Skúli og aðrir Sjálf-
stæðismenn telja þá 21. Þeir tveir, sem
hér greinir á um, ern Björn Jónsson og
Hdlfdan Guðjónsson. — Grat það með
nokkrn móti verið rétt að telja þá Krist-
jáns megin?
um að hvíla sig. Kjördæmið er það
vel mannað, að óþarft er að seilast
út fyrir takmörk þess eftir slikum
lulltrúa.
Siguröur SigurBsson. Hann drýgði
með fleirum þá höfuðsynd, að koma
verk þingræðisbrotinu. Og hvar
getur aumari framkomu þingmanns
en þeirrar, að allir stjórnmálaflokkar,
íversu andstæðir sem eru, telja sig
eiga hann jafn-vísan sér til fylgis ?
in svo var um Sigurð við ráðherra-
skiftin i vetur. Vottföst yfirlýsing
rans um fylgi við Skúla, og sams-
tonar heit gefið Kristjáni. Hvarflandi
og hvimandi til beggja handa, til þess
að vera viðbúinn að smeygja höfðinu
undir væng hins nýja valdhafa, hver
sem hann yrði og hvernig sem hann
væri að völdum kominn. Sanninda-
merkin eru í þingræðum þeirra Skúla
og Kristjáns sjálfra (Alþtíð. 1911 B
II 804, 812 og 814). En Árnesingar
þurfa ekki að leita þeirra þangað;
þeir munu kannast við það, hvernig
þingm. leikur skjöldunum þar heima
fyrir: merki Sjálfstæðismanna og
»heimastjórnar«-manna á víxl, eftir
því sem byrvænlegast þykir á þeim
og þeim staðnum.
Jóhannes Jóhannesson og Stefán
Stefánsson sigla að því leyti undir
fölsku flaggi, að þeir telja sig og
vilja láta telja utan flokka.
Þetta er jafn-fjarri um báða, því
að naumast ber nokkurt það smáatriði
milli flokkanna, að ekki snúist þeir á
sveif með »heimastjórnar«liðinu.
Þeir létu báðir blekkjast í milli-
landanefndinni sællar minningar. Hop-
uðu þar af hólmi báðir og innlimuð-
ust hinni einkennilegu »Aeiwastjóm«,
sem vill hafa aðalforráð vorra helztu
mála í höndum Dana.
Jóhannes sýnir það í stóru og smáu,
að hugur hans og hjarta er þeim meg-
in. Og »samábyrgð íslenzkra embætt-
ismanna« virðist vera augasteinn hans
og átrúnaður. Það kom berlega í ljós
í þingræðu hans hinni merkilegu(l) í
vetur, um vantraustsyfirlýsinguna á
hendur Birni Jónssyni ráðherra; svo
var hún full af yfirlæti og embættis-
þótta um friðhelgi og lýtaleysi stétt-
arbræðra hans i landinu. Og þá er
ekki síður eftirminnileg framkoma
hans í bankamálinu, þar sem hann
skrifar undir hinar herfilegustu blekk-
ingar og ósannindavaðal Jóns Ólafs-
sonar, án þess að vera búinn að rann-
saka sumt, sem hann var að skrifa und-
ir (sbr. hans eigin orð »að honum
hafi ekki unnist tími til að bera sam-
an« samsetning Jóns við gerðabók
nefndarinnar — ’Alþ.tíð x 911, þing-
skjal 966 bls. 1488).
Steján fekk þegar hæfilega viðvörun
hjá kjósendum sínum, er þeir höfn-
uðu honum við kosningarnar 1908.
En í stað þess að taka henni sem
góðum dreng sómdi, gerðist hann
konungkjörinn þingmaður fyrir tilstilli
hins ákveðnasta fjandmanns þess flokks,
er áður hafði hann fylgt. Og síðan
hefir hann og þeir félagar báðir barist
af dæmafáu kappi gegn þeim sömu
sjálfstæðiskröfum á hendur Dönum,
sem þeir sjálfir í öndverðu starfi milli-
landanefndarinnar kváðu sig verða að
halda föstum »sem grundvelli undir
samningum um stjórnskipulega stöðu
íslands í veldi Danakonungs* (Nefnd-
arálitið bls. 26).
Nokkurra fleiri flokksvillinga þyrfti
að minnast hér, Sjálfstæðismönnum
til viðvörunar — og reyndar öllum
kjósendum landsins. En hér verður
að nema staðar að sinni.
Geirr.
----- ..............
Settur sýslumaður
i Suðurmúlasýslu er Sigurjón Mark-
ússon cand. juris. Hann fer austur
með Botníu 28. þ. m.