Ísafold - 21.10.1911, Page 3

Ísafold - 21.10.1911, Page 3
ISAFOLD 255 ur kemur saman um og þykir við eiga. Eg skal bæta því við, að þótt til- boð okkar til B. Fr. sé kallað »kon- trakt«, og því orði hafi verið flaggað, þá er það að eins villandi orð, því alt innihald tilboðsins ber með sér, að það er tilboð, enda undirskrifað að eins af okkur, þ. e. öðrum máls- aðila, en kontrakt eða samningar er ávalt milli tveggja eða fleiri aðila. Brillouin ræðismaður er heldur eigi í eía um þetta atriði, því hann kallar tilboð okkar »option« (þ. e. tilboð) í áritun sinni á tilboðið (Skýrsla bls. 85). Silfurbergs-ósannindin. Vottorð um þyngdarmuninn. Sakir þess, hversu rangar og villandi frásagnir hafa gengið manna á milli um silfurbergsmálið svo nefnda, og einkum i blaðinu »Lögróttu« 18. þ. m. vil eg, sannleikaus vegna, gefa nokkrar skyr ingar til þess að hnekkja ósönnum dylgjum og leiða hið rótta í ljós. Lögr.-höfundurinn þykist leiða rök að því, að 1983 pd. vanti af silfurbergi, sem þeir herrar M. Blöndahl og Guðm. Jakobsson höfðu í vörzlum sínum, en hafi alls ekki gert neina grein fyrir. Byggir hann þessa staðhæfing sína á því, að hingað hafi verið flutt með Thoreskipunum 20611 pd. í 347 köss- um sumarið 1910, »eftir uppgjöf Guðm. Jakobssonar«, en samkvæmt kvittun Banque Francaise hafi hann tekið við 18508 pd. brúttó og c. 120 pd. brúttó hafi þeir selt öðrum, svo að alveg vanti skilagrein fyrir þessum ofangreindu 1983 pundum. Eg vann í Helgustaðanámunni Rumar- ið 1910 og bjó um sllfurbergið, sem sent var til Reykjavíkur, svo að mér er vel kunnugt um, hversu frá því var gengið. Mun það verða skiljanlegt af umsögn minni, hvernig stendur á þyngd- armismun þeim, sem höf. Lögr.-greinar- innar gerir mest veðrið úr. Þess er þá fyrst að geta, að silfur- bergið var að eins þvegið eystra, en ekki hreinsað á þann hátt, að teknar væri af því verðlausar steiutegundir, sem oft eru áfastar stykkjunum, svo sem Z e o- lithar, Desminarog annar rosti, sem getur verið allþykkur, jafnvel fast að þumlungi. En þegar til Reykjavíkur kom, voru flestir kassarnir opnaðir, silf- urbergið lagt á borð og hillur og rosti, Zeolithar og Desminar hreinsaðir af að nokkru leyti, því að hr. G. Jak. fægði upp talsvert af silfurbergi, meðan hann hafði það til sýnis og á boðstólum, og veit eg að sá úrgaugur hefir skift mörg- um hundruðum punda. í annan stað var vandlega búið um silfurbergið í kössunum, að því leyti, að kassarnir voru stoppaðir með miklu beyi svo að ekki voru í sumum nema fá stykki, þau er við töldum verðmest og vildum umfram alt búa svo um, að ekki gæti skemst, þótt kassinn yrði fyrir högg- um og árekstri. Fyrsta dftginn rifum við gras til að stoppa með, en reyndist það seinlegt og keyptum því hey af bónda og húsmanni á Helgustöðum. Mun láta nærri, að grasið og heyið hafi numið o. 1000 pundum, enda var hvorugt vel þurt, svo að ekki var eigandi undir öðru en opna kassana þegar kom til Reykjavík- ur, vegna þess, að heyið gat hitnað eða myglað í þeim. Þegar Banque francaise hafði keypt alt silfurbergið og það var afhent, var það, Bem upp hafði veiið tekið, sett í kassana aftur að fráteknum úrgangin- um, sem fyrr var getið um, og bætt 1 þá, 8em minst var í, svo að af gengu 28 tómir kassar, eins og getið er um i »Lögróttu« greininni. En hvern kassa má telja 13—14 pund til jafnaðar og verða það samtals um 380 pund. Lögréttugreinin getur þess, að tveir af þessum 347 kössum, sem að austan voru sendir, hafl verið með »ýmislegu«, (þ. e. verkfæri og þess háttar) og við- urkennir þar með, að rangt só að telja þá með silfurberginu, en samt dreg- u r hún ekki þyugd þelrra f r á, beldur þvert á móti telur hana m e ð í því, er hún viil láta heita að vanti upp á silfurbergBþungann, þegar B. fr. tók við því af G. J. Þegar þessir tveir verkfærakassar, sem voru um 120 pd. að þyngd og 28 kass- arnir, sem frá gengu tómir, voru sam- tals ca. 380 pd., þá eru þar komin ca. 500 pd. upp í mismuniun, sem blaðið getur um. Úrgangurinn sem eftir lá, þegar sett var niður í kassana, sem var Zeolithar, Desmínar og rosti, og sömu- leiöis hey-afgangur og annað rusl, er eg viss um, að nemur því, sem á vantar fyrgreindan mismun. Ennfremur má geta þess, að talsvert af rosta og ónýtum efnum var þó eftir í kössunum og var afhent með silfur- berginu, og að heyið blandaðist talsvert sandi og öðru, er í kassana var látið á Helgustöðum við námuna. Reykjavík 20 okt. 1911. Hermati Dattielsson. t Þorsteinn Egilsson fyr kaupm. í Hafnarfirði lézt i gær eftir langvinna vapheilsu — kominn fast að sjötugu. Isajold minnist hans rækilega í næsta blaði. Erlend símskeyti. Khöfn 20. okt. kl. 6,20 sd. Uppreistin í Kina magnast. Harðar orustur háðar. Lýðveldi auglýst (pro- klatnerað) í suðurhluta Kítiaveldis. f Sigfús Eymundsson bóksali lézt í gær að heimili sínu hér i bænum — kominn nokkuð á áttræðis aldur. Hafði verið ellihrum- ur um nokkurt skeið. Nánara minst siðar. S jálfsafn eitimar vik a Hjálpræðishersins fer i hönd (22 —28. okt). Liðsmenn Hjálpræðis- hersins láta þá sjálfir af hendi rakna það sem þeir geta til líknar bágstödd- um og reyna að fá samborgara sina til að gera slíkt hið sama. — Hjálp- ræðisherinn hér hefir reynst traustur og nytsamur milliliður milli þeirra, sem vilja hjálpa og þeirra, sem purfa hjálpar. Þeir eru margir hér í bæ sem vilja hjálpa þeim, sem bágt eiga. En betra tækifæri til þess að láta þá hjálp koma að notum — en að beina henni til Hjálpræðishersins — verður naumast fengið. Ágúst Bjarnason prófessor i heimspeki er svo sem kunnugt er í þann veginn að verða doktor. En ekki kemur hann heim til að taka við starfi sínu fyrr en i nóvember. Stendur svo á því, að stjórn danska háskólans synjaði hon- um leyfis til að Iosna við munnlega vörn doktorsritgerðarinnar. Reykjavikur-annáll, Dánir: Gannar Héronýmusson, Grettis- götn 40. 48 ára. Dó 15. okt. Gaðm. Magnússon, Lindarg. 5. 49 ára. Dó 18. okt. Brunabótavirðingar samþ. af bæjarstjórn á siðasta fnndi: Húseign Ingimnndar Gaðmundssonar Eski- hlíð 5 181 kr. Húseign Guðna Símonarsonar Oðinsgötn 8 2022 kr. , Guðsþjónusta á morgun. I dómkirkjunni kl. 12 Jób. Þorkelsson. , (Ferming) kl. 5 slra Bjarni Jónsson. 1 fríkirkjnnni kl. 12 sira Ól. Ól. , Hjúskapur: Andrés Fálsson verzlm. og Agústína Agnes Pétursdóttir, Njálsgötn 40. gift 14. okt. Gnðbergnr Magnússon, Grettisgötu 44 og Guðrún Asbjörg Guðmundsdóttir. Gift 14. október. Jón Jónsson sjómaðnr og Guðfinna Mar- grét Einarsdóttir, Hverfisgötu 56. Gift 15. október. Hlutaveltu heldnr Frentarafélagið i kvöld og á morgnn tii ágóða fyrir sjúkrasjóð sinn. Gott fyrirtæki og maklegt stuðnings, Kjósendafund hatda þingmannaefni höfnð- staðarins á morgun (sunnud.) kl. l‘/s i barnaskólagarðinum, sbr. angí. hér i bl. Magnús Blöndahl kom með Botnin i morg- nn og mun tala þar, þótt eigi standi hann undir fnndarboðinu. Sjálfstæðismannafundur ve.ðnr haldinn i Bárnbúð í kvöld kl. 9. A snnnudaginn var haldinn fjölmennnr fnndnr og margar ágæt- ar ræður fluttar. — Fjölmennið vel á fnndinn i kvöld — allir, sem nnnið sjálfstæði landsins. — Einknm ættn sjómennirnir að nota tækifærið. Skipaferðir. Botula kom hingað í morg- un frá útlöndum með nokkuð af farþegum: Magnús Blöndahl alþm., P. PeterBen (for- •tjóri Bió) með frú sinni, frú Debell, Stefán Magnússon prentari 0. m. fl. Vatnsæð á að Ieggja niður að vörupall- inum við steinbryggjuna, svo að hægt verði að skola hana við og við. Það kostar bæinn 210 kr. Farbanns-gerrseðið. Kúgunarhneyksl- ið — farbannsgerræði Kr. J. ráðherra hefir Bpurst svo illa fyrir, að ekkert fylgiblaða hans hefir haft þor í sór eða fengist til að verja það — engin dauð- leg sál — nema — nema eiu : J ó n frá Kolfreyjustað. Lögr. þegir alveg — Ráðherrablaðið sjálft forðast a þetta að minnast — svo sem mannsmorð væri. Jón frá Kol- freyjustað r»r einu á báti { aíðustu Rvík til varnar hneyksliuu — með lok- leysuþvælu, sem gerir málstað Kr. J. enn lakari. Mundi uokkur önnur sál á öllu landinu fást til að leggja sig í svo illan málflutuing? Naumast? Gerræðið var og er með þeim hætti, að því hæfði það eitt, að einu maður, landshornanna milli, reyndi til að verja það og að þessi eini — eini væri enginn annar en J. Ól. Líklega þykist J. Ól. vera að borga Kr. J. fyrir það, að hann (J. Ól.) — sem er gæzlustjóri við Landsbankann — illu heilli — fekk óáreittur að hendast, ekki einungis í kjördæmi sitt, heldur landsfjórðung úr landsfjórðung til að kristna lýðinn í sumar. Það gerði gæfu- muninn, eð J. Ól. er af róttu sauðahúsi — í a u g u m K r. J. í sjálfu sór er það gleðilegt, að eng- lun — nema J. Ól. — hefir enu sem komið er fengist tll að gerast meðsekur Kr. J. í þessu óheyrða kúgunarstriki. Þeir æ 11 u ekki að verða fleiri. Þ e i r væru vel komnir og hæfilega, tveir einir, Kristján frá Gautlöndum og Jón frá Kolfreyjustað — á þessu kúg- unar fargans-spyrðubandi. íslandsbanki. Reikningar hans fyrir ágúst og sept- embermánuð líta svo út: Viðskiftavelta hans hefir verið alls í ágúst 5513 kr., í sept. 5719 kr. Víxlalán numið í ág. 3 milj. og 610 þús., í sept. 3 milj. og 650 þús., sjálf- skuldarábyrgðarlán og reikningslán í ág. 1 milj. og 349 þús., i sept. 1 milj. og 367 þús., fasteignaveðslán í ág. 869 þús., í sept. 872 þús., handveðslán í ág. 218 þús., í sept. 216 þús., lán gegn ábyrgð sýslu og bæjarfélaga í ág. 161 þús., í sept. 161 þús. í verðbrófum átti hann í ágústlok 689 þús., í septemberlok 587 þús. Utbúin höfðu til sinna umráða í ág. 1728 þús., 1 sept. 1528 þús. Bankinn skuldaði 3 milj. í hlutafó, í innst. á dálk og með innlánskjörum: í ág. 2 milj. 375 þús., í sept. 2 milj. 513 þús., erlendum bönkum: í ág. 1532 þús., í sept. 1279 þús. Bankavaxtabrófin námu 959,000 báða mánuði, seðlar í um- ferð: í ág. 1262 þús., í sept. 1536 þús. Varasjóður 219000. Málmforði í ág. 488 þús., í sept. 615 þús. Ýms erlend tiðindi. Giaðlyndi hressir og fjörgar ^ugann eins og heilnæmt æknislyf hressir likamann Sunlight sápan visar á bug deyfð og drunga. Hun gjörir bjart yfir heimilinu og gjörir erfiði dagsins Ijúft og ánægjulegt SUNLIGHT SAPA Morðingi Stolypins, rússneská yfir- ráðherraus, Bagrov (e k k i Bogroff) var h e n g d u r þ. 26. sept. Stjórnarskifti í Svíþjóð. Hægri- stjórn sú, er setið hefir að völdum frá árinu 1906, Lindmans stjórnin, hefir beðist lausnar eftir kosninga-ósigur sinn í haust. Svíakonungur hefir beðið for- ingja vinstrimanna, Karl Staaff, að gangast fyrir myndun nýrrar stjórnar- Staaff hefir áður verið stjórnarformaður í Svíþjóð. Edvard Blaumuller, danski prestur- inn og skáldið, er látinu. Hann dó 2. þ. mán. sextugur að aldri. Dauðameinið var æðastífla. Tækifæriskaup fæst á 5 gas-útiluktam ágætum fyrir kaupmenn til að lýsa upp búðarglugga). I»orkell 1». Clementz, Aðalstræti 8. Nýkomið til verzlunar B. H. Bjarnason Epli, langbezt í borginni, Vínber----------- Hvítkál, Bauðbeður, Selleri og Kartöflur þær beztu, sem nokkuru sinni hafa fengist hér i borginni. ÍOSQ Til vetrarins hefi eg nú fengið afarstórt úrval af alls konar fatnaði. bar er meðal annars: Vetrarfrakkar á fullorðna, frá kr. 12.00 til 43.00, snoturt, nýmóðins enskt snið. Vetrart'rakkar á drengi og unglinga frá 5.00—25.00. Vetrarjakkar á drengi og fullorðna frá 4.50—24.00. Alfatnaðir á drengi, bnglinga og fullorðna frá 3.75 til 45.00. Regnkápur handa kvenmönnum, karlmönnum, telp- um og drengjum; stærsta og ódýrasta úrval, sem hér hefir nokkurn tima sézt. Skinnvesti, bæði á konur og karlmenn. Skinnjakkar í miklu úrvali. Skinnhúfur, hentugar i kulda og óveðri, 2.50—3.30. Vetrarhúfur (loðhúfur) 3.00 4.00 5.50 7.50 12.00. Vetrarnærföt alls konar, landsins stærsta úrval. Vetrarhanzkar, stórt úrval. Brauns verzlun Hamborg Aðalstræti 9. iQSQi Reynið Kodak Verzl. B. H. Bjarnason. Binkasali á Islandi fyrir Kodaks heimsfrægu -p ljósmyndavélar og áhöld er Hans Petersen, Rvík. Ljósmyndavélar, verð frá 5 kr. Hagsvon mfn, hagnr þinn. Tauimi 213 Með »Sterling« 15. þ. m. fekk verzlunin Taurullurnar eftirþráðu, og feiknastórt úrval af alls konar Eldhúsgögnum, t. d. email. Katla, Potta, Könnur, Föt, Lok o. fl. Alt óvenjulega vandaðar vörur og þó svo ódýrar að undrun sætir — um 20°/0 ódýrari en allstaðar annars- staðar. gy Reynslan er sannleikur. — Berið því verð og gæði saman við vörur keppinautanna. Vert að athuga! Verzl. B. H. Bjarnason. Hagsvon mín, hagur þinn. Með »Ask« 3. og »Sterling« 15. þ. m. fekk verzlunin feiknastórt úr- val afallskonar Vinum, sem spurs- málslaust eru þau langbeztu, sem fá- anleg eru hér í borginni; verðið er engu að síður mun lægra en hjá öðr- um. Hér býðst tækifæri til upp- byrgingar áður en aðflutningsbannið skellur á. — 1 stærri kaupum alt að 20°/0 afsláttur frá venjulegu húðar- verði. Eftir kröfu dánarbús bakarameistara Carls Frederiksens verða húseignirnar nr 14 og 16 við Vesturgötu hér í bænum með tilheyrandi lóð og mann- virkjum, bakaríisáhöldum og lausafé, er bakaríinu fylgir, eign nefnds dánar- bús, boðnar upp og seldar, ef viðun- anlegt boð fæst, á opinberu uppboði, sem haldið verður laugardaginn 4. nóvember næstkomandi kl. 12 á há- degi. Listi yfir lausafé það, er bakaríinu fylgir, ásamt söluskilmálum, .veðbókar- vottorðum og öðrum skjölum snert- andi söluna, verða til sýnis hér á skrifstofunni degi fyrir uppboðið. Bæjarfógetinn í Reykjavík, 20. okt. 1911. Jón Magnússon. Ágætur rikliugur fæst i verzl- aninni á Lindargötu 7. Fyrri aðalfundur Sjúkrasamlags Reykjavikur verður haldinn á Hótel ísland, nunnudaginn 29. október, kl. 4 síðdegis. Lagabreytingar verða meðal annars til umræðu. Þeir, sem tryggja vilja heilsu sína eða sinna, gefi sig fram við einhvern læknanna fyrir fundinn. Reykjavík, 21. okt. 1911. Jón Pálsson (jorm.). Tilboð merkt: »Barn«, afhent í afgreiðslu ísafoldar. Alt með hálfvirðil Biðjið um vora stóru, eigulegu verð- skrá, með nál. 1000 myndum. Er send ókeypis og án kaupskyldu. — Stærsta úrval á Norðurlöndum af úrum hjóðfær- um, gull- og silfurmunum, glysvarningl, skotvopnum, reiðhjólum m. m. Nordisk Vareimport, Köbenliavn.

x

Ísafold

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.