Ísafold - 21.10.1911, Síða 3
ISAFOLD
255
ur kemur saman um og þykir við
eiga.
Eg skal bæta því við, að þótt til-
boð okkar til B. Fr. sé kallað »kon-
trakt«, og því orði hafi verið flaggað,
þá er það að eins villandi orð, því
alt innihald tilboðsins ber með sér,
að það er tilboð, enda undirskrifað
að eins af okkur, þ. e. öðrum máls-
aðila, en kontrakt eða samningar er
ávalt milli tveggja eða fleiri aðila.
Brillouin ræðismaður er heldur eigi
í eía um þetta atriði, því hann kallar
tilboð okkar »option« (þ. e. tilboð) í
áritun sinni á tilboðið (Skýrsla bls. 85).
Silfurbergs-ósannindin.
Vottorð um þyngdarmuninn.
Sakir þess, hversu rangar og villandi
frásagnir hafa gengið manna á milli um
silfurbergsmálið svo nefnda, og einkum
i blaðinu »Lögróttu« 18. þ. m. vil eg,
sannleikaus vegna, gefa nokkrar skyr
ingar til þess að hnekkja ósönnum
dylgjum og leiða hið rótta í ljós.
Lögr.-höfundurinn þykist leiða rök að
því, að 1983 pd. vanti af silfurbergi,
sem þeir herrar M. Blöndahl og Guðm.
Jakobsson höfðu í vörzlum sínum, en
hafi alls ekki gert neina grein fyrir.
Byggir hann þessa staðhæfing sína á
því, að hingað hafi verið flutt með
Thoreskipunum 20611 pd. í 347 köss-
um sumarið 1910, »eftir uppgjöf Guðm.
Jakobssonar«, en samkvæmt kvittun
Banque Francaise hafi hann tekið við
18508 pd. brúttó og c. 120 pd. brúttó
hafi þeir selt öðrum, svo að alveg vanti
skilagrein fyrir þessum ofangreindu
1983 pundum.
Eg vann í Helgustaðanámunni Rumar-
ið 1910 og bjó um sllfurbergið, sem
sent var til Reykjavíkur, svo að mér
er vel kunnugt um, hversu frá því var
gengið. Mun það verða skiljanlegt af
umsögn minni, hvernig stendur á þyngd-
armismun þeim, sem höf. Lögr.-greinar-
innar gerir mest veðrið úr.
Þess er þá fyrst að geta, að silfur-
bergið var að eins þvegið eystra, en ekki
hreinsað á þann hátt, að teknar væri af
því verðlausar steiutegundir, sem oft
eru áfastar stykkjunum, svo sem Z e o-
lithar, Desminarog annar rosti,
sem getur verið allþykkur, jafnvel fast
að þumlungi. En þegar til Reykjavíkur
kom, voru flestir kassarnir opnaðir, silf-
urbergið lagt á borð og hillur og rosti,
Zeolithar og Desminar hreinsaðir af að
nokkru leyti, því að hr. G. Jak. fægði
upp talsvert af silfurbergi, meðan hann
hafði það til sýnis og á boðstólum, og
veit eg að sá úrgaugur hefir skift mörg-
um hundruðum punda.
í annan stað var vandlega búið um
silfurbergið í kössunum, að því leyti, að
kassarnir voru stoppaðir með miklu beyi
svo að ekki voru í sumum nema fá
stykki, þau er við töldum verðmest og
vildum umfram alt búa svo um, að ekki
gæti skemst, þótt kassinn yrði fyrir högg-
um og árekstri.
Fyrsta dftginn rifum við gras til að
stoppa með, en reyndist það seinlegt og
keyptum því hey af bónda og húsmanni
á Helgustöðum. Mun láta nærri, að
grasið og heyið hafi numið o. 1000
pundum, enda var hvorugt vel þurt,
svo að ekki var eigandi undir öðru en
opna kassana þegar kom til Reykjavík-
ur, vegna þess, að heyið gat hitnað eða
myglað í þeim.
Þegar Banque francaise hafði keypt
alt silfurbergið og það var afhent, var
það, Bem upp hafði veiið tekið, sett í
kassana aftur að fráteknum úrgangin-
um, sem fyrr var getið um, og bætt 1
þá, 8em minst var í, svo að af gengu
28 tómir kassar, eins og getið er um i
»Lögróttu« greininni. En hvern kassa
má telja 13—14 pund til jafnaðar og
verða það samtals um 380 pund.
Lögréttugreinin getur þess, að tveir
af þessum 347 kössum, sem að austan
voru sendir, hafl verið með »ýmislegu«,
(þ. e. verkfæri og þess háttar) og við-
urkennir þar með, að rangt só að telja
þá með silfurberginu, en samt dreg-
u r hún ekki þyugd þelrra
f r á, beldur þvert á móti telur hana
m e ð í því, er hún viil láta heita að
vanti upp á silfurbergBþungann, þegar
B. fr. tók við því af G. J.
Þegar þessir tveir verkfærakassar, sem
voru um 120 pd. að þyngd og 28 kass-
arnir, sem frá gengu tómir, voru sam-
tals ca. 380 pd., þá eru þar komin ca.
500 pd. upp í mismuniun, sem blaðið
getur um. Úrgangurinn sem eftir lá,
þegar sett var niður í kassana, sem var
Zeolithar, Desmínar og rosti, og sömu-
leiöis hey-afgangur og annað rusl, er eg
viss um, að nemur því, sem á vantar
fyrgreindan mismun.
Ennfremur má geta þess, að talsvert
af rosta og ónýtum efnum var þó eftir
í kössunum og var afhent með silfur-
berginu, og að heyið blandaðist talsvert
sandi og öðru, er í kassana var látið á
Helgustöðum við námuna.
Reykjavík 20 okt. 1911.
Hermati Dattielsson.
t Þorsteinn Egilsson
fyr kaupm. í Hafnarfirði lézt i gær
eftir langvinna vapheilsu — kominn
fast að sjötugu. Isajold minnist hans
rækilega í næsta blaði.
Erlend símskeyti.
Khöfn 20. okt. kl. 6,20 sd.
Uppreistin í Kina magnast. Harðar
orustur háðar. Lýðveldi auglýst (pro-
klatnerað) í suðurhluta Kítiaveldis.
f Sigfús Eymundsson
bóksali lézt í gær að heimili sínu
hér i bænum — kominn nokkuð á
áttræðis aldur. Hafði verið ellihrum-
ur um nokkurt skeið. Nánara minst
siðar.
S jálfsafn eitimar vik a
Hjálpræðishersins fer i hönd (22
—28. okt). Liðsmenn Hjálpræðis-
hersins láta þá sjálfir af hendi rakna
það sem þeir geta til líknar bágstödd-
um og reyna að fá samborgara sina
til að gera slíkt hið sama. — Hjálp-
ræðisherinn hér hefir reynst traustur
og nytsamur milliliður milli þeirra,
sem vilja hjálpa og þeirra, sem purfa
hjálpar. Þeir eru margir hér í bæ
sem vilja hjálpa þeim, sem bágt eiga.
En betra tækifæri til þess að láta þá
hjálp koma að notum — en að beina
henni til Hjálpræðishersins — verður
naumast fengið.
Ágúst Bjarnason
prófessor i heimspeki er svo sem
kunnugt er í þann veginn að verða
doktor. En ekki kemur hann heim
til að taka við starfi sínu fyrr en i
nóvember. Stendur svo á því, að
stjórn danska háskólans synjaði hon-
um leyfis til að Iosna við munnlega
vörn doktorsritgerðarinnar.
Reykjavikur-annáll,
Dánir: Gannar Héronýmusson, Grettis-
götn 40. 48 ára. Dó 15. okt.
Gaðm. Magnússon, Lindarg. 5. 49 ára.
Dó 18. okt.
Brunabótavirðingar samþ. af bæjarstjórn
á siðasta fnndi:
Húseign Ingimnndar Gaðmundssonar Eski-
hlíð 5 181 kr.
Húseign Guðna Símonarsonar Oðinsgötn 8
2022 kr.
, Guðsþjónusta á morgun.
I dómkirkjunni kl. 12 Jób. Þorkelsson.
, (Ferming) kl. 5 slra Bjarni Jónsson.
1 fríkirkjnnni kl. 12 sira Ól. Ól.
, Hjúskapur: Andrés Fálsson verzlm. og
Agústína Agnes Pétursdóttir, Njálsgötn 40.
gift 14. okt.
Gnðbergnr Magnússon, Grettisgötu 44 og
Guðrún Asbjörg Guðmundsdóttir. Gift 14.
október.
Jón Jónsson sjómaðnr og Guðfinna Mar-
grét Einarsdóttir, Hverfisgötu 56. Gift 15.
október.
Hlutaveltu heldnr Frentarafélagið i kvöld
og á morgnn tii ágóða fyrir sjúkrasjóð
sinn. Gott fyrirtæki og maklegt stuðnings,
Kjósendafund hatda þingmannaefni höfnð-
staðarins á morgun (sunnud.) kl. l‘/s i
barnaskólagarðinum, sbr. angí. hér i bl.
Magnús Blöndahl kom með Botnin i morg-
nn og mun tala þar, þótt eigi standi hann
undir fnndarboðinu.
Sjálfstæðismannafundur ve.ðnr haldinn i
Bárnbúð í kvöld kl. 9. A snnnudaginn var
haldinn fjölmennnr fnndnr og margar ágæt-
ar ræður fluttar. —
Fjölmennið vel á fnndinn i kvöld — allir,
sem nnnið sjálfstæði landsins. — Einknm
ættn sjómennirnir að nota tækifærið.
Skipaferðir. Botula kom hingað í morg-
un frá útlöndum með nokkuð af farþegum:
Magnús Blöndahl alþm., P. PeterBen (for-
•tjóri Bió) með frú sinni, frú Debell, Stefán
Magnússon prentari 0. m. fl.
Vatnsæð á að Ieggja niður að vörupall-
inum við steinbryggjuna, svo að hægt verði
að skola hana við og við. Það kostar
bæinn 210 kr.
Farbanns-gerrseðið. Kúgunarhneyksl-
ið — farbannsgerræði Kr. J. ráðherra
hefir Bpurst svo illa fyrir, að ekkert
fylgiblaða hans hefir haft þor í sór eða
fengist til að verja það — engin dauð-
leg sál — nema — nema eiu : J ó n
frá Kolfreyjustað.
Lögr. þegir alveg — Ráðherrablaðið
sjálft forðast a þetta að minnast — svo
sem mannsmorð væri. Jón frá Kol-
freyjustað r»r einu á báti { aíðustu
Rvík til varnar hneyksliuu — með lok-
leysuþvælu, sem gerir málstað Kr. J.
enn lakari. Mundi uokkur önnur sál á
öllu landinu fást til að leggja sig í svo
illan málflutuing?
Naumast?
Gerræðið var og er með þeim hætti,
að því hæfði það eitt, að einu maður,
landshornanna milli, reyndi til að verja
það og að þessi eini — eini væri enginn
annar en J. Ól.
Líklega þykist J. Ól. vera að borga
Kr. J. fyrir það, að hann (J. Ól.) —
sem er gæzlustjóri við Landsbankann —
illu heilli — fekk óáreittur að hendast,
ekki einungis í kjördæmi sitt, heldur
landsfjórðung úr landsfjórðung til að
kristna lýðinn í sumar. Það gerði gæfu-
muninn, eð J. Ól. er af róttu sauðahúsi
— í a u g u m K r. J.
í sjálfu sór er það gleðilegt, að eng-
lun — nema J. Ól. — hefir enu sem
komið er fengist tll að gerast meðsekur
Kr. J. í þessu óheyrða kúgunarstriki.
Þeir æ 11 u ekki að verða fleiri.
Þ e i r væru vel komnir og hæfilega,
tveir einir, Kristján frá Gautlöndum og
Jón frá Kolfreyjustað — á þessu kúg-
unar fargans-spyrðubandi.
íslandsbanki.
Reikningar hans fyrir ágúst og sept-
embermánuð líta svo út:
Viðskiftavelta hans hefir verið alls í
ágúst 5513 kr., í sept. 5719 kr.
Víxlalán numið í ág. 3 milj. og 610
þús., í sept. 3 milj. og 650 þús., sjálf-
skuldarábyrgðarlán og reikningslán í ág.
1 milj. og 349 þús., i sept. 1 milj. og
367 þús., fasteignaveðslán í ág. 869 þús.,
í sept. 872 þús., handveðslán í ág. 218
þús., í sept. 216 þús., lán gegn ábyrgð
sýslu og bæjarfélaga í ág. 161 þús., í
sept. 161 þús. í verðbrófum átti hann
í ágústlok 689 þús., í septemberlok 587
þús. Utbúin höfðu til sinna umráða í
ág. 1728 þús., 1 sept. 1528 þús.
Bankinn skuldaði 3 milj. í hlutafó, í
innst. á dálk og með innlánskjörum: í
ág. 2 milj. 375 þús., í sept. 2 milj. 513
þús., erlendum bönkum: í ág. 1532 þús.,
í sept. 1279 þús. Bankavaxtabrófin
námu 959,000 báða mánuði, seðlar í um-
ferð: í ág. 1262 þús., í sept. 1536 þús.
Varasjóður 219000. Málmforði í ág. 488
þús., í sept. 615 þús.
Ýms erlend tiðindi.
Giaðlyndi hressir og fjörgar
^ugann eins og heilnæmt
æknislyf hressir likamann
Sunlight sápan visar á bug
deyfð og drunga.
Hun gjörir bjart yfir
heimilinu og gjörir erfiði
dagsins Ijúft og ánægjulegt
SUNLIGHT SAPA
Morðingi Stolypins, rússneská yfir-
ráðherraus, Bagrov (e k k i Bogroff) var
h e n g d u r þ. 26. sept.
Stjórnarskifti í Svíþjóð. Hægri-
stjórn sú, er setið hefir að völdum frá
árinu 1906, Lindmans stjórnin, hefir
beðist lausnar eftir kosninga-ósigur sinn
í haust. Svíakonungur hefir beðið for-
ingja vinstrimanna, Karl Staaff, að
gangast fyrir myndun nýrrar stjórnar-
Staaff hefir áður verið stjórnarformaður
í Svíþjóð.
Edvard Blaumuller, danski prestur-
inn og skáldið, er látinu. Hann dó 2.
þ. mán. sextugur að aldri. Dauðameinið
var æðastífla.
Tækifæriskaup
fæst á
5 gas-útiluktam
ágætum fyrir kaupmenn til að lýsa
upp búðarglugga).
I»orkell 1». Clementz,
Aðalstræti 8.
Nýkomið til verzlunar
B. H. Bjarnason
Epli, langbezt í borginni,
Vínber-----------
Hvítkál, Bauðbeður,
Selleri og
Kartöflur þær beztu,
sem nokkuru sinni hafa fengist hér
i borginni.
ÍOSQ
Til vetrarins
hefi eg nú fengið afarstórt úrval af alls konar
fatnaði. bar er meðal annars:
Vetrarfrakkar á fullorðna, frá kr. 12.00 til 43.00,
snoturt, nýmóðins enskt snið.
Vetrart'rakkar á drengi og unglinga frá 5.00—25.00.
Vetrarjakkar á drengi og fullorðna frá 4.50—24.00.
Alfatnaðir á drengi, bnglinga og fullorðna frá 3.75
til 45.00.
Regnkápur handa kvenmönnum, karlmönnum, telp-
um og drengjum; stærsta og ódýrasta úrval,
sem hér hefir nokkurn tima sézt.
Skinnvesti, bæði á konur og karlmenn.
Skinnjakkar í miklu úrvali.
Skinnhúfur, hentugar i kulda og óveðri, 2.50—3.30.
Vetrarhúfur (loðhúfur) 3.00 4.00 5.50 7.50 12.00.
Vetrarnærföt alls konar, landsins stærsta úrval.
Vetrarhanzkar, stórt úrval.
Brauns verzlun Hamborg
Aðalstræti 9.
iQSQi
Reynið Kodak
Verzl. B. H. Bjarnason.
Binkasali á Islandi
fyrir
Kodaks heimsfrægu
-p ljósmyndavélar
og áhöld
er
Hans Petersen, Rvík.
Ljósmyndavélar, verð frá 5 kr.
Hagsvon mfn, hagnr þinn. Tauimi 213
Með »Sterling« 15. þ. m. fekk
verzlunin
Taurullurnar eftirþráðu,
og feiknastórt úrval af alls konar
Eldhúsgögnum, t. d. email. Katla,
Potta, Könnur, Föt, Lok o. fl.
Alt óvenjulega vandaðar vörur og
þó svo ódýrar að undrun sætir —
um 20°/0 ódýrari en allstaðar annars-
staðar.
gy Reynslan er sannleikur. —
Berið því verð og gæði saman við
vörur keppinautanna.
Vert að athuga!
Verzl. B. H. Bjarnason.
Hagsvon mín, hagur þinn.
Með »Ask« 3. og »Sterling« 15.
þ. m. fekk verzlunin feiknastórt úr-
val afallskonar Vinum, sem spurs-
málslaust eru þau langbeztu, sem fá-
anleg eru hér í borginni; verðið er
engu að síður mun lægra en hjá öðr-
um.
Hér býðst tækifæri til upp-
byrgingar áður en aðflutningsbannið
skellur á. — 1 stærri kaupum alt að
20°/0 afsláttur frá venjulegu húðar-
verði.
Eftir kröfu dánarbús bakarameistara
Carls Frederiksens verða húseignirnar
nr 14 og 16 við Vesturgötu hér í
bænum með tilheyrandi lóð og mann-
virkjum, bakaríisáhöldum og lausafé,
er bakaríinu fylgir, eign nefnds dánar-
bús, boðnar upp og seldar, ef viðun-
anlegt boð fæst, á opinberu uppboði,
sem haldið verður laugardaginn 4.
nóvember næstkomandi kl. 12 á há-
degi.
Listi yfir lausafé það, er bakaríinu
fylgir, ásamt söluskilmálum, .veðbókar-
vottorðum og öðrum skjölum snert-
andi söluna, verða til sýnis hér á
skrifstofunni degi fyrir uppboðið.
Bæjarfógetinn í Reykjavík,
20. okt. 1911.
Jón Magnússon.
Ágætur rikliugur fæst i verzl-
aninni á Lindargötu 7.
Fyrri aðalfundur
Sjúkrasamlags
Reykjavikur
verður haldinn
á Hótel ísland,
nunnudaginn 29. október,
kl. 4 síðdegis.
Lagabreytingar verða meðal annars
til umræðu.
Þeir, sem tryggja vilja heilsu sína
eða sinna, gefi sig fram við einhvern
læknanna fyrir fundinn.
Reykjavík, 21. okt. 1911.
Jón Pálsson
(jorm.).
Tilboð merkt: »Barn«, afhent í
afgreiðslu ísafoldar.
Alt með hálfvirðil
Biðjið um vora stóru, eigulegu verð-
skrá, með nál. 1000 myndum. Er send
ókeypis og án kaupskyldu. — Stærsta
úrval á Norðurlöndum af úrum hjóðfær-
um, gull- og silfurmunum, glysvarningl,
skotvopnum, reiðhjólum m. m.
Nordisk Vareimport, Köbenliavn.