Ísafold - 07.01.1914, Blaðsíða 4
8
I SAFOLD
aé ÍilRynnist ndr msó Rcióruóum
viósRifíavinum, aé vár Rœtíum aé saífa
sícinoíiu á Brúsum, þcgar Jrá 1. Janúar
þcgar vár íöRum vié stcinoliuvarzlun~
inni.
dtcyRjaviR, 31. écsör. 1913.
Hið íslenzka steinolíuhiutafélag.
J>ola bezt vætu,
slokna glóðarlaust, eru
því öllum öðrum betri.
Aktietændstikfabriken
Köbenhavn.
Verzlunaratvinna.
2 vanir og reglusamir verzlunarmenn geta fengið fasta stöðu frá
x. apríl næstkomandi, annar við afgreiðslu í sölubúð, en hinn við utan-
búðarstörf.
Eiginhandar umsóknir sendist undirrituðum fyrir i. febr. næstk.
ásamt meðmælurn frá fyrverandi húsbændum.
I umsókninni sé tekið fram, hvaða kaups krafist sé.
Reyðarfirði 23. nóvember 1913.
R Johansen.
P R « M A
SIKKERHEÐS
TÆNDSTiKKER
AKTIETÆNDSTIKFABRIK:
..6L0DEFRI”
K0BENHAVN. '
Það yrði þá lögmál, og vér værum
þrælar; vér yrðum að trúa því.
Hér við bætist svo mikilvæg stað
reynd, sem sízt er nægilega gaumur
gefinn. Sé guð sá, er heiminum
stjórnar og viðburðum sögunnar, þá
hlýtur insti kjarninn í andlegu lífi
hvaða tímabils sem er, að vera guð-
dómlegur sannleiki, hve mikið sem
kann að hafa hlaðist utanum hann
af mannlegum ósannindum. I and-
legu lifi, hvaða tímabils sem er,
hrærast guðdómlegar hugsanir, sem
heimta og eiga heimting á að kom-
ast fram i dagsbirtuna. Þessar hugs-
anir eru í ætt við fagnaðarerindið,
af því að þær eru guðs hugsanir.
Þær eru áframhaldandi opinberun
hans öld eftir öld. Því er kirkjunni
skylt að gefa gaum að þeim, tileinka
sér þær, hreinsa þær af ósannindum
þeim, sem utan um þær hafa hlað
ist og láta þær renna saman við
fagnaðarerindið Með þeim hætti
verður timinn kristilegur og kristin-
dómurinn tímabær.
Sé nú þetta rétt, er sízt ástæða
til að furða sig á, að slikt djúp er
staðfest milli þess, sem vér höfum
kallað »gömlu trúna* og »andlegt
iif á vorum tímum*. Þetta djúp
er nauðsynleg og eðlileg afleiðing
þróunarinnar. Það sem vér nefn-
um »gömlu trúna«, á rót sína að
rekja til utnliðinna tíma. Hún er
það sem kristnir menn 16. og 17.
aldar fundu í fagnaðarerindinu og
hafa gert grein fyrir í játningarrit-
um og kenningarkerfum. í því er
mikið af hreinu gulli) setn hverju
eftirfarandi tímabili er skylt að færa
sér í nyt. En hið andlega líf vort
hefir tekið gagngerðum umskiftum
síðan. Þessi umskifti ná einnig til
trúmálannt. Trúarlegu spurningarn-
ar eru öðru vísi sniðnar nú en þá.
Trúarþörf mannsins veit nú öðru
vísi en þá, hvað til síns rriðar heyr-
ir. Trúarhugsunin hefir rutt sér
nýjar brautir. Þess vegna getur sú
boðun fagnaðarerindisins, sem í að-
alatriðunum flytur oss guðfræði 16.
og 17. aldarinnar, með engu móti
fullnægt mönnum á vorum timum.
Eigi þeir réttilega að dragast að fagn-
aðarerindinu, verður að flytja þeim
það á þá leið, er bezt samsvaiar því,
hvernig þeir sjálfir hugsa, skynja og
tala. Verkefni kirkjunnar á vorum
tímum er ekki það, að endurfram-
leiða »trú« og kenningu liðinna
tíma. Verkefni hennar er að sökkva
sér niður í fagnaðarerindið, tileinka
sér fjársjóði þá, sem þar eru fólgn-
ir, og gera grein þeirra með hlið-
sjón á andlegu lífi vorra tíma.
Þetta verkefni fær kirkja vorra
tima ekki af hendi leyst, nema hún
njóti til þess aðstoðar guðfræðinnar.
Með aðstoð sinna tíma guðfræði,
tókst fornkirkjunni, miðaldakirkjunni
og elztu kirkju mótmælenda að
flytja samtíð sinni fagnaðarerindið i
þeim búningi, er bezt átti við and-
legt líf hennar. Guðfræðin hefir
ávalt verið »ný« (»modern«) þ. e.
hún hefir ávalt starfað í fullri sam-
kend við gervalt hið andlega líf
timans. Með þvi hefir hún stutt
kirkjuna i þeirri viðleitni hennar, að
flytja mönnum hvers tímabils fagn-
aðarerindið, eins og sá timi þurfti
þess með og gat veitt því viðtöku.
Á þessu ríður einnig á vorum tím-
um. Kirkjan parfnast nýrrar quð-
ýrœði. Frh.
(J. H. þýddi).
a
Hesta-innflntniugnr
til
Bretlands.
Nú er búið að nema úr gildi
malleinrannsókn á hestum í Bretlandi,
sem þar var lögleidd árið 1912, eins
og skýrt var frá þá hér í blaðinu.
Um það mál segist Lögbirtingi
svo frá þ. 2. jan.:
Með lögum frá 1912 var bannað-
ur innflutningur hesta til Bretlands,
nema til þess fengist sérstakt leyfi í
hvert skifti, og hestarnir væru rann-
sakaðir við landtökuna með malleini.
Nú eru lög þessi afnumin, og önnur
komin í staðinn, er gengu í gildi 1.
okt. síðastliðinn.
Með þeim lögum er leyfður óhindr
aður innflutningur, en fylgja skal
hestunum dýralæknisvottorð um, að
þeir hafi ekki nein einkenni eftir
farandi sjúkdóma: Glanders (inclu-
ding farcy) [sníf], epizootic lymphan-
gitis [næm vessaæðabólga], ulcerative
lymphangitis [næm vessaæðabólga
með átusárum], dourine [uæm kyn-
færasýki], horse-pox [hestabóla], sar-
coptic mange [grafmaura-kláði], in-
fluenza, ringworm [hringormur],
strangles [næm kverkabólga með
ígerðum].
Miljónarfélagið.
Greiðslufall hjá því.
Á mánudaginn barst það út um
bæinn, að Miljónarfélagið væri hætt
að greiða reikninga sína, og reyndist
það rétt við nánari fyrirspurnir.
Hvort þetta er að eins bráðnbirgða-
ráðstöfun, eða hvort algert gjaldþrot
verður úr, er eigi hægt að segja að
svo stöddu.
En nú hefir verið kvatt til aðal-
fundar í félaginu þ. 29. þ. mán. í
Khöfn, Og mun þar verða tekin ákvörð-
un um hvað gera skuli.
Veltur þá auðvitað alt á því hvað
bankarnir, sem hjá félaginu eiga,leggja
til málanna.
Mannalát.
Hinn 24. nóv. síðastliðinn andað-
ist í Kaupmannahöfn merkiskonan
Máljríður Kristín Þorláksdóttir, nær
74 ára að aldri. Hún var ekkja Sí-
monar Alexíussonar, er lengi var á
ísafirði, en dó í Khöfn fyrir rúmum
4 árum. Dóttir þeirra dvelur nú í
Kaupmannahöfn.
Málfríður var hvervetna þar, er
hún dvaldi, virt og mikils metin, og
talin sómi stéttar sinnar.
Látinn er í Vífilsstaðahæli í fyrra-
dag Jón Jónasson kennari frá Hafnar-
firði, fyrrum ritstjóri Fjallkonunnar,
greindur maður og góður. Var yfir-
kominn af tæringu síðasta árið. —
Verður nánara minst síðar.
Ingólfur Arnarson
botnvörpungurinn er nú komiun
fram. Kom inn á Flateyri í morg-
un. Hafði hleypt norður úr ísnum,
er til hans sá og veiddi þar mikinn
fisk.
Stúlka hvarf
á Siglufirði í fyrri viku, og
vita menn eigi um afdrif hennar.
Leitað hefir verið að henni dauða-
leit, en árangurslaust.
Nýr ritldari
er sagður aðeins óhlaupinn af
stokkunum. Það er hið nýja stjórnar-
þingmannsefni Vestmanneyinga Hjalti
Jónsson skipstjóri.
Skáldalaunin.
í aðsendri grein með þeirri fyrir-
sögn í síðasta bl. segir, að heyrst hafi,
að ráðherra hafi gert Guðm. Magnússon
skáld að eftirmanni Þorst. Þorsteins-
sonar cand. polit. á 3. skrifstofu
stjórnarráðsins. Þetta er eigi ná-
kvæmt, eftir því sem ísafold hefir
spurt sig fyrir um hjá skrifstofustjór-
anum þar, heldur er Guðmundur
orðinn skrifari þar með 3 klst. vinnu
á dag, og eins kveðst skrifstofustj.
hafa um þetta vitað fyrirfram.
Enn höfum vér fyrir satt, að hr.
E. H. sé eigi ráðinn Jastur meðritstj.
Lögr. heldur til að rita um stjórn-
mál öðru hverju. En um sannleik-
ann í þessu efni mun málgagnið
sjálft vafalaust fræða oss í dag.
Látin
er í Landakotsspítala 31. f. m. frú
Elinborq Hansdóttir, dóttir Hans Hoff-
mann, er lengi stundaði sjómennsku
á Búðum á Snæfellsnesi. Elínborg
sál. var fædd 1840. Giftist í fyrra
sinni 1862 Jóni syni Sveins Niels-
sonar prófasts á Staðastað, en misti
hann eftir fárra ára sambúð. Þau
eignuðust eitt barn, síra Hans Tóns-
son, prest á Stað í Steingrímsfirði
(t 1906). Annað sinni giftist hún
1871 Jóni Jóhannessyni frá Selvelli
í Breiðuvík og eignuðust þau 8 börn;
m. þ. er Kristjana kona Kristins
Magnússonar f. vfirfiskimatsmanns.
Þau hjón bjuggu lengi frameftir
á Selvelli og Búðum. En fluttust
á seinni árum til síra Hans á Stað
og er hann lézt, fluttust þau til
Rvikur, til barna sinna.
Átti Elinborg löngum við van-
heilsn að búa, er ágerðist skömmu
fyrir jól og fekk hún aðkenning af
heilablóðfalli. Var þá flutt i Landa-
kotsspitala og lézt þar á gamlárs-
kvöld.
Bæjarstjórn Akureyrar.
Á laugardag (3. jan.) voru 4 menn
kosnir í bæjarstjórn Akureyrar. List-
ar voru 5. Af þrem þeirra komst
enginn að, en tveir af hvorum
hinna: Ásgeir Pétursson kaupm.,
Bjarni Einarsson skipasmiður, Otto
Tulinius kaupm. og Björn Jónsson
ritstj. Norðra.
ReykjaYíknr-aDDálL
Grasstöðin. Þ. 17. des. var gasstöð
in búin að fraraleiða 1 miljón tenings-
stikur af gasi. Teningsstikan er seld
á 17 aura, svo að tekjur gasstöðvar-
innar af gasi hefðu því átt að vera til
þess tíma 170.000 kr., ef ekkert hefði
farið til spillis.
Mesta gasframleiðsla í sögu gasstöðv-
arinnar á einum degi bar upp á Þor-
láksmessu síðastliðna. Þá var fram-
leitt 2500 teningsstikur. Gasgeymir-
inn tekur 1500 og þurfti því að fylla
hann að mestu tvisvar þann dag.
Innbrot var enn framið hór í bæn
um aðfaranótt sunnudags, brotist inn
í sælgætisbúð Cörlu og Irmu Olsen 1
Austurstræti. Peninga klófestu þjóf-
arnir enga, eu gerðu sór til góða á sæl-
gætinu. Nú hefir komist upp að tveir
drengir um fermingu eru valdir að
þessum innbrotum og eru þeir nú
undir umsjón lögreglunnar.
Matgjafir handa fátæklingnm. Á
morgun byrjar Umdæmisstúkan að gefa
mat, þeim er fátækir eru og matar-
þurfi.
Skemtanir fyrir fátæk börn hafa
Verzlunarmannafólagið og Thorvald-
sensfólagið haft um jólin, eins og að
undanförnu, jólatró og annan glaðning.
Þrettándinn var í gær. Guðsþjón-
usta í dómkirkjunni kl. 6. Sigurbjörn
Astvaldur prédikaði. Eu um kvöldið
glumdi allur bærinn fram um miðnætti
af »púðurkerlingum«.
Hurðarfjaðrirnar
óviðjafnanlegu
og stigu-látúnsþynnurnar,
sem aldrei kemur nóg af, fást enn
þá í verzlun
B. H. Bjarnason.
Sá, sem kynni að hafa orðið var
við dökkrauðan, feitan, ungan, ójárn-
aðan hest, nýsloppinn úr húsi, er
beðinn að gera viðvart í afgr. ísf.
I»eir kaupendur Isafoldar
hér í bænum, sem skift hafa um heim-
ili, eru beðnir að láta þess getið, sem
allra fyrst, í afgreiðslu blaðsins, svo
þeir fái blaðið með skilum.
Dynamit, kvellhattur og sprengiþráður
altaf fyrirliggjandi
hjá J. Aall Hansen, Þingholtsstræti 28.
Aggerbecks Irissápa
er óviðjafnanlega góð fyrir húóina. Uppáhald
allra kvenna. Bezta barnasápa. Biðjið kaup-
menn yðar um hana.
Eg undirskrifuð flyt öllum
hér með innilegt hjartans þakk-
læti mitt fyrir þá hluttekningu og
velgerðir, sem mér hefir verið auð-
sýnt síðan eg varð einstæðingur, sem
var 15. október síðastliðið haust, er
eg misti minn heitt elskaða eigin-
mann, Baldvin Kristjánsson. Mér
finst því að það vera skylda mín að
minnast með hrærðu hjarta þeirra
velgerða, sem mér hafa verið veittar.
Samt þakka eg sérstakl. Oddi Jónssyni
hafnsögumanni. Eg bið heitt og
innilega algóðan guð að launa þeim
sem hafa gert miskunnarverk á mér;
eg óska þeim og öllum vinum og
velgerðamönnum mínnm gott og
blessað nýtt ;ir. Með þeirri ósk enda
eg þessa stuttu grein.
Guðbjórq Inovarsdóttir,
Laugaveg 62. Reykjavík.
Hér með tilkynnist vinum og vandamönn-
um, að minn elskaði eiginmaður, Ólafur
Magnússon bókhaldari, andaðist á Landa-
kotsspítala 2. þ. m.
Jarðarförin ler fram á fösíudag 9. þ. ui.
kl. II1/, frá Landakotsspítala.
Helga Jónsdóttir, frá ísafirðl.
Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönn-
um, að jarðarför Elinborgar Hansdóttur
fer fram á laugardaginn þ. 10. jan. frá
heimiii hinnar iátnu. Aðalstræti 18. Hus-
kveðjan byrjar kl. II ‘/, f. h.
Kristjana Jónsdóttir. Kristinn Magnússon.
Hér með tilkynnist, að Eyólfur Eyólfs-
son andaðist 3. þ. m. að heimili sinu,
Vesturgötu 28 i Hafnarfirði. Jarðarförin
er ákveðin 9. þ. m. og byrjar með hús-
kveðju kl. II.
Börn og tengdabörn hins látna.
Minningarsjóður
Björns Jónssonar.
Tekið móti gjöfum í skrifstofu og
bókverzlun ísafoldar, pappírsverzlun-
inni Björn Kristjánsson og verzlun
fóns frá Vaðnesi á Laugavegi.