Ísafold - 07.03.1914, Side 3
I S A F 0 L D
73
Erlendar símiregmr
Þingrof í Svíþjóðu.
Kauþmannahöfn í gœr kl. j.
Svíaþing hefir verið rofið. Berjast nú flokkarnir með hnúum og hnef-
um að undirbúningi nýrra kosninga. Hefir aldrei i manna minnum verið
neytt þar í landi slíkra asinga sem nú.
Pingmenskuframboð.
í næstu viku (laugardag 14. marz)
er lokið íramboðsfresti til alþingis.
Fullvíst er ekki enn um framboðin
öll. En eftir þvi sem næst verður
komist mun þingmannalistinn verða
á þessa leið, og eru þeir skáletraðir,
sem Sjálfstæðisflokkurinn styður.
í Reykjavík: Sveinn Björns-
son og Sigurður Jónsson, Lárus H.
Bjarnason, Jón Magnússon og Jón
Þorláksson.
Gullbringu- og Kjósar-
s ý s 1 a: Björn Kristjánsson, Krist-
inn Daníelsson. Ekki heyrzt um
aðra frambjóðendur þar.
Árnessýsla: JónJónatansson,
Sigurður Sigurðsson og Þorfinnur
Þórarinsson.
Rangárvallasýsla: Jónas
á Reynijelli, Tómas Sigurðsson á
Barkasföðum, stra Eggert Pálsson
Og Einar Jónsson á Geldingalæk.
Vestmanneyjar: Karl Ein-
arsson sýslum., Hjalti Jónsson skip-
stjóri.
Vestur-Skaftafellssýsla:
Sigurður Eggerz sýslum. Mælt að
enginn muni við hann keppa.
AusturSkaftafellssýsla:
Þorleifur fónsson, Sigurður Sigurðs-
son cand. theol.
Suður-Þingeyjarsýsla:
Sigurður Jónsson á Arnarvatni, Pétur
Jónsson á Gautlöndum.
Norður-Þingeyjarsýsla:
Benedikt Sveinsson, Steingrímur Jóns-
son.
Eyjafjarðarsýsla: Krist-
ján H. Benjamínsson Tjörnum, Hann-
es Hafstein, Jón Stefánsson ritstj.,
Stefán í Fagraskógi.
A k u r e y r i: Asgeir Péttirsson
kaupm., Magnús Kristjánsson kaupm.
Skagafjarðarsýsla: JóseJ
Björnsson, Olajur Briem Líklegt að
eigi verði aðrir í kjöri.
Húnavatnssýsla: Guðm.
Hannesson prófessor, Guðm. Ólajs-
son, Ósi, Björn Þórðarson sýslum.,
Tryggvi í Kothvammi, Þórarinn
Jónsson.
Strandasýsla: Magnús Pét-
ursson læknir, Guðjón Guðlaugsson.
Norður-lSafjarðarsýsla:
Skúli Thoroddsen einn.
ísafjörður: Magnús Torfa-
son, Sigurður Stefánsson.
Vestur-ísafjarðarsýsla:
Sira Þórður Olajsson, Matthias Ó-
lafsson.
Barðastrandasýsla: Há-
kon Kristójersson, Snæbjörn Krist-
jánsson.
D a 1 a s ý s 1 a : Bjarni Jónsson
frá Vogi, Björn Magnússon síma-
stjóri.
Snæfellsnessýsla: Sigurð-
urður Gunnarsson prófastnr, Halldór
Steinsson héraðslæknir.
Mýrasýsla: Sveinn Nielsson
á Lambastöðum, Jóhann Eyólfsson
Sveinatungu.
Borgarfjarðarsýsla:
Hjörtur Snorrason, Skeljabrekku, Hall-
dór Vilhjálmsson skólastjóri.
Skeyti, sem ísafold átti von á um
framboð í Múlasýslum og á Seyð-
isfirði var ókomið, er blaðið var tek-
ið til prentunar.
Skallagrímur upp til sveita.
Úr einni nærs/slunni er ísafold rit-
aS á þessa leiS um landsmálabjástur
Skallagríms:
Landsmái verður mönuum talsvert
tiðrætt um nú, sem eðlilegt er svona
skömmu fyrir kosningarnar. Varla
minnast menn svo a þessi mál eða
bloðin að ekki só talað um greinar
Skalla Gríms í Lögróttu og mann-
inn sem dylst á bak við þá skalla-
grímu. Margir eiga bágt með að trúa,
þó þeir v e r ð i að gera það, að þar
só gamall Sjálfstæðismaður kominn.
En eyrun segja til sín. Framkoma
þess manns í seinni tíð hefir vafaiaust
vakið vantraust, og tortrygnin eykst
að trúa nokkrum úr því hann gat brugð-
ist því málefni, sem hann var svo
lengi ótrauður talsmaður fyrir.
Skalla-Grímur gerir sér mikið far
um að telja þjóðinni trú um, að Sjálf-
stæðisflokkurinn só genginn frá sinni
stefnuskrá í sambandsmálinu og að
hann berjist fyrir völdum, en ekki fyr-
ir málefninu nú við kosningarnar. Eink-
um verðuð houum tíðrætt um þetta í
Lögróttu 10. tbl. núna síðast. Hann
þykistekki sjá það djúp, sem staðfest
só á milii Sjálfst.flokksius og Sambands-
flokksins. Jafuvel vill hann halda þvf
fram að allir flokkar geti skrifað uud-
ir ávarp Sjálfstæðismanna. Þetta er
furðu kynleg skoðuu, ef um skoðun er
að ræða, þegar litið er á stefnuskrá
beggja flokka. Að visu er stefnuskrá
Sambandsflokksins óskrifuð, en hún er
þó fullljós og skýr þeim sem augun
hafa opin. Hún er aðeins í tveimur
liðum: 1. að leiða sambandsmálið til
lykta, eins og það horfir nú við og 2.
að halda i völdin!
Eins og öllum er kuunugt myndað-
ist Sambandsflokkuritin vegna bræð-
ingsins. Nú hafa Danir ekki iitið við
þeim kröfum, en í þess stað hafa þeir
sent okkur þá sendingu sem nefnd
hefir verið »Grútur«. Danir hafa með
þessu svari sínu dauðadæmt Sambauds-
flokkinn á grundvelli »Bræðiugsins«.
Þrátt fyrir það heldur flokkurinn sam-
batidsnafninu og í því felst ótvírætt
stefnuskrá flokksins. Hann vil auðsjá-
anlega fá sambandsiög undireins,
hvað sem kostunum iíður.
Hann vili ekker bíða með að leiða
sambandsmálið til lykta. Þar er hann
þó á gagnstæðri skoðun, því sem sjálf
stæðism. eru og Skalla Grímur ámælir
þeim fyrir kröftuglega. Eu hvernig er
þá þessu sambandi varið sem við eig
urn kost á nú? Jú, það er »Grúturinu«
og ekkert annað. Allir vita að það er
hann sem Danir hafa boðið okkur. En
hvorki Skalla Grímur eða tteinn annar
Sambandsflokksmaður hefir ymprað á
þvi minstu vitund, að anuað væri í
boði eu hann. Það þarf því enginn
að ganga að því gruflandi hvað fiokkn-
um er fært að framkvæma í sambands-
málinu nú sem stendur og sjálfsagt
nokkuð lengi fram 1 tímann. »Grút-
urinn« er síðasta orð Dana í því máli
utn óákveðinn tíma, og Sambandsflokk-
urinn hefir því ekkert annað að bjóða
en hann í sambandsmálinu, sem hann
vili svo ákaft leiða til lykta. — Bágt
á eg með að trúa því, að Skalla Grím-
ur só svo sljóskygn. að hann sjái ekki
niður í það djúp, sem í þessu máli
skilur flokka og að það djúp er með
öllu ófært þeim, sem af heilum hug
unna sönnu sjálfstæði þessa lands.
Óneitanlega væri þjóðinni hollast að
Samb.menn legðu leið sina yfir það
djúp, sem þeir hafa sjálfir grafið með
Dönum og skildu »Grútitin« eftir
hinumegin.
Þetta eina mál er eitt nóg til að
sanna, að það eru mál, en ekki menn,
sem skilur flokka nú við kosningarnar,
og er þó enginn hörgull á málum, öðr-
um, sem skilja þá og benda mætti á,
ef þörf gerist.
Minsta kosti er Sjálfstæðismönnum
það ljóst hvaða mál það eru sem skilja
flokka nú.
SkaftáreldhraunsYegnrinn.
Líklega er hann einn af þeim
vegum, sem orðið hafa til þess, að
gefa landsverkfræðingnum þá dýrmætu
reynslu, er hann segir meðal annars
frá í hinni heimsfrægu skýrslu sinni
til Stjórnarráðs íslands, um rannsókn
á járnbrautarstæði frá Reykjavík
austur í Rangárvallasýsla. Þar segir
verkfræðingurinn: »En nú er reynsla
fyrir því, hér frá vegunum, að þar
sem þeir eru niðurgrafnir, leggjast
á þá skaflar, en þar sem þeir eru
upphleyptir eru þeir nærfelt snjó-
lausir allan veturinn, nema á fjöll-
um uppi, að minsta kosti á Suður-
landi«. Að enginn skuli fyrri en
verkfræðingurinn nú hafa tekið eftir
lessu: að snjór safnast í skurði,
traðir og aðrar lægðir, en fýkur af
hæðunum. Reyndar hygg eg að
Síðumenn hafi eitthvað nefnt þetta í
skjali sem þeir sendu Stjórnarráð-
inu, eftir að nýlega var byrjað á að
leggja hraunveginn. Þar munurn
við hafa farið fram á, að hann yrði
agður hærra, það sem eftir var af
honum, en spotti sá, sem þá var
búið að leggja. Við höfum liklega
haft einhverja óljósa hugmynd um,
að traðir um hraun mundu verða
fengsælar með snjó á vetrum. Þá
hefir verkfræðingur landsins ekki
verið búinn að sannfærast um að
snjórinn væri svona undarlegur, að
safnast frekar i lægðir en á hæðir.
En að fara að taka þetta trúanlegt
af nokkrum bændaræflum, þó kunn-
ugir þættust vera, var ekki samboðið
verkfræðing landsins.
Samt sem áður álitum við enn,
að réttara hefði verið af verkfræð-
ingnum að taka meira tillit til mála-
leitunar okkar en hann gerði þá,
svo sauðþráir erum við, og hjálpar
það eflaust til, að við erum eins og
verkfræðingurinn nú, að fá áþreifan-
lega reynslu fyrir því, að vegur
þessi hefði átt að leggjast hærra.
T. d. fór eg undirritaður ásamt
öðrum manni vestur yfir hraunið
þann 17. þ. m., hafði þá um nær
háltan mánuð næstliðinn verið ágæt-
ur þeyr, svo að hér á Síðu og
Landbroti var nær allur snjór horf-
inn, nema úr giljum og öðrum
djúpum lægðum, var þvi hestfæri
hið bezta vestur að hrauninu, en í
því urðum við að fara af baki hest-
unum, hvað eftir annað á meðan
þeir voru að brjótast um í sköflun-
um. Með öðrum orðum, vegurinn
var ófær hestum með burði og ill-
fær lausum. Þegar í Skaftartunguna
kom, var hún hin bezta yfirferðar,
mj®g lík færð þar og austan við
hraunið. Og Mýrdalssandur — snjó-
kistan sjálf — var vel reiðf.er lítið
eitt sunnar en efri leiðin. Vestan
Hafurseyjar var hann alstpólaus.
Reynslan var þvi þesst: að ol leiðin,
þar sem vegurinn að mestn I vfi ei
til orðinn af náttúrunnar , tr
góð yfirferðar, en kaflinn yn n un-
ið illfær.
Því er ekki bót mælandt a þess-
ari framfaraöld, að slík vegagerð og
þessi skuli eiga sér stið, þar sem
efni í veginn er jafngott og það er
í hrauni þessu ’— gnægð af lausu
grjóti allsstaðar við hendina. Sjá-
anlegt er það, að svona verklag sem
þetta, er gersamlega laust við alla
hagsýni og sannan sparnað. Að því
hlýtur að reka áður en langt um
liður, að veginn ýerður að hækka,
og kemur þá að því, að aðalverk
hans — yfirborðið — ónýtist og
verður þá af nýju að myija hraun-
grjótið i yfirborði vegarins. Notin
af veginum hefðu frá byrjun orðið
að miklum mun betri, ef hann hefði
strax verið lagður þannig, að hann
hefði getað talizt forsvaranleg þjóð
leið, en það er hann ekki og verður
ekki á vetrum, fyr en búið er að
hækka hann allan — riðja ofau í
traðirnar — og brúa Ásakvíslar.
Þessau til frekari sönnunar má benda
á það, að pósturinn er ennþá látinn
fara syðri leiðina, einmitt vegna þess,
að það er kunnugt. að hraunvegur-
inn er ófær hvenær sem nokkur
snjór er á jörðu
Sýnist þá vera kominn tími til
þess að leggja niður leiðina yfir
Kúðafljót. Með því mundu hest-
arnir okkar mæla öfluglega, ef þeir
ættu kost á því.
Kirkjubœjarklanstri 27. jan. 1914.
Jjírus Helgason.
Bökarfregn.
Eimreiðin, 20. árg. 1. hefti, er
nýkomið út. Fyrsta greinin (eftir
Ólaf Friðriksson) er um fánagerðina
íslenzku. Virðist höf. hallast að
Þóismarki í fánann í stað krossins.
Þorvaldur Thoroddsen segir frá
ósanngjörnum áómi um íslendinga,
sem Grænlandsfarinn Quervain ritar
í feiðasögu sína fiá Grænlandi. Enn-
fremur ritar Þ. Th. um aldarminn-
ing Japetusar Stenstrups, hins danska
vísindamanns, er ferðaðist um ísland
árin 1839—1840, með Jónasi Hall-
grímssyni seinna árið. Þá eru þar
kvæði eftir Jakob J. Smára, sonnetta
og skáldsaga eftir Gunnar Gunnars-
son, minningar frá æskuárunum eft-
ir Önnu Thorlacius, grein um Hel-
enu Keller eftir Björgu Þ. Blöndal.
Sú greinin er mesta mun athygli
vekja er samt ritdómur dr. Valtýs
um Hrannir Einars Benediktssonar.
Er hann langur mjög og stingur
alveg í stúf við alt annað, sem um
kvæðabók E. B. hefir verið, ritað
svo mjög er hún »sneypt« af dr.
V. G. og ekki laust við, að ritstj.
Skirnis fái og »á baukinn« fyrir lof-
leg ummæli sín um Hrannir.
Árnes- og Rangæingar
búsettir í Reykjavík höfðu hóf
allmikið i gildaskála á Hotel Reykja-
vík, laugardag 28. f. m. Voru þar
saman komnir 230 manna. Bryn-
jólfur Björnsson tanniæknir bauð
gestina velkomna með nokkrum vel
völdum orðum og stýrði síðan sam-
sætinu. Fyrir minni héraðanna tal-
aði Sigurður Jónsson kennari. ís-
lands mintist Þorsteinn Erlingsson
skáld. Þá tók Gunnar Sigurðsson
stud. jur. frá Selalæk til máls og
hrelf samkomuna með skáldlegri
orðsnild og fjöri um fegurð og blíðu
kvenna. Bjarni Jónsson (frá Vogi)
alþm. signdi full forstöðunefndar
mótsins. Arnaðarskeyti bárust mót-
inu frá »húsfólkinu« á Eyrarbakka
og sira Ólafi Ólafssyni fríkirkjupresti,
sem var einn þeirra er undirbúið
höfðu mótið, en gat ekki tekið þátt
í því sökum lasleika. Velort og
skemtilegt kvæði var sungið eftir
Guðm. Guðmundsson skáld. Frú
Valborg Einarsson skemti mönnum
nokkra stund með söng og hljóð-
færaflokkur Bernburgs fiðluleikara
spilaði fyrir dansi. Menn skemtu
sér hið bezta við dans og ýmsan
gleðskap fram eftir nóttu. Árnað-
arskeytunum var svarað og þar að
auki var kveðjuskeyti sent til Einars
Jónssonar listamanns frá Galtafelli.
Viðstaddur
Alþýðnfræðsla Stndentafél.
Dr. Guðm. Fintibogason
flytur eriudi um:
Kveðjur, sögur þeirra
og sálarfræði
sunnudaginn 8. marz, kl. 3 síðd.
í Iðnarmannahúsinu.
Inngangur 15 auia.
Shíðin Qóðu
úr hickory-viði, sem kosta í raun
og veru 14 kr., fást enn á 12 kr.
hjá Bjarna Magnússyni Skólav.st. 4.
Menn ættu að fá sér þau sem
fyrst, því að öðrum kosti verða þau
send í annan landsfjórðung.
Reykiavikur-annáll.
Alþingiskosningarnar. Á bæjar-
sfcjórnarfuudi síðast voru þeir Eg g e r t
B r i e m skrifstofustj. og S i g h v a t-
ur Bjarnason bankastjóri kosnir
í yfirkjörstjórn fyrir Reykjavík viö
kosningarnar 11. apríl.
Bæjarverkfræðingnr Reykjavíkur
vill enginn vera meö þeim kjörum,
sem nú eru boðin. Umsóknarfresti
var lokið um mánaðamótin síSustu,
en enginn sótti. í vandræðum sínum
kaus bæjarstjórn sórstika nefnd á
fimtudaginn til þess að ráða fram úr
þessu. Nefndina skipa: Jóh. Jóhann-
esson, Knud Zimsen og Sighvatur
Bjarnason.
Hjónaefni. Guðm. Ólafs&on yfir-
dómslögmaður og jungfrú Sigríður
Grímsdótfcir frá ísafirði.
Messnr: í dómkirkjunni kl. 12
síra Bj. Jónsson, kl. 5 síra Jóhann
Þorkelsson.
í fríkirkjunni kl. 12 síra Ól. Ólafss.
Skíðafélagið er þegar tekið til
starfa. Það biður drengjum ókeypis
skíðakenslu núna um helgina. Kenn-
arinn er hr. L. M ú 11 e r verzlunar-
stjóri. Líklegt að margir verði til að
nota þetta ágæta færi til að læra á
skíðum.
Skipasiníði. Nýlega er nýtt skip
hlaupið af stokkunum hór í bæ, Heit-
ir það H r a f n S v e í n b j a r n a r-
s o n. Eigandi er Bjarni Ólafsson
skipstjóri á Akrauesi. Skipið er smíð-
að í Völundi og yfirsmiður hinn sami
og er smíðaði Heru í haust, Magnús
Guðmundsson. H r a f 11 er 20 smál.,
32 fet á lengd, 13 á breidd.
Eimskipafélagið.
Stjóruin íslenzka hefir skipað hr.
Olgeir Friðgeirsson, fyrrum verzlunar-
stjóri Örum & Wulffsverzlunar á
Vopnafirði fullttúa sinn í stjóm
Eimskipafélags íslands.
Samgöngumála-ráðunaut-
ur er nýskipaður af stjórninni
Olgeir Friðgeirsson frá Vopnafirði.
Fær hann 4000 kr. fyrir það starf.
Tbore-Ingólfi hlekkist á.
í gærmorgun lagði Thoreskipið
IngolJ á stað frá Húsavík áleiðis til
Akureyrar. En er skipið var komið
dálítið út á Skjálfanda bilaði eitthvað
i vélinni snögglega og komst skipið
hvergi, heldur varð að leggjast við
akkeri, þar sem það var komið.
Reynt var að ná farþegunum i land,
en tókst ekki. Kong Helge sem
staddur var á Dýrafirði í gær, fór
þaðan kl. 8 í gærkveldi norður til
hjálpar Ingólfi.
í morgun fréttist, að Ingolf hefði
komist á stað kl. 6 árd. og haldið
til Akureyrar, svo að kleift hefir
skipverjum verið að gera við vélina,
— minsta kosti til bráðabirgða.