Ísafold - 27.06.1914, Qupperneq 2
192
IS A F Ö L D
TJfvintiu
við síldarveiði geta 10—15 duglegir sjómetm fengið
á Eyjaflrði í sumar.
Upplýsingar gefur
Jón JTtagnússon,
Holtsgötu 16.
Brezki
skemtileiðangurinn.
Skemtiskipið Ermine frá Glasgow
heldur heimleiðis aftur í kvöld. Það
er synd að segja, að hinir brezku
ferðamenn hafi verið hepnir með
veður. Því er miður. Sólin hefir
eigi sýnt sig þessa 5 daga, sem
þeir hafa verið hér, fremur en
sólarlaust land væri með öllu,
fyr en loks í dag. Rigning og kuldi
hafa í miklu bróðerni unnið saman
og dregið úr ánægjunni.
Sjálfir ferðamennirnir kvarta þó
lítið, segjast eigi að síður hafa skemt-
un af förinni og hressing. Hefir
ritstj. átt tal við ýmsa þeirra og
ljúka þeir einum munni upp um
góða viðkynning við landsmenn. En
þeir höfðu og á orði sitthvað sem
miður færi i ferðamannalandi —
landi, sem vildi og ætti að auka
sem mest það gæti ferðamannastraum-
inn. Einkum var það alt fyrirkomu-
lagið á höfninni og á bryggjunum,
sem vakið hafði gremju hjá þeim,
of langt í land, skipið eigi fengið
að liggja nær, tómir bátar sem
vöfðust fyrir þeirra eigin bátum, svo
að farþegar urðu að klifa yfir þá og
slösuðust sumir i þeirri »leikfimi«. Þá
þótti þeim og ábótavant fylgdar-
mönnum í landi, hve lítið þeir gætu
sagt um staði þá, er þeir væru að
sýna. í öðrum ferðamannalöndum,
t. d. Noregi sé venja að gera miklu
meira i þá áttina, til þess að ryðja
burt slíkum ásteytingarsteinum. Og
það töldu þeir nauðsynlegt að gera
hér á landi til þess, að bærilegt orð
færi af því sem ferðamannalandi.
Þar sem þetta eru í raun og veru
smámunir, sem fundið er að, ætti
að vera hægt að lagfæra þá, t. d.
gefa út á ensku stuttan leiðarvisi
um helztu staði og hús, sem sýnd
eru í höfuðstaðnum og í grend.
Og mundi eigi einn lögregíumanna
bæjarins mega vera á bæjarbryggj-
unni þá daga, er skemtiskip koma
hingað, til þess að stjórna bátalend-
ingunni?
Það er vonandi, að réttir hlutað-
eigendur taki þetta til íhugunai og
reyni að lagfæra. í alla staði er
oss nauðsynlegt, að erlendir ferða-
menn fari heim aftur með ljúfar
endurminningar um land og lýð og
megum vér því eigi Játa smámuni
spilla þvi.
Vonandi tekst að halda áfram þess-
um Ermine-ferðum hingað til lands
á vorin, eins og ísafold mintist á,
er skipið var hér fyrra. Þeir mega
vita það, hinir brezku ferðamenn,
að þeir eru velkomnír hjá oss, og
hafa þeir væntanlega fundið það.
Sumir þeirra er komu í fyrra voru
einnig með í þetta sinni.
Ferðamennirnir höfðu boð inni á
Hotel Reykjavík í gærkvöldi og buðu
til ýmsum bæjarbúum, Var dansað
af miklu fjöri fram eftir nóttu. í
hátiðarlok flutti Ásgeir konsúll Sig-
urðsson þakkir islenzku gestanna og
góðar óskir, en af hálfu ferðamann-
anna þakkaði Mr. Douglas frá Edin-
borg góðar viðtökur.
Skipstjórinn á Ermine, Mr. Bogg-
an gerði ráð fyrir, að skipið kæmi
aftur næsta vor um sama leyti.
Góðrar ferðar óskar ísafold hinum
brezku ferðamönnum. Velkomnir
næsta ár.
Eeiðrétting.
í greininni um Efnabag íslands i síð.
bl. hafði fallið úr 3 orð í 11. 1. a. n.
á 2. dálki 2. bls. i ísaf. Þar stóð
1 peso = 1 pd. st., en átti að standa:
og 5 peso = 1 pd. st.
Fáninn.
Eins og konum er títt, þagði eg,
er gefinn var kostur á að senda
fánanefndinni tillögur um gerð fán-
ans, en nú get eg ekki lengur þag-
að. Það sem kemur mér til að taka
penna í hönd er gleði yfir þvi,
að fyrri tillaga fánanefndarinnar er
flagg með rauðum, hvítum og bláum
litum, og sú von, að alþingi aðhyll-
ist hana, þrátt fyrir megnan mót-
blástur, sem nú bólar á. Menn segja :
íslenzku litirnir eru blátt og hvítt,
og þykir það ærin sönnun fyrir því,
að sá rauði eigi þar ekki heima. En
eg skil aidrei hvað meint er með
þeirri staðhæfingu. Eg get ekki bet
ur séð en að með sama rétti mætti
segja: íslenzku litirnir eru hvítt og
rautt eða gult og grænt. Þá fyrst
getum við talað um okkar þjóðar
liti, er við höfum kosið okkur fána-
gerð og fengið fánann löglega sam-
þyktan, að minsta kosti af fulltrúum
þjóðarinnar á alþingi. Sumir kunna
nú að segja, að hvita og bláa flagg-
ið hafi verið samþykt af þjóðinni.
En eins og mönnum er kunnugt,
var enginn frestur gefinn til yfir-
vegunar, þegar það mál var rætt og
gengið til atkvæða um gerðina eftir
tillögu Stúdentafélagsins, því var að-
eins haldið fast að mönnum bæði í
ræðum og ritum, að ef sú gerð, sem
Stúdentafélagið kom sér saman um,
yrði ekki samþykt, væri málið dauða-
dæmt. Þvi trúðu flestir og með því
að þeir vildu ekki vinna málinu
mein, féllust þeir á tillögur Stúdenta-
félagsins í Reykjavik.
Barnalegt virðist mér það, þegar
rauða litnum er fundið það til for-
áttu, að hann sé danskur litur. Það
hlýtur að vera af hugsunarleysi að
menn segja þelta; má ekki alveg
með sama sanni segja, að hann sé
norskur eða enskur litur, og má ekki
með jafnmiklum sanni segja að hvítt
sé danskt eða minni á fána Dana.
Ef rauði liturinn væri nokkurrar
þjóðar litur, þá væri það helzt þeirr-
ar, sem fyrst fann upp samsetning
hans og að lita hann. Hvaða liti
skyldi skáldið hafa kosið í íslenzka
fánann, sem kvað:
»Fjör kenni oss eldurinn, frostið oss
herði,
fjöll sýni torsóttum gæðum að ná,
bægi, sem Kerúb með sveipandisverði,
silfurblár Ægir oss kveifarskap frá.c
Það er engum efa bundið, að það
lefði kosið þrílitu gerðina, rauða,
ívíta og bláa fánann.
Þessir þrír litir eru oft látnir tákna
cærleika, sakleysi og gleði. Á alt
þetta getur íslenzki fáninn mint
okkur, undir honum viljum við í
sameiningu vinna að þvi að efla
þetta þrent hjá þjóð vorri.
Þökk sé fánanefndinni fyrir tillög-
una og alþingi fyrirfram fyrir vænt-
anlega samþykt.
Skrifað á jónsmessukvöld 1914.
Brynhildur.
----------------------
Háskólapróf.
Embættisprófi i lögum hefir lokið
24. þ. m. Skúli Skúlason Thoroddsen
með I. einkunn (125 stig).
Læknaprófi luku 5 læknaefni á
miðvikudag:
flalldór Hansen með I. eink. 200 st.
ónas Jónasson » I. — 181 st.
Bjarni Sjæbjörnss. » II. b. e. 148 st.
Guðm. Ásmundss. » II. — 138 st.
ón Kristjánsson » II. — 101 st.
ReykjaYíkflr-annálI.
Aðkoniumenn fjölmargir eru nú í
bænum, og mest um klerka, er synodus
sækja.
Dularfull fyrirbrigði. Mikla at-
hygli vakti myndasýning sú af dular-
fullum fyrirbrigðum í gærkvöldi. Sam-
kvæmt áskorun margra bæjarbúa verð-
ur hún endurtekin annað kvöld.
Þinginenn margir korau með skip-
unum Ceres og Yestu : Guðm. Eggerz,
Þórarinn Benediktsson, Karl Finnboga-
son, Björn Hallsson, Jón Jónsson frá
Hvanná, Pétur Jónsson, Steingrímur
Jónsson, Stefán Stefánsson skólameist
ari, Magnús Kristjánsson, síra Sigurður
Stefánsson og síra Sig. Gunnarsson.
Knattspyrnukappleikur var háður
á íþróttavellinum í fyrrakvöld milli
íslendinga (Fram fól.) og Englendinga
frá skemtiskipinu Ermine. Fóru svo
leikar að landinn bar míklu hæstan
hlut frá borði, vann 13 sinnum, en
Bretinn aldrei!
Björn Sigurðsson bankastjóri hefir
verið kösinn í einu hljóði erindisreki
Sláturfólagsins erlendis — samkvæmt
umsókn hans. Má því búast við
bankastjóraskiftum í haust eða sumar.
Látin er 1. júní að heimili sínu
Hverfisgötu 18 C„ húsfrú Sveinbjörg
Björnsdóttir, kona Eggerts Snæbjörns-
sonar deildarstj. hjá H. Th. A. Thomsen
Daginn áður mistu þau hjón yngsta
son sinn Njál úr lungnabólgu, hann
var á öðru ári. Hún var kona á bezta
aldri, fríð sýnum, bráðskynsöm og hin
ágætasta eiginkona. 4 börn eiga þau
þau hjón á lífi, Jóhann Viggó 9 ára,
Unni 8 ára, Huldu Sigríði 6 ára og
Snæbj. Hrólf 3 ára.
Kunnugur.
Ermine-farþegarnir eru um 70 alls
mestalt Skotar og Englendingar. Einn
farþega er mörgum Islendingum kunn-
ur. Það erThoralf Endresen,
Norðmaður, einn eigandi hinnar miklu
kolaverzlunar Burns & Lindemann í
Glasgow, sem verzlað hefir mörg ár
með kol víðsvegar á Is'andi, með milli-
göngu 0. Johnson & Kaaber. Hjá
þessari verzlun keypti t. d. Björn heit.
Guðmundsson öll sín kol.
Messur á morgun:
í dómk. kl. 12 síra Jóh. Þorkelsson.
I — — 5 síra Bj. Jónsson.
í frík. kl. 12 síra 01. Ólafsson.
í — — 5 próf. Har. Níelsson.
Skipaf regn:
C e r e s kom í fyrrakvöld frá útl.
kiingum land. Farþegar auk alþing
ismanna voru m. a.: Jón Þórarinsson
fræðslumálastjóri, mag. Jakob Jóhannes-
son, Sig. Pálsson verzlunarstjóri frá
Hesteyri, Sig. Hjörleifsson læknir og
bankaráðsmaður og síra Sig. Guð-
mundsson frá Ljósavatni. Ólfaur John-
sen f. yfirkennari
Vesta kom í gærmorgun. Meðal
farþega voru: Sig. prófastur Gunnars-
son, frá Stykkishólmi, síra Jón Brands-
son frá Felli og jungfr. Laufey Valde-
marsdóttir.
Prestastefnaa 1914.
Hún hófst á hádegi í gær með
guðsþjónustu i dómkirkjunni og
prestsvígslu. Að lesinni messugerð
gengu klerkar í alþingishúsið til
fundarhalds.
Stefnuna sækja um 20 prestar —
sumir langt að. Biskup mintist
fyrst látinna presta á árinu, en sið-
an voru venjuleg synodusmál tekin
fyrir (prestsekknastyrkur o. s. frv.).
Síðari hluta dags flutti biskup
sérstaka minningarræðu um séra
Jón heit. Bjarnason, en þar á eftir
var rædd tillaga frá sira Guðmnndi
Einarssyni um biskupskosningu.
Prestastefnunni verður lokið i dag.
f í»órður Finsen verzlm.
lézt hér i bænum i fyrradag eftir
langvinna vanheilsu, 36 ára að aldri
(f. 26. júní 1878). Hann var sonur
Óla heit. Finsen póstmeistara og
konu hans Maríu. Þórður var dreng-
ur góður og lipurmenni, en naut
sin eigi sem skyldi vegna heilsuleysis
t Kolbeinn Eyólfsson
bóndi í Kollafirði lézt í fyrradag
í Landakotsspítala, úr lungnabólgu,
hálfáttræður að aldri. Kona hans
lézt fyrirj’jskömmu, svo að eigi varð
langt milli hjónanna. Nánara minst
síðar.
Embættislausn.
Sigurður Þórðarson sýslumaður í
Arnarholti hefir sótt um lausn frá
embætti vegna heilsubrests. Hann
mun vera annar elzti sýslumaður
landsins, næstur Sigurði Ólafssyni
Árnesingasýslumanni.
Biskupsskeytið til Noregs.
Biskup vor sendi biskupnum i
Niðarósi svofelt simskeyti á aldar-
afmælinu 17. maí: Biskup Islands
heilsar tnóðurkirkjunni.
Þakkarsvar féklc svo biskup bréf-
lega með næstu ferð og las hann
svarið upp á prestastefnunni i gær.
Það hljóðaði svo (í þýðingu) :
»Fyrir hönd norsku kirkjunnar
sendi eg hjartanlegt þakklæti fyrir
kveðju þá,%er kom frá biskupinum
fyrir hönd vorrar fornu dótturkirkju,
við kirkjuhátið vora 20. maí.
Eg skýrði frá kveðjunni við hátið
þá, er haldin var eftir guðsþjónust-
una og voru þar viðstaddir konung-
ur Norðmanna, stórþingið og stjórn-
in. Hún vakti rnikinn fögnuð og
var henni tekið með lófataki.
Blessi guð hina íslenzku kirkju
og þjóna hennar.
Með bróðurlegri kveðju.
F. Börkmann.
Látinn Dani.
Þ. 13. júní lézt Andew Nielsen,
kunnur stjórnmálamaður danskur úr
flokki vinstrimanna. Hann var um
nokkur ár landbúnaðarráðherra og
jafnan hægri hönd I. C. Christensen.
Er hann mörgum íslendingum kunn-
ur frá Danmerkurför þingmanna.
Aðalfundur
Sláturfél. Suðurlands.
1914, 23, júní 10. fundur. Settur
að líðandi hádegi. Mættir allir
stjórnarnefndarmenn nema úr Borg-
arfj.s., hinir sömu og áður, nema f.
Rangárv.s.; þar nýkosnnir: Guðjón
Jónsson, Ási og Jónas Árnason Reyni-
felli. Auk þess mættir Vigfús í Eng-
ey framkv.nefndarmaður, Ólafur ÓI-
afsson endurskoðari, Lárus Helgason
eftirlitsmaður við slátrun, og Pétur
Þórðarson Hjörsey deildarstj. Hraun-
hrepps.
1. Form. las reikninqa fél. f. næstl,
ár. Hófust þá umræður um þá.
Pétur i Hjörsey hreyfði því, og skýrði
með ástæðum, að gleggra mundi
fyrir félagsmenn, að aðalreikn. væri
saminn í nokkuð öðru formi, en
tíðkast hefir. Lagði til að sérstök
nefnd væri sett til að athuga það at-
riði. V. G. studdi till. og að 3
m. nefnd væri kosin. Nokkur ein-
stök atriði i reikn., eins og þeir liggja
fyrir, vóru síðan rædd og upplýst.
Reikningarnir síðan samþyktir í einu
hljóði. Síðan kosin 3ja manna nefnd
samkv. till. P. Þ. Kosning hlutu
H. Thorarensen, Ólafur Ólafsson,
Vigfús Guðmundsson. (Samvinna
við P. Þ. áskilin).
2. Erindsrekastarfið. Form. skýrði
frá, hvað gerst hefði í því máli til
þessa. Síðan lesið umsóknarbréf þeirra,
sem sótt höfðu um stöðuna, ásamt
meðmælum er þeim fylgdu. Þeir
vóru 7 er sótt höfðu: Björn Sig-
urðsson bankastjóri, Ditlev Thomsen
ræðismaður, Einar Markússon spítala-
ráðsmaður, Friðrik Gunnarsson verzl-
unarumboðsmaður, Jón Þ. Sivertsen
verzlunarskólakennari, Matthías Matt-
hiasson káupmaður, Oddur Jónasson
verzlunarmaður. 8. umsækjandinn:
Olgeir Friðgeirsson verzlunarstjóri
hafði telcið umsókn sína aftur.
Fundurinn kaus í einu hljóði Björn
Sigurðsson með þeirri von, að Sam-
band islenzkra samvinnufélaga einnig
muni greiða honum sín atkvæði.
En náist eigi samþykki S. I. S. til
þessarar kosningar, var einnig í e.
hlj. ákveðið, að Sf. Sl. legði ekki fé-
til erindrekastarfsins þetta ár.
3. Lesnar fundargerðir deildarstj.-
funda. Ut af þeim var
4. Tillaga Þjórsárbrúarfundar um
að uppbót Jyrir sláturýé við sláturhús-
ið í Reykjavik að upphæð kr. 974.25;
yrði í þetta sinn greitt af sameigin-
legu fé félagsins. Samþ. 6 : 1.
5. Tillaga Borgarnesfundarins um
afnám ákvæðis frá aðalfundi 19. júní
1911, um stofnfjárviðlag i°/0 af við-
skiftum, feld með 5 : 2 atkv.
6. Önnur tili. frá sama fundi um
beint stofnfjárframlag xjJ>lo við-
skiftaupphæð árl., feld í e. hlj.
7. Tillaga frá sama fundi um
verðlag sauðakjöts, vísað til fram
kvæmdarnefndar.
8. Slátrun í Vík með sömu skil-
yrðum og i fyrra, samþ. í e. hlj.
9. Samkvæmt tillögu deildastj.-
fundar Skaftfellinga o. fl. var i einu
hljóði samþykt að auka laun forstjóra
um kr. 500.00 árl., með tilliti tii
aukinna starfa við félagið o. fl.
ástæðna.
10. Innlausn stofnbrtfa: dánarbúa,
fluttra af félagssvæðinu, sjúkra og
félausra, fluttra til kaupstaða, samtals
kr. 207.89. Samþykt.
11. Lesið bréfBj. Bjarnarsonar um
að aukaútsvarsálag Rvikurbcejar á Jt-
lagið mundi að mestu leyti vera
ranglátt og jafnvel ólöglegt. Fundur-
inn félst á aðalefni bréfsins, lét í
jósi óánægju sína yfir útsvarinu, og