Ísafold - 06.01.1915, Síða 2

Ísafold - 06.01.1915, Síða 2
2 ISAFOLD TJskorutí, Við undirrituð skorum hérmeð á alla landsmenn, konur sem karla, i samúðarskyni, að gefa eitthvað til líknar bágstöddum Belgum. Tillögum — stórum og smáum — er veitt móttaka af ritstjórum blaðanna og í bönknnum. í framkvæmdarnefnd: Jes Zimsen, formaður kaupm.félags Reykjavíkur. Matthías I»órðarson, form. Stúdentafélagsins. Vilhi. Finsen, ritstjóri Morgunblaðsins. K. Zimsen, form. Iðnaðarm.fél. Þórunn Jónassen, form. Thorvaldsensféi. Kristín Jakobson, form. Hringsins. Katrín Maqnússon, form. Hins íslenzka kvenfélags. Bríet Bjarnhéðinsdóttir, form. Kvenréttindafél. Arscell Arnason, form. U. M. F. R. ^Anna Ihoroddsen form, K. F. U. K. Bjarni Jónsson prestur, form. K. F. U. M. Jón Sívertsen, form. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Hannes Hajliðason, form. Fiskifélags íslands. Hannes Hajliðason, form. Skipstjórafél. Aldan. Indriði Einarsson, form. Goodtemplarreglunnar. Arni Jónsson, form. Verkm.fél. Dagsbrún. Guðmundur Helgason, búnaðarfélagsformaður. Nýtfzku dansar. Á föstudaginn kl. 9—11 byrja eg, í Hótel Reykjavík, að kenna nýtízku dansa, svo sem: One step, Tango, Furlana o. fl. Þeir, ^sem óska að taka þátt i dansinum, geri svo vel að láta mig vita fyrir fimtudagskvöld. Að eins tekið á móti 40 manns. Stefanía Guðmundsdóttir. Til viðtals kl. 3—5 daglega. Landsbankinn meiri hlutanum í vil. Kirkjufélagið áfrýjaði til yfirréttar og dæmdi hann í febr. 1912 minni hlutanum og kirkjufélaginu í vil gagnstætt því sem undirréttur hafði dæmt. Nú hefir hæstiréttur Dakota-ríkis haft málið til meðferðar og dómur- inn fallið aftur á minni hlutann og kirkjufélagið, en meiri hluti Þingvalla- safnaðar fengið eignarétt sinn að kirkju safnaðarins viðurkendan. Er þetta ósigur mikill fyrir hið vestur-íslenzka kirkjufélag, svo fast sem það hefir sótl þetta mál, sem fyrirsjáanlegt mátti heita hver úrsíit fengi um síðir, svo veikar og hald- litlar sem þæi ástæður voru, sem minni hlutinn bygði á rétt sinn til kirkjueignarinnar. Þeir lögmennirnir Hjdlmar A. Bergman og Barði G. Skúlason hafa flutt málið fyrir hönd meiri hlutáns. með •&-X* útbúum hans hefir nú sett á stofn t Halldór Jónsson nýja deild við sparisjóðinn, þar sem ávísa má á innstæðuna. Geta nú þeir sem óska, fengið sér ávísanabækur hjá Lands- bankanum og útbúum hans, og lagt fé sitt i þá deild. Landsbankinn tekur því við fé til ávöxtunar: 1. í venjnlegar sparisjóðsbæknr 2. í sparisjóðsbæknr, sem ávisa má á 3. á innlánsskirteini 4. á hlaupareikning og 5. gefur út sparimerki fyrir börn. Stjórn Landsbankans. Yestnr-íslenzka kirkjumálið dæmt í hæstarétti. Samkvæmt símskeyti frá Winni- peg til próf. Jóns Helgasonar hefir hæstaréttardómur verið kveðinn upp í hinu vestur-íslenzka kirkjumáli, sem minni hluti Þingvalla-safnaðar í Da- keta höfðaði fyrir nokkrum árum, að tilblutun vestur-íslenzka kirkju- félagsins, gegn meiri hluta safnaðar- ins, er hafði sagt sig úr lögum við kirkjufélagið, út af kirkjueign safnað- arins. Hélt minni hluti safnaðarins því fram, að meiri hlutinn hefði fyrirgert rétti sínum til safnaðareign- arinnar með því að hafna svonefndri »plenary«-innblásturs-kenningu, sem söfnuðurinn átti að hafa samþykt um Ieið og safnaðarlögin, þótt ekki væri svo mikið sem einu orði vikið að þessari bókstafstrúar-kenningu i safn- aðarlögunum. Þessari skoðun mót- mælti meiri hluti safnaðarins alger- lega. Hélt hann því fram, að eng- inn íslenzkur söfnuður hefði sam- þykt safnaðarlög sín með þeim skiln- ingi, að ritningunni geti eigi í neinu skjátlast, eins og þessi »plenary«- kenning heldur fram. í lúterskri kirkju sé engin innblásturs-kenning einvöld og hafi aldrei verið. Hin svonefnda »plenary«-innblásturs- kenning eigi sér hvergi heimilisrétt nema í kalvinsku (endurbættu) kirkj ■ unni, enda sé nafnið þaðan runnið. í íslenzkum umræðum um þetta mál hafi aldrei verið drepið á þessa kenn- ingu fyr en eftir að sprengingin varð á kirkjuþinginu árið 1909. Mál þetta kom fyrst fyrir undir- rétt i Pembína og var þar dæmt fyrverandi bankagjaldkeri. Hann lézt, eins og áður er getið, aðfaranótt 26. des. Hafði verið van- heill síðustu árin, en legið rúm- fastur síðan um mitt sumar, og lengi nokkuð svo sjúkur, að engin von var um afturbata. Hann var fæddur á Bjarnastöðum í Bárðardal 13. nóv. 1857. Foreldr- ar hans voru Jón Halldórsson hrepp- stjóri á Bjarnastöðum og Hólmfríð- ur Hansdóttir, bónda á Neslöndum. Af systkinum Halldórs var kunnust Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú, sem nú er dáin. Halldór Jónsson varð stúdent 1881, og prestaskólakandidat 1883, en sótti aldrei um prestakall. Hann fékk gjaldkerastarfið við Lands- bankann 1886. Hann giftist Krist- jönu Guðjohnsen, dóttur Péturs org- anista 16. júlí s. á. Þau áttu 5 börn, sem öll eru & lífi. Elztur þeirra er Pétur bóksali, annað Jón ritari í Landsbankanum, þriðja Hólm- friður, fjórða Gunnar, piltur í hin- um almenna mentaskóla, og fimta er Halldór, yngispiltur fyrir innan fermingaraldur. Það bar mikið á Halldóri Jónssyni í bæjarlifi Reykjavikur um langt skeið. Hann var ósérhlifinn og starfsamur, var mikill félagsmaður og oft á hann dembt mörgum störfum, auk aðal- starfs hans við Landsbankann. Eink- um var H. J. mjög ótrauður fröm- uður bindindis- og bannmálsins, eftir að hann gerðist Goodtemplari (1901). Hér skal eigi farið að rifja upp brottfararmál hans frá Landsbankan- um. Um það varð — eins og rétt var — alger þögn, þá er málið hafði gengið rétta boðleið. Úrslitum þess undi hann sjálfur, og bar eigi á öðru en að þeir, er vittu meðferð þess máls í upphafi, sættu sig og við þau. Ástæðulaust að ýfa það upp aftur, ekki sízt að honum látn- um, eins og þó er eigi örgrant um, að gert hafi verið ■— jafnvel á þeim stað, er sízt skyldí. Ljúft er þeim sem þetta ritar að minnast hins marga góða um H. J., stöðugrar vinsemdar alla leið frá fyrstu æskuárum mínum. ÞegarH.J. var í bióma lífsins, var hann ’nrókur fagnaðar, hvar sem hann kom, ung- ur í anda og sýnna mörgum um að hæna að sér æskumenn. Það er ó- hætt að segja það, að H. J. átti óvenju marga kunningja hér í bæ, og marga vini. Sýndi það sig bezt við jarðarför hans. Mátti þar sjá mestan hluta skólagenginna manna, mikið af kaupmönnum, iðnaðarmönn- um og talsvert alþýðumanna — og jafnt þá, er víttu meðferð gjald- keramálsins í upphafi og hina, er vörðu. Sýnir þetta ljóst, að per- sónulega óvini átti H. J. fáa. Svo var hann gerður. Síðasta árið hneigðist H. J. allur að guðfræðislestri, og mun verið hafa gömlu guðfræðinnar megin ail- ur og óskiftur. — Það var sagt um hann látinn, að hann hefði dáið sáttur við alla menn. — Svo mun og hafa verið gagnvait honum um flesta þá, er um eitt skeið hlutu að standa á öndverðum meið við hann að enginn kali kom til greina til H. J. — síður en svo. Samskot til Belga. Af öllum niðingsverkum sem Sturl- unga saga hermir frá, hefir mér jafn- an verið minnisstæðast það, sem Þorvaldur Vatnsfirðingur lét vinna í einni atför sinni að Hrafni Svein- bjarnarsyni. Frá því segir svo : »Kolbeinn hét fylgdarmaðr Þor- valds. Hann sendi Þorvaldr til fund- ar við einn fátækan bónda, er Ámundi hét; hann var ómagamaðr mikill ok þingmaðr Hrafns. Þorvaldr mælti svá við Kolbein ok hans förunauta, at þeir skyldi beiða Ámunda at fara með þeim ok vera í heimsókn með Þorvaldi til fundar við Hrafn; en ef hann vildi eigi þat, þá mæiti Þor- valdr, at þeir skyldi taka hann af lífi. Þeir Kolbeinn fundu Ámunda á heyteig, þar er hann sló, en kona hans rakaði ljá eftir honum, ok bar reifabarn á baki sér, þat er hon fæddi á brjósti. Þeir Kolbeinn beiddu Amunda, at hann færi til Eyrar með þeim. Amundi kveðsk í engri þeiri för mundu vera, er Hrafni væri til óþyktar. Þá vágu þeir Kolbeinn Amunda, ok fóru siðan til fundar við Þorvald ok sögðu honum vígit«. (Sturlunga saga I, Rvík 1908, bls. 320). Varla er unt að hugsa sér átakan- legri mynd: Öðrumegin auðmaður- inn, sem keppir um mannaforráð, en þykist aldrei hafa efni á því að halda orð né eiða, og gerist því níðingur, hvenær sem hann hyggur sér stundar- hag í því. Hinumegin bláfátækur ómagamaður, sem hefir efni á þvi að láta lifið fyrir drengskap sinn. — Auðvitað veit hann helzt til vel, hve dýrt fráfall hans verður konunni með reifabarnið á teignum og allan hinn hópinn, en hann á fyrst fyrir öðru reifabarni að sjá, sem enginn getur banað, ef hann þyrmir þvi sjálfur, en það er drengskapurinn. Og dreng- skapur hans lifir enn, þó börn hans önnur séu gleymd, því hver sem vinnur slíkt drengskaparverk hefir gefið reifabarni, sem honum var fal- ið til fósturs, eilíft lif í minningum mannkynsins. Flestum mun hitna um hjartaræt- ur, er þeir hugsa um þenna bónda, sem í fátækt sinni var svona ríkurr að hann gat gefið komandi kynslóð- um minningu að verma sig við, þeg- ar kuldann leggur af illvirkjum níð- inganna. Hver mundi ekki kjósa að vera í ætt við hann eða mega kalla hann bróður sinn I Og skyldi nokk- ur vera sá svíðingur, að hann mundi ekki hafa viljað rétta ekkjunni hans hjálparhönd eða greiða fyrir börnun- um hans munaðarlausu, ef hann hefði náð til þeirra? Mundu ekki flestir inst í sál sinni skilja, að hvert dreng- skaparverk er gjöf til mannkynsins alls, hvort sem það er unnið á hey- teig vestur á fjörðum í fornöld, eða einhverstaðar úti í löndum i dag. SHk verk eru skapandi afl í lífi kyn- slóðanna. Þau draga til eftirbreytni, og það verður örðugra að vera ó- drengur með hverju drengskapar- verki sem unnið er í heiminum, eins og myrkraverkin verða því færri, sem fleiri skærar stjörnur skína á himn- inum. Það sem gerðist á Sturiunga öld, gerist enn í dag. Það sem henti einn fátækan bónda, hendir heila þjóð. Belgiska þjóðin hefir verið sett í sömu spor og íslenzki bónd- inn, og hún hefir svarað eins og hann. Hún hefir kosið að varðveita drengskap sinn og lagt lífið við. Hún hefir með ódauðlegri hreysti varið helgan rétt sinn, og óskelfd gengið út í hverskonar hörmungar, heldur en að ganga á gjörða samn- inga. Af fregnunum sem borist hafa hingað, nálega á degi hverjum siðan stríðið hófst, vitum vér hvað þetta hefir kostað hana, að landið er nálega alt í hershöndum, borgirnar margar í rústum, fjöldi hraustustu sonanna fallinn, mikill hluti þjóðar- innar flúinn úr landi og kominn á vonarvöl. Landið, sem áður var þéttbýlasta land Norðurálfunnar, frið- sælt iðnaðar- og verzlunarland, land lista og vísinda, orðið að blóðugum fórnarstalla. Svo dýrt er að reynast drengur á tuttugustu öld eftir Krists burð. Kemur þetta alt oss íslendingum ekkert við? Viljum vér ekki láta telja oss með, þegar þjóðir álfunnar eru nefndar ? Rennur oss ekki til rifja hvað þessi þjóð leggur í söl- urnar til að brerna inn í meðvitund mannkynsins rétt smáþjóðanna til að lifa frjálsu lífi? Hvenær verður sú hin djöfullega kenning, að máttur- inn sé réttur, þveginn burt úr þeim sálum sem hún hefir grómtekið, ef það verður ekki gert með blóði þessarar saklausu þjóðar ? Vér sitjum hér i friði. Enginn ræðst á oss eða beitir oss ofbeldi. Þær byrðar sem herskapurinn legg- ur á herðar öðrum þjóðum koma ekki niður á oss í neinni líkingu við þær. Margar hlutlausar þjóðir hafa nú stofnað til samskota til að hjálpa þeim Belgum, sem neyðin sverfur mest að. Svo hefir verið um öll Norðurlönd, nema ísland. Ættum vér ekki að vera með ? Eg veit að ýmsir muni hugsa sem svo, að vér séum svo fámennir og fátækir, að það drægi ekkert um það sem héðan kæmi, og því muní réttast að láta það vera. En þetta er röng skoðun. Ef vér ætlum að biða með alla slíka hlutdeild í þeirri líknarstarfsemi, sem aðrar þjóðir telja skyldu sína, þangað til vér verðum jafnsterkir þeim, þá mundi það ef-

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.