Ísafold - 06.01.1915, Síða 4

Ísafold - 06.01.1915, Síða 4
4 ISAFOLD nokkurn hluta aí viggirtum stöðvum óvinanna og handtókum 44 foringja og 1500 liðsmenn og 8 hríðskota- byssur. Hjá Dukla gerðum vér ákaft áhlaup og náðum stöðvum, sem óvinirnir sátu i mannmargir. Framsókn vor hjá Gorjanho tókst og vel. Gagn- áhlaupum óvinanna í Karpatafíöllum höfum vér hrundið af oss og sömu- leiðis útrásum setuliðsins í Przemysl. London, 31. des. kl. 6,15 s.d. Opinber frönsk tilkynning gefin út siðd. i dag: í gær var kyrrara á orustusvæð- inu frá sjó og til Aisne. í Cham- pagul fyrir norðan Rheims sprengdu óvinirnir í loft upp tvær skotgrafir vorar, en áhlaup þeirra rákum vér af höndum vorum. Fyrir norðan Mesnil les Hurlus tókum vér nokkrar skotgrafir í ann- ari varnargarðaröð óvinanna. Fyrir norðan Beansejour í sama héraði tókum vér nokkrar skotgrafir, og er vér höfðum rekið af höndum oss gagnáhlaup óvinanna sóttum vér enn lengra fram. I Argonne höfum vér unnið dá- lítið á í áttina til Fontaine Madame. Milli Meuse og Moselle náðu vor- ir menn skotgryfjum á 150 metra svæði í Mortmare-skóginum. í Efra-Elsass hefir lið vort kom- ist inn í Steinbach og tekið hálft þorpið, hús og hús í senn. Frá Frakklandi. London, 1. jan. Eftirfarandi opinber frönsk til- hynning var gefin út síðdegis í dag: Milli Rheims og sjávar var aðeins stórskotaliðsviðureign. Skotið var á St. George, en það hafði engan árangur. í nánd við Craonnelle snerist stór- skotaliðsorustan oss i hag, því varn- argarðar óvinanna voru jafnaðir við jörðu. í héruðunum Perthes og Beause- jour héldum vér stöðvum þeim er vér unnum þ. 30. f. mán. í Argonnehéraði gerðu óvinirnir grimmileg áhlaup og sóttu 50 stikur fram. Norðan við Flirey, milli Meuse og Moselle, var sex áhlaupum óvinanna hrundið. í Elsass hafði stórskotalið vort yfirhöndina umhverfis Steinbach. Frá Frökkum. London 1. jan. kl. kl. 12,15 e. h. Eftirfarandi opinber frönsk til- kynning var birt í gærkvöldi: Þjóðverjar gerðu framsóknartil- raunir frá Forgesskóginum á vinstri bakka Meuse, en biðu þegar ósigur. Stöðvum þeim, sem hersveitir vorar náðu hjá Steinbach höfum vér haldið og höldum áfram árásum á stöðvar óvinanna. Frá Rússum. London, 1. jan. kl. 12,20 e. h. Eftirfarandi tilkynning kemur frá yfirherstjórn Rússa: Milli Weichsel og Pilicza hafa Rússar rekið áhlaup óvinnanna, nótt og nýtan dag, af höndum sér, sunnan við járnbraut- ina milli Bolimow og Miedhievice. Norðanvið Rawa og skamt frá þorpinu Jeserqets sættu Þjóðverjar grimmilegri meðferð af Rússa hálfu. Sókn Austurríkismanna var hnekt nálægt Malogoszez. í vestanverði Galiziu heldur or- ustan áfram að vera Rússum hag- stæð. Tóku þeir þar 3000 fanga og 15 vélbyssur i héraðinu Baligrod, þann 29. desember. Herstjórnin f Kákasus tilkynnir að Tyrkir hafi beðið stórkostlegan ósig- ur hjá Sarikanuph. Mistu þeir þar fjölda manna og 1500 fanga. Engir évinir lengur i Serbíu. 1 London 1. jan. kl. 12.55 e-h- Ríkiserfinginn í Serbíu hefir gefið út herskýrslu um það, að nú séu engir innrásarmenn í landinu. Hewlett bjargað. Hollenzkur botnvörpungur bjargaði Hewlett flugsveitarforingja úti í Norð- ursjó. Bretar missa skip. London 1. jan. kl. 3,6 siðd. Flotamálastjórnin kunngerir: Orustuskipinu »Formidable« var sökt í morgun i Ermarsundi, annað- hvort af kafbát eða tundurdufli. Létt beitiskip brezkt, bjargaði 71 manni. Frá Frökkum. London, 2. jan. kl. 7,10 e. h. Eftirfarandi opinber frönsk til- kynning birtist í kvöld. Ovinirnir hafa hætt gagnáhlaupum sinum i sandhólunum hjá Nieuport og umhverfis St. George. Milli Arras og Roye sprengdu óvinirnir i loft upp tvo af skotfæra- vögnum vorum skamt frá Beaumetz. Stórskotalið vort hefir eyðilagt skotgrafir óvinanna nálægt Pavillers og stöðvað skothríð þeirra hjá Fri- court og í Aisne-héraði. Vér erum nú seztir að á Nouv- ron-sléttunni og höfum hrundið af oss gagnáhlaupum Þjóðverja. Nálægt Perthes tóku Frakkar skóg nokkurn með áhlaupi. í La Grurie-skógi hefir framsókn Þjóðverja í gær ekki haft neinn meiri árangur. Vér höfum þegar tekið aftur nokkuð af þvi svæði, er vér mistum. í Le Pretreskógi sóttum vér svo- lítið fram. Þjóðverjar fara halloka. Norðan og austan við Badonvillers i Vogesafjöllum var áhlaupum Þjóð- verja hrundið og biðu þeir mikið manntjón. Óvinirnir biðu einnig mikið mann- tjón i Steinbach þar sem vér tókum þrjár raðir af húsum, Viðureignin að vestanverðu. Frakkar skjóta á Altkirch. Rigningar í Frakklandi. London 3. jan. kl. 8.30 e. h. Frönsk tilkynning í dag er svo- látandi: Síðan í gærdag höfum vér haldið öllum stöðvum vorum milli sjávar og Arras. Óvinirnir höfðu sig hvergi i frammi nema hjá Zonnebeke. Á það þorp skutu þeir. Stórskotaliðsviðureign varð skamt frá Albert og nálægt La Paselle. Vér sóttum fram 500 metra. Á Nouvent-sléttunni og umhverf- is Craonne átti stórskotalið vort i höggi við óvinina. Skamt frá Perthes höfum vér unnið 500 metra af landi og unnið óvinunum talsvert tjón nálægt Beausejour. í La Grurie-skóginum hrundum vér tveimur áhlaupum óvinanna og bæði þýzka og franska stórskotaliðið hefir haft ærið að starfa i þessu héraði. Nálægt Verdun urðu stórskotaliðs- viðureignir. Milli Meuse og Pont á Mousson, hjá Le Rouchet-skógi og Pretre-skógi hefir oss miðað dálítið áfram. I Vogesa-fjöllum höfum vér tekið þýzka skotgryfju nálægt skotgryfjum þeim, sem eru á sléttunni. Sagt er frá stórskotaliðs viðureign í Fave-dalnum. í Elsass skutum vér á járnbrautar- stöðina i Altkirch og ollum miklum N skemdum á ■ járnbrautinni milli Car- spach og Dierspach sunnan við Alt- kit ch. Yfirleitt hafa rigningar gert alla vegu of slæma til þess að til nokk- urra verulegra framkvæmda gæti komið. Látlausar orustur í Póllandi og Galiziu. Rússar tilkynna sigra. London 4. jan. kl. 12.12 e. h. Eftirfarandi opinber rússnesk til- kynning er birt í Petrograd: Áköf stórskotaliðsorusta hefir stað- ið á öllu orustusvæðinu á vestri bakka Weichselfljóts og árásum Þjóð- verja hefir verið hrundið á ýmsum stöðum. Hjá Koslow, sem stendur hjá ánni Bzura, biðu Þjóðverjar mikinn ósig- ur fyrir Rússum og mistu fjölda manns. Fótgönguliðsáhlaupum Þjóðverja á stöðvar Rússa norðaustan við Bali- mow var hrundið, og biðu óvinirnir mikið manntjón. Grimm orusta geisar enn norð- austan við Rawa. Sunnan við Pilitza heldur orusta áfram vestan við Inowlodz. í Galiziu stendur orusta umhverf- is Gorlice og Zakliezeu. Rússar hafa verið sigursælir i Urzok-héraði og Rostoka-skörðum. Er undanhaid Austurrikismanna þar komið í óreglu. Þar tóku Rússar ennfremur 2000 fanga.. í Bukowina sækja Rússar stöðugt fram. Viðureignin í Kákasus. London 4. jan. kl. 1,15 e. h. Nálægt Sakyramysk i Kákasus hafa Rússar tekið 5000 hermenn og 40 fyrirliða. Þ. 2. janúar tóku þeir aftur á þessu svæði 700 hermenn, nokkrar hriðbyssur og fjallabyssur og annarsstaðar hafa þeir gert sigur- sæl áhlaup með byssustingjum. Hvernig Tyrkir drógust inn í Cifriðinn. »Gula bókin« rússneska sem nú er nýkomin út, talar um atburðina, er skeðu í Miklagarði áður en stríð- ið hófst við Tyrki. Hún lýsir svik- samlegum brögðum Þjóðverja og Austurrikismanna til þess að þröngva Tyrklandi inn i ófriðinn. Frá Frakklandi. London 4. jan. kl. 5.40 e. h. Eftirfarandi opinber frönsk tilkynn- ing var birt síðdegis i dag: Milli sjávar og Oise hefir dagur- inn verið rólegur. Stórskotaliðsvið- ureign hefir aðeins orðið á stöku stað. í Perthes-héraði og Mesuil les Hurlus náðum vér nokkrum smá- stöðvum. Tilraunir herflokka vorra að ná Bourvilles mishepnuðust. Vér sækjum enn fram í le Pretre- skógi. I Efri-Elsass náðum vér þýðingar- miklum fjallhálsi vestan við Cerney og hrundum gagnáhlaupum óvinanna. í Steinbach tókum vér kirkju og kirkjugarð. Frá Rússum. London 5. jan. kl. 12,25 e. h. Þetta er seinasta rússneska til- kynningin: Engin merkileg breyting hefir orðið á vinstri bakka Weichselfljóts, en stórskotaliðsviðureign var þar eftir vanda. I ákafri orustu, sem stóð hjá Bolimow þ. 2. og 3. janúar tóku Þjóðverjir eina rússneska skotgröf, en voru undir eins hraktir þaðan aftur og mistu 6 vélbyssnr og marga fanga. 1000 Austurríkismenn og nokkr- ar fallbyssur tóku Rússar enn í vestanverðri Galiziu á laugardaginn. Skamt frá Uzsokskarði gafst heilt austurríkst herfylki upp og allir fyr- irliðar þess, og í sama héraði tók- um vér alla herforingja einnar her- sveitar ásamt skjölum þeirra. Vér höfum farið í gegn um Bukowina og tekið Suczawa sem er eina verst (1 verst er 1077 stikur) frá landamærum Rúmeníu og Aust- urríkis. þar til þér hafið fengið tilboð frá Köbenhavns Möbelmagasin. POUL RASMUSSEN. Vestervold 8 (Ny Rosenborg). Stærsta húsgagnaverksm. Dana. Húsgögn Chr. VIII. frá 400 kr. Ágæt dagstofnhúsgögn | . Borðstofuhúsgögn úi; eik 521 KF. Svefnherb.husgógn pöl.birkrj Dagstofuhúsg. pól. mah. \ Borðstofnhúsgögn úr eik i lUUU KF. Svefnherb.húsg. pól. mah. J ' Jafnan 3ooýmsar húsgagnaheildir tilbúnar. Biðjið um verðskrá. Eigin verkstæði. 10 ára ábyrgð. Biðjið um Eiresa Ttie í blýumbúðum með safnaramerkjum og áprentuðu söluverði frá I & l Salomonsen, Reynið Boxcalf-svertuna , S11 n6 og þér brúkið ekki aðra skósvertu úr því. Fæst hvarvetna á íslandi hjá kaup mönnum. Buchs litarverksmiðja Kaupmannahöfn. TJlvinna. Duglegur, reglusamur og sérlega heilsugóður maður á fertugsaldri, mjög vel vanur bæði til lands og sjávar, óskar eftir ráðsmenskustarfi, annaðhvoit á góðu sveitaheimili, eða í kaupsiað, við fiskverkun eða aðra daglaunavinnu, frá 14. maí 1915. Tilboð sendist í afgreiðslu ísafold- ar merkt: 1915. Gsrist kaupenar ísafolaar nú þegar Hafliðakot hjá Stórahrauni við Eyrarbakka fæst til ábúðar og ef til vill kaups í næstu fardögum, með rimburhúsi, hlöðu og öðrum hisum þar. Tún girt, slétt að mestu og grasgefið, fóðrar nokkuð meir en 2 kýr. Engjar úrskiftar, en fjöru- og landbeit sameiginleg við Hraunstorfuna. Akvegur liggur heimundir. Þetta er fýsilegt býli fyrir þann, er komast vill af með lítinn vinnu- kraft. Lysthafendur snúi sér til undirskrifaðs. Reykjavík, Bergststr. 2, 23. des. 1914. Jóhann þorsteinsson. Jörðin Rif (undir Jökli) er til sölu og ábúðar frá næstu fardögum. Allstór timburbær og góð hlaða er á jörðinni og fjós undir járnþaki, en önnur skepnuhús með torfþaki. Töðufall: 200 hestar, útheysslægjur: 100 hestar. Útræði gott, nóg fisk- þerripláss og mótorbátalagi í Rifsós ef vill. Síra Guðm. Einarsson í Ólafsvík gefur frekari upplýsingar um jörðina og semur um sölu fyrir hönd eig- anda. Jörðin Hólar i Biskupstungna- hreppi er laus til kaups og ábúðar í næstu fardögum. Semja ber við eiganda jarðarinnar, Þórð Þórðarson í Hraunkoti í Hafnarfirði, sem gefur um leið nánari upplýsingar viðvík- jandi jörð þessari. Til sölu. Húsið Bakkakot á Seltjarnarnesi fæst til kaups nú þegar og ábúðar frá fardögum 1915 með vægu verði og góðum borgunarskilmálum. Húsið er portbygt, úr steini, 10X12 ál. að stærð, með kjallara ; því fylgir 400 □ faðma ræktuð lóð og ýms hlunn- indi ef um semur. Frekari uppl. gefur Oddur JónsBon, Ráðagerði. Kensluskeiðið næsta, 1915—1916, stendur yfir frá 15. okt. til 14. maj. Námsmeyjar fá meðal annars nokkra tilsögn í heilsufræði og um efna- samsetningu og gildi matvæla, einn- ig nokkra verklega æfingu í að búa til algengan mat, eftir þvi sem ástæður leyfa. Fyrir fæði greiða þær 18 kr. um mánuðinn. Þær, sem nokkuð langt eru að, fá ferðastyrk. Umsóknir sé sendar Búnaðarfélagi íslands og þarf þeim að fylgja læknis- vottorð um heilsufar. Nærsveitamenn eru vinsamlega beðnir að vitja Isafoldar í afgreiðsluna, þegar þeir eru á ferð í bænum, einkum Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem flytja mjólk til bæjarins daglega. Afgreiðslan opin á hverjum virkum degi kl. 8 á morgnana til kl. 8 á kvöldin. Aggerbecks Irissápa er óviftjatnHnleiaja góó fyrir húMna. Upp&hald allra kvenna. Bezta barnas&pa. Biöjið kanp- menn yhar nm hana. Um jarðyrkjukenslu á Ána- brekku vorið 1915 og slátrunar- nám í Reykjavík haustið s. á. sjá auglýsingu á kápu Búnaðarritsins 191S. i- h. Btinaðarfélag íslands. Kransar. Líkklædi. Likkistur. Lítið birgðir mínar áður en þér kaup- ið annarsstaðar. Teppi lánuð ó k e y p i s í kirkjuna. Eyv. Árnason, trésmíðaverksmiðja, Laufásve,g 2

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.