Ísafold - 02.06.1915, Blaðsíða 4
4
ISAFOLD
Vér einir vitnm. — »Ríkið — það
er eg« — sagði hinn hásæli Loðvík 14.
Líkt fer »æðri verunum« úr flokks-
stjórn Sjálfstæðisflokksins — þrenn-
ingunni miklu Be-Bja Skúla.
Flokkurinn — það erum vór — hin
mikla þrenning!
SjálfBtæðismálstaðurinn — það erum
vér!
Vér — vér — vér einir vitum. Vór
— vór — vór — einir ákveðum alfe
— stefnuna, stefnusvikin. Vér einir
eigum að ráða öllu, sem lifir og hrær-
ist í nánd við það, sem sjálfstæðis-
nafn ber.
Hvað mundi okkur varða um það,
þótt mikill meiri hluti Sjálfstæðis-
þingmanna teldu góð og gild staðfest-
ingarskilyröin fyrir stjórnarskránni!
Ef þau finna ekki náð fyrir augum
vorum — hinnar miklu þrenningar
Be-Bja Skúla — þá eru þau »s v i k«
við sjálfstæðisstefnuna — »rótt eina
ferðina« — svik við föðurlandið, lands-
dómssök o. s. frv.
Því að »vér einir vitum« !
Sæl er sú þjóð, sem yfir sér á aðra
æins leiðarstjörnu þrenning!
Og missæl, ef hún kann ekki að
meta hana að verðleikum (!!).
ísafold og S. Eggerz. Ingólfur
finnur nú sárt mjög til með Sigurði
Eggerz fyrir »dylgjur og níð«, sem
ísafold sleppi nú engu tækifæri til að
fara með í hans garð. Hann er búinn
að gleyma þv/, eins og mörgu öðru,
þessi góði stallbróðir vor, að hann í
vetur beitti S. E. líkum brögðum og
marga aðra, að gera á hann frumhlaup
og væna hann víta, án þess að hafa
nokkuð á að byggja, enda reyndist eins
og oftar staðleysu-fleipur eitt. Er
hór átt. við það, er hin ranga fregn
harst um staðfesting stjórnarskrárinn-
ar í vetur og lngólfur undir eins bar
Sig. E. svikabrigzlum — án þess að
geta nokkuð rent grun í það, hvort
með rétta ákæru færi eður eigi.
En þessi tilraun Ingólfs ^il að gera
S. E. að »píslarvætti«, er og fleipur
eitt.
Hvar er »níðið« um S. E. hór í
blaðlnu? Hvergi!
ísafold hefir fullkomlega látið S. E.
njóta sannmælis fyrir það, sem hann
gerði vel í vetur — hefir gert það
miklu rækilegar en Ingólfur.
En ef ísafold ætti þessvegna að
róma það, sem hann gerir i 11 a nú
— tæki skörin að færast upp í bekk-
inn.
Það er sjálfsögð skylda vor að víta
gerðir S. E. í stjórnarskrárdeilunni n ú,
eins og að róma gerðir hans í vetur.
Það er hann og Be-Bja-Skúli, sem
af einhverjum óskiljanlegum ofstopa
þverskallast n ú við því, sem þingið
hafði fyrir augum, með fyrirvaranum,
og gera með því móti tilraunir til að
ónýta s t j órnarskrá og fána
— að óþörfu.
Það er þ e 11 a, sem ísafold vill
hvorki láta þeim, nó neinum öðrum
haldast uppi — hvað sem líður »svika«-
brigzlum og öðrum enn verri getsök-
um hamsleysisherranna.
Böglið f Þjóðviljanuin. Lesendur
ísafoldar muna eftir grein þeirri, er
prentuð v&r upp hór í blaðinu úr
Þjóðviljanum 1898, þar sem hann lof-
ar dr. V. G. á hvert reipi fyrir þjóð
rækni o. s. frv., er hann umboðslaust
og ótilkvaddur var að »makka« við
Rump »bak við« þing og þjóð.
Hefir Þjóðv. lent í verstu vandræð-
um með að snúa sig út úr þessu og
lendir í mesta bögli. Ber það aðal-
lega fyrir, að »makkið« í dr. V. G.
hafl verið »alveg óllkt«, af því það
hafi miðað til að »komast þó loksins
eitthvað út úr stjórnmálaógöngunum«.
»Mikið »barn« er« Þjóðvilja-ritstjór-
inn »sem vitað er« — að skilja eigi,
að þrímenningarnir eru að vinna ná-
kvæmlega að hinu sama og hann seg-
ir að dr. V. G. hafi þá verið að gera.
Að rjúfa drengskaparheit virðist
vera orðið eitt af stefnuskráratriðum
Þversum-mannanna.
Ritstjóri Ingólfs segist sjálfur
í síðasta blaði vera að skýra frá inni-
haldinu í þrímenninga-skjalinu.
Ritstjóri Ingólfs var bundinn dreng-
skaparheiti um að skýra ekki frá
þ v í, nema með leyfi þrímenninganna,
— og hefir enn eigi verið leystur frá
því heiti.
Eigi það að fara að verða regla, að
stjórnmálaforingjar geti leyft sér slíka
ósvinnu óátalið og haldið óskertri virð-
ing eftir, þá fara heldur að tíðkast hin
breiðu spjótin í stjórnmálalífi voru.
En vór trúum því eigi, aðsvoverði.
Vér trúum eigi öðru en að hverrtig
sem menn ella líta á málin, hljóti það
að vekja andstygð hjá öllum mætum
mönnum að beita slíkri aðferð.
Prestastefnan
þetta ár hefst 24. júní og verður
haldin í sölum háskólans eins og
undanfarið.
Alþingissetningf.
Biskup hefir kvatt síra Eggert
Pálsson til að flytja ræðuna við al-
þingissetning í sumar.
Skipsstrand:
í fyrradag strandaði í Grindavík
seglskip danskt, Daqny, er var á leið
hingað með sementsfarm til Johnson
& Kaaber. Menn allir björguðust.
Björgunarskipið Geir var kvatt til
hjálpar og tókst því að ná skipinu
af klettinum. Dagny kom hingað í
morgun og kvað vera lítið skemd,
en '/3 af farminum er gerónýtur.
Iþróttasambandið Skarphéðinn
heldur hið árlega íþróttarr.ót sitt að Þjórsártúni laugardaginn 26. júní
1915, kl. 11 árd.
Verður þar háð kappglíma um verðlaunaskjöid sambandsins,
einnig verður þreytt feguröarglíina um silfurpening, er sambandið
hefir gera látið. Auk þessa verða þar sýndar margar aörar íþróttir,
eins og að undanförnu.
Þar verða og ræðnr fluttar auk annara væntanlegra skemtana.
Stjórn sambandsins.
Hið islenska Sókmentafjelag.
Aðalfundur Bókmentafjelagsins verður haldinn fimtudaginn 17. júní
næstk. kl. 9 siðd. í Iðnaðarmannahúsinu (niðri).
Meö þessu er ekki sagt, að það sem
ritstj. Ingólfs segir, aS standi í
skjalinu — standi þar í raun
o g v e r u.
Svo frekjulega er flest alt
ranghermt, útúrsnúiS, rifið úr sam-
hengi eða hártogaS og mörgu mikil
vægu slept. ÞaS getur ísaf. boriS um.
En hinsvegar getur Ingólfur vefengt
þessi ummæli vor e n n, af því að vór
ætlum ekki að fara að rjúfa þagnar-
skyldu vora, þótt vór með því gætum
þegar í staS sett Ingólf í þann
gapastokk, sem hanu lendir í, á sama
augnabliki og unt verður að birta op-
inberlega skilyrSi þau, sem hægt verð-
ur að fá með stjórnarskrárstaðfesting.
Ljótur er málstaðurinn. Gamall og
góður SjálfstæSismaður, sem hefir verið
heldúr kaldur í garS þrímenninganna,
þótt eigi hafi tekið þátt í æsingum,
hitti oss á götu 1 gær.
»Var Benadikt ekki bundinn sama
þagnarheitinu og þið hinir i miðstjórn-
inni um tillögur þrímenningana?« spurði
hann.
»Jú, jú«.
»Hefir hann þá ekki verið leystur
frá því heiti ?«
»Nei«.
»Ja, sór er nú hvað! — Nú er mér
nóg boðið. Nú er eg viss um, að
málstaður þeirra, sem þór kallið þvers-
ummennina — er Ijótur, úr því að
þeir víla ekki fyrir sér að rjúfa dreng-
skaparheit — til þess að halda sér
fljótandi. Nei, drengskaparheitrofum
íylgi eg aldrei«.
ReykjaYíkflr-annálI.
Hjúskapur: Carl Finsen umboðsm.
og jungfr. Guðrún Aðalstein símamær.
Gift '29. maí.
Ólafur Jónsson stud. med. og jungfr.
Lára Lárusdóttir (prests Jóhannesson-
ar). Gift 1. júní.
E.s. Ásgeir Ásgeirsson, skip það,
er Ásgeir heit. etazráð hafði lengi 1
förum, var fyrir skömmu selt finskum
útgerðarmanni, fyrir 120,000 kr. En
3 vikum síðan var skipinu sökt af
þýzkum kafbát.
Aðkonramenn : Síra Jón Þorvalds-
son frá Stað á Reykjanesi ásamt frú
sinni, Lárus Tómasson bóksali frá
Seyðisfirði, síra Ól. Ólafsson próf. frá
Hjarðarholti og Þórður Pálsson hóraðsl.
frá Borgarnesi.
Skipafregn:
Kiew, aukaskip frá Sam.fólaginu,
kom hingað á laugardag.
B 0 t n i a kom til Vestmannaeyja í
gærkveldi, og er væntanleg hingað kl.
4 til 5 í dag.
G u 11 f o s s fór til Austfjarða og
Danmerkur í morgun. Meðal farþega:
Pótur Brynjólfsson hirðljósmyndarl
ásamt fjölskyldu sinni, alfarinn til
Danmerkur. Ætlar að setjast að í Ár-
ósum. Ennfremur mesti fjöldi fólks
til Austfjarða.
Pundur á Akureyri.
í gær hafði verið boðaður Sjálf-
stæðismannafundur á Akureyri, að
áskorun Sig. Eggerz f. ráðh. Hafði
verið á fundinum um 200 manns,
þegar flest var.
Að siðustu samþ. tillaga, hógvær
mjög þó, um að skora á alþingi að
halda fast við fyrirvarann og á ráð
herra að birta sem fyrst þrímenn-
inga-tillögurnar.
En aðeins 27 atkv. voru greidd
með tillögunni. Þar á Akureyri hefir
Sjálfstæðismönnum farið flestum eins
og hér, að vilja ekkert segja eða at-
kvæði greiða, um það, sem þeir ekki
vita hvað er.
Erl. simfregnir.
Opinber tilkynning frá brezku
utanríkisstjórninni í London.
Yiðureignin á Gallipoliskaga.
London, 28. mai.
Hér fer á eftir skýrsla um viður-
eignina á Gallipoliskaga frá 6.—19.
maí, sem hermálaráðuneytið hefir
birt:
6. maí var hafin framsókn í skjóii
flotans. Barist var mjög ákaft allan
daginn, og um kvöldið hafði alt lið-
ið sótt 1000—1500 metra fram.—
Sama kvöld tóku Fiakkar mjög þýð-
ingarmikinn stað, sem var þegar víg-
girtur. 7. mai héldu áhlaupin áfram
og unnu Frakkar töluvert á. í vinstra
herarmi rak 29. herdeildin (division)
óvinina nærri því inn i Krithiaþorp-
ið. 8. maí var áhlaup hafið að nýju
og vér sóttum fram, þrátt fyrir ákafa
skothrið á oss. Frakkar brutust á-
fram með brugðna byssustingi og öll
herlínan sótti fram, nema vinstri her-
armur. Um kvöldið gerðu Tyrkir
gagnáhlaup, en því var alstaðar hrund-
ið, og mistu óvinirnir margt manna.
Þrátt fyrir það þó óvinirnir hefðu
fengið mikið hjálparlið og ákaft áhlaup
hafi verið gert á Ástraliuliðið, þá hélt
það samt velli. Frakkar hafa barist
sem hetjur alstaðar og sýnt mikið
hugrekki. 9. maí styrktum vér stöðv-
ar vorar og um kvöldið tóku Ástra-
líumenn þrjár skotgrafaraðir hjá Sari
Bair með byssustingjaáhlaupi. Tyrk-
ir gerðu æðisgengið gagn^hlaup og
voru Frakkar neyddir til þðss að hörfa
undan til sinna fyrri stöðva. En vél-
byssur voru við hendina og var nú
hafin áköf skothríð á Tyrki á skömmu
færi. Féllu þeir unnvörpum og lágu
búkarnir í hrúgum á vígvellinum.
12., 13. og 14. héldum vér áfram
sókninni, og sýndi indverska her-
sveitin þá mikla hreysti. 29. her-
sveitin sótti mikið fram þann 17.
maí. Stórskotaliði voru var aðdáan-
lega stjórnað, og eyðilagði það stóra
tyrkneska Howitzerbyssu og skot-
æravagna og skemdi varnarvirkif
óvinanna. 16. maí sóttu Frakkar
enn meir fram i skjóli skothríðar
flotans.
Dagskrá:
1. Skírt frá hag fjelagsins og lagðir fram til úrskurðar og samþiktar
reikningar firir 1914.
2. Kosnir 2 endurskoðunarmenn.
3. Rætt og áliktað um önnur fjelagsmál, sem upp kunna að verða
borin.
Reikjavík 1. júní 1915.
Björn M. Ólsen,
p. t. forseti.
Titmanak 1915
ftjrír ísíenzka fiskimerm
fæsf í)já bóksölum.
OÍRSGOW
■ : .
|EH£RAL PÚRPOSE
VARAÍISH
SlSSONS'
ENEP&LpURPOSE
?\RNISH
Þetta lakk (gljá-
kvoða) er með lága
verði en að haldi og
útliti er það frekast
sem lakk getnr orð-
ið. Það springur
ekki í sterkasta
sólarhita. né í harð-
asta íra.fti, og er
" ' mx w m
jafn gijáundi i rign-
ingn sern í þuirn
veðri. Það er hald-
gott og fljótlegt íð
þvo og jafn hentngt
ntanhúss sem innan.
! Hail’s IDisternper &.|General Pnrpose Yarnish að eins
búið til hjá: SISSONS BROTHERS & Co. LTD., Hull & London. Hm.
boðsmann okkar, br. Kr. 0. Skagfjörð, verðnr að hitta i Reykjavík
eða á Patreksfirði, sumarlangt; hann Jætur í té fnllar upplýsingar.
IISTEMPEl
BER SEM (tUL'L aF EIR AF
ÖLLUM VEGGJAFÖRFUM. —
Að fegnrð - aí því að hús-
gögn og myndir koma svogreini-
lega fram við hið hreinlega &
hlýlega útlit hans.
A ð h a 1 d i - af þvi að hann
setur grjóti-harða húð á vegg-
ina og þá má breinsa með því
að þvo léttilega úr volgu vatni.
Að hreinlæti - af þvi að
bann drepnr allar hakterínr og
skaðleg skordýr. Borinn á með
breiðnm penslí, sérstaklega þar
til gerðnm. — Sparar 40°/0 af
vinnukostn., miðað viö oliufarfa.
Fjarverandi vinum og kunningjum
tilkynnist að húsfrú Helga Gisladóttir
að Gýgjarhóli andaðist að heimili
sfnu 24. mai siðastliðinn, eftir langa
og þunga banalegu.
Aðstandendur hinnar látnu.
Nærsveitamenn
eru vinsamlega beðnir að vitja
Isafoldar í afgreiðsluna, þegar
þeir eru á ferð í bænum, einkum
Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem
flytja mjólk til bæjarins daglega.
Afgreiðslan opin á hverjum virkum
degi kl. 8 á morgnana til ki. 8 á
kvöldin.