Ísafold - 01.09.1915, Blaðsíða 2
2
ISAFOLD
Harðæri?
RæSa Sveins Björnssonar 1 alþm.
Rvikinga i Nd. 31. ágúst.
Fyrstu daga þingsins vakti eg
eftirtekt háttv. deildar á því, að
hér væri dýrtíð i landinu vegna
afleiðinga Norðurálfuófriðarins.
Eg skyldi menn svo sem þeir
vildu kannast við að þetta væri
rétt. Þvi orðalaust var samþykt
hér í deildinni tillaga um að
skipa nefnd til að koma fram
með tillögur um það, á hvern
hátt spomað skyldi við þeim af-
leiðingum. í þeirri nefnd kom
til orða að leggja ófriðarskatt á
gróða þann, er einstakir menn
hafa haft af ófriðnum. En það
hafði þá ekki fylgi í nefndinni.
Og tillaga nefndarinnar um að
heimila stjórninni ráðstafanir, sem
trygt gœtu að menn fengju kjöt
og fisk sæmilegu verði, fékk svo
lítinn byr hér í þinginu, að mig
stórfurðaði á. En við því verður
ekkert gert.
Eftir það áleit eg þýðingarlítið
að einhver einn þingmaður bæri
fram frumvörp um þetta efni.
Gerði ráð fyrir að kosin yrði
bjargráðanefnd, eins og nú er
orðið, og hún mundi láta sig mál-
ið skifta, eins og frumv. þetta og
ber með sér.
Síðan hafa verið afgreidd Iög
sem heimila stjórninni að verja
um 1 miljón króna til kaupa á
nauðsynjavöru í samráðum við
bjargráðanefnd þ4 er eg mintist á.
Sú nefnd var kosin fyrir l1/*
viku síðan og hefir þegar gert
ráðstafanir til að tryggja landinu
byrgðir af kornvörum, kolum og
steinolíu.
En jafnframt tók nefndin til
ihugunar dýrtíðarmálið. Hefir
það verið rætt 'á mörgum fund-
um í nefndinni í síðastliðinni
viku. Hafa skoðanir I nefndinni
verið nokkuð skiftar. Þó held
eg að eg megi fullyrða, að allir
hafi verið á því máli, 1. að dýr-
tíð væri í landinu, og 2. að leggja
bæri á hinn óvenjumikla gróða
einstakra manna á íslenzkum af-
urðum einhvern skatt til tekju-
auka landssjóði vegna ráðstafana
þeirra, sem gera þarf út af hinu
óvenjulega ástandi.
Það fyreta sem háttv. deildar-
menn nú þurfa að gera sér Ijóst
er þetta:
1. Er rétt að veruleg dýrtíð
sé í landinu?
2. Hver brögð eru að þessari
dýrtíð?
3. Hafa þá ekki jafaframt
hækkað tekjur manna að saraa
skapi?
Þessum spumingum skal eg nú
leitast við að svara.
Hagstofan hefir aflað sér skýrslu
um útsöluverð á ýmsum nauð-
synjavörum hér í bænum síðan í
júlí í fyrra. Hefir hún safnað
skýrslum þessum á hverjum
þriggja mánaða fresti. Hefi eg
fengið þaðan yfirlit um vöru-
hækkun hér í bænum frá því í
júlí 1214 til þessa tíma (þess
skal þó getið að enn vantaði
skýrslur frá nokkrum kaupmönn-
um um vöruverðið nú). Skýrsl-
ur þessar eru að vísu aðeins um
vöruverð í Reykjavík; til annara
skýrsla hefir eigi náðst. En í
þeim felast þó taisverðar upplýs-
ingar. Eftir þessum skýrslum
skal eg nú nefna verðhækkun á
nokkrum nauðsynjavörum:
• 1914 1915 Verðh.
au au. au. °/ /o
Rúgmjöl pr. kg. 19 33 14 73
Flórmjöl — — 31 45 14 45
Hveiti — — 28 41 13 46
Bankab.mj. — — 29 45 16 55
Hrísgrjón — — 31 38 7 23
Hafragrj. — — 32 46 14 43
Baunir bálf.— — 33 67 34 103
Kartöflur — — 12 16 4 33
Kandís — — 55 88 33 60
Hvítas. meðalt. — 52 65 13 23
Púðursykwr— — 49 58 9 18
Kaffi. óbr. — — 1,65 1,69 4 2%
Kaffibætir — — 97 1,01 4 4
Smjörlíki — — 1,07 1,23 16 15
Palmin — — 1,25 1,66 41 30
N/r fiskur — — 14 16 2 14
Saltfiskur — — 40 45 5 12%
Trosfiskur — — 13 20 7 53
Steinolía — — 18 20 2 11
Kol (ofnk.) pr. skd. 4,60 8,20 3,60 78
Meðaltal 37 %.
Samkvæmt þessu hafa vörur
þessar hækkað að meðaltali um
nær 40 af hundraði. Auk þess
má gera ráð fyrir að sauðakjöt
hækki í verði um 50—60 af hundr-
aði. Ennfremur hafa hækkað
mjög í verði ýmsar aðrar nauð-
synjar, svo sem skófatnaður, vefn-
aðarvörur o. fl.
Með þessu er þá svarað 2
fyrstu spurningunum. Hér í land-
inu er dýrtíð. Vörur hafa hækk-
að á síðastliðnu ári um 40°eða
meira.
Um 3. spuminguna er þetta að
segja. Tekjur þeirra, sem sjálfir
framleiða eða kosta framleiðslu,
hafa aukist mjög mikið. Hjá all-
flestum mun meira en nemur
verðhækkun á erlendum nauð-
synjum sem þeir þurfa að nota.
Tekjur óbreyttra verkamanna
hafa aukist lítilsháttar, ekki
nærri svo að nemi verðhækkun
á þeim erlendum nauðsynjum, er
þeir þurfa. T. d. hafa verka-
menn hér í Rvík fengið kaup sitt
hækkað úr 35 aurum upp í 40
aura að deginum til eða um rúma
14 af hundraði. Flestir handiðna-
menn munu ekki hafa fengið
kaup sitt hækkað; þó eru hér
undantekningar; en sú hækkun
mun nema lítilræði einu. Þeir
kaupstaðabúar, sem stunda sum-
arvinnu í sveit, munu hafa feng-
ið nokkuð hærra kaup en í fyrra,
að minsta kosti hér sunnanlands,
en vinnuna hafa þeir styttri tíma
en venja hefir verið. Bændur t.
d. nú þegar farnir að senda frá
sér kaupafólk. — Loks eru þeir
starfsmenn þesB opinbera, sem
föst laun hafa. Þeir hafa enn
enga launahækkun fengið til að
standa á móti dýrtíðinni.
Þannig er þá ástandið í land-
inu:
Allar nauðsynjar hafa hækkað
í verði um 40% eða meira síðan
stríðið hófst. En tekjur fjölda
manna, sérstaklega veruamanna,
handiðnaðarmanna og fastlaunaðra
starfsmanna, hafa annaðhvort
ekkert hækkað eða þá svo lítið,
að mjög skamt hrekkur til að
standa straum af auknum út-
gjöldum vegna dýrtíðarinnar.
Ef nú er ekkert gert af hálfu
löggjafarvaldsins, hljóta afleiðing-
arnar að verða þær, að þeir, sem
ekki hafa haft meiri tekjur en
svo, að þeir hafa rétt aðeins
fleytt sér fram, án nokkurs óhófs,
munaðar eða eyðslu til annnars
en hins allra nauðsynlegasta,
verða annaðhvort að svelta eða
fara á sveitina. Og þegar á það
er Iitið, hve stór hópur manna á
hér í hlut, þá getur engum dul-
ist, að hér er um að ræða hvort
hægt sé að afstýra þjóðar-
ógæfu.
Til framkvæmda í þessu efni
þarf peninga, peninga í lands-
sjóð umfram venjulegar tekjur.
Auðvitað hljóta þó að verða tak-
mörk sett við því hve miklu fé er
hægt að verja til dýrtíðarhjálp-
ar.
Lampar og Lampaáhöld.
Hvað sem hver tautar, eru eg verða allskonar lampar og lampa-
áhöld langódórust i verzlun undirritaðs. Ástæðan fyrir því er meðal
annars sú, að við kaupum langmest af þeim varningi, náum því beztum
kaupum, því alt er það keypt fyrir peninga út í hönd frá fyrstu hendi.
Núverandi birgðir vorar eru meira en tvöfaldar við það, sem aðrir
hafa mestar.
Verzl. B. H, Bjarnason.
Brennarar o. fl. koma með bergenska skipinu næsta.
Hið fyreta, sem varð að snúa
sér að, var þá þetta: Að benda
á leið til að útvega landssjóði
auknar tekjur. Að því stefnir frv.
sem hér liggur fyrir. Eg skal
geta þess, að ráðherra og allir
nefndarmenn í bjargráðanefndar-
innar voru á einu máli um að
teknanna bæri að afla með út-
flutningsgjaldi. En skoðanir skift-
ust um það hvort leggja ætti
gjaldið á vörurnar eftir þyngd
eða verðmæti. Meðflutningsmað-
ur minn háttv. þm. Norður-ísf.
hallast að síðarnefndu leiðinni.
Ennfremur skal þess getið að
nefndarmenn vilja eigi telja sig
bundna við gjaldhæðina á hverri
vörutegund eins og hún er til-
tekin í frv.
Til skýringar 2. gr. frv. skal
þess getið að útflutningsgjaldið
fimmfaldað mundi nema því, sem
hér segir:
Á sk.pd.
Á þurkuðum saltflski kr. 1,60
- blautum saltf. kr. 1,10—1,65
- sundmaga 50 kílóm kr. 1,50
- tunnu af hrognum — 0,75
Ef miðað er við það, hve mik-
ið var fiutt út árið 1912, þámundi
þetta gjald og gjaldhækkun, sem
frv. fer fram á gefa landssjóði
þessar tekjur hér um bil á ári:
Fiskur
Lýsi
Síld
200 þús. kr.
190--------
60 — —
Sjívar-
útvegur
450 þús. kr.
Saltkjöt 190 — —
Ull 185 — —
Gærur 25 — —
Hross 22 — —
Sauðkindurl7 — —
Landbúnaður
439 þús. kr.
Tekjurnar yrðu af þessu gjaldi
all8 889 þus. krónur.
Með þessu móti skiftist gjaldið
nokkuð jafnt á landbúnaðinn og
og sjávarútveginn. Eg tellíklegt
að ýmsum muni þó þykja gjald-
ið koma of þungt á landbúnaðinn.
Eg hefi persónul. enga löngun til
að íþyngja landbúnaðinum á neinn
hátt. Mér eru fyllilega ljós sann-
indin í máltækinu: »Bóndi er bú-
stólpi og bú er landstólpi«. En
hinsvegar vidi eg gjarna sýna
einu sinni með tölum hvernig
kæmi niður jafnt gjald á sjávar-
útveg og sveitabúskap. Hingað
til hefir sjávarútvegurinn þó bor-
ið meiri hluta .gjalda í landssjóð,
og ekkert útflutningsgjald verið á
sveitaafurðum. Eins og kunnugt
er lifir % landsbúa á sjávar-
útveg % á landbúnaði.
— Þessa upphæð tel eg kleift
að útvega landssjóði, sem auka-
tekjur til ráðstafana út af hinu
óvenjulega ástandi,
— Þá er sú leið, að lands-
sjóður kaupi birgðir af nauðsynja-
vöru handa landsmönnum og selji
seim svo lágu verði. Við þetta
er það að athuga, að til slíkra
birgðakaupa þyrfti, ef nokkurt
gagn ætti að verða af, meira fé
en landssjóður gæti haft hand-
bært. Fyrirskipanir og útbúnað
þyrfti sem rajög erfitt væri að
koma í verk. Auk þess mundi
slík ráðstöfun trufla mjög alla
verzlun í landinu, koma hart við
kaupmenn og kaupfélög, sem hafa
birgt sig af vörum, og ekki átt
sér neins ills von, að verða svo
ef til vill að liggja með birgðir
sínar vaxtalaust og undir skemd-
um. Af þessu gæti leitt tjón, sem
næmi meiru en vöruverðmunin-
um hjá landssjóðsverzluninni.
Loks hefi eg bent á leið þá er
kemur fram í frv. því, sem kem-
ur til umræðu næst á dagskránni:
Að hjálpa þeim sem dýrtíðin kem-
ur harðast við til þess að stand-
ast hana með beinni peninga-
hjálp.
Þessa leið fer og annað frv.,
sem bjargráðanefndin ber fram í
samráði við stjórnina eða fyrir
hennar hönd og útbýtt hefir ver-
ið hér í deildinni. Það nær ein-
göngu til lágt launaðra opinberra
starfsmanna og er þannig í sam-
ræmi við meiri hluta þingmanna,
sem framkom á prívatfundi þing-
manna fyrir nokkrum dögum.
En eg vil eigi láta þar staðar
numið. Eg lít svo á, að þegar
það er viðurkent, að í landinu
sé dýrtíð, sem til vandræða horf-
ir — og fram hjd því verður eigi
komist að svo sé — þá beri land-
inu fyrst og fremst að bæta úr
bölinu fyrir verkamennina á sínu
heimili, en jafnframt verður að
hugsa um hina, sem í sömu bág-
indum eru staddir þótt þeir séu
eigi heint verkamenn landsins.
Því tel eg óhjákvæmilegt að veita
almenna dýrtíðarhjálp.
Eg skal geta þess, til þess að
fyrirbyggja allan misskilning, að
frv. um dýrtíðarhjálp er, eins og
það ber með sér, frá mér einum.
á ábyrgð mín eins, en ekki ráð-
herra — eða meðnefndarmanna
minna.
Það skal fúslega játað, að frv.
þetta er mjög víðtækt, ef til vill
víðtækara en ástæða er til. Enda
er eg fús til þess að ganga að
því að það sé takmarkað. T. d.
látið ná eingöngu til sjávarþorpa
og kauptúna, og þá jafnframt
létt að einhverju gjaldinu, sem
lagt er á búnaðarafurðir. Útbýt-
ing falin bæjar- og sveitastjórn-
um að einhverju leyti eða því
um líkt. En eg held fást við að
það fari í rétta átt. Enda er það
i samræmi við þær leiðir, sem
ýmsar aðrar þjóðir hafa tekið
upp, þjóðir sem á þessum tíma
eiga í höggi við sama óvininn
sem vér, dýrtlðina. Þetta verður
og notadrýgsta hjálpin.
Eg vil leyfa mér að skýra frá
lauslegri áætlun, sem eg hefi gert
um það hvern kostnað frv. mitt
mundi hafa í för með sér. Til
venjulegs 5 manna heimilis (mað-
ur, kona og 3 börn) mundi hjálp-
in verða 80 krónur. Samkv&mt
síðasta manntali var meðalheimili
í kauptúnum 5 manna, sveitum
6 manna. Eftir því ættu að vera
á öllu landinu:
í kauptúnum um 6000 heimili.
- sveítum . . — 9500 -------
Þegar nú eru taldir frá þeir heim-
ilisframfærendur, sem hafa meiri
tekjur en 2000 krónur og allir
þeir, sem ekkert heimili hafa
fram að færa — en ætlast er til
að undanþyggja þá dýrtíðarjálp-
inni — þá áætla eg að heimilin,
sem hjálpina fá, svari því sem
væri í kauptúnum 4500, í sveit-
um 5000. Meðalheimili i kaup-
túni fái 80 kr. hjálp, í sveitum
40 kr. Verður þá dæmið þannig:
I kauptúnum:
4500 fjölsk.X80kr. = kr. 360.000
í sveitum:
6000 fjölsk.X40 kr. = kr. 240.000
Samtals kr. 600.000,
sem hjálpin, samkv. minu frv.
kostar.
Nú segja menn suðvitað að
þetta komi of seint fram; mikiú
af vörum þessa árs sé þegar út-
flutt og verði þegar lögin gangi
í gildi.
Eg skal fúslega játa það, að*
frv. kemur of seint fram. Það
hefði átt að koma í þingbyrjun.
En ástæðumar eru þær þar til,
að háttv. þingmönnum mun eigi
hafa verið ljóst talsvert fram eftir
þingi, að hér væri þörf neinna
ráðstafana, og auk þess mun fleir-
um hafa farið sem mér, að ann-
irnar hafa verið svo miklar dag-
legu, að tími hefir verið af skorn-
um skamti til að hugsa um þetta
mál. En það þurfti og þarf að
vissu leyti enn rœkilega umhugsun.
Það er og rétt, að talsvert af
afurðum, aðallega ull, fiski, lýsi
og síld er þegar flutt út, og þvi
komið undan gjaldinu. En við
þessu er ekki gott að gera; en eg
hygg að svo muni fara að þótt
það verð sem nú er á þessum af-
urðum haldist eigi fram á næsta
sumar — en eg tel allar líkur
fyrir því — þá mundi gjald þetta
þó lenda á þeim sem grætt hafa
á þeim afurðum sem tollaðar eru
og því koma rétt niður þótt það
komi eftir á, þ. e. næsta ár. Það
mundi verka líkt og tekjuskattur,
sem er eins og kunnugt er lagð-
ur á tekjur þær, er gjaldendur
hafa haft 1—2 árum áður en
skattinn á að greiða. Og til þess
að sporna við að menn nú flýti
sér að flytja út vörurnar til að
komast hjá gjaldinu er það ráð
að flýta frv. gegnum þingið með
afbrigðum frá þingsköpunum og fd
það staðfest símleiðis. Þá mun þó
nást útflutningsgjald af allmikl-
um hluta þessa árs útflutnings.
Það skal tekið fram, að það
er hugsun nefndarinnar að nota
eigi allar tekjurnar, sem af gjaldi
þessu fæst til dýrtíðarhjálpar * i
einhverju formi, heldur gerir hún
ráð fyrir talsverðum afgangi, sem