Ísafold - 08.12.1915, Side 2

Ísafold - 08.12.1915, Side 2
2 IS A FO L D við ýmsa hærri anda, sem mér hafa gefið margar dýrmætar vísbending- ar; hefir góðnr Guð veitt mér í þessu svo stórfelda og náðarríka huggun, að eg hlaut að auglýsa eitthvað af því öðrum, einkum for- eldrum, til líkrar hjálpar og hug- svölunar. (Undir stafirnir: J. W.) M. J. þýddi. Erl. simfregnir. Opinber tilkynning frá brezku utan- rikisstjórninni í London. London, 26. nóv. Útdráttur ur opinberum skýrslum Frakka 23.-25. nóv. Látlaus stórskotahríð á öllu orustu- svæðinu. 24. nóv. ónýttum vér varðstöð óvinanna með sprengingu hjá Bolande. í Vogesafjöllum gerðu óvinirnir tilraun til þess að taka varðstöð vora, en hún mishepnaðist. 23. nóv. voru flugvélar mjög á ferli í Belgíu. Tvö þýzk loftför voru skotin í nánd við Rbeims. í Champ- agne og Argonne urðu 5 loftorust- ur. Þrír þýzkir loftfarar urðu að lenda bak við herlinu Þjóðverja, eitt varð fyrir skemdum, í einu kviknaði og féll það til jarðar. Frá Balkan. Búlgarar réðust aftur á Bruzik í nánd við Krivolak, en þeim var hrundið. Annarstaðar hefir lítið borið til tíðinda. Frá Hellusundi. Eftir að Tyrkir höfðu skotið á oss um hríð, reyndu þeir að ná aftur skotgryfjunum, sem Bretar tóku 15. þ. m., með áhlaupi, en það mishepnaðist algerlega. Þeir voru brytjaðir niður af brezka fót- gönguliðinu og stórskotaliðinu með aðstoð Frakka. Tyrkir urðu að hverfa aftur og höfðu þeir mist margt manna. Sprengingar nokktar hafa verið gerðar. Tyrkir hafa mikinn ótta af loftfaraárásum vorum. Skothrið frá turnbátum og fallbyssum hefir vlða tvístrað liði Tyrkja. London 26. nóv. Útdráttur úr opinberum skýrslum Rússa 23.-25. nóv. Þjóðverjar hafa aftur orðið að hörfa á ýmsum stöðum í Riga-héraði. Þjóðverjar náðu bænum Bersemund, en vér tókum hann brátt aftur og hæðirnar þar í kring. Handtókum vér þar 100 hermenn og náðum 6 vélbyssum. Fyrir horðan Sventer- vatnið tókum vér fyrstu skotgrafa- röðina og gerðum grimmilegt áhlaup þar fyrir suðvestan. Fyrir norðan Ulukst náðum vér Yanopol. Fyrir suðvestan Dwinsk hófu óvinirnir sókn, en þeir voru stöðvaðir og mistu margt manna. Vér hrundum ahlaupi fyrír suðvestan Prisk. Annars staðar á svæðinu frá Riga til Pripet hefir ekkert borið við markvert. Á vinstri bakka Styr gerðum vér áhlaup á Þjóðverja fyrir vestan Kog- linitche. Nokkur hluti þeirra flýði, en hinir voru stungnir með byssu- stingjum. Vér handtókum 177 her- menn, náum 190 riflurn, vélbyssum og skotfærum. Fljá Siemikovice i Galiciu réðumst vér á óvinina og rákum þá i fljótið. Þeir 'sem ekki voru skotnir, druknuðu er þeir reyndu að synda yfir fljótið, sem mjög er straumhart. Þá 100 menn, sem lifs komust af, handtókum vér. Skýrsla French. London 27. nóv. Sir John French sendir þessa skýrslu 26. nóvember: Stórskotalið vort hefir með góð- um árangri skotið á stöðvar óvin- anna víða seinustu fjóra dagana. Hefir skothríðin slitið vírgirðingar og brotið brjóstvarnir. Óvinirnir hafa litlu svarað. Þó hefir stórskotalið þeirra haft sig allmjög í frammi norðan við Albert, norðan við Loos, norðan við Ploegsteert og austan við Ypres. Að kveldi 22. nóv. gerðu óvinirn- ir harða sprengjuhríð að gíg, sem vér höfðum á voru valdi sunnan við veginn milli Bethune og La Bassée. Vér stóðumst þá hríð. Sprengingar eru stöðugt gerðar á báða bóga. 23. nóv. gerðum vér sprengingu norðan vegarins milli Bethune og La Bassée og náðum gígnum eftir sprenginguna. Daginn eftir gerðu óvinirnir sprengingu sunn- an við Givenchy og ollu nokkrum skemdum á skotgröfum vorum. Gerðu þeir síðan sprengjuárás til þess að ná gignum, en vér stóð- umst þá árás. I gær gerðu óvin- irnir sprengingar 4skamt frá Carnoy og Givenchy. 23. nóv. skutu þrjár flugvélar vor- ar á herbúðir Þjóðverja í Achiet le Grand (norðaustur af Albert) og bar það góðan árangur. Óvinirnir svör- uðu með því að senda eitt loftfar til Bray. Varpaði það þar niður sprengi- kúlum, en gerði ekkert tjón. London 30. nóv. Útdráttur úr opinberum skýrslum Frakka 25.-29. nðv. Stórskotahríð hefir staðið á öllu orustusvæðinu. Þjóðverjar gerðu sprengingu í Argonne 26. nóv., en vér náðum gígnum. 27. nóv. veittu Þjóðverjar þrisvar sinnum, hvað eftir annao, á oss gasstraum fyrir vestan Maas; þeir hófu á oss stórskotahríð og gerðu ioks grimmilegt áhlaup. Vér létum kúlum rigna yfir þá, og rákum þá aftur til skotgrafa sinna. 28. nóv. gerðu Þjóðverjar spreng- ingu hjá Labyrinth fyrir framan skot- grafir vorar, gerðu áhlaup, en vér rákum þá aftur og tókum gíginn daginn eftir. Skildu þeir eftir marga dauða menn. Loftför hafa verið mjög á ferli. Franskir flugmenn réðust á loftfara- deild óvinanna í Belgíu 26. nóv. Skaut einn niður þýzkt loftfar, sem féll í sjóinn hjá Westend. Tund- urbátur og gufubátar komu loftfar- anum til hjálpar, en flugmaðurinn sökti einum gufubát litlu síðar og komst heim aftur heill á húfi. Tiu franskir flugmenn vörpuðu sprengi- kúlum á loftskipaskálann í Habsheim; eldur kviknaði í skálanum, eitt loft- far brann, annað var skotið niður og hið þriðja stórskemdist. Tvær þýzkar flugvélar réðust á franskan flugmann hjá Nancy. Flugmaðurinn skaut annan Þjóðverjann niður, en hinn flýði. 28. nóv. var 90 sprengi- kúlum varpað á járnbrautarstöðina í Noyon og þar voru t ö loftför skot- in niður. 29. nóv. vörpuðu Þjóð- verjar sprengikúlum á Verdun, en gerðu ekkerl tjón. Vér guldum líku likt með því að varpa sprengikúlum á járnbrautarstöðina í Brieulles. Vér vörpuðum sprengikúlum á herbúðir Búlgara hjá Strumnitza. Snjóar eru nú miklir í Serbíu og því erfitt að segja nákvæmlega. um ástandið. Bretar hafa tekið við fjölda Búlg- ara, sem hafa strokið til herbúða þeirra. Lundúnum 30. nóv. Skýrsla French. Aðfaranótt 26. nóv. réðist herdeild vor inn í skotgryfjur óvinanna, í nánd við skóg nokkure. Sumstaðar voru þær alveg fullar af dauðum Þjóðverjum, sem vorir menn höfðu drepið með handsprengjum. Siðan hvarf herdeildin aftur til skotgrafa vorra. — Vér gerðum sprengingu fyrir framan Givenchy aðfaranótt 26. nóv. Mannfall varð mikið meðal sprengjuliða óvinanna. Vér höfum skotið ákaft á skotgrafir óvinanna á ýmsum stöðum siðustu dagana. Ó- vinirnir hafa svarað skothriðinni, einkum fyrir austan Avelny, fyrir norðaustan Loos, fyrir austan Nfeuve Capelle og Armentierer og Ypres. 28. nóv. urðu 15 loftorustur. Eitt óvinaloftfar var skotið niður. Einn flugmanna vorra átti i viðureign við 5 óvinaloftför. Vér höfum varpað sprengikúlum á loftskipaskýli og hergagnabúr Þjóðverja í Lacapellette. 14 flugmenn réðust á skýlið en 19 á hergagnabúrið. Afskaplegt tjón varð á báðum stöðum. Allar flug- vélar vorar komust heim óskemdar. Loftför óvinanna hafa verið mjög á ferli í nánd við ströndina og varp- að þar niður sprengikúlum. 28. nóv. skaut franskur flugmaður niður þýzkan flugbát og sama daginn sökti brezkt loftfar þýzkum kafbáti fyrir framan Middelkerke. Báturinn brotnaði í tvo hluta við sprenginguna. Víir (anDGDÉr ísafoldar 1916 fá ókeypis blaðið til nýárs frá þeim degi, er þeir greiða andvirði næsta árgangs (5 krónur), og auk þess tvær af þrem neðantöld- um sögum eftir frjáisu vali: 1. Fórn Abrahams (600 bls.) eftir Gustaf Jansson. 2. Heljargreipar (280 bls.) eftir Conan Doyle. 3. Mýrakotsstelpuna og Guðsfriðinn eftir Selmu Lagerlöf í þýðingu Björns heit. Jónssonar. Nýir kaupendur utan Reykjavikur, er óska sér sendan kaupbætirinn — verða að greiða í burðargjald 30 au. Ella eru menn vinsamlega beðnir vitja kaupbætisins í afgreiðslunni. A11 i r viðurkenna, jafnt stjórn- mála-andstæðingar sem aðrir, að ísafold sé fjölbreyttasta og efnismesta blað landsins, pað blaðið, sem eiqi er hœqt án að vera — það blað, sem hver íslendingur verður að halda, er fylgjast vill með i því, er gerist utan- lands og innan í stjórnmálum, at- vinnumáíum, bókmcntum og listum. Talsími 48. Bpy Til hægðarauka geta menn út um land sent andvirðið í frí- merkjum. ísafold er blaða bezt. ísafold er fréttaflest. ísafold er lesin mest. Nærsveitamenn eru vinsamlega beðnir að vitja Isaíoldar í afgreiðsluna, þegai þeir eru á ferð i bænum, einkum Mosfellssveitarmenn og aðrir, sem flytja mjólk til bæjarins daglega. Afgreiðslan opin á hverjum virkum degi kU 8 á morgnana til kl. 8 á kvðldin. Minningarritið um Björn Jónsson. Eg leyfi mér hér með að beina þeim vinsamlegum tilmælum til þeirra, er hafa kunna i höndum bréf frá föður mínum heitnum, að lána mér þau um tíma til yfirlesturs — í því skyni að taka ef til vill eitthvað upp úr þeim í síðara bindið af minningarritinu um hann, sem á að verðæ fullbúið í vor. Reykjavík 5. okt. 1915. Ólafur Björnsson, ritstjóri ísafoldar. 01/3001 Distempe Sissons’ jEMERALpURPOSE ÍAUHim Þétta lakk (gljá- kvoða) er með lága verði en að haldi og átliti er það frekast sem lakk getnr orð- ið. Það springur ekki í sterkasta sólarhita né í harð- asta frosti, . og er jafn gijáandi í rign- ingn sem í þurru veðri. Það er hald- gott og fljótlegt tð þvo og jafn hentugt utanhnss sem innan. Hall’s' Distemper & General PurposelVarnish að ein 1 búið til hjá: SISSONS BROTHERS & Co. LTD., Hull & London. Um- boðsmann okkar, hr. Kr. 0. Skagfjörð, verður að hitta i Reykjavík eða á Patreksfirði, sumarlangt; hann lætur i té fullar upplýsingar -Ui'- BER SEM GULL AF EIR AF ÖLLUM VEGGJAFÖRFUM. — Að fegurð - af því að hús- gögn og myndir koma svo greini- lega fram við hið hreinlega & hlýlega útlit hans. Að haldi - af þvi að hann setur grjóti-harða húð á vegg- ina og þá má lireinsa með því að þvo léttilega úr volgu vatni. Að hreinlæti - af þyi að hann drepur allar hakteríur og skaðleg skordýr. Borinn á með hreiðum pensli, sérstaklega þar til gerðum. — Sparar 40°/0 af vinnukostn., miðað við oliufarfa. Fæst hjá Verzl. Björn Kristjánsson og Slippfélaginu í Reykjavík og Sigf. kaupm. Bergmann í Hafnarfirði. Konung,l. hirð-verksmiðja Bræðurnir Cloétta mæla með sínum viðurkendu Sjokólade-tegundum, sem eingöngu eru búnar til úr fínasta Kakaó, Sykri og Vanille. Ennfremur Kakaópúlver af beztu tegund. Ágætir vitnisburðir frá efnarannsóknarstofum. CARLSBER6 ÖLGERDARBOS mæla með: Carlsberg Mh;,“ skattefri alkoholfátækt, ekstraktríkt, ljúflengt, endingargott. Carlsberg skattefri Porter ekstraktríkastur allra Portertegunda. Carlsberg gosdrykkjum. áreiðanlega beztu gosdrykkirnir.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.