Ísafold - 31.01.1917, Síða 1
Kemur út tviavar
i viku. Verð árg.
5 kr., erlendis T1/^
kr. eða 2 dollarjborg-
ist fyrir miðjan júlí
erlendis fyrirfram.
Lausasala 5 a. eint
XLIV. árg.
ísafoldarprentsmiðja. Ritstjóri: Óiafur BjÖrnsSDn. Talsími nr. 4$S>
Reykjavík, miðvikudaginn 31. janúar 1917
Uppsögn (skrifl.
buiadin við áramót,
er óglld nema kom
In sé tll útgefanda
fyrlr 1. oktbr. og
só kaupandl eknld-
laus vlð blaðiö.
9. tölublað
•Reynslan er sannleiknr« sagí)i »Repp« eg
þóttCað vitrari maöur. Reynsla alheims hefir
dœmt jFordbila að vera bezta Allra bila, og
alheims dóm veróur ekki hnekt. Af Ford-
feilum eru fleiri á feib i heiminum en af öll-
nm öbrum biltegundum samanlagt. Hvað
sannar þab? Þab sannar þab. Fordbillinn
er beztur allra bila enda hefir hann unniö
sér öndveigissæti mebal allra Bila, hjá öllum
þjóöum, og hlotið heiöursnafnib
V'e r a l'd a r v a g n.
Fást aÖS eins|,hjáSundirrituðum sem einnig
selur hinarjheimsfrægu DUNLOP DEKK og
SLONGHJRIfyrir allar tegundir bíla.
P. Stefánsson,
Lækjartorgi 1,
Alþýðufél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9
Eorgarstjóraskrifst. opin dagl. 10—12 og 1—8
Bœjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—12 og 1—6
Bæíargjaldkerinn Laufásv. 6 kl. 10—12 og 1—6
filandsbanki opinn 10—4.
K.F.UJM. Lestrar-og skrifstofa 8 árd,—10 siöd.
Alm. fundir fid. og sd. 8x/a siöd.
Landakotskirkja. öuösþj. 9 og 6 á helgnm
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn 10—8. Bankastj. 10—12.
Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Útlán 1—8
Landsbúnaöarfélagsskrifstofan opin frá 12—8
Landsféhirbir 10—2 og 5—8,
Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12—2
Landsslminn opinn daglangt (8—9) virka daga
helga daga 10—12 og 4—7.
Listasafniö ,(lokaö fyrst um sinn;
Háttúrugripasafniö opiö VJa—21/* á sunnud.
Pósthúsib opiö virka d. 9—7, sunnud. 9—1.
Samábyrgb Islands kl. 1—6.
Stjórnarrábsskrifstofumar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.8 opinn 8—12.
▼Ifilstabahæliö. Heimsóknartimi 12—1
:l»jó6menjasafnib opiö sd., þrd. og fid. 12—2
Yestnr-ÍsleBdiiiga-aDDáll.
íslenzkt þjóðerni srnán-
að. Erindi sira Magnúsar Jónssonar
á ísafirði »Vestan um haf« hefir vald-
iB feiknamiklum umræðum og æs-
ingu meðal Vestur-íslendinga. Blöð-
in full af greinum um bæklinginn
,0g flestum i eina lund, skömmum
,nm hann og höfund hans.
Frá þvi segir í Lögbergi frá 21.
•desbr. í grein tneð fyrirsögninni
■»íslenzkt pjóðerni stnánctð«, að opin-
her kappræða hafi farið fram um
bækling Magnúsar þ. 14. des. milli
B. L. Baldwinssonar og ritstjóra
Lögbergs Sig. Júl. Jóhannessonar.
Hafi Baldwin talað þar skörulega
og vel, »að mörgu leyti sanngjarn-
lega og yfir höfuð prúðmannlega*
■og mátt eiga það »að í þetta sinni
kastaði hann engum saur á íslend-
lendinga heima fyrir, né ættjörð
vora.« Hann hélt því réttilega fram«,
segir Lögberg, »að síra Magnús hefði
auðsjáanlega flutt fyrirlestur sinn í
því skyni að draga úr vesturflutning-
um, hafa áhrif á fólkið til að vera
heima kyrt og rólegt og leiða hugi
þess frá Vesturheims-þrá.«
Ritstjóri Lögbergs kvaðst á sama
máli og Báldwin um hvatir sira
Magnúsar og taldi þær vera dygð.
»Það væri borgaraleg skylda og
sonarleg skylda hvers mannns að
gera alt ærlegt til að sporna við
þvi, að þjóðin tapaði sonum sínum
og daítrum út^ i heiminn og misti
þannig vinnukraft þeirra og áhrif.
Sá sem það gerði væri sannur son-
ur þjóðar sinnar og síra Magnús
væri meiri og betri maður fyrir það,
að vilja sýna mönnum fram á, að
þeim gæti nú liðið eins vel heima
og annarsstaðar.*
Þegar kappræðunni var lokið bar
það við, sem Lögberg nefnir smánun
á islenzku þjóðerni. Segir það, að
sira Rögnvaldur Pétursson, sem
»geymdur hafi verið í einhverju
skúmaskoti meðan kappræðan fór
fram« hafi ráðist »með stóryrð-
um og sauryrðum á þá helgidóma,
sem hingað til hafa verið viður-
kendir með lotningu í öllum heimi,
þar sem þeir þekkjast. Það eru ís-
lenzkar bókmentir á ættjörðu vorri*.
»Síra Rögnvaldur ávítaði Vestur-
íslendinga fyrir þá lítilþægni og það
mannleysi og skort á sjálfsvirðingu,
er þeir sýndu með þvi að taka i
blöð sín greiuar um skáldskap úr
timaritum að heiman. Líkti hann
bókmentum Austur-íslendinga við
sorphauga og ýsuhreistur, sem vér
hér vestra gerðum oss gott af að
róta í og tína úr.« »Hafi þeim,
sem á þessa níðræðu hlustuðu*,
segir Lögberg ennfremur, »ekki
hitnað blóð í æðum, þá er lítið eftir
af manndómi hér vestra, þá erum
vér dauðir sem íslendingar og ekkert
eftir, nema að grafa líkið.«
Og ennfremur segir Lögberg:
»Hefir nokkuru sinni verið borin
fram viðurkenning fyrir því, að eitt-
hvað sé satt í kærum síra Magnúsar,
eins greinileg og þessi«, þ. e. ræða
sira R. P. — Út klykkir blaðið með
þessum orðum: »Ef Austur-íslend-
ar senda hnútur í vorn garð, er
sjálfsagt að kasta þeim til baka með
fullum krafti; það er skylda vor að
halda uppi vorum hlut með einurð
og staðfestu. En að ráðast þannig
á frændur vora austan hafs að fyrra-
bragði, það er tilraun til þess að
skapa fjandskap milli þjóðarbrotanna
og á ekki að líðast.*
----------Lögberg hefir drengi-
lega tekið málstað vorn hér heima
út af hinni fruntalegu og óskiljan-
legu árás síra R. P., sem hefir eigi
fyr, svo oss sé vitanlegt verið kunn-
ur að neinum fjandskap við sitt eig-
ið þjóðerni. Slikar og þessu likar
»vinarkveðjur«(I) mega til að vera
einstaðar, hvort heldur er að vestan
til vor, eða héðan vestur um haf,
ef Austur- og Vestur-ísleudingar eiga
að haldast svo vingjamlega og traust
í hendur, sem góðir menn beggja
megin hafsins óska og vona.
í bæjarstjórn í Winnipeg
hefir landi vor Jón I. Vopni verið
kosinn, núna í desember. Er hanu
nú eini landinn i hennL Arni
Eggertsson bauð sig fram, en komst
ekki að og kennir Lögberg því um,
að hann hafi fram að síðustu stundu
tjáð sig alls ófúsan til að gefa kost
á sér og brezkur keppinautur hans
verið búinn að fá loforð svo og svo
margra Vestur-íslendinga, áður en
hann (Árni) kom til skjalanna.
NORflURLJÚSIfl,
sem er án nokkurs efa VINSÆLASTA, ÓDÝRASTA og
ÚTBREIDDASTA heimilisblað landsins, byrjar nýjan árgang
í janúarmánuði, (4. árg.).
í þessum árg. verður:
ÆERÐASAGA frá ÓFRIÐARLÖNDUM*;
ágæt saga: >RÆNINGJABÆLIЫ;
og framhald af »HEIMILISLÆKNINGUM«,
sem hafa reynst mörgum happasælar og öllum heimilum
væri gott að eiga sem hauk í horni; og margt annað fróð-
legt og gagnlegt, góðar myndir, o. fl. o. fl.
Vegna hinnar miklu útbreiðslu blaðsins, er áskrifanda-
gjaldið a ð e i n s 60 au. (borgað fyrirfram) og er árgang-
urinn 96 bls. i stóru broti.
Sendið pöntun yðar tafarlaust til
útgefandi > Norðurijossins <. Akureyri.
Tiafið þið tttunað effir afvinnu-
shránni i Bæjarskránni?
Þar verða þeir, sem þess óska, skráðir m. a. undir þessum
flokkum:
Agentar.
Bakarar.
Bankar.
Bifreiðastjórar.
Blikksmiðir.
Blöð og tímarit.
Bókbindarar.
Bóksalar.
Gaslagningamenn.
Gosdrykkjaverksmiðjur.
Gullsmiðir.
Heildsalar.
Húsgagnasmiðir.
Húsgerðameistarar.
Járnsmiðir.
Kaffihús.
Kennarar.
Klæðskerar.
Leðursalar.
Leturgrafarar.
Ljósmyndarar.
Læknar.
Lögfræðingar.
Málarar.
Mjólkursalar.
Múrarar.
Pappírssalar.
Prentsmiðjur.
Rakarar.
Skipasmiðir.
Skósmiðir.
Skóverzlanir.
Steinsmiðir.
Söðlasmiðir.
Tóbakssalar.
Trésmiðir.
Umboðssalar.
Úrsmiðir.
Vátryggingar.
Veggfóðrarar.
Verzlanir (með allsk. sér-
greiningum).
Verkfræðingar.
Vélsmiðir o. s. frv.
Að láta skrá sig í íitvinnuskránni — þ. e. nafn, heimili,
talsíma og? póstbox — kostar með feitu letri kr. 3,00, með ská-
letri kr. 2,00, með venjulegu letri kr. 1,00.
Fyllið út neðanskráðan pöntunarseðil, og sendið á skrifstofu
isafoldar fyrir helgi.
Eg undirskrif óskaj<nafn mitt skráð í Atvinnuskrána
í Bæjarskránni undir flokknum
feitu-
með ská-
venjul,-
letrij;
Nafn:
Utanáskrift, talsimi og póstbox.
Afréttarfossarnir.
RæSa Gísla Sveinssonar, eins og hún
var ritin af þingskrifara i Nd.1) “
Vér íslendingar erum fulltrúa um
það, og á sama máli eru útlendingar,
sem til þekkja, aö hér felist allmikið
af auðæfum í jörðu og á, sem lítt
hefir verið gætt og Utt notuð. Af
slíkum auðæfum hefir mönnum orðið
tíðræddast um þær afllindir, sem felast
í fossunum, og það er víst, að þær
hafa orðið til þess, að fjöldi manna
hefir farið á kreik i því skyni að koma
fossunum undir sórstök yfirráð, ekki
að eins inniendra manna, heldur og
útlendinga.
Mfn skoðun er sú, að það só eitt af
skilyrðunum fyrir sjálfstæði landsins,
að varðveitt séu þau auðæfi, sem það
hefir að bjóða, því að ef vór eigum að
lifa í landinu, þá þurfum vór að eiga
landið. En eg skil ekki, að vór fáum
til fulls haldið sjálfstæði voru, ef út-
lendingar ná yfirráðum yfir þelm efn-
um, sem eru afl þeirra hluta, sem
gera skal, Því að svo má með réttu
nefna afllindir landsins. Þótt oft sé
svo að orði kveðið, að gott só að veita
peningum inn í laudið, þá er hitt þó
víst, að betra er að hafa óbundnar
þær afllindir, sem síðar mega verða
oss að notum. Og nú er svo komið,
að mikið af afllindum og auðæfum
landsins er þegar komiö í hendur út-
lendinga.
Orsök þessarar tillögu er hið æðis-
gengna kapphlaup, sem geisað hefir
eftir þessum auðæfum undanfarin ár,
kappbiaup, sem bæði innlendir og út-
lendir braskarar hafa háð. A síðast-
liðnu ári hefir stjórr.arráðið lagt fyrir
landsverkfræðingana að gera mælingar
á fossum landsins, sórstaklega þeim,
sem nothæfir eru. Mælingarnar hafa
farið fram, en jafnframt hefir það
komið í ijós eftir þeim skilríkjum, sem
aflast hafa, að nálega engir fossar eru
eftir í eigu íslendinga, því að þótt
innlend félög eigi þá að nafnlnu til,
þá eru þeir þó eða eru að verða í
raun og veru eign útlendinga, nsestum
allir nytllegir fossar. Það má segja,
að þetta só að kenna hirðuleysi eða
handvömmum þings og stjórnar. Að
vísu voru sett ákvæði um eignar- og
umráðarétt m. m. á fossum með lög-
um nr. 55, 22. nóvbr. 1907. En eftir
þeim lögum geta hinir og þessir náð
tangarhaldi á fossunum. Þó hefð
stjórnin getað notað betur eignarnáms-
heimild þá, sem felst í 2. kafla nefndr;
laga, þegar almenningsheill krefst þes
til mannvirkja í þarfir landsins eð;i
sveitarfólaga, eins og þar er að orí
kveðið. Raunar er eignarnámið tak-
markað við almenaingsheill, til mann-
virkja, sem ef til vill þegar verða aö
vera ákvörðuð, þegar lögnám er gert,
en ef þinginu 1907 hefði verið málið
ljósara, mundi það hafa oröað ákvæðið
rýmra, og raunar hefði sjálfsagt mátt
skýra það svo, að því hefði verið bet
ur framfylgt en raun hefir á orðið.
En það er nokkuð seint að fara nu
að tala um eignarnám á fossunum, þ\
að einmitt í skjóli tóðra laga haf >
braskararnir farið fram og látið greip-
*) Þingsályktunartill. um rétt land; -
sjóðs til fossa o. fl. í afróttum, sei
G. Sv. flutti í Nd,, hefir áður veri^
birt hór í blaðinu. Hún fekk hiiifc
ágætustu viðtökur hjá deildinni o.,
stjórninni, og var samþykt í einu hljóí