Ísafold - 21.07.1917, Side 2

Ísafold - 21.07.1917, Side 2
2 ISAFOLD ingu til þesa að hafa á hendi vélstjórn á mótorskipum. Skól- arnir skulu að öllu leyti kostað- ir af landsfé. Landsstjórnin hafi á hendi yfirstjórn þeirra og setji reglugerð um alla nánari tilhög- un, Prumv. um tolllaga breytingu flytja í neðri deild Einar Árna- son, Stefán Stefánsson og Sig- urður Sigurðsson. Vilja þeir hækka toll af eftir- töldum vörum sem hér segir: 1. Af allskonar öli, límonaði og öðrum samskonar drykkj- um, sem ætlaðir eru óbland- aðir til drykkjar, upp 20 au. af hverjum lítra úr 10 au. 2. Af sódavatni upp í 5 au. af lítra úr 2 au. 3. Af tóbaki allskonar, reyk- tóbaki, munntóbaki, neftóbaki og óunnu tóbaki, upp í 3 kr. af hverju kíló úr 2 kr. 4. Af vindlum og vindlingum úr kr. 5.20 af kílóinu upp í 6 kr. 5. Af öllum brjóstsykur- og kon- fekt-tegundum upp í kr. 1.50 úr 80 au. Lögin öðlast gildi þegar í stað. Ástæður: »Það er fyrirsjáanlegt, að tekjur landssjóðs muni naum- ast hrökkva fyrir óhjákvæmi- legum útgjöldum, ef ástand það, er nú ríkir í heiminum breyt- ist eigi bráðlega til batnaðar. Því er nauðsynlegt að leita sem flestra ráða og fara allar þær leiðir, er færar þykja, til að afia landssjóði tekna. Hér er farið fram á að auka tekj- urnar með því, að hækka toll á nokkrum lítt þörfum vöru- tegundum.t Frumv. um breytingu á bæjar- stjórnarlögum Akureyrar flytur þing- maður kaupstaðarins, Magnús Kristj- ánsson. Aðalbreytingin er sú að bæjar- stjóri, kosinn af bæjarstjórn til 3 ára í senn, taki við torstöðu bæjar- stjórnarinnar í stað bæjarfógeta, sem jafnframt er sýslumaður í Eyjafjarð- arsýslu, og þykir hafa svo miklum störfum að gegna, að ofætlun sé einum manni að leysa þau svo af hendi, að ekkert dragist úr hófi fram. Þingsályktunartillögu flytur Sig- urður Sigurðsson í N.d. svohjóð- andi: »Alþingi ályktar að fela lands- stjórninni að selja svo fljótt sem því verður við komið, ráðherra- bústaðinn, húseignina nr. 32 í Tjarnargötu. Bjóðist landsstjórninni það verð i eignina, er hún telur viðunan- legt, skal hún gera Reykjavíkur- bæ kost á að kaupa húseignina fyrir það verð«. Frv. um málsTcostnað einka- mála flytur Einar Amórsson í neðri deild og með honum Magnús Guðmundsson og Gísli Sveinsson. Frv. um gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri Þorst. M. Jónsson flytur frv. ■ í N. d. um, að Bakki hjáBakka- gerði í Borgarfirði eystra verði löggiltur verzlunarstaður. Frá fjárhagsnefnd N. d, sem haft hefir til athugunar frv. Jör. Br. um einkasölu landsstjórn- arinnar á kolum, er nú komin þingsályktunartiUaga svolátandi: Heildv. Gai’öars Gíslasonar S í m a r: 281 481 Reykjavik selur kaupmennum og kaupfélegam: Rúgmjöl, Vals. hafra, Heilan maís, Hænsnabygg, Kartöflumjöl, Smörlíki, Mjólk. Þakjátn, Gaddavír, Saumur, Ljábrýni, Ongiar, Kerti, Sápa. Fiskilíuur, Manilla, Netagarn, Taumagarn, Síldarnet, Hessian (fiskumbúðir) Vélaolia. REGNKAPUR, karla og kvenna, TILBUINN FATNaÐUR, ýmiskonar, SKOFATNAf)UR margar tegundir. Yefjargarn. »Neðri deild. Alþingis ályktar að skora á landsstjórnina að undirbúa 0g leggja fyrir næsta reglulegt Alþingi frumvarp til laga um einkasölu landssjóðs á kolum«. Mun nefndinni ekki þykja mál þetta nógu vel undirbúið enn. Bannlögin. Frumvarp um breytingu. í . neðri deild flytja þeir Jör- undur Brynjólfsson, Sigurður Sig- urðsson, Stefán Stefánsson og Pétur Þórðarson frv. um breyt- ingu á lögunum um aðflutnings- bann á áfengi. Skulu hér nú taldar þær breytingar, sem frum- varpið fer fram á: 1. Áfengur drykkur eftir lög- um þessum telst hver sá vökvi, sem í er meira en 2V4 % af vínanda að rúm- máli, (en ílögunum stendur: »En það er áfengur drykk- ur eftir lögum þessum, sem í er meira en 21/* % af vín- anda«). 2. Heimilað er í frv. að flytja til landsins vínanda til elds- neytis, svo og ilmvötn, enda séu þau með öllu óliæf til drykkjar. 3. Lyfsölum er gert að skyldu að gefa landlækni sundur- liðaða skýrslu tvisvar ári um sölu áfengis, og sé til tekið, hve mikið hver ein- stakur læknir hefir fengið eða ávisað, og nöfn þeirra, er ávisunina fengu. — Enn- fremur skulu þeir læknar, er áfengi láta af hendi, gefa landlækni slíka skýrslu. 4. Stjórnarráðið setur reglugerð því til tryggingar, að það áfengi, sem ætlað er til iðn- þarfa eða eldsneytis, sé ekki notað til drykkjar. 5. í stað ákvæðanna í lögun- um: »Rannsaka skal lögreglu- stjóri jafnan á fyrstu höfn, hvort áfengi er í skipi, hvort heldur skipið er íslenzkt eða erlent« komi: Þegar skip kemur til hafn- ar frá útlöndum, skal lög- reglustjóri jafnan rannsaka eða láta umboðsmann sinn rannsaka, hvort áfengi er í skipinu, hvort sem það er íslenzkt eða útlent. Skal í því skyni rannsaka hirzlur skipverja og farangur far- þega, svo og, eftir því sem við verður komið, hvern þann stað í skipinu, þar sem ætla má að áfengi geti verið fólgið. 6. Þessi ákvæði í lögunum: »Stjórnarráðið getur veitt fólksflutningaskipum, sem hafa rúm fyrir 25 farþega eða fleiri og eru í sigling- um milli landa, undanþágu frá þessu ákvæði (o: þvi ákvæði að ekkert íslenzt skip megi flytja nokkurt áfengi til landsins, nema um það áfengi sé að ræða, sem fara á til umsjónarmanns áíengis- kaupa), og gilda þá um þau skip ákvæði þessarar grein- ar um érlend skip,« falli burt. 7. í lögunum segir: »Skylt er hverjum manni, sem hittst hefir ölvaður að gera dómara grein fyrir því, hvernig hann hefir fengið áfengi það, er hann hefir ölvaður af orðið. Geri hann það ekki, skal hann sæta sektum 20—500 kr. í frv. hljóðar síðari máls- liðurinn svo: »Geri hann það ekki, eða sé skýrsla hans tortryggi- leg skal hann sæta sektum frá 50—500 kr. 8. Um löglega innfluttar áfengis- birgðir einstakra manna er þetta ákvæði í frumvarpinu: Frá 1. jan. 1919 skal af- numinn sá réttur, sem ein- stakir menn höfðu til að eiga áfengi, samkvæmt 11. gr. laga um aðfiutningsbann á áfengi frá 30. júlí 1909. Það áfengi, sem þá kann að vera eftir óeytt, skulu eigendur hafa flutt úr landi undirum- sjón hins opinbera fyrir. J. apríl 1919. Þó skal eigend- um heimilt, ef þeir kjósa það heldur, að krefjast þess, að landssjóður kaupi áfengið fyrir það verð, sem dóm- kvaddir • óvilhallir menn meta sanngjarnt. Slik krafa skal vera komin í hendur sýslumanns eða bæjarfógeta, þar sem eigandi vínsins er búsettur, fyrir 1. jan. 1919. 9. Nýtt ákvæði komi, svo lát- andi: Flver sem sézt ölvaður á almannafæri, sæti sektum frá 20-200 kr. 10. Auk sekta fyrir að flytja ó- löglega áfengi inn í landið er ákveðið í frumv., að beitt skuli ennfremur »fangelsis- refsingu, ekki vægari en eins mánaðar einföldu fangelsi, ef áfengi hefir verið ætlað til veitinga eða sölu.« 11. Sektir, er skipstjóri vinnur til, ef hann skýrir lögreglu- stjóra rangt frá um áfengi það, er hann heflr meðferðis, hækki úr 200—1000 kr. upp í 500—5000 kr. 12. Sektir fyrir brot gegn þeim ákvæðum laganna, er óheim- ila að yeita, gefa, selja eða á annan hátt láta af hendi áfengi til annara manna, hækki úr 50—500 kr. upp í 200—2000 kr., og ef brot er ítrekað, þá úr 100—1000 kr. upp í 500—5000 kr. Síðan bætir frv. við: Brjóti nokkur oftar gegn ákvæðum þessarar greinar, eða geri sér það að atvinnu að veita eða selja áfenga drykki, þá varðar það fangelsi, ekki vægara en þriggja mánaða einföldu fangelsi, auk sekta, eins og að framan greinir. 13. Þá er enn nýtt ákvæði: Hver sem aflar sér áfeng- is undir því yfirskyni, að hann þurfi á því að halda í lögleyfðum tilgangi, en not- ar það til drykkjar, skal sæta sektum frá 100—500 kr., nema þyngri refsing liggi við að lögum. 14. Auk áfengis, sem íslenzk skip flytja ólöglega til lands- ins, ákveður frv. að upptækt skuli áfengi, sem skotið er undan innsiglun á útlendum skipum. 15. I stað núgildandi refsiákvæða um lækna komi: Nú verður læknir sannur að sökum að hafa látið af hendi lyfseðil um áfengi í í þeim tilgangi, að það verði notað öðru vísi en sem læknis- lyf, og skal hann þá sæta sektum frá 200—2000 kr. Ef mjög kveður að brotinu, eða sé það ítrekað, eða ef nokkur læknir tekur hærra gjald fyrir slíkan lyfseðil en heimilað er í gjaldskrá, fyrir héraðslækna, þá varðar það embætti8missi, auk sekta eins og að framan greinir. 16. Loks er tekið í frv. efnið úr bannlaga frv. Gísla Sveins- sonar, sem sé að sektir eftir lögunum renni að hálfu í sveitar- eða bæjarsjóð, þar sem brotið er framið. Astœður fyrir frumvarpinu eru á þessa leið: »Eins og kunnugt er, eru bann- lögin nokkuð brotin. Veldur því: 1. Ófullkomin gæzla með skip- um, er þau koma á hafnir frá útlöndum. 2. Gagnslaust eftirlit með alls* konar farangri, er frá út- löndum flyst. 3. Slælegt eftirlit með því, að þeir, er heimild hafa nú til að fá vínanda til iðnar sinnar eða þess háttar, noti hann ekki til drykkjar 0. fl. Verði þessar breytingar á bannlögunum samþyktar, er mikil ástæða til að ætla, að bannlögin verði betur hald- in.« Fyrirspurn ber Sigurður Sigurðs- son fram i Nd. svo hljóðandi: Hvað hefir landsstjórnin gert út af þingsályktun Alþingis frá 27. ágúst 1915, um endurskoðun á vegalögunum? Bjarni frá Vogi, Matth. Ólafs- son, Jón Jónsson og Magnús Pét- ursson flytja frv. til laga um að skipa dr. phil. Guðm. Finnbogasoa kennara í hagnýtri sálarfræði við Háskóla ís- lands. Bjargráðaneínd neðri deildar flytur svolátandi þingsályktunartill.: »Alþingi ályktar að skora á stjórn- ina, að vinda sem bráðastan bug að ianlendu kolanámi á þeim stöðum, sem menn finna hentugasta, svo að fylt verði eldiviðarþörf maona, þótt engi erlend kol náist. Jafnframt ályktar Alþingi, að heim- ila stjórninni fé úr landssjóði til nauðsynlegra framkvæmda í þessu máli, svo sem til verkfærakaupa, til torfbæja yfir verkamenn, til kaupa eða leigu á námunum o. fl. þ. h.«. Jón á Hvanná flytur í neðri deild frumv. um að hækka laun hrepps- nefndaroddvita og sýslunefndarmanna um þriðjung. Sigurður Sigurðsson og Björn Kristjánsson flytja tillögu um að bæta við þjóðvegi frá þjóðveginum hjá Rauðavatni, um tVífilsstaði, á Hafnarfjarðarveginn. Álit er komið frá fjárhagsnefnd um frv. Einars á Geldingalæk um einkasölu landsstjórnarinnar á se- menti. Nefndin leggur til, að frv. verði felt, — telur ekki rétt að lögleidd verði einkasala á fleiri vörtegund- um en steinolíu á þessu þingL Astæðan sé meðal annars sú, að landseinkasala hljóti að hafa mikinn byrjunarkostnað í för með sér, en horfur séu á, að fjárhagsástæður landssjóðs verði ekki góðar á næstæ fjárhagstímabili. Mjólkurmálið. Allitarlegt álit er komið frá alls- herjarnefnd neðri deildar um frv„, Jörundar Brynjólfssonar um heimild fyrir bæjarstjórn Reykjavikur til einka- sölu á mjólk. Nefndin ræður til, að deildin afgreiði frv. með svolátandi rökstuddri dagskrá: Af því að deildin telur frv. það,. sem hér liggur fyrir, eigi geta kom- ið að því haldi, sem til er ætlastr en hins vegar er fram komið frum- varp, er miðar að því að bæta úr göllum á mjólkursölu í Reykjavík að því leyti, sem þess er kostur, tek- ur deildin fyrir næsta mál á dag- skrá. Frumv. mikið og ítarlegt flytur Einar Arnór,sson i Nd. og með hon- um þeir Magnús Guðmundsson og Gisli Sveinsson, um stefnubirtingar. Tillaga til þingsályktunar um einkasölu landssjóðs á kolum, var afgreidd með svohijóðandi rökstuddri. dagskrá: »í því trausti, að landsstjórnin taki til rækilegrar íhugunar og rannsóknar, hvort ráðlegt sé að landið taki að sér einkasölu á kol- um, og leggi fyrir næsta reglulegt Alþingi tillögur sínar, tekui deild- in fyrir næsta mál á dagskrá«. Var dagskráin samþykt með 12:10* atkv. að viðhöfðu nafnakalli. Frumv. um stofnun utibús í Ar~ nessýslu fri Landsbanka Island flytja þeir i Nd. Einar Arnórsson, Sigurður Sigurðsson, Gísli Sveinsson og Einar Jónsson. Frumvarpið er í einni grein og hljóðar svo: Landsbanka íslands skal heim- ilt, svo fljótt sem unt er, með samþykki landsstjórnarinnar, að setja upp útibú í Arnessýslu.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.