Ísafold - 15.06.1918, Síða 2
2
IS AFOLD
að fara aðra leið í þessu efni en
frv. gerir ráð fyrir. Og vafalaust
þykir það, að þessi aðferð fari eigi
í bága við 23. gr. stjórnarskrárinnar,
sem að sjálfsögðu gildir um alla
skatta, hvort sem þeir eru landssjóðs-
eða sveitar- eða bæjarfélagaskattar.
Sést þetta meðal annars bert á þvi,
að bæði tekjur sýslusjóða og sveit-
ar- og bæjarsjóða eru teknar að miklu
leyti með niðurjöfnun.
Frv. þetta flytur fjárhagsnefnd eftir
tilmælum landsstjórnarinnar.
Bftirmæli.
1.
Um Friðbjörn heit. Steinsson bók-
sala á Akureyri ritar blaðið íslend-
ingur m. a. svo:
Friðbjörn sál. var fæddur að Hól-
um i öxnadal 5. april 1838, en þar
bjuggu þá foreldrar hans, hjónin
Steinn Kristjánsson og Guðný Kráks-
dóttir. Ólst hann upp þar í Öxna-
dalnum þangað til 1850 að hann
fluttist með foreldrum sinum til Akur-
eyrar. Dvaldi hann svo það sem
eftir var æfinnar þar í bænum.
4. október 1861 giftist hann Guð-
nýu Jónsdóttur frá Pálmholti, sem
lifir mann sinn. Þau hjónin eign-
uðust fimm börn, en urðu að sjá á
bak fjórum þeirra, en ein dóttir
þeirra, Guðný, er gift Páli Magnús-
syni, og býr i Ameríku.
Eftir að Friðbjörn heitinn settist
að á Ákureyri, nam hann bókband,
og var það og bóksala aðalatvinna
hans.
Snemma fór Fbj. að gefa sig við
almenningsmálum, fekst enda við
blaðamensku um eitt skeið, var full-
trúi á Þingvallafundi og lét til sín
taka um málefni kaupstaðarins, enda
átti hann sæti i bæjarstjórn Akur-
eyrar um tugi ára. En jafnframt
þessu vildi hann hlynna að hvers-
konar félagsskap í bænum, sem hann
hélt að gagni mætti verða. Var hann
fylginn sér að hverju máli og vann
sin störf með stakri trúmensku, svo
hann ávann sér vinsæld og virðingu
samverkamanna sinna. Glöggur var
hann og gætinn i öllum fjármálum,
og vildi ekki vamm sitt vita. Hann
var vanur að hugsa vandlega hvert
það mál, sem hann ætlaði að vinna
að, áður en hann léði því fylgi.
Það var þvi engin tilviljun að fyrsta
Goodtemplarastúka þessa lands var
stofnuð á heimili hans 10. janúar
1884. Var hann siðan félagi G.-T.-
reglunnar til dauðadags.
Það er ekkert smáræði sem hann
hefir unnið að málefni G.-T.-regl-
unnar, enda taldi hann það eitt sitt
mesta gæfuspor, að hafa léð þvi
máli fylgi, enda á G.-T.-reglan hon-
um meira að þakka en nckkrum
manni öðrum.
Friðbjörn sál gegndi einnig ýms-
um öðrum trúnaðarstörfum. Þannig
var hann um langt skeið formaður
stjórnarnefndar Gránufélagsins, þang-
að til félagið var leyst upp.
Á efri árum sinum hlaut hann
maklega viðurkenningu fyrir störf
sin. Þannig var hann gerður að
heiðursfélaga í Bóksalafélaginu; einn-
ig var haun sæmdur heiðursmerki
Dannebrogsmanna. — Akureyrarbúar
sýndu þeim hjónum fulla samhygð
við ýms tækifæri, svo sem á 70 ára
afmæli Fbj. og gullbrúðkaupsdegi
þeirra hjóna.
Friðbjörn sál. hélt starfskröftum
sinum að mestu þar til hann var 70
ára,' en þá voru lika kraftar hans á
þrotum, sjónin að dvina og ellin þá
að taka hann föstum tökum.
Jafnvel þótt Friðbjörn sál. ætti
ekki kost á að njóta þeirrar ment-
unar i uppvextinum, sem nú er tal-
in nauðsynleg, vanst honum þó mik-
ið á fyrir þá alúð og einlægni, sem
hann lagði í störf sín; á honum
sannast hið fornkveðna: »Sýndu
mér verk þíu, þá skal eg segja þér
hver þú ert«.
II.
Síðastliðinu vetur andaðist að heim-
ili sínu á Hofstöðum i Miklaholts-
hreppi, merkiskonau Kristjana £1-
ísabet Sigurðardóttir, eins og gecið
kefir verið um í blöðunum.
Kristjana sál. var fædd í Beykja-
vík 4. desember 1857 og voru for-
eldrar hennar Sigurður Björnsaon og
Margrét Bjarnadóttir i Klettakot,
sem margir eldri Beykvíkingar kann-
ast við. Sigurður sál. faðir hennar
var ættaður að norðan, en Margrét
var dóttir Bjarna »anleggshaldara<
á Hólmabúð í Yogura, Hannessonar,
spítalahaldara i Kaldaðarnesi. Hún
var hin næstyngsta af fjórum systr-
um, sem margir þekkja, hálfsystir
Solveigar sál. Eymundsson og al-
systir Guðrúnar sál. fyrri konu Guð-
mundar landlæknis og Magðalenu,
sem enn er á lífi og býr i Beykjavik.
Kristjana sál. ólst upp i fátækt
hjá forsldrum sínum og naut litillar
mentunar i uppvextinum, enda var
þáekkieinsgreiðuraðgangur að menta-
brunnunum og nú er, en rúmlega
tvit’ug fiuttist hún vistferlum að
Velli á Bangarvöllum, sýslumanns-
setrinu góðkunna og dvaldi þar 6
ár. unz hún fór til Beykjavikur aft-
ur og tók við hússtjórn hjá Kriiger
lyfsala. því starfi gegndi hún um
nokkur |ár, eu giftist eftirlifandi
manni sínum, Hjörleifi Björnssyni
frá Breiðabólsstöðum í Alftanesi 30.
desember 1892. Beistu þau bú næsta
vor á Hofstöðum og bjuggu þar alla
tið siðan. Eignuðust þau 6 börn,
sem öll eru á lífi nema eitt, sem dó
ársgamalt. Kristjana sál. dó 15.
desember siðastliðinn rúmlega sextug.
Dauða hennar bar mjög skyndilega
að, eins og hinna systranna, hún
varð bráðkvödd.
Kristjana sál. var meðalkvenmaður,
frið ogfönguleg,svarthærð eins og ann-
að fólk af Kaldaðarnesættinni, svip-
urinn hreinn, og þýður eins og við-
mótið og lundin. Frá föður sínum
hafði hún erfc góðar gáfur og skör
ungsskap frá móður sinni. Hún var
ástrik og nákvæm eiginkona og móð-
ir, en hjarta hennar rúmaði fleira,
hún lét sér mjög ant um alla sem
bágt áttu og hún náði til og var
nákvæm við sjúklinga, enda var henn-
ar oft leitað i læknis-leysinu á sunn
anverðu Snæfellsnesi og liðsinti hún
þá jafnan með ráð og dáð. Hofstað-
ir eru mjög i þjóðbraut, þar sem
tvær sveitir mætast og urðu þau
hjón þess æði mikið vör, þvi að þar
var oft margt um gesti, þrátt og
oft margir nætur sakir i einu;
eg hefi sannfrétt að eitt ár hafi bor-
ið þar að garði og þáð þar einhvern
beina, hátt á 9. hundrað manns.
Borgun var tiðast engin tekin, enda
þótt efnin væru lftil, en gestrisni og
greiðvikni óspart í té látin hverjum,
sem í hlut átti. þesskonar mun nú
orðið ekki mikill búhnykkur, þvi að
það vill verða útdráttarsamt úr bú-
inu og tímaþjófur eigi lítill að taka
á móti mörgum gestum og gera vel
til þeirra allra. Kunna ekki allír að
paeta það eins og ber; en þeir sem
hafa ferðast mikið og gist á sveita-
heimilunum um túnasláttinn eða um
hávetur ættu að gera það, ættu að
kunna að meta alúð þá og sérplægn-
islausa gestrisni, sem sýndt er, hvernig
sem á stendur og hverjum sem er.
Eg er einn af þeim mikla fjölda,
sem hafa notið hennar á Hofstöð-
um og minnist þyi hinnar látnu með
þakklæti.
það ræður að tíkindum, að Kristi-
jana sál. hafi átt marga vini og góð-
kunningja, hún sem mátti ekkert
aumt sjá og gladdi svo marga. Kom
það í ljós við jarðarför hennar, sem
fór fram að Staðastað að viðstöddu
óvanalega miklu fjölmenni þrátt fyr-
ir öll harðindin, sem hömluðu mönn-
um leugra að frá að koma. Hennar
er saknað af öllum þeim er hana
þektu og með henni er fallin frá ein
af sæmdarkonum landsins, sómi stétt-
ar sinnar og sveitaprýði, en »orðstírr
deyr aldregi hveim sér góðan of getr«.
Kunnuqur.
□ □ □ □!□ □ □ □ □
□
Arni Eiríksson
Heildsala. Tals. 265 og 554. Pósth. 277. Smásala.
Vefnaðarvörur, Prjónavörur mjög fjölbreyttar.
Saumavélar með fríhjóli
og
5 ára verksmiðjuábyrgð'
Smávörur er snerta saumavinnu og hannyrðir.
þvotta- og hreinlætisvörur, beztar og ódýfastar.
Tækifærisgjafir.
□ □□□□□□□□ □□!□!□□ □□ □:□ □ □□□:□ □ □
t
Sira Gísli iónsson,
prestur að Mosfelli í Grímsnesi,
drukknaði I Þverá síðastliðinn mánu-
dag. Var hann á leið úr Landeyj-
um að Odda, til þess að vera þar á
uppboði, sem halda átti daginn eftir
á búi síra Skúla Skúlasonar. Ætlaði
hann að ríða Þverá hjá Hemlu, en
vaðið tæpt, og mun hann hafa vilst
út af þvi. Lenti á sund, losnaði við
hestinn og druknaði, án. þess að
fylgdarmaður hans fengi komið björg-
un við.
Síra Gísli Jónsson var fimtugur
að aldri, fæddur 27. júlí 1867, i
Krisuvik, og voru foreldrar hans Jón
Þorláksson smiður, er siðar fór til
Ameriku, og síðari kona hans Þór-
unn Gisladóttir bónda í Gröf í Skaftár-
tungu. — Síra Gisli útskrifaðist úr
Skóla 1890 og af prestaskólanum
1892. 30. okt. s. ár var hrnn vigð-
ur prestur til Meðallandsþinga, en
fekk Mosfell i Grimsnesi 7. maí
1900, og fluttist þá þangað. Hann
kvæntist 2j. april 1893 Sigrúnu
Hildi Kjartansdóttur prests i Ey-
vindarhólum, og lifir hún mann. sinn,
ásamt mörgum börnum þeirra.
Sira Gísli var vel látinn af sóknar-
börnum sinum og vænn maður, að
allra kunnugra dómi.
Aldarafmæli Siglofjarðar.
Það var hátíðlegt haldið þar á
staðnum þ. 20 mai. Var þar þá
allmargt gesta frá Akureyri, þar á
meðal hornaflokkurinn þaðan, er
gerði sitt til auka á fagnaðinn.
Tvö ný kvæði höfðu þeir ort sira
Matthias og Páll I Ardal, og voru
þau sungin undir nýsömdum lögum
eftir sira Bjarna Þorsteinsson, sem
verið hefir og i öðru manna mikil-
virkastur um að gera aldarafmælið
sem hátíðlegast, enda verið forustu-
maður Siglfirðinga síðustu áratugi.
Sem geta má nærri var mikið um
ræðuhöld og söng á hátíðinni. Þá
voru og 2 guðsþjónustur um dag-
inn og blómsveigar lagðir á leiði
hinna helztu þeirra, er starfað hafa
að blómgun nýja kaupstaðarins.
Allur var staðurinn fánum.skreytt-
ur. Skrúðgöngur barna, iþróttasýn-
ingar 0. m. fl. var ennfremur til
skemtunar, og yfirieitt fór alt svo
vel fram, að Siglfirðingum var til
mikils sóma, segja kunnugir.
Þess þarf ekki að geta, að sam-
fagnaðarskeyti drifu að úr öllum átt-
um. En bezta skeytið sem
barst, var fregnin um, að Alþingi
væri búið að lögfesta Sigluflörð í
kaupstaðatölu.
Til skólanefnda og fræðslunefnda
frá
fræðslumálastjóra*
27. maí 1918.
Með auglýsingu, dags. 15. sept. i
fyrrahaust, hefir stjórnarráðið veitt
ýmsar undanþágur frá framkvæmd
fræðslulaganna síðastliðinn vetur,
heimilað að stytta námstíma í heim-
angönguskólum frá þvi sem ákveðið
er í reglugerðum skólanna og það
alt niður í 8 vikur; sömuleiðis stytta
vinnutíma farskóla, eða jafnvel láta
niður falía farskólana, ef miklir erfið-
leikar voru á að halda þeim uppi
sakir eldiviðarskorts, eða af öðrum
ástæðum. En þá bar fræðsluhefnd
að ráða eftirlitskennara til 24 vikna,
er skyldi aðstoða við heimilisfræðsl-
una.
Það var hræðslan við eldiviðar-
skort, sem í fyrrahaust gat gefið til-
efni til að veita slíkar undanþágur,
einkum þó I heimangönguskólum,
sem einvörðungu notuðu kol til hit-
unar, og annan eldivið erfitt að fá,
þegar kolin brugðust.
Sumstaðar á landinu hefir þetta
undanþáguleyfi alls ekki verið notað
að neinu leyti, sumstaðar verið not-
að af nauðsyn og sumstaðar nauð-
synjalaust. Og ekki einungis notað
leyfið, sem stjórnin gaf, til að stytta
kenslutíma eða jafnvel láta farskóla-
hald niður falla, heldur hefir gleymst
að fullnægja skilyrðinu, sem stjórn-
in setti: að ráða mann til eftirlits
með heimilisfræðslunni. Auglýsing
stjórnarráðsins hefir þannig verið
misskilin á einstaka stað, eða fótum
troðin.
Ekki er mér enn fullkunnugt um,
hve mikil brögð kunna að vera að
þvi, að dregið hafi til muna úr
barnafræðslunni siðastliðinn vetur,
með því að skýrslur eru enn að
mestu leyti ókomnar, en eg veit
að nokkur brögð eru að þvl, og
vil eq pví beina peirri áskorun til
skólaneýnda og ýraðslunejnda að gera
nú í teeka tíð allar nauðsynlegar ráð-
stajanir til pess að rétta aftur við
skólahaldið nasta vetur, par sem sleg-
ið kann að hafa verið slöku við pað
síðastliðmn vetur. Vænti eg þess og,
að hreppsnefndir tregðist ekki við að
veita fé til barnafræðslunnar, • þó að
sumu leyti láti ekki vel í ári.
Enginn maður ætti að vera svo
grunnhygginn, að imynda sér að
landinu verði forðað fári á neyðar-
árum með því að sveitarstjórnirnar
vanræki sjálfsögðustu skylduna. Barna-
fræðslunni má ekki fresta að skað-
lausu. Vanræksla á henni kemur
þessari kynslóð i koll — og eftir-
komendunum.
*) Þess orð eru önnur blöð beð-
in að flytja. /. Þ.
■ ■ ■
Bómullarsokkar
kvenna frá 0.98.
Ullarsokkar
kvenna og barna,
L
stórt úrval.
m
<ft&gnfiápur
kvenna og barna.
cftegnfilífar.
i
Saumavdíar
með hraðhjóli.
Verð kr. 62,00.
<5giíí SacoBsen.
TT7
<X. Jlnóersen S Son
Reykjavík.
Landsins e 1 z t a klæðaverzlun og.
saumastofa. Stofnsett 1887.
Aðalstræti 16. Sími 32„
Stærsta úrval af alls-
. konar fataefnum .
. og öllu til fata. .
Prestakðll.
5. þ. m. var síra Óiafur Breim
ski, aður prestur á Stóranúpi frit
fardögum að telja. — í Sauðaness-
prestakalli hefir kosning ekki orðið
lögmæt. Atkv. voru talin hér 6. þ.
m. og skiftust milli þriggja umsæk-
enda. Fékk séra Þórður Oddgeirs-
son 58, sira Jósef Jónsson»3 5 og
síra Hermann Hjartarson 3 5. Brauð-
ið er nú veitt síra Þórði Oddeiis-
syni. — Staðarhólsþing i Dalapró-
fastsdæmi eru auglýst laus. Heima-
tekjur eru eftirgjald eftir preststetrið,
Litlamúla, kr. 50.00, og prestsmata
kr. 366.87, samtals kr. 416.87.
Erfiðleikauppbót kr. 150.00. Veitist
frá fardögum 1918.
Umsóknarfrestur til 15. júll
Stórstúkuþing Goodtempl-
ara. Það var nú haldið hér í
bænum og hófst 8. þ. m. með
guðsþjónustu i dómkirkjunni og
prédikaði Magnús Jónsson dócent.
Framkvæmdarnefnd stúrstúkunnar