Ísafold - 26.10.1918, Blaðsíða 2

Ísafold - 26.10.1918, Blaðsíða 2
2 IS AFOLD ara bandamanna vilji fallast á það, að semja vopnablé meðan hervald Þjóðverja heldur áfram að fremja ólöglegar og ómannúðlegar athafnir, eins og nú er. A sama tima og þýzka stjórnin fór þess á leit við stjórn Bandaríkjanna að semja frið hafa kafbátar Þjóðóerja starfað að þvi, að sökkva farþegaskipum úti i hafi, og eigi aðeins skipanum, held- ur einnig bátanum, sem farþegar og skipshöfn reyndu að bjargast á. Og á undanhaldi þýzka hersins núna i Frakklandi og Flandern hefir hann haldið áfram uppteknum hætti með að leggja landið í auðn, en það er talið tvimælalaust brot á hernaðar- aðferð meðal 6Íðaðra þjóða. Borg- ir og þorp, sem ekfei hafa verið lögð í auðn, hafa verið gersamlega rænd öllu, og oft hafa jafnvel ibú- arnir verið fluttir á brott. Þess er eiqi að vœnta, að pcer pjóð- ir, sem haja sameinast ge%n Þýzka- landi, muni sampykkja orustuslit, með- an haldið er ájram ólöqlequm og ómannúðlequm atköjnum, sem pcer tel]a skelfilegar og eru sem tvíeggjað sverð í hjarta peirra. Auk þess er það nauðsynlegt, til þess að koma í veg fyrir misskiln- íng, að forsetinn beinir athygli þýzku stjórnarinnar að anda og efni eins friðarskilyrðisins, sem þýzka stjórn- in hefir nú samþykt. Þetta friðar- skilyrði er tekið fram í ræðu for- setans i Mount Vernon 4. júlí. Það er á þessa ieið: Drepa skal niður hvert hervald, Jtvar sem pað er, geti pað sérstaklega og á laun ejtir eigin geðpótta trujiað heimsjtiðiun, og sé eigi hagt að drepa pað niður nú pegar, pá skal að minsta hosti draga algerlega úr valdi pess. Það vald, sem til þessa hefir stjórnað þýzku þjóðinni, er af þess- ari tegund, sem nú hefir verið lýst. Ummæli forsetans, sem þegar hafa verið talin, eru auðvitað undirstöðu- atriði friðar, ef það er þýzka þjóð- in sjálf, sem á að koma á friði. Forsetinn telur það skyldu sina að segja, að árangur friðarumleiianna er allur undir því kominn, að hans áliti, hvernig þýzka þjóðin snýst við þessu mikilvæga máli, og hvaða tryggingar hún getur gefið í því. Það er nauðsynlegt að þær stjórnir sem eru andvigar Þýzkalandi, viti upp á hár við hverja þær semja. Forsetinn mun gefa sérstakt svar við friðarumleitunum Austurrikis- Ungverjalands. . Ummæli forsetans um breyta stjórn- »hervald«, sem geti »á arskránni. iaun truflað heimsfrið- inn< flestir margir svo, að ætti við Vil- hjálm keisara og sigldi svo sim- fregn þegar í far forsetasvarsins, að Vilhjálmur væri búinn að segja af sér keisaratign fyrir sig og sína erfiuga. En þessi fregn reyndist röng. En Þjóðverjar fóru aðra leið til að þóknast Wilson. Þeir gerðu þá breytingu á 11. gr. stjórnarskrár rikisins, að eftirleiðis pyrjti sampykki ríkispings og samhandsráðsins til pess að hejja ójrið eða að semja jrið. En áður var það í sjálfsvaldi keisarans. . Jafnframt síðasta svari Almenmngs- ' , álitið meðal Wilsons fóru bloðin 1 samherja. Jöndum samherja að leggja mjög orð í belg um að halda stríðinu áfram og gera ekkert vopna- hlé. í annan stað fóru þau að herða á skilyrðunum, ef til friðar kæmi. Stórblaðið »Times< sendi út flugrit, þar sem krafist var að Frakkar fengju Elsass-Lohringen,Bret- ar hina ramvíggirtu ey Helgoland og ennfremur Kilarskurðinn. Þjóðverj- ar skyldu sleppa öllum nýlendum sínum og greiða bandamönnum hern- aðarskaðabætur. Annar brezkur höfundur krafðist. þess, að Þjóðverjar afhentu allan kaf- bátaflota sinn og að Bretar fengju allan herskipaflota þeirra í sínar hendur. Allar þessar raddir hnigu yfirleitt í þá áttina, að nú ættu samherjar að nota tækifærið til að ganga milli bols og höfuðs á Þjóðverjum. Siðasta yfir- Þ’ okt sendu Þíóð' lýsing Þjóð- verjar Wilson nýja yfir- veria- lýsing og friðarboð. Er það á þessa leið: Þýzka stjórnin mótmælir ólög- legu og ómannúðlegu framferði gegn þýzka hernum á sjó og landi og þar með gegn þýzku þjóðinni. Segir hún, að það íé ætið nauð- synlegt að gera landspjöll til þess að verja undanhald. Ennfremur neitar þýzka stjórnin því, að kafbátarmr hafi »nokkurn tíma af ásettu ráði grandað björgun- arbátum með farþegum«. En til þess að koma i veg fyrir alt það, er gæti hamlað friði, hefir þýzka stjórnin látið það boð út ganga til þýzkra kafbátaforingja, að þeir megi ekki framvegis sökkva farþegaskip- um, en stjórnin getur þó ekki ábyrgst það, að fyrirskipun þessi muni ná til allra kafbátanna áður en þeir koma heim. í svarinu er hvergi minst á það, að spítalaskipum hafi verið sökt. Þýzka stjórnin gengur að þeim skilyrðum, er Wilson forseti hefir sett og segir, að um leið og hún samþykki það að yfirgefa hertekin lönd, þá búist hún við því, að alt sem að þvi lýtur að yfirgefa lönd og semja vopnahlé sé falið hermála- ráðunautum, og að það sé bygt á afstöðu herjanna nú sem stendur, þannig að hvorugur missi neins í. Stjórnin treystir þvi, að Wilson forseti muni ekki koma fram með neinar þær kröfur, sem sé vansæm- andi fyrir þýzku þjóðina að ganga að----------- Skeyti frá Wilson um vopnahlé. í fyrradag kom svarskeyti frá Wilson og aðal efn- ið á þessa leið: »Þar sem forsetinn hefir fengið fulla og greinilega yfiilýsingu Þjóð- verja um það, að þeir gangi aiger- lega að öllum friðarskilyrðum þeim, sem forsetinn hefir látið uppi í þing- ræðu sinni 8. janúar og aðal samn- ingaskilyrðum þeim, er hann hefir komið fram með í síðari ræðum sínum, sérstaklega ræðunni sem hann flutli í New-York 27. sept. að þeir óski þess að ræða þessi skil- yrði itarlega og að þessi ósk er ekki komin frá þeim, sem til þessa hafa ráðið hernaðarstefnunni í Þýzkalandi, heldur frá ráðherrum sem tala í nafni meiri hluta þingsins og yfir- gnæfandi meiri hluta þýzka þjóðar- innar, og þar sem hann hefir fengið ákveðið loforð hinnar núverandi þýzku stjórnar um það, að gætt verði mannúðlegra regla siðaðra þjóða í hernaðinum bæði á landi og sjó, þá geti forseti Bandaríkjanna eigi skorast undan því að bera það undir stjórnir bandamannaþjóðanna að vopuahié skuli samið«. Ringulreiðin * Austmríki-Ungverja- heimafyrirhjá land virðist hver hönd- Miðveldunum • • , _.,•_____ m uppi á mótr annari. Austurríki hafði farið fram á frið ávarpi til Wilsons á grundvelli ræðu hans frá 8. jan. En af ýmsum breytingum, sem síðan hefðu orðið kvaðst forsetinu eigi geta tekið þá málaleitun til ihugunar. Nú virðist Ungverjaland vera að slita sambandinu við Austurríki og hvert skeytið rekúr annað um ráðgerða skifting Austurríkis sjálfs i fleiri eða færri keisaradæmi og að Galizia sameinist Póllandi. Þá herma simfregnir og frá megn- ustu óánægju í einstöku ríkjum á Þýzkalandi, einkum Bayen gagnvart Prússlandi. Sókn og sigur Samfa^a þessum vand- samherja. ræðum sem Miðveldin hafa átt við að stríða heima fyrir hefir oiðið hver ósigurinn á fætur öðrum í Belgiu. Hafa samherjai nú unnið aftur borgirnir Ostende, Lille og Zeebrúgge, er Þjóðverjar lögðuundir sig íöndverðumófriðnum. Frá undirróðri fuiiveidisfjenda, Af hamförum Magnúsar Torfa- sonar gegn fullveldis-sáttmálanum segir svo i bréfi að vestan (dags. 9. okt). »Magnús Torfason gengur sem grenjandi Ijón móti frumvarpinu, samningamönnum íslenzku, öllu þinginu og stjórninni. Ganga ádeilur hans landráðum næst sá alt þingið. Segir hann, að íslenzku nefndarmenn- irnir hafi í öndverðum samninga- gerðunum boðið Dönum meiri rétt indi en þeir, Danir, hefðu nokkurn- tima látið sér detta í hug að fara fram á. Þeir hefðu farið með margt á bak við fullveldisnefndirnar og þingið og þar með farið lengra en umboð þeirra náðu. Dylgjur flutti hann um, að öll meðferð málsins væti líkust því, að eitthvað óhreint væri bak við, bæði frá hálfu þings og stjórnar. Fyrst hélt hann fund með kjós- endum sínum á ísafirði, en rak þá út, er hann hafði lokið máli sínu og einn kjósandi vildi biðja sér hljóðs til andmæla. Kvað hann leigutíma fundarhússins út runninn og lauk þeim fundi við svo búið. Þá hefir hann og haldið fundi bæði i Norður-ísafjarðarsýslu (Hnífs- dal) og Vestur-ísafjarðarsýslu (Flat- eyri og Súgandafirði). Fyrir málið eru þessu læti M. T. ekki hættuleg. Öllnm ofbýður frekja hans gagn- vart þinginu, þar sem enginn er til andsvara af þingsins hálfu* A ísafirði hafði fundur verið hald- inn þ. 18. okt. Höfðu þeir leitt saman hesta sína síra Sigurður i Vigur og Magnús Toríason. Hafði þar farið í slikan svarra, að Isfirð- ingar muna naumast annan eins og kunna þó frá mörgu að segja í þeim efnum. Uppskeran hjá hr. M. T. hefir ekki orðið i samræmi við fyrirhöfn- ina. í insta hring veldis hans, sjálf- um ísafjarðarkaupstað þar sem skjald- sveinn hans, Njörður litli, hefir ham- ast eins og hann væri ónefnd skepna í flagi, fær hann þó ekki nema tæp 28% með sér af greiddum atkvæð- um. „Já eða nei“. Úr síðasta blaði hafði fallið svar frá Jóni Jacobson landsbókaverði. Landsbókavörður rifjar fyrst upp ýmislegt úr sögn stjórnarhaga vorra síðasta aldarfjórðung og segir siðan. »Enn er nefnd sæmdarmanna danskra og islenzkra skipuð og svo mikil fríðindi i boði, að mér er nú gersamlega ómögulegt að skilja, hvernig og hversvegna nokkur fer að befjast andmæla. Eða erum vér allir orðnir ævir og vitstola. Vér Arni Eiríksson Hefldsala. Tals. 265. P6sth. 277. Smásala. Vefnaðarvörur, Prjónavörur mjög fjölbreyttar. cð Saumavélar með hraðhjólí °g 10 ára verksmiðjnábyrgð Smávörur er snerta saumavinnu og hannyrðir. þvotta- og hreinlætisvörur, beztar og ódýrastar. gijr Tækifærisgjafir. í þurfum eins og eg hefi nýlega sagt, að temja oss hóf. Það að taka ekki þvi boði, sem dansk-ísleozka nefndin hefir með giftu grams og þjóðar lánast að ná er blátt áfram sagt að neita sóma sínum. Eg skil vel vitfirringana, sem eiga heima á Kleppi, en mér er gersam- lega ómögulegt að skilja, að frelsis- þrá vor Islendinga sé ekki að fullu södd með þessum siðustu kostaboð- um. Jón Jacobson. Misprentast hefir í siðasta blaði í svari Jóns biskups Helgasonar: »politiskri sálu minni<, en átti að vera: politiskri sjónu minni. Sildarpólitík Timans Tíminn hefir reynt undanfarið að gera sem allra mest veður út afþvi, að þrir þiugmenn gerðust svo fram- takssamir í sumar að tryggja héruð- unum kringum Húnaflóa góðan fóð- urbæti, með því að kaupa sjálfir sild á Reykjarfirði og selja ýmsum héruðum. Þingmennirnir gátu vel tapað, á þessu, en af því svo tókst nú til, að útkoman varð ekki tap, heidur einhver gróði vill Tíminn gera þá óalandi og óferjandi. Hefðu þeir nú tapað-------mundi þá Tíminn hafa fundið ástæðu til umtals? O, nei, og sussu nei! Og hefði einhver Tíma-klíkugæð- ingurinn sýnt slíka framtakssemi, án þess að tapa á því, — ætli Tím- inn hefði þá lengi verið að útbásúna þau framtaksseminnar afreksverk »vinstrimanna« ? Um það þarf ekki að fara í neinar grafgötur. En hér eiga í hlut menn, sem óþarfirhafareynst stjórnmálaspillingar- tiltækjum Tímaklikunnar. Og þá er Tlmanum, eins og vant er, laus höndin. Nú hafa Isafold verið sendar margar greinar að norðan, sem sýna hve Tíminn hefir reiknað rangt, er hann hélt sig geta veikt aðstöða þessara þingmanna með rógi sínum. Hann hefir þvert á móti flelt illa ofan af hinu inzta eðli sínu: TiU gangurinn helgar meðaliðf í næsta blaði birtist fyrsta síldar- greinin, eftir þann manninn, sem fyrst og fremst átti undan að grafa, hr. Magnús Pétursson, alþm. Heildsöluverð. Reglugerð um verðframfærslu i heidsölu hefir stjórnarráðið gefið út. Á flestum vörum nemur álagningar- hámarkið 10 0/° frá því sem varaa kostar komin i hús á sölustaðnum, á salt, net og seglgarn má hún hæst vera 5 °/o, á ýmsu byggingar- efni o. fl. 7*/a % og nokkrar vörur I2Va °/o- Manntjón Föstudag 18. þ. m. sökk bátur á Skerjafirði, án þess menn viti um orsakir. Var að koma úr beitifjöru,, og hvarf á miðri víkinni. Fjórit menn voru á og drulmuðu allir. Mennirnir voru: Þorsteinn Gam- alíelsson frá Kvöldroðanum, kvænt- ur maður, Sveinn Jónsson, tengda- sonur Þorsteins, Þorkell Þorkelsson, kvæntur maður úr Reykjavík og Jóhannes Sveinsson frá Skildinga- nesi. Likin órekin og ófundin, þótt reynt hafi verið að slæða á víkinnL Njörður kafskotinn. Þau illn tíðindi bárust hingað á miðvikudaginn var, að botnvörpungn- um Nirði hefði verið sálgað af þýzkum kafháti, er skaut hann í kaf, hlaðinn fiski á leið til Fleet- wood. Gerðist þetta fyrra föstudag. Skipstjórinn, Guðmundur Guðnason og öll skipshöfnin komust af, og lentu í Londonderry á írlandi. Vér máttum illa við að missa nokkuð af vorum litla botnvörpunga- flota. Er það því hörmulegra, að þetta skyldi henda, rétt í þeim svif- um, er kafbátarnir þýzku voru kvadd- ir heim.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.