Ísafold - 01.09.1919, Blaðsíða 4

Ísafold - 01.09.1919, Blaðsíða 4
4 I S A F O I D Silfurtóbafesdósír tðpuð- USt frá Laugardalshólam að Múla. FinnaDdi skili gegn fundarlaanum til Ingvars Grírr ssonar Laugardalshólum eða Borgþórs Jósefssonar bæjargjald- kera Reykjavík. Fjárhagsnefnd Nd. hefir komið frarn með álit sitt um frv. til heim- iidarlaga fyrir landstjórnina til að leyfa íslandsbanka að auka seðla- upphæð þá, er bankinn samkvæmt lögum frá 1905 má gefa út. í grein- argerðinni segir: „Eftir að frv. þau, sem stjórnin lagði fyrir þetta þing um seðla- útgáfu Landsbankans og breyting á lögum íslandsbanka 10. nóv. 1905, voru fallin í þessari hv. deild, tók nefndin þetta frv. til athugun- ar og hefir átt nokkra fundi með ráðherrunum um mábð. Hafa þeir tjáð nefndinni, að íslandsbanki óski að frv. þessu verði breytt þannig, að væntanleg lög um þetta e-fni gildi til 1. maí 1920, en hins vegar hafa þeir óskað, landsstjórn- arinnar vegna, að lögin verði látin gilda til 1. maí 1921. Nefndin leggur því til, að frv. þetta verði samþ. með eftiríarandi breytingu: í stað „1. september 1919“ komi: 1. maí 1921.“ Magn. Guðmundsson hefir fram- sögu. Fjárveitinganefnd neðri deildar flytur svo látandi þingsályktunar- tillögu um Þingvelli: „Alþingi ályktar að skora á rík- isst jórnina: 1. að láta rannsaka girðiugarstæði og girðingarkostnað umhverfis svæðið frá Þingvallavatni milli Al- mannagjár ög Hrafnagjár norður á móts við Ármannsfell og Hrafna- björg. 2. Að rannsaka, á hvern hátt beppilegast yrði fyrirkomið að af- nema búfjárrækt og ábúð á býlun- um Hrauntúni, Skógarkoti og Þing- vöilum ásamt Vatnskoti. 3. Að koma í veg fyrir, að ein- stakir menn eða félög reisi sumar- þústaði eða nokkur önnur skýli á þvæðinu, sem í 1. lið getur. 4. Að skipa umsjónarmann á Þingvöllum yfir sumarið, er gæti þar góðrar reglu. 5. að leggja fyrir næsta Alþingi frumvarp til laga um friðun Al- þingisstaðarins forna við Oxará, að meðtöldu umhverfi hansj. er æski- iegt þykir að friða. Kostnaðinn, sem af þessu leiðir, er stjórninni heimilt að greiða úr ríkissjóði.“ Famkvæmd skógræktar. Landbúnaðarnefnd neðri deildar ber fram svo hljóðandi till. til þings áiyktunar um framkvæmd skóg- ræktar: „Neðri deild Alþingis ályktar að skora á landsstjórnina að láta rann- saka allar framkvæmdir í skógrækt unarmálum landsins undanfarin 5—io ár, og komi í ljós, að forusta þeirra mála sé óviðunandi og ó- heppileg, að stjórnin skifti þá um framkvæmdarstjórn þeirra, eftir því sem nauðsynlegt þykir.“ Eigmar og afnotaréttur fasteigna. Allsherjarnefnd neðri deildar gerir nokkrar breytingartillögur við frv. um eignarétt og afnotarétt fasteigna. Er helztij efnisbreytinga getið í áliti nefndarinnar, en það er á þessa leið: „Nefndin er samdóma hv. Nd- um að rétt sé nú þegar að setja slík lög sem hér um ræðir, og getur einnig samþykt alt aðalefni laganna. Þó virðist henni réttara, að uppsagnar- frestur á umráðarétti yfir fasteign, sem hafa má leyfislaust, sé hafður 1 ár, í stað hálfs árs, sérstaklega að því er húseignir snertir, og sömu- leiðis ætti að nægja, að ráðherra hafi vald til að þiggja námuréttindi undan lögum þessum, er svo þykir henta.‘ ‘ Magnús Torfason hefir framsögu. Ert. símfregnir Frá frittaritara ísafoldar. Khöfn, 27. ágúst. AMERÍKA OG JAPAN. Ný ófriðarblika! Ákvæði friðarsamninganna um Shantung-héraðið hafa orðið að al- varlegu misklíðaréfni milli Japana og Bandaríjsjamanna, sem gefur á- stæðu til að vænta stórtíðinda. Utanríkismálanefnd efri málstof- unnar í Washington hefir farið fram á 20 miljón dollara fjárveit- ingn til þess að gera flotann reiðu- búinn undir orustu hvenær sem vera skal. Áður hafði verið skýrt frá því að Wilson forseti hótaði að segja af sér friðarfundarstarfi sínu ef þingið samþykti ekki friðarskilmálana ó- breytta. —o— Frá Finnlandi. Prófessor Wennola er nú orðinn forsætisráðherra. Ástandið versnar með hverjum degi. FRÁ DANMÖRKU. Verkföllin. VerkfÖll halda enn áfram hér í borginni og eigi löglega til þeirra stofnað, né farið að þeim reglum, sem gilt liafa um tilkynning verk- falls. Aðallega eru það hafnarverka menn sem gera sig seka í þessu. Húsnæðisleysið. Fjörutíu þúsund börn á skóla- skyldualdri verða eigi látin ganga í skóla í vetur vegna sífeldra hús- næðisvandræða. Suður-Jótland. Lán það er boðið var út hér, vegna endursameiningar Suður-Jótlands við danska ríkið, og var að upphæð 120 miljónir króna fékst boðið fram á 5 dögum. Ný bók á markaðinum. Bók Ludendorffs hershöfðinga, „Endurminníngar frá ófriðnum“, er nú komin út á flestum málum og vekur fádæma athygli. Forlag Aschehoug’s hefir gefið bókina út á dönsku og kostar hún 18 krónur. Rússneska keisaraekkjan. Dagmar drottning kom hingað til lands á þriðjudaginn var. Bretar nærgöngulir við Persa. Brezka stjórnin hefir lánað Pers- um tvær miljónir sterlingspunda. Hafa Bretar sett þá skilmála fyrir láninu, að þeim sé heimilt eftirlit með hermálum og tolltekjum ríkis- ins og hafa Persar gengið að þessu. Með þessum samningi eru Bretar orðnir yfirdrottnar á samfeldu Svæði frá Egyptalandi til Indlands. Samningur þessi hefir valdið áköf- um deilum. Friðarsamningamir milli Austurríkismanna og banda- manna verða væntanlega undir- skrifaðir hinn 31. þ. m. Viðskiftabann við Rússland. Bretar og Frakkar hafa farið þess á leit við Dani, Svía og Norð- menn og aðrar hlutlausar þjóðir að þær taki höndum saman við sig um að teppa algjörlega öll viðskifti við Rússland, meðan það stjórnarfar helst þar sem nú er. Bandaríkja- menn í Ameríku hafa neitað að taka nokkurn þátt í þessum samtökum. Byltingin í Budapest. Bandamenn háfa nú neytt Jósep erkihertoga til þess að sleppa aftur stjórnartaumunum er hann tók í sínar hendur fyrir skömmu. Verður nú reynt að mynda nýja stjórn er skipuð verði jafnaðarmönnum og mönnum úr borgarastétt. Réttarrannsókn. er vekur afarmikla athygli er nú hafin gegn Hadjetlache ofursta í Kósakkahernum, að því er sím- skeyti frá Stokkhólmi herma. Hefir hann verið foringi flokks eins, sem ihefir barist á móti Bolsjevikum og viljað hefna keisarans með morð- um og manndrápum. Sókn Pólverja. Frá Warsjá er snnað að Pólverj- um verði vel ágengt gegn Bolsje- vikum á öllum vígstöðvum. Bolsje- vikar hafa nú orðið að yfirgefa Kiew. Khöfn, 27. ágúst. Ills von í Þýzkalandi? Frá Berlín berst símskeyti þess efnis, að stjórnin þar geri mjög á- kveðnar herliðsráðstafanir, til þess að vera búin við óspektum sem menn óttast að verða kunni af hálfu Spartakista. Hrakfarir Bolsjevika. Reuters-skeyti hermir, að rússneskt sjáifboðalið hafi tekið borgina Odessa herskildi, úr höndum Bolsje- vika. Bandaríkjaþingið og friðarsamn- ingamir. Utanríkismálanefnd efri deildar þingsins í Washington hefir einnig tekið Fiumemálið og Alandseyjamál ið til íhugunar og enn fremur ræðir hún um nýlendur Þjóðverja í Af- ríku og írland. Verkfall enn. Verkamenn í fríhöfninni í Khöfn gerðu verkfall í gær, út af óánægju með úrskurð gjörðardóms í málum þeirra. Khöfn, 28 ágúst. Uppreisn í Ungverjalandi. Fvá Budapest er símað að Fried- rich fjrrv. forsætisráðherra vilji ékki leggja niður völd, og að hann hafi gert tilraun til að koma á upp- reisn. Bandaríkjaþingið lætur undan síga. Frá Washington er símað að Sen- atið muni samþykkja friðarskilmál- ana í septembermánuði, þar eð mót- stöðuflokurinn virðist eigi á eitt sáttur. Frá Rússlandi. Frá Reval kemur sú fregn að norð vestur Rússland hafi valið Lianosov fyrir forsæis- og utanríkisráðherra. Frá Helsingfors er símað að Bol- sjevikar hafi hertekið Pskoff. Frá Danmörku. Verkfall hefir nú verið hafið a 1- staðar meðal hafnarverkamanna í Kaupm annahöf n. V innuveitendur hafa þessvegna boðað verkbann öll- um meðlimum flutningaverkmanna- félagsins. Khöfn, 29. ágúst. Botha hershöfðingi er látinn. Frá Ungversjalandi. Friedrich forsætisráðherra Ung- verja hefir breytt ráðuneytinu að mun. Hefir hann.beðið Clemencau um styrk. Stjórnarfarsástandið er mjög ó- ljóst og á reiki. Friðarsamningarnir. Símfregn frá París ’hermir að samningunum við Austurríki muni seinka. Þingið hefir nú hafið umræður um friðarsamningana við Þjóð- verja. Búist er við að þeir verði samþyktir með miklum meiri hluta. Briand býr sig undir sókn í kosn- ingamálinu. Khöfn, 30. ágúst- Rúmenar uppvöðslusamir. Frá París er símað, að yfirgangur Rúmena í Ungverjalandi hafi vald- ið því að friðarfundurinn í París hafi sett þeiin úrslitakosti. Pfalz lýðveldi. Uppreistnarmenn í Ludwigshafen hafa auglýst Pfalz sjálfstætt lýð- veldi. Ósköpin í Rússlandi. Frá Helsingfors er símað að blóð- ugir bardagar séu í Kronstadt. Bolsjevikar hafa dregið saman 40 þúsund manna her til þess að verja Petrograd. Listasýning. Listvinafélagið liefir efnt til almennrar sýningar á verkuni íslenzkra listamanna og var hún opn- uð kl. 3 í gær og verður opin í þrjár vikur. Er þetta fyrsta sýningin af þessu tagi, því allir listamenn eru þarna boðnir og velkomnir, sem finna náð fvrir augum dóinnefndarinnar er velja skyldi úr það er hún áliti hæfilegt til að koma fyrir almenningssjónir. í úefudinní eru Ásgrímur Jónssou, Þór. B. Þorláksson og Ríkarður Jónsson. Á sýningunni eru um 90 myndir og lík- anasmíði eftir flesta íslenzka lista- menn og konur. Flestar myndirnar eiga á sýningunni þeir Asgrímur Jóns- son, Þórarinn B. Þorláksson og Jó- hannes Kjarval. Líkanssmíð eru á sýn- inguuni efir Ríkarð, Einar Jónsson og ungfrú Nínu Sæinundsson og ein teikn- ing að húsi er þar eftir Finn Thorla- eius byggingarmeiatara. Sýningiu er í Barna'skólanum og fyllir þar ö kenslu- btofur. Flugvélin kom kíðastliðið þnðjudags- kveld ineð „Vil]emoes“ frá Englandi. Er hún fremur lítil en getur þó tekið einn farþega. Afl vélarinnar er 110 hestöfl. Hafa flugmenniniir og flug- vélasmiðirnir verið að setja hana sam- an suður á Bríenvstúni, sém verður flugvöllur framvegis, og er samsetn- ingunni nú um það bíl lokið. Búiist er við að vélin verði flugfær á morgun eðtt miðvikudaginn. Flogið verður með farþega þá er gefa sig fram, eftir því sem hægt verður og. kostar það 5 kr. fyrir hverja mínútu sem verið er ílofti. „Gylfi“ hinn nýji botnvörpungur h.f. „Def'eii'sor" fór til Englands síð- astliðið þriðjudagskveld í fyrstu fiski- ferð isína. Með skipinu tóku sér far Andrés Fjeldsted augnlæknir og Helgi H. Eiríksson námufræðingur. Þýzkt kaupfar kom hingað í síðustu viku með saltfarm. Er skip þetta eitt af þeim stærstu sem Þjóðverjar eiga nú, 1550 smálestir, því sainkvæmt frið- arsamningunum urðu þeir að láta af hendi öll skip sín er stærri voru en 1000 smálestir. Tvennir eru tímarnir. „Island“ fór til ísafjarðar í síðustu víkn pg kom aftur í fyrradag. Fer skíp- ið til útlanda í dag. Meðal farþegja: Dr. Þorv. Thorodd- sen, Bogi Th. Melsted sagnfræðingur, Kjarval málari, dr. Helgi Pjetnrss., (hristiansen húsagerðarfræðingnr, Herbert Sigmundsson forstjóri, Thor Jensen útgerðarm. og þrjár dætur hans, Einar Benediktssou skáld og frú hans og þrjú börn þeirra, Hallgrímur Bene- diktsson stórkaupm. L. Kaaber og Tofte hankastjórar, AndrésGuðmunds- son stórkaupm., Cari Olsen stórkaupm. og frú hans, Þorv. Benjamínsson fuíl- trni, J. Bennelmanns hollenzkur prest- nr kaþólskur, Carl Sæmundsson stór- kanpm. og frú hans og böm, R. P. Leví kaupm., frú Kristín Pétnrsson, frú Steinunn Stefánsdóttir, frú Anna Fríðriksson, ungfrú Guðrún Guðmunds- dóttir, Itagnh. Gnðjohnsen, frú Agnes Brun, v^igfrú M Þorvarðardóttir, Mar- grét Einansdóttir, Jakobína, Ásta og Sigríður Sighvatsdætnr, Jónas Láms- son, Stúdentarnir Óskar Norðmann, Kristján Albei'tsson, Bolli Thoroddsen, Einar Sveinsson, Brynjólfur Stefáns- son, Gunnar Viðar, Lúðvík Stefánssoi* verzlunarm. o. m. fl. „Eldhúsdagurinn* ‘ var á fimtudag- inn og þótti með Iítilfjöriegasta móti. Enda er stjórnin sáluð, og þóttí óvið- eigandí að vega að framliðnum. Búsetuskiiyrðið. Við 2. umraÆir. stjórnarskrármálsins í neðri deild síð- astliðna laugardagsnótt samþyktí deildin með 17 atkvæðum gegn 9 a«S taka upp í stjórnarskrána ákvæðið uia nð íslenzkir og danskir ríkisborgarar skuli dvelja fímm ár í landinu áður en þeir öðlast kosningarrétt. Þriðja uni- ræða í málinu er í dag. Þerritíð liefir veríð um alt Suðnr- og Vesturland síðustu vikur og má segja að vel horfi nú með heyskap, ef tíðin helzt áfram. Grasspretta er yfir- leitt dágóð, svo útlieysskapur verður væntanlega vel í meðallagi. Austur í Fljótshlíð eru þeír að mála. Asgrímur Jónsson og Jóu Stefánsson. Ásgríuuir hefir eínnig verið á Húsa- felli að mála í siunar, en Jón hefir dvalið í Hliðinni síðan í júlímánuði. „Nyköhing“, danskt eimskip kom hingað fyrir helgina með saltfisk frá Austfjörðnm. Tekur það fisk hér og heldur sðan til Spánar éða ftalín ineS farminn. Síldveiðin. Ágústmánnður hefír ekkí gefið síldveiðurunum gul'l í mund. A fls, brögðin hafa verið mjög Jítil, eínkan- b-ga við Norðurland, en dálítið veíðisfc á Vestfjörðum. Sagt er að um 150 þns- und tunnur síldar muni hafa veíðst alls Mannslát. Síðastliðinn fímtudag andnðist Jónas Árnason bóndi á Reynifelli eftir langa legu. —Þessa merkismanns verður nánar getið síAir hér í blaðinu. Ný lyf jabúð. Danskur lyf jafræðing- C. Pedersen hefir fengið leyfí st.jórn- arráðsins til að reka lyfjabúð á Eyr«r- hakka Hefir hann nú keypt efni og á- liöld til hennar og mun opna hana með haustinu. „ísland“ hefir um 600 hesta iaaS- ferðis til Danmerkur í þetta sinn, en engan flutning annan. Bifreiðarslys. Síðastliðið föstndags- kvöld vildi það sorglega slys til í Kömbum neðarlega, að vörufiutninga- liifreið valt um á veginum og beið ökustjórinn, Einar Kristinsson úr Hafnarfirði, haua, en farþegi, sem með. honum var, Sigurður bóndi á Hrepp- hólum, brákaðist mjög á handlegg og, meiddist eitthvað meira.

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.