Ísafold - 06.10.1919, Blaðsíða 2
2
I S A F O L D
fl.f. flinar sameinuðu íslenzku Yerzlanip
(Gránufélagið, Tulinius og A. Asgeirssons verzlanir)
Skrifstota í Reykjavík í Suðurgðta 14.
Slnanefni: »VaIurinn«. Pésthólf: 543. Simi: 401.
Heildsala.
Selur allskonar útl. vðrur fyrst um sinn eftlr pöntun.-Kaupir allar Isl. afurðir.
Kaupa allar Islðnzkar vörur.
A.B. Nordisk Handel Kapt. N. Unnérus Stockholm. Reykjavlk.
Selja allar sænskar vörur.
HeiSdverzlun Reykjavík
t&yrirlicjgjanéi vöruSirgðir:
þeim hætti, að drengur sneri sveif-
inni, en tveir og tveir diskar voru
settir á borðendann jafnóðum og
dúkurinn þokaðist áfram, unz
borðið vár alsett. Þegar búið var
að borða, var sveifinni snúið hinn
veginn og diskarnir teknir jafn-
óðum og þeir komu að endanum og
settir í hlaða á borð þar hjá og
biðu þar þvottar. Slíkur útbúnað-
ur á stöðvum þar sem margir menn
borða saman, mundi spara matselj-
um mörg spor og mikinn tíma. Eld-
húsið ætti þá að vera fyrir enda
borðstofunnar.
Á stærstu síldveiðastöðvunum,
svo sem Siglufirði, er á sumrum
samankominn mikill fjöldi fólks,
er stundum, einkum stúlkurnar,
hefir lítið að gera dögum saman,
þegar lítið veiðist. Margt mætti
bollaleggja um það, hvað gera ætti
af hálfu hins opinbera og góðfúsra
manna til þess að slíkir hvíldar-
dagar yrðu hollar fræðslu- 0 g
skemtistundir, t. d. með alþýðleg-
um fyrirlestrum, upplestri, söng
0. s. frv. Eitt einfaldasta ráðið til
að gera gagn og gleði í þessa átt,
væri að sjá hverri stöð fyrir ofur-
litlu bókasafni af góðum skemti-
bókum fyrir verkafólkið. Stöðv-
arnar gætu ef til vill skifzt bókum
á. Eg komst að því á fleiri en einni
stöð, að stúlkur sátu í frístundum
saman á herbergjum sínum með
handavinnu sína og ein las hátt fyr-
ir hinar. Það var mjög ánægjuleg
sjón.
Þar sem búast má við, að reistar
verði enn margar nýjar síldarstöðv-
ar á landi hér, og slíkar kosta of
fjár, þá hygg eg að það mundi
margborga sig fyrir útgerðarmenn
að setja nefnd hæfustu manna, er
völ væri á, til að íhuga og gera
tillögur um hagkvæmustu tilhögun
síldarstöðvar, eftir þeirri reynslu
og þekkingu, sem nú er unt að fá
um slíka hluti. Yæru þar tekin til
athugunar öll tæki, er slíkri stöð
ættu að fylgja, og hverjum hlut og
handtaki hnitmiðaður sinn staður,
svo að hún líktist góðri vél, þar sem
eitt hjólið er frá upphafi vega mið-
að við annað, og allir hlutir sam-
siltir, til þess að hún afkasti sem
mestu og beztu verki á sem styzt-
um tíma, og með sem minstri orku-
eyðslu. Sofandi gefur guð sínum
aldrei slíka smíð.
Að endingu vil eg þakka Félagi
íslenzkra botnvörpuskipaeigenda,
er góðfúslega kostaði för mína, og
svo öllum þeim hinum mörgu, er
tóku erindi mínu vel og gerðu sitt
til að árangurinn yrði sem beztur.1 ‘
Kitgerðin er birt í „Ægir“.
Lffsskilyrðin
Cadbury’s kókó.
Kex og Kökur, fjöldi teg., bæði
i kössum og tunnum.
Marmelaöi.
Niðursuðuvörur, ýmsir teg.
Handsápur.
Vindlar, hollenzkir.
Fiónei, einl. og misl.
Tilbúinn fatnaður.
Fataefni, karla og kvenna.
Vanafóður.
Millifóðurstrigi.
Nankinsföt, blá.
Skófatnaður, karla og kvenna.
Bárujárn nr. 24 og 26, ýmsar
lengdir.
Fry's átsúkkulaði og
konfekt.
Cadbury’n átsúkkulaöi ot-
konfekt.
Fggjaetni-
Súpueini.
Bökunarefai.
Lakkrís.
Tvisttau.
Léreft, ýrnsar breiddi'.
Vasaklútar.
Servíettur.
Borðdúkar.
Stumpasirz.
Ermafóður.
Shirting.
Regnhápur, karla og diengja.
Leirvara, slls konar.
Netagarn.
Manilla.
Laukur.
og Jíoira og Jíaira.
Símar 268 og 684. Pðstbólf 397. Símnefci Havsteen
,Þrent er það sem íslenzka þjóðin
verður að leggja sér á hjarta á kom-
andi árum.
Það er;
Að gera sér nppsprettur sínar
sem arðmestar.
Að vernda þjóðemi vort og
tungu.
Að hlúa og vaka sem bezt yfir
andlegu lífi í landinu.
Þeta eru höfuð-lífskilyrði vor á
næstu árum. Og um þetta verða al-
þjóð og löggjafar að taka höndum
saman. Takist ekki stjórn eða fram-
kvæmd þessara mála þjóðfélagsins,
er oss bráður bani búinn sem sjálf-
stæðri þjóð.
Um fyrsta atriðið er það að segja
að alt er undir því komið, hvernig
vér förum að því að hagnýta okkur
nýfundnar og ófundnar auðsupp-
spretur. Fundur þeirra er lítilsvirði,
ef vinsla þeirra er með vanhyggind- ^
um ger. Og í því efni er margs að
gæta. Því fleiri möguleikar, sem
opnast hér til 'þess að afla fjár,
því eftirsóknaryerðara verður land-
ið erlendum auðmönnum og félög-
um. Og því fleiri vegir, sem finnast
til þess að afla ríkinu tekna, því
vandameira er að leggja þá vegi
að réttu marki. Gullnámur einhvers
lands, í hvaða mynd, sem eru, eru
því harla lítils virði, ef þeim er
stjórnað þannig, að þjóð og land
bera ekkert eða lítið úr bítum við
eignina. Yatnsaflið okkar er okkur
ekki annað en hermdargjöf, ef við
notum það á einhvern þann hátt, að
landið hafi lítinn efnalegan styrk
af. Og getpr það orðið með því móti
að annaðhvort sé byrjað á þeim
iðnaði, sem landið stórtapi á, eða
erlendum mönnum og auðfélögum
sé leyft að klófesta þann arð, sem
fengist.
Því er það eitt af lífsskilyrðum
1 þessarar þjóðar, að nýfundnar og
J ófundnar auðsuppsprettur séu
trygðar landinu sjálfu á ótvíræðan
hátt. Aldrei hefir verið meiri þörf
fyrir auknar tekjur en einmitt nú,
Því væri glæpur gagnvart þjóð
vorri, að búa ekki svo vel um þær
auðlindir, sem hér eru, að úr. þeim
gæti streymt einvörðungu í okkar
eigin vasa. —
Þjóðerni voru og tungu er okkur
jafn skylt að vaka yfir. Það er sá
gimsteinn sem vaka verður yfir með
Argusaraugum. Og það því heldur,
sem svo getur farið, að næstu ára-
tugir verði eldraun íslenzkrar þjóð-
ar að halda tungu sinni og þjóðern-
iseinkunnum. Innstreymi erlendra
manna hlýtur að fara hraðvaxandi
ár frá ári. Ólíkar og misjafnar öld-
ur erlendra áhrifa hljóta að berast
inn yfir landið. Og þær öldur munu
reynast drjúgar að grafa grunninn
undán sérkennum vomm og slétta
yfir íslenzkt mál og menningu. En
hver þjóð, sem tapar máli sínu og
þjóðerniseinríennum,er dauðadæmd
Helgasta starf hverrar þjóðar er
það að vernda slíkar gersimar. Þó
þjóð vor sé undirorpin eldi og ís,
getur hún lifað. Þó húu hafi við
efnalega óáran að stríða, getur hún
geymt í sér vísir til blómlegs vaxt-
ar.En glati hún menningar einkenn-
um sínum og máli er liún týnd úr
tölu þjóðanna. Og vart mun eins
bjart yfir okkur af neinu eins og
tungu vorri. Þar verðum vér því
allir að standa á verði-
Þá er þriðja atriðið: viðhald og
verndun hins andlega lífs.
Upp af andlegum þroska þjóð-
anna rísa allar þeirra framfarir,
allir vinningar þeirra á hverju sviði
sem er. Vöxtur andlegs lífs er mæli-
kvarði á lífsmagni þjóðanna. Aldrei
hafa neinar þjóðir stígið stór spor
á menningar og framfarabrautinni,
nema samfara hafi verið andleg
aukning og nýjar landvinningar á
sviði hins andlega lífs. Og margt
bendir til þess, að nú sé landvinn-
ingatími andlegra afla á íslandi.
Slcáldskapur og listir blómgast ó*
trúlega. Stórt skarð er að vísu
höggvið í hóp íslenzkra skálda nú.
Og konungur íslenzkra leikritahöf-
unda er sigldur á unga aldri yfir
Dauðahafið. En maður kemur í
manns stað. Ný merki eru reist.
Nýjir menn eru að koma í ljós, sem
mikils má vænta a£. — Sama er að
segja um listamenn vora. Það sýn-
ir sýningin í sumar. Og yfir höfuð
eru andlegar hræringar með mesta
móti. Trúarlífið hefir og fengið nýj-
an styrk. En vaknaudi trúarlíf ein-
hverrar þjóðar er vorboði í lífi
liennar.
Það er því eitt af lífsskilyi-ðum
vorum á komandi árum, að halda
hlífiskildi yfir andlegu lífi og and-
legri starfsemi. Verði það gert, þarf
íslenzka þjóðin ekki að kvíða fram-
tíð sinni sem sjálfstæð þjóð. Þeir,
sem skilja og meta að verðleikum
mikilvægi andlegrar starfsemi og
áhrifa hennar á líf mannanna, þeir
eiga framtíðina. Þeir eru sólskins-
megin.
Lög frá Alþingi 1919.
ii. — — löpgilding veizlunar-
staðar við G nnlaugsvík.
12- — — takmörk ve’z!nnarlóð-
arionar á Sauðáikióki.
13- — — breyting á póstlögum,.
nr. 43, 16. nóv. 1907.
14. — — bæstaiét'.
IS- — — viðauka v ð lög nr. 24,
12. sept. 1917, nm
húwleigu i Reykjavik„
lú. — — breytingu á lögum nr.
39» "• júlí 1911, um
sjúkrasatrlög.
17. —r — sölu á þjóðjðrðinni ögri.
og Sellóni i Stykkis-
hólmshreppi.
18. — — b úargerði’-.
19. — — greiðs’u aí rikisfé til
konurgs og konungs-
ættar.
20. — — löggilding ve zlnnar-
staðar á Mýramel.
21. — — breyting á lögnm um
stofnun lardsbank’, 18.
sept. 1885, ó".
22. — — breyting á lögum nr..
34, 3. nóv. 1915, um
stofnun biunabótafélags
ísáand .
23. — — bæj rstjórn á Seyðis-
fiíði.
24. — — breytingu á lögum fyr-
ir ídand, nr. 17, fiá
8. júlí 1902, um til-
höeun á löggæslu við
fiskiveiðar fyrir utan
landbelgi i hafir.u urn-
hveifis Faereyjar og Is-
lard.
25. — — b-eytingu á lögum nr„
22, 3. nóv. 1913, um
fasteignamat.
26. — — samþykt á lardsreiln
ingnum 1916 O' 1917-
27. Fjáraukalög fyrir árin 1916 og
I9t7.
28. Lög um tnát á saltkjðti til út-
flut-íings.
29. Fjáraukalög fyrir árin 1918 og
1919.
30. Lög um löggiitar reglugerðir
sýslunefrdi um eyðing
tefa o. fl.
31. — — viðarka við og breyt-
ingar á lögom nr. 83,
14. nóv. 1917 (Síma-
lö*].
32. — — b eyting á sveitaistjórn-
arlðgum fiá 10. nóv.
1903.
1. Lög um framlenging á gildi l?ga
cr. 30, 22. okt. 1912,
laga nr. 44, 2. nóv.
1914, laga nr. 43, s.
d , og laga r r. 3, 3. júcí
1918 [Vörutollui].
2. — — bráðabirgðainnflutnint s
gjald af sildaitunnum
og efni í þær.
3. — — ríkisborgaratétf, hversu
menn fi hann og missa.
4. — — breytingu á 1. gr. toll-
laga fyrir ísland, cr. 54,
11. júli 1911.
5. — — stækkun veizlunarlóð-
arinnar á Nesi í Norð-
firði.
6. — — heimild fyrir rikisstjórn-
ina til að taka í sínar
hecdur alla sölu á hross-
um til útlanda, svo og
útflutntDg þeirra.
7. — — breyting á löggjöficni
um skrásetning sk pa-
8. — — aðflutningsgjald af salti.
9. — — löggilding veizlunar-
staðar við Syðstabæ í
H: ísey.
10. — — viðauka og breytiugu á
lögum 4. nóv. 1881,
um útflutningsgjald af
fisk’, lýsi 0. fl.
3 3-
34-
35-
36.
37-
38.
39-
40.
41.
42.
43-
44.
— — landamerki.
— — heimi'd fyrir lands-
stjómina til að leyfa
Is'ardbatika að auka
seðlacpphæð þ<, er
bankinn má gefa út
samkvæmt 4. gr. laga
nr. 66, 10. nóv. 1905.
— — ákvörðun veizlunailóð-
arinnar i Hafnarfirð'.
— — forkaupsrétt á jörðQir.
— — breyting á 1. gr. laga
nr. 36, 30. júlí 1909,
umlaunháskólakennarr.
— — skoðun á sild.
— — breyticgu á lögum nr.
39, IO. nÓV. 19‘h um
friðun fugÞ og eggja.
— — breyúng á lögum nr.
22, 14. des. 1877, um
húsaskatt.
— — breytingu á 1. gr. laga
um vitagjald, frá 11.
júlí 1911.
— — samþyktir um akfæra
sýslu- og hreppavegi.
— — sérstakt læknishérað 1
Hólshreppi 1 Notður-
ísafjaTðarsýslu.
— — gja!d afinnlendri vindla-
gerð og tilbúningi á
konfekt og brjóstsykri.