Ísafold - 06.10.1919, Page 4
4
] S A F O D
Khöfn, 28. sept.
Verkfallið í Englanöi.
Frá London er símað, að 600 þús-
und manns ta'ki þátt í járnbrantar-
"verkfallinu.
Matvælaskömtun sú, sem var ó-
friðarárin, hefir verið lögleidd
aftur.
Bretar í Rússlandi.
Reutersskeyti herma, að brezki
meginherinn í Norður-Rússlandi sé
farinn á burt.
Fiume.
Frá Róm er símað, að Wilson
neiti að slaka til í Fiume-málinu.
Suður-Jótland.
Símskeyti frá París hermir, að
vegna þess hve það dragist lengi að
samþykkja friðinn í ýmsum ríkj-
um, geti þjóðaratkvæði í Suður-Jót-
landi ekki farið fram fyr en um
nýár.
Khöfn, 29. sept.
Verkföllin aukast í Englandi.
Fr>á London er símað, að verk-
föllin aukist og hafi nú námuflutn-
ingamenn líka lagt niður vinnu.
Eru verkfallsmenn nú um 1,400,000.
Kolaflutningar hafa algerlega
stöðvast, en sagt að fjöldi sjálf-
hoðaliða gefi sig fram til vinnu.
d Annunzio.
Frá Berlín er símað, að ítalir
Fafí skorað á bandamenn sína að
ihrekja d ’Annunzio burtu úr Fiume.
Neyðarkjör Þjóðverja.
„Berliner Tageblatt“ hermir
það, að stjórnin í Weimar hafi á-
kveðið að selja listaverk þýzka rík-
isins til títlanda til þess að geta
keypt nauðsynjavörur.
Ófriður Breta og Rússa.
Frá Wien er símað, að sú fregn
hafi komið frá Búkarest, að Bret-
ar hafi sett sjólið á land í Odessa-
Álandseyjar.
Frá Helsingfors er símnð, að
Finnar sé mjög óánægðir með þá
ráðstöfun Clemenceau, að láta Svía
fá Álandséyjar. Halda blöðin því
fram, að nauðsynlegt sé, að Svíar
og Finnar geri samning sín á milli
um framtíð eyjanna.
Khöfn, 80. sept.
Fiume og ítalir.
Frá Berlín er símað, að krúnu-
ráðið ítalska hafi ákveðið að setja
Fiumeborg undir hervald. Þingið
hefir krafiSt þess með miklum
gauragangi, að borgin verði ítölsk.
Verkfallið í Englandi.
Frá London berst sú fregn, að
verkfallið haldi áfram, en samt sé
enn þá hægt að flytja matvæli um
landið.
Eigi virðist geta hjá því farið, að
von bráðar verði blóðsúthellingar í
landinu.
Iðnaðarfyrirtæki eru sem óðast
að hætta vinnu, vegna verkfallsins.
Khöfn, 1. okt.
Frá London er símað, að verk-
fallsmönnum sé hótað því, að her-
menn verði látnir caka við vinnu
þeirra, ef þeir hætti ekki verkfall-
inu.
Nýjar kosningar í ítaliu.
Frá Róm er símað, að þingið hafi
verið leyst upp og eigi að koma
saman aftur 1. desember.
Bolzhewikkar lækka seglin.
Agence Havas hefir það eftir op-
inberum fregnum frá AVashington,
að Bolzhewikkastjórnin í Rússlandi
Heildsala. Smásala.
Sððlasmíðebúðin Lsugavegi 18 B.
Pfestíauísafrumvarp
Dana
Simi 646
Sterst o fjöibr 'yctan úrvil af reiðtý-junri, aksýgjun, og ö'!u t lheyrand)
s.s. alisko iar ólum, beislum, tcs um o. fl. Kiyftöskurnar o ðiögðu. A
járnvörum: Beislisst mgir, ú járni og nýsiifri, tnunrjáru, taumaiásar,
ístöð og dlskomr bnngjur, einnig sv pur, keyn, hestt|áru o. m. fl. —
EuDftemur stærri oí smærri tjö d úr ágætu efni, vagu-.: yfirbreiðslur, fisk-
ábteiður og tsestiteppi. Fyrir söfLsmiði: Hnakk og söðulvirki, p!yds,
dý 'ust'igi, hringjur, beislis ta gir, Ltöð, taumalásar, keyri, leður, skinn o.fl.
8ér*taklega or rnælt ni ð spaðahtiðkkuai
enskom o«' íslenskum.
Stöðug við kifti { öMum sýdum bndsins. Pantanir afgreiddar fljótt og
nákvænuega. By j marviðskifti vetða undantekningarlítið stöðug viðskifti.
Söðíasmiðabúðin Laugavegi 18 B. Sími 646.
Helldsala.
E. Kristjánsson.
Smásala
sé íeiðubúin að semja frið með þeim
skilyrðum að stjórnarfyrirkomulag
hennar hverfi úr sögunni, grimdar-
verkum og aftökum sé hætt og að
12 Bolzhewikkaforingjar, þar á
meðal Lenin, Trotzky og Zinojev,
fái vegabréf til Suður-Ameríku.
Friðarumleitaninni er ekki beint
beina leið til stjórna bandamanna,
heldur til franskra og ameríkskra
sendiherra þeirra í hlutlausum
löndum.
Þýzka þjóðþingið
var kvatt saman í Berlín í gær.
Frá Rúmeníu.
Frá Berlín er símað, að Voltoi-
anu hafi myndað hernaðarstjórn í
Rúmeníu.
an þátt fslendinga'sögunnar, en um
hann hefir mjög lítið verið ritað áður.
Nýjar bækur. Mesti f jöldi nýrra bóka
liefir komið á markaðinn nú í liaust.
Tvær eftir Einar H. Kvaran: „Sögur
Rannveigar'
„Trú og sannanir'
t\ ær þvðingar eftir Björgu Þ. Blöndal
og er önnur saga eftir Johann Bojer og
nefnist „Ástaraugun“ en hitt er saga
eftir Johan Skjoldberg. Átta ösgur nýj-
ar eftir Guðm. Friðjónsson hefir Sig.
Kristjánsson gefið út, og saga sem
nefnist „Börn Dalanna" er komin út
eftir pilt einn,Halldór frá Laxanesi.
„Si>rettir“ ný ljóðabók eftir Jakob
Thorarensen, „Kvæði“ Jóns Thorodd-
sens, Æfisaga og 1 jóömæli Jón Þorláks-
sonar, „Uppeldismál“ eftir Magnús
Helgason, „Jón Arason“ doktorsrit-
gerð Páls E. Olasonar, Saga verzlunar-
einokunarinnar, eftir Jón Aðils háskóla
kennar'a o. fl.
í launalagafrumvarpinu danska
hafa menn tekið eftir því að prest-
laun vorn hvergi nefnd. Þeim á að
skipa með sérstökum lögum.Kirkju-
ínálaráðherra Poulsen lagði frum-
varp fram um fyrri mánaðarmót,
um laun starfsmanna Iþjóðkirkju
Dana.
Samkvæmt þessu frumvarpi á Sjá
landsbiskup, sem er nokkurs konar
erkibiskup, að fá 12,600. Aðrir
danskir biskupar fá 11,400 kr. á ári.
Þar að auki liafa biskuparnir risnu-
fó nokkurt ýmist 1200 eða 1800 kr.
Prestar eru í 4 launaflokkum.
I fyrsta flokki (200 prestar) eru
launin 6600 kr. og hækka upp í
7800 kr.
í öðrum flokki (400 embætti)
4400 kr. hækka upp í 6360 kr. /
í þriðja flokki 3480 kr., hækka
. upp í 5640 kr.
j í fjórða launaflokki 3120, hækka
, upp í 4200 kr. í þessum flokki eru
lcapelánar í sveitum og ýmsir aðrir
, prestvígðir aðstoðarmenn. f þriðja
fl. eru kapelánar í bæjum og all-
margir prestar sem ekki eru í 1. og
2. flokki.
| Eins og starfsmenn ríkisins fá
j prestar staðarhætur, dýrtíðarbætur
og árferðisbætur. Aldursbæturnar
, voru þegar nefndar, þær eru fólgn-
ar í hækkun launanna, er hver
prestur fær eftir ákveðinn þjónustu-
tíma.
Stjðrnarástandið
hjá Bolzhew.kum
ReykjaYlinramiáll,
Biskupinn tók sér far með Island
seinast til Kaupmannahafnar til þess
að halda kirkjusögufyrirlestra sína við
liáskólann þar. Með honum fór frú
hans og dóttir.
Bifreiðarslys varð skamt frá Bald-
urshaga síðastliðið laugardagskveld.
Valt þar vöruflutningsbifreið út a£
veginum og meiddist bifreiðarstjórinn
mikið.
Lagarfoss fór til Austf jarða á þriðju-
daginn var. Að þeirri ferð lokinni fer
skipið til New York.
Doktorsefni. Páll Eggert Ólason
fand. juri-s hefir samið rit um Jón Ara-
son biskup og hefir háskóli íslands
dæmt það verðugt þess að höfundur
megi verja það opinberlega og hljóta
doktorsnafnbót fyrir. Mun sú athöfn
fara fram einhverntíma á næstunni og
er það hin fyrsta í sögu háskólans. Rit
þetta er upphaf stærra ritverks er Páll
hefir með höndum og nefnist „Menn
og mentir“.
Gylfi seldi í síðustu viku afla sinn
í Fleetwood fyrir 4100 sberlingspund.
Er það hið langhæsta verð, sem nokkur
hotnvörpungur hefir selt afla sinn fyr-
ir lengi. Skipið liggur enn í Bretlandi
og kemst ekki burtu vegna kolaverk-
fallsins.
4. okt. voru gefin saman í hjónaband
pf síra Jóh. Þorkelssyni dómkirkju-
presti þau Sigurður Kr. Einarsson og
Margrét Kristjánsdóttir.
Einokunarverzlun Dana á íslandi
heitir síðasta og stærsta bók Jóns J.
Aðils háskólakennara og gefin út nú
fyrir skömmu af verzlunarráði Islands.
Hefir höfundur safnað efni til hennar
utan lands og innan nú um mörg ár og
varið ærnu erfiði til að rannsaka þenn-
KjötverSið er nú kr. 3.10 kílogramm-
:.ð og er búist við að það haldist.
Próf. Haraldur Nielsson hefir dvalið
í Englandi í sumar og er nú nýkominn
heim. Eins og að undaniförnu ætlar
hann að halda uppi guðsþjónustum í
Fríkirkjunni í vetur.
Rollo, skip Steinolíufélagsins er á
leið hingað frá New York með steinolíu
farm.
Island fór héðan á þriðjudagskveldið
var með yfir 100 farþega. Meðal þeirra
voru Kirk verkfræðingur, Obeifhaupt
kaupmaður, Sigfús Einarsson organisti,
sem ætlar áð dvelja erlendis í vetur,
Christen Fribert rithöfundur, sá er var
gjaldkerikvikmyndaleiðangursins,Ernst
Petersen eand. juris og frú, Faber flug-
maður, Páll ísólfsson organisti, Gunn-
ar Gunnarsson ritíhöf. Rolf Zimsen
flugmaður, Krabbe verkfræðingur,
Funk verkfræðingur, Brynjólfur Þórð-
arsou rnálari, Brynjólfur Stefánsson
stúdent, frú Laura Bogason frú Þóra
Möller, Ásgeir Pétursson útgerðarmað-
ur, frú Unnur Benediktsdóttir skáld-
kona, o. fl. o. fl. Skipið fór frá Fær-
eyjum á fimtudagskveldið og kemur
væntanlega til Khafnar í dag.
--------o———•
Slys.
Tveir menn druknuðu af háti á
ísafirði við Isafjarðardjúp í fyrra-
dag, Þórður Bjarnason, fyr bóndi
í Klafakoti við Mjóafjörð, og Sig-
urður Þorsteinsson húsmaður í
Hörgshlíð. — Þriðja marminúm,
Guðjóni Sæmundssyni bónda í Hey-
dal, var bjargað af kili. — Menn-
irnir voru í kaupstaðarferð til Arn-
gerðareyrar.
--------o--------
Prófessor Abrahamovitch, sem
fyrir skömmu kom frá Rússlandi,
hefir haldið fyrirlestur í Berlín um
stjórnarfarið í Rússlandi.
Útlend blöð flytja þennan út-
drátt úr ræðu hans:
Ástandið er nú sem stendur afar-
slæmt. Stjórnin heldur að eins
uppi fáeinum iðnfyrirtækjum í rík-
inu. Ekki er hægt að framleiða kol
eða járn, af því að Ural og Don-
héruðin eru í höndum fjandmanna
stjórnarinnar. Þess vegna liggja
þá líka samgöngurnar í kalda koli.
Landbúnaðurinn er þá einnig í aft-
urför, því að hændur rækta lítið
meira en þeir kornast af með sjálf-
ir og það sem þeir geta verzlað
með á laun, því að þeir eru lítið
hlyntir sameignarstefnn stjórnar-
innar. — Fjárhagsskýrsla ríkisins
sýnir halla, sem nemur 30 miljörð-
um. Stjórnin getur ekki komið sam-
skipulagi á framleiðslu og eyðslu,
af því að framleiðslan er svo lítil.
— Aftur á móti blómgast leyni-
verzlunin í Rússlandi. Alt mögu-
legt má fá til kaups á laun, ef að
eins er gefið nóg fyrir það. Stjórn-
in ofsækir borgarastéttina svo
grimmilega, að það liggur við fullri
útrýmingu. Sömuleiðis eru ofsótt
öll innlend atvinnufyrirtæki, en út-
lendingum gefin einkaleyfi.
Eiginlega er ekki lengur neitt
stjórnarkerfi og lítið um kosning-
ar. Ráðin eru einvöld. Það er ekki
hægt að segja að öreigalýðurinn
ráði neinu. Ráðin gera alt og skipa
í allar stöður. Um málfrelsi og
fundafrelsi er alls ekki að tala.
Fjöldi fólks er af lífi tekinn á
hverjum degi. — Hvað rauða íher-
valdið fær áorkað er alls ekki
clugnaði þess að kenna, heldur dáð-
leysi og hugleysi motstöðunnar
gegn því.
Botha horshðfðingi
látinn
Fj’rir mánuði síðan lézt hinn
heimsfrægi Búahershöfðingi Botha,
úr inflúenzu.
Hann hafði átt sæti á friðarþing-
iuu og tekið þátt í hinum miklu
sigurhátíðum í París og London og
var fyrir skömmu kominn heim til
Suðurafríku þegar dauðinn sótti
hann.
Hann var 57 ára og að því er
v'rtist með fullum lífskrafti.
Bretar þykjast með honum sjá A
bak einum hinna mestu manna
Bretaveldis.
Áður var þó sú tíðin, að ekki
lágu í Englandi eins hlý orð í garð
Botha. Það var í Búastríðinu, er
hann barðist hraustast gegnofurefli
Breta og vann sigur á sigur ofan.
— Það var fyrst er Bretar höfðu
teflt fram einum hinna reyndustu
hershöfðingja sinna, Roberts lá-
varði, með ofurefli liðs, að Botha
sá sitt óvænna og gafst upp. Hann
sá þá að Bretum var alger alvara
að ganga ekki með ósigur af hólmi
og var nógu hygginn til að fórna
ekki dýrustu kröftum þjóðar sinn-
ar að eins til þess að enda í ánauð-
— Hann sneri því við blaðinu og
varð Bretum hinn nýtasti maður
þar syðra og var ekki laust við að
hinir aestari landar hans lægju hon-
um á hálsi fyrir vikið.
Þegar heimsófriðurinn hrauzt út,
hugðu margir Búar að nú væri
lansnarstundin runnin upp og hófu
uppreisn undir forusu de Wets og
Beyers, en Botha þóttist reikna það
út, að nýlenduveldi Breta væri ekki
lokið með þessu stríði og að betra
mundi að hafa sig hægan. Hann
barðist því á móti sínum gamla
samherja, Kristjáni de Wet, og má
nærri geta hvort það hafi verið
með köldum skapsmunum að hann
þoldi nú brígsl sinna fyrri félaga
um svik við ættjörðina. En upp-
reisnin var bæld niður og Búar
friðaðir og munu þeir mega þakka
sínum sæla að ekki fór ver, því að
varla mundi Bretum hafa orðið
skotaskuld úr því að jafna um Búa
með slíku ofurefli liðs, er þeir áttu
er þeir komu sigrandi úr styrjöid-
inni.
Það var að Búum, að þeir voru
víst tæpast orðnir svo mentaðir,
að þeir hefðu við það að gera að
stofna alóháð veldi þar syðra.
Framkoma þeirra gagnvart þjóð-
flokkunum í kring um þá, mun
liafa verið alt annað en fyrirmynd-
arverð, svo að ef menn þektu hana
til hlítar, mundi eigí alllítið draga
úr samúðinni, er -Búum var sýnd
þegar þeir svo fáir og illa vopn-
um búnir buðu byrgin stærsta her-
veldi heimsins.
<y
Charles Kíeiulf
einn hinna þektari söngfrömuða
Dana, er látinn fyrir skömmu.
Hann var söngskáld einkum á létt-
ari vísnalög og þótti allsmellinn í
köflum. Annars var hann þó meira
þektur sem rithöfundur ien sem
tónskáld, því að hann var um langt
skeið söngdómari við blaðið „Pöli-
tiken“, Var einlægt fjör í því sem
Kierulf skrifaði, þótt skoðanir
manna skiftust nokknð um það
hvað réttu hann héldi fram á stund-
um.