Ísafold - 23.02.1920, Page 3
y^t2gaSKBir.scssr;{:r; r-.rzzr., rj-jeaet. ywi2«n^jSSE!XSkMa2Tg£l8im
Minnist hann meðal annars á það,
að VvTilson muni elcki vera með öll-
um mjalla, en kælir Lansing.
Khöfn 18. febr.
Vilson vikið frá?
Símað er frá London að Wilson
forseti sé talinn andleigur örkumla-
maður og er búist við að kongres-
i'nn samþykki yfirlýsing um að
framkoma hans fari aigeriega í bág
við stjórnskipunarlögin og að for-
setaembættið sé autt.
Holland og keisarinn.
f nýju ávarpi til Hollendinga
láta bandamenn undrun sína í ljós
yfir því, að stjórn Hollands skyldi
ekki, um leið og hún neitaði að
verða við kröfum þeirra, gera ein-
hverja tillögu um varðveizlu keis-
arans, eða áfellast afbrot hans, og
fara þeir þess á leit, að málið verði
tekið til nýrrar yfirvegunar, og
leggja áherzlu á það, að nærvera
keisarans við þýzku landamærin,
sé hættuleg, ef Hollendingar geti
• ekki sett Norðurálfunni þær trygg-
ingar, sém nauðsynlegar verða að
teljast til að varðveita frið í álf-
unni.
Efhöfn 19. febr.
4000 maims drokDa.
Prá Konstantinopel er símað, að
skip, sem var að flytja flóttamenn
frá Odessa þangað, hafi rekist á
tundurdufl í Bospprus og farist.
Með skipinu voru 4000 manns.
Caillaux-hueykslið.
Caillaux-málið byrjar aftur í dag.
Þingnefnd hefir haft málið til ránn-
sóknar undanfarið.
Landráðamál Cailleux
liefir nú að nýju verið tekið til með-
ferðar í þinginu. Hefir það legið
niðri .síðan í haust. Þá vildi Caille-
ux Ieggja málið í dóm, en þvert á
móti var tekinn frestur í því og
Cailleux hafður í varðhaldi síðan.
Hann þykis't sjálfur sannfærður um
að ekki sé liægt að dæma sig sek-
an um landráð þótt böndin hafi
borist að lionum um það, að hann
hafði um' eitt skeið ráðagerð í
frammi með það að ná stjórnarfor-
mensku í Prakklandi og semja svo
frið við Þjóðverja og hafi til þess
ætlað að hafa þýzkt fé.
Forseti Frakklaisds.
Paul Deschanel.
Mynd þessi er tekin á heimili hins
nýja forseta, fyrir skemstu. Des-
shanel er talinn glæsilegast stjórn-
málamaðurinn meðal Prakka og
ræðuskörungur með afbrigðum. —
Þykir haun mikið tilkomumeiri
heldur en Poincaré.
lofliienzni - Khöfw.
•
Þaðan er símað í gær, að inflú-
enzan sé í rénun og fari hægara
yfir.
Danir og þjóðbandalagfð.
Allir flokkar eru ásáttir um, að
Danir gangi í þjóðbandalagið, þrátt
fyrir ýmsa annmarka, sem því eru
samfara.Gagnið að þátttöknnni yrði
þó meira, einkum að því leyti að
herbúnaður smáþjóðanna yrði mink
aður mjög.
Her Þjóðverja.
Bandamenn hafa gefið Þjóðverj-
um tyeggja mánaða frest til þess
að minka herinn í samræmi við á-
kvarðanir í friðarsamningunum.
Khöfn 20. febr.
Kolanámur ítala.
Prá Rómaborg kemur sú fregn,
að námnvei’kamenn hafi gert upp-
reist og tekið í sínar hendur for-
stöðu námanna.
Hernaðarglæpirnir.
Prá Berlín er símað að opinberi
ákærandinn hafi lýst yfir því, að
hernaðarglæpamálin mundu standa
yfir í mörg ár og hafa mikinn kostn
að í för með sér. Óútkljáð mál
hver borgi hrúsann.
Þingkosningin.
Jakob Möller sjálfkjörnn.
Sú hefir raunin á orðið, að Jakob
Möller ritstjóri er nú sjálfkjörinn
til þingmensku fyrir Reykjavík. Að
vísu bauð Sveinbjörn Egilson rit-
stjóri sig fram en tók framboð sitt
aftur á föstudag og aðrir höfðu
ekki boðið sig fram.
-------o--------
Inflúenzan
í Vestmanneyjum.
Þaðan var símað í fyrradag að
annar livor maður væri sjúkur af
inflúenzu. Hún er væg og enginn er
hættulega veikur. Bjóst heimildar-
maður vor í Eyjunum við því, að
hálfum mánuði liðnum mundi veik-
i.ini að mestu lokið. Þá hefðu senni-
lega allir tekið veikina.
Að eins 10 vélbátar komist á sjó
} fyrradag. Bíða Vestmanneyingar
mikið tjón að því að bátarnir ekki
komast á sjó, því afli er ágætur úti
fyrir.
Samkoniubami það, sem fyrirskip
að var hér í bænum í vikunni sem
leið, vegna þess að hætta þótti á,
f ð veikin væri komin hingað, mun
nú bráðlega upphaíið, þar sem all-
ar líkur eru til þess að Reykjavík
í,é enn laus við sóttina.
-------o—---—-í
Kjötsalan.
Ilorfurnar á því, að Sláturfélag |
Suðurlands geti selt kjöt sitt frá í
ÍSAFOLD
ihaust með viðunanlegu verði eru
því miður mjög slæmar. Hafa verið
gerðar tilraunir, bæði í Noregi, Sví-
þjóð og Danmörku til þess að selja
kjötið, en allar strandað. í hanst
fékst gott boð í ketið erlendis, en
þótti eigi nógu hátt, en síðan hefir
verðið farið sílækkandi.
Er því mest um kent að fram-
leiðsla Dana, bæði á fléski og nauta-
keti sé nú orðin að kalla eins mikil
og var fyrir stríðið. Er því nóg af
dönsku keti á boðstólum um öll
Noríurlönd, og með lágu verði,
vegna þess að kjötflutningur til
Þýzkalands hefir algerlega stöðvast.
Og ekki standa saltkjötinn íslenzka
fremur opnar leiðir þangað.
Það er að eins örlítill hluti af
kjötinu sem selt hefir verið. Nokkur
þúsund tunnur liggja enn þá óseldar
hér í Reykjavík. Og horfur eru á,
að þær muni ekki seljast í bráð,
nema fyrir sárlítið verð. Kjöt norð-
lensku kaupfélaganna var selt í
haust fyrir nær hálft fjórða hundr-
að krónur komið nm borð hér. Mega
Norðlendingar því hrósa happi yfir
sölunni. En sunnlenzkir bændur bíða
gífurlegt tjón.
ReykjaYÍknrannálI,
Nýr banki. Á alþingi er nú komið
fram frv. til laga um ýms hlunnindi
til handa hinum nýja banka, sem ráS-
gcrt er að stofna hér. par á meöal al-
gert skattfrelsi, heimikl til aö reka
sparisjóðsstörf o. s. frv., eins og hinir
bankarnir hafa. í framkvæmdanefnd
bankaus eru: Eggert Claessen, hæsta-
réttarmálafl.m., Einar prófessor Arn-
órsson, Áöúst Plygenring kaupmaSur,
Gu8.ni. Kr. Guömundsson skipamiölari,
Hjalti Jónsson skipstj., G. J. Johnsen
konsúll, Jón Laxdal kanpmaður og
Magnús Einarson dýralæknir. Hlutafé
er þegar lofaö innanlands um 1 milj.
og 300 þús. kr.
Prezknr botnvcrpnngur kom hér inn
iJÖ.iri hluta vikua-.a. sem leiö, rueö lík
af manni, sem rotast liaför um borö í
skipinu. Annar maöur á sama skipi
haföi og slasast mjög. — A ööruin
botnvörpung, sem inn kom fyrir skemstu
var mjög veikur maöur.
Eggert Stefánsson söngmaöur hefir
dvaliö suöur á Italíu mestan hluta vetr-
ar. Er hanu aö búa sig undir aö veröa
óperu-söngvari.
Loftskeytastöðin á Flatey. Eins og
getiö var um hér í blaöinu brotnaöi
annaö mastriö á loftskeytastööinni á
Elatey. En nú hefir hún verið opnuö
aftur. Tókst aö koma fyrir loftþráöum
tfl bráðabirgöa. En vitanlega veröur
reist nýtt mastur svo fljótt sem unt. er.
ísland. Farþegar voru meöal annara:
Jón Bjömsson kaupm., E. Cable, ræö-
ismaöur Breta, Ingvar Ólafsson kaupm.
og frú hans, frú Hanna Daviðsson frá
Hafnarfirði, Steingr. Jónssón verkfr.
og Friöþjófur Nielsen kaupm.
Vánarfregn. Nylátin er hér í bænum
frú Guörún Ólafsdóttir, kona Hjalta
Jónssonar skipstj. og útgeröarmanns.
Banamein hennar var krabbamein, ill-
kynjaö mjög. þ'rú Guörún var gáfuö
kona og göfug, framúrskarandi vel látin
af öllum sem kyntust henni.
Alþingi. Enginn óviökomandi hefir
nú fengiö aögang aö áheyrendapöllum
þingsins vegna sóttvamanna. Eru rit-
stjórar blaöanua þeir einu, sem fengið
í
hafa fyrir náö aö lxafast þar við meö-
an a þirlgfundum stendur.
Sótivarnirnar. Heyrst hefir aö sýsl-
lirnar austanfjalls hafi ætlaö aö banna
allar samgöngur við Rvík þangaö til
útséö væri um hvort inflúenzan væri
komin til bæjarins. Margir austanmenn,
er höföu ætlaS heim, frestuöu því feröa-
laginu.
Villemoes haföi veriÖ svo lengi í hafi
er hann kom hingaö aö óþarft þótti aö
setja hann í sóttkví. Haföi hann veriö
meira en viku á leiöinui.
Nidaros kom hingað 19. þ. m. frá út-
löndum. Voru farþegar nokkrir. Skipiö
flutti lík ungfrú Matth. Guömunds-
dóttur bæjarfógetaskrifara. Hún andaö-
ist í Iiöfn úr berklaveiki. Skipið fór í
morgun áleiöis til útlanda.
Lilleborg, leiguskip steinolíufélagsins
er nýkomiö hingaö frá New-York með
9000 tunnur af steinolíu. Annaö skip
hlaöiö steinolíu er og væntanlegt til
sama félags innan skams.
Heimsóknir til sjuklinga á Vífilsstöö-
um voru bannaöar vegna inflúenzu-
hættu, strax og hert var á sóttvömum
hér í bænum.
Dione, þýzka flutningaskipiö, sem
hér var í janúarmánuöi, hefir ekki er
siöast fréttist, komiö til Hamborgar
enri. pað fór héöan 17. jan. og átti aö
koma viö norðarlega í Noregi. Hefir
frézt til skipsins þar en síöan ekki.
Islands-Falk kom hingað 17. þ. m.
frá Færeyjum. Haföi hann meö sér
franskan botnvöfpung, sem hann fann
í landhelgi fyrir sunnan land. Var hann
sektaöur af bæjarfógeta um 1000 kr.
og aíli og veiöarfæri gert upptækt.
En aflinn var lítill því skipið var ný-
komiö frá Frakklandi.
Stjórnarskráin er komin I gegn um
neöri deild óbreytt og eins frumvarp
stjórnarinnar um breyting á kosninga-
lögunum í samræmi viö 5 ára búsetu-
skilyröi stj órnarskrárinnar.
Frá Aiþingi.
Fjölgun þingmanna í Reykjavík.
Prv. stjórnarinnar um fjölgun
þingmanna í Reykjavík var til 2.
umræðu í n.d. á föstudag. Nefnd
sú, er hafði haft málið til með-
ferðar, klofnaði og vildi meirihlut-
inn ekki að þingmönnum Reykja-
víkur yrði fjölgað um fleiri en tvo.
Sveinn Björnsson var í minni hluta
og kom hann fram með breytingar-
tillögu um það, að þingmenn Reykj-
avíkur skyldu þó að min-sta kosti
vera 5. Bjarni Jónsson frá Vogi
hafði einnig komið fram með breyt-
ingartillögur þess efnis að fjölgað
skýldi þingmönnum enn meira, eða
4 fyrir Reykjavík og 4 fyrir önn-
nr útgerðarhéruð.
Umræður um málið urðu afar-
langar, stóðu í þrjár stundir sam-
fleytt. Jón Magnússon forsætis-
ráðherra lýsti yfir því, að stjórnin
hefði eigi öll verið sammála um það,
að þingmönnum Rvíkur skyldi
fjölgað eins mikið og fram á var
farið í frumvarpinu og kom það
líka flj'ótt fram í umræðunum, að
meiri hluti þingmanna var á móti
fjölgunmni eins og stjórnin hafði
farið fram á, en fanst nóg, að Rvík
hefði 4 þingmenn. Þeir sem aðhylt-
ust þessa skoðun, rökstuddu hana
með því, að í raun réttri væri Rvík
ekki eins illa sett og í fljótu bragði
virtist, því að mörg kjördæmi
sækti einmitt þingmenn sína til
Reykjavíkur, þannig að fullur þriðj
luigur þingmanna væri Reykvík-
ingar og þeir mundu ósjálfrátt
skara eld að köku Reykjavíkur.
Sveinn Olafsson sagðist álls ekki
geta stutt kröfu Reykvíkinga um
það áð fá 6 þingmenn, fyr -en al-
þingi væri þá flutt burtu héðan,
eða kosuingalögum þannig breytt(
að enginn væri kjörgengur nema
þar sem hann er búsettur.
Þingmenn Reykvíkinga, Sveinn
Björnsson og Jakob Möller, héldu
fram rétti Reykjavíkur til þess að
fá 6 þingmenn. Börðust þeir fyrir
því af kappi, að Reykjavík fengi
að tiltölu jafnrétti við aðra lands-
hluta, eu það bar engan árangur.
Hinir aðrir þingmenn voru flestir
svo sannfærðir um það, að Reykja-
vík stæði hlutfallslega bezt að vígi
I þinginu, að þeim fanst það meira
en nóg, að bæta tveimur þingmönn-
um við. P-ór að svo, að breytingar-
tillaga Bjama var feld með 10 : 6
atkvæðum, aðaltill. Sveins Björns-
sonar um 6 þingmenn var feld m-eð
19 : 3 atkvæðum og varatillaga
hans, um 5 þingmenn í Reykjavík,
var feld með 19 : 5 atkvæðum að
viðhöfðu nafnakalli. Þessir voru
með tillögunni: Jakob Möller, Jón
Auðunn Jónsson, Sveinn Björnsson.
Bjarni frá Yogi og einar Þorgils-
son. Yar svo málinu að því loknu
vísað til 3. umræðu.
Kensla í mótorvélfræði.
Prv. um þetta efni flytur Magnús
Kristjánsson og er þetta aöalinntakiö:
1. gr. ViÖ vélstjóraslcólann í Reykja-
vík skal stofna sérstaka deild, þar sem
kend er mótorvélfræöi, munnleg og
verkleg.
Stjómarráöiö ræöur bennara eftir
þörfum. Laun þeirra greiöast úr ríkis-
sjóöi.
2. gr. Til mótorvélstjóraprófs út-
heimtist:
1. f íslenzku: AÖ geta gert léttan stíí
nm alment efni, skrifaöan sæmilega og
nokkurnveginn rétt.
2. í dörisku: Aö geta lesiö upp og
þýtt léttan kafla í' danskri bók verk-
fræöilegs efnis.
3. í mótorfræði: pekking á hinum
algengustu mótorum, sem notaöir eru
í skipum og á landi, litbúnaöi þeirra,
hiröingu og stjórn. pekking á sundur-
liöun mótora, hreinsun þeirra og sam-
setningu. pekking á aö lagfæra þá galla
á mótorum, sem orsakast af notkun og
sliti. Pekkingu á algengustu bilunum
mótora, áhöldum þeirra og endurbótum.
pekkingu á hinum algengustu eldsneyt-
istegundum, sem notaðar eru til mótora,
hestafli þeirra og olíueyöslu.
4. í reikningi: pekking á hinum f jór-
um algengu reikningstegundum meö
heilum tölum, almennum brotum og
tugabrotum; aö geta leyst léttar líking-
ar meö einni óþektri stærö og prósentu-
reikningi.
5. í eölisfræöi: pekking á lögum um
loftkend efni, þrýstimælum, eölisþyngd,
hita og dreifing hans, útþenslu hiuta
viö hita, hitamælum, bræöslu, eldsneyti
og vélaáburði.
4. ger. Sá einn má ganya nndir mót-
orvélapróf er:
. Hefir stundaö jámsmíöi eitt ár í
þeim járnsmiöjum er stjórnarráöið tek-
ur gildar, eöa á eigiu ábyrgö hefir veriö
mótorvélstjóri á mótorbát eitt ár, eða
2. vélstjóri á bát yfir 12 lestir aö stærö