Ísafold - 21.07.1925, Page 4
r
4
ISAFOLD
MarokkóófriSurinn.
Símað er frá París, að þingið
liafi samþ. 1833 milj. franka fjár-
veitingn vegna Marokkóstríðsins.
ístjórnin kefir lýst því yfir, að til-
gangur Frakka í Marokkó sje sá
einn að verjast. Abdel Krim verða
boðnir sanngjarnir friðarskilmál-
ftr. Yilji hann ekki ganga að þeim
munu Frakkar sækja á hann af
fullum krafti.
y ' ...
8 stunda vinnudagur
í Frakklandi.
Neðri deild þingsins hefir sam-
þykt með 545 atkvæðum Washing-
thonsamþyktina um átta stunda
vinnudag.
Austurríkismenn vilja flytja út
verkafólk, sem er þeim til byrði.
Símað er frá Vínarborg, að
vegna afskaplegra fjárhagsvand-
ræða ríkisins, er aukast hröðum
fetum, jafnframt því að atvinnu-
leysi eykst stórkostlega í landinu,
hafi komið til mála að reyna að
fá leyfi til þess að flytja nokkur
þúsund verkamenn úr landinu, og
þá helst til Ameríku.
Næsta Norðurpólsförin.
Símað er frá Berlín, að ýmsir
menn og fjelög leggi fram fje til
norðurpólsfarar þeirrar, sem ráð-
gert er að farin verði í Zeppelin-
loftskipi. Fjársöfnunin gengur
greiðlega. Margir reyna til þess
að spilla samvinnunni milli Am-
nndsens og Ekeeners og bera Am-
undsen það á brýn, að hann hafi
verið þjóðverjum fjandsamlegur
í stríðinu.
Chamberlain telur alt framferði
Bolsa óþolandi.
Símað er frá London, að Cham-
berlain hafi sagt í þinginu, að
þann veg væri nú máltím komið
milli Englands og Rússlands, að
bráðlega mundi hámarki náð,
nema Rússar hætti öllum fjand-
samlegum undirróðri í Bretaveldi.
Ágreiningurinn um kolanámurnar
ensku.
Símað er frá London, að kola-
námudeilurnar harðni stöðugt. —
Engar líkur eru til þess, að sam-
komulag náist í bráð. Það er tal-
ið líklegt, að margar miljónir
breskra verkamanna muni styðja
námumennina í þessu máli, sem
best þeir geta.
Læknisfræðileg uppgötvun.
Símað er frá London, að lyfja-
fræðistofnun ríkisins hafi fundið
,mikroskopiska organisma/ er or-
saki krabbamein, Er hjer um
mérkilegan atburð að ræða í sögu
læknisvísindanna, en vafasamt er
talið hvort mikið raunverul. gagn
verði af uppgötvuninni, Af stofn-
unarinnar hálfu verður nánar
skýrt frá þessu bráðlega.
í ,v;s \
Námumálin í Englandi.
Símað er frá London, að rann-
sóknanefnd hafi verið skipuð í
kolanámudeilumálunum.
I
Flotaaukning Breta.
Símað er frá London, að stjórn-
in hafi ákveðið að láta smíða 14
ný beitiskip á næstu 5 árum.
Chamberlain krefst þess, að Rúss-
ar hætti undirróðri sínum í Kína
og Bretaveldi.
Símað er»frá Berlín, að Lund-
únaskeyti er þangað hafi borist,
hermi, að Chamberlain hafi átt
langt einkaviðtal við Rakowsky
(rússneska sendiherrann), og kraf
ist þess, að Rússar hætti undir-
róðri sínum í Kína og Bretaveldi.
Breskir verkamenn aðhyllast þjóð-
nýtingu kolanámanna.
Símað er frá London, að stór-
fjelagsskapur námumanna hafi
sent út tilkynningu um það, að
þeir aðhyllist þjóðnýtingu nám-
anna.
Frakkar tveir ætla að fljúga yfir
Atlantshaf.
Símað er frá París, að tveir
flugmenn sjeu um það bil að fara
af stað I flugför yfir Atlantshafið.
Yerði veðurspár hagstæðar fara
þeir af stað í dag. Þeir ætla sjer
að lenda nálægt New York City.
Skógarbrunar í Svíþjóð.
Símað er frá Luleá að skógur
standi í björtu báli á 200 hekt-
ara svæði. Breiðist eldurinn út
með geysihraða.
Jarðspöll á Þelamörk í Noregi.
Símað er frá Osló, að geysilegt
jarðhrun hafi orðið í Lundi á
Þelamörk. Áætlað er að 3000 ten-
ingflmetr. hafi hrnnið 1 fljótið við
Lund.
(Lundur er hjerað í Þelamerk-
urfylki (Bratsberg Amti), fyrir
vestan Norsjö; 259,65 ferkílóm.
2702 íbúar 1920.)
Frá Vestmannaeyjum.
Vestmannaeyjum 18. júlí. FB
Tíðarfarið er heldúr að batna.
Dálítið af fiski hefir verið þurkað
síðustu daga.
Lundaveiði mjög lítil vegna
hægveðurs.
Unnið af kappi við spítalabygg
inguna og endurbætur á hafnar-
garðinum og verður bæjarbrygg-
jan lengd um 30 metra.
Einn bátur fjekk í fyrrinótt 3
tunnur af síld í reknet. Fimm mó-
torbátar eru farnir hjeðan til
Siglufjarðar til síldveiða.
Austan úr sveitum.
Þjórsártúni 18. júlí ’25. FB
Þótt allmargir sjeu farnir að
slá tún sín, verður ekki sagt að
sláttur sje byrjaður alment hjer
um slóðir. Hafa menn hliðrað sjer
hjá að byrja slátt vegna óþurk-
anna. Bót var að þurki.í gær, en
(um töðuþurk var ekki að ræða.
Þurkútlit dágott í dag; bjart yfir.
Talsverður vöxtur í ám og varla
veiðandi.
Frá Akureyri.
(Eftir símtali 17. þ. m.)
Tíðin.
Ágætisveður, og hefir svo verið
undanfarið. Er langt komið að
hirða töður þar nyrðra.
Síldin.
Einar 100 tunnur eru komnar á
land af síld á Akureyri.
Adam Poulsen til Akureyrar.
Yerið er að æfa leikrit Mol-
beehs Ambrosius. Búist við að
Adam Poulsen komi til Akureyr-
ar í sumar. Að undirlagi hans er
verið að æfa leik þenna.
Frá Vestfjörðum.
— Frá fsafirði er „ísafold“
skrifað 14. þ. m.:
Síldveiðarnar.
íSíldin er að koma. Reknetabát-
ur kom inn í gær með öll net full,
eða um 10 tunnur í net að meðal-
tali, um 220 tunnur í 20—30. Af
þecsari síld voru ekki saltaðar
nema 65 tunnur, hitt fór í bræðslu.
í dag fjekk anpar bátur um
60 tunnur í net. Síldveiðamenn
isegja, að síldin sje ekki farin að
vaða enn, átan sje neðarlega í
sjó. Aftur á móti sýnir fengur
þessa báts, að síldarmagn er fyrir.
Margir reknetabátar ganga hjeð-
an í sumar, og er tilætlunin að
salt hjer allmikið. Síldin er enn
mögur, en batnar óðum.
Framkvæmdir fjel. „Andvara.“
Á Önundarfirði er verið að
vinna að miklu mannvirki. Er
verið að reisa þar lýsisgeymi, sem
taka á 5000—6000 föt. Er það
feikna mikið ílát. Verksmiðjan á
Önundarfirði er nú orðin mjög
fullkomin, líklega með fullkomn-
ustu verksmiðjum á landinu, og
bryggjur og safnþrær stórar.
Fjelagið „Andvari,“ sem á
verksmiðjuna, ætlar að kaupa afar
mikið af síld í sumar. 1 því skyni
hefir það 2800 tonna bark á Siglu-
firði sem safna á í síld og stærðar
gufuskip, sem bæði á að draga
barkinn vestur og flytja síld
þangað, sem keypt verður í það.
Hefir heyrst, að „Andvari“ kaupi
síld af 20 skipum í sumar.
Vertíðin og grassprettan.
Vorvertíð vestanlands í meðal-
lagi. Óþurkasamt er nú um þessar
mundir. Grasspretta er mjög góð.
Sláttur er byrjaður víða, og er
það með langfyrsta móti.
Frá ísafirði.
ísafirði, 20. júlí. FB.
'Síldveiði í reknet: Saltaðar um
2000 tunnur (á Isafirði). Þurk-
laust enn. Töður farnar að skemm
ast. Búnaðarmálastjóri fór hjeð-
an í dag vestur á fjörðu, áleiðis
til Barðastrandar. Hefir hann
farið hringferð um Strandir og
Djúp.
Frá Borgarfirði.
Borgarfirði eystra, 20. júlí FB.
Húsbruni. Stúdentasöngvarar.
Stúdentasöngflókkurinn söng í
nótt eftir kl. 12. Húsfyllir. Á-
heyrendur ánægðir. — Hús Jóns
Björnssonar brann í fyrradag. Það
var vátrygt. íbúandinn var Jón
Jóhannesson kennari, og misti
hann aleigu sína. Munir hans voru
óvátrygðir. Óvíst er um upptök
eldsins.
Geysimikill hiti af sólu hjer í
gær og var þurkurinn óspart not-
aður til þess að þurka fisk og
töðu. Er heynýting góð og hafa
flestir þurkað það sem þeir áttu
úti af heyjum. Fiskafli batnandi.
Góður á Langanesi. H.
Yjer erum kaupendur að fiski fullverkuðum, hálfverkuðum of
ipp úr salti á ðllum útskipunarhöfnum í kringum landið.
GJÖRIÐ OSS TILBOÐ.
Útvegum með stuttum fyrirvara heila kolafarma með lsegstf
verSi hvert sem er á landinu.
Bræöurnir Proppé
Reykjavtk.
Frá Siglufirði.
(Eftir símtali 16. þ. m.)
Herpinótaveiði ekki byrjuð.
Enn er síld eigi farin að veiðast
í hringnætur þó veður sje hag-
stætt. Síldin er ekki í torfum sem
„vaða uppi.“ En mikið virðist af
henni í sjónum. Því stöðugur síld-
arafli er í reknet. 20—60 tunnur
fást á sólarhring á smábáta. Rek-
netaveiði er þó eigi stunduð nema
tiltölulega á fáum bátum. Fiski-
menn eiga von á að síldargangan
bieytist með næsta straumi, og
herpinótaveiði geti þá byrjað, ef
hagstæð veðrátta helst.
Síldveiðar Norðmanna utan
landhelgis.
Talið er að útgerð Norðmanna
til síldveiða utar. landhelgis, hafi
aldrei verið meiri en hún er í á,r.
Fjöldi af stórum skipum liggja
fyrir utan landhelgi, sem eiga að
taka við veiðinni og aragrúi síld-
veiðiskipa norskra er þar á sveimi.
-----«m>—■—
MINNINGARSJÓÐUR.
Oss undirrituðum er kunnugt
um, að Skagfirðingar hafa heima í
hjeraði byrjað á samskotum til
minningarsjóðs, er beri nafn Ólafs
sál. Briems frá Álfgeirsvöllum, og
1 varið verði, á sínum tíma, til al-
menns gagns fyrir Skagafjarðar-
sýslu, eftir því sem ákveðið verð-
ur í væntanlegri skipulagsskrá fyr
ir sjóðinn, er sýslunefnd semur.
Þareð vjer teljum líklegt, að
Skagfirðingar, sem búsettir eru nú
utan hjeraðsins, og ef til vill fleiri,
muni einnig vilja heiðra minningu
hins látna sæmdarmanns með því,
að leggja einhvern skerf í þennan
sjóð, leyfum vjer oss að láta þess
getið, að herra bankastjóri Eggert
Claessen í Reykjavík, hefir góð-
fúslega tekið að sjer að veita mót-
töku væntanlegu samskotafje hjer
syðra, til sjóðsins.
Yjer búumst við að sjóðurinn
verði stofnaður á 75 ára afmæli
Ólafs sál Briems, 28. janúar næst-
komandi, og verði ávaxtaður í
Söfnunarsjóði Islands.
p.t. Reykjavík 12. júní 1925.
Sigfús Jónsson, Jón Konráðsson,
Arnór Árnason, A. Kristjánsson,
Herm. Jónsson.
Heilsufarið
21. júní til 4. júlí.
Heilsufar enn sem fyr alstaðar
mjög gott. Fyrri vikuna komu
fyrir tvö tilfelli af taugaveiki í
Reykjaví'k, og vikuna sem leið
eitt tilfelli af barnaveiki. Kvef-
sóttin virðist nú vera á förum.
Ljósmæðraskólinn. Prófi í þeim
skóla var lokið 27. f. m. 13 stúlk-
ur gengu undir próf. Hlaut ein
ágætis einkunn, sex 1. einkunn og
sex 2. einkunn.
G. B.
ÆSK AN
Barnablað með myndum. Elsta*
stærsta, útbreiddasta og ódýrasta
barnablaðið á landinu.
Afgreiðsia Þórsgötu 4
Talsími 504. P, O. Box 12
Eimreiðin, 2. hefti 31. árg., eij
nýkomið út, og flytur að þessu
sinni ritgerðir, erindi, mannlýs-
ingar, kvæði, ferðasögu, sögur og
ritsjá. Fyrsta og lengsta ritgerðin
er eftir Guðm. Hagalín, og heitir:
Nýnorskt mál og menning. Fylgjá
henni margar myndir af helstu
skáldum og rithöfundum norskum,
þeim er skrifað hafa á nýnorsku
og fylgt þeirri stefnu, sem bak við
það liggur. Þá eru tvö kvæði eftir;
Jakob Thorarensen, Hinsti dagur,
og Vígsterkur, Þorkhausarnir og
þjóðin, erindi það, er Guðmundur;
yfirbókavörður Finnbogason flutti
hjer í vetur, Gr. Ó. Fells skrifar,
um Sig. Kr. Pjetursson, manninú
og rithöfundinn, fylgir mynd a£
Sigurði; Tvær söngvísur, þýddar
af Huldu, Yjelgengi og vitgengi,
eftir ritstjórann, kvæði, Undirj
morgun, eftir Höllu Loftsdóttur,
Ferð um Mið-Svíþjóð, með þrem’
myndum, Lífgjafinn, söguna,
hringhendu, eftir Skarphjeðinn og
loks ritsjá eftir ritstjórann.
Heiðursmerki. Garðar Gíslason.
stórkaupmaður, Gísli Johnsen kon-
súll, Magnús Sigurðsson banka-
stjóri, Sæmundur Halldórssori-
kaupmaður, og Sigurður Kristins-
son forstjóri hafa verið sæmdir
riddarakrossi Dannebrogsorðunnar
en Ágúst Flygenring kommandör-
krossi II. gráðu.
Um 500 itunnur af síld hafa
vjelbátar úr Keflavík veitt undan-
farið vestur í Jökuldjúpi. Hefir
öll sú síld verið lögð inn á íshús
og fryst og á að geymast til ver-
tíðarinnar.
Dánarfregn. 16. þ. m. andaðist’
á Hellissandi, Yaldimar Ármann,
verslunarstjóri, ungur maður og
drengur hinn besti.
Aflinn á öllu lapdinu var í fyrrá
um þetta leyti talinn 210,000 skpd.
eða 24,000 skpd. minni en hann eii
í ár (sbr. skýrslu Fiskifjelagsiné
á öðrum stað hjer í blaðinu.)
------------------—
Stúdentarnir læra að fljúga.
í ráði er, að innan skamms-
verði komið á kenslu í fluglist við
háskólana í Oxford og Gambrid-
ge, og á það að vera sjerstök
námsgrein við háskólana. Hefir
herstjórnin breska ákveðið að
senda háskólunum nokkrar flug-
vjelar, sem nota á við kensluna.
Verði reynslan sú, að stúdentarn-
ir taki vel þessari nýjung, verðuri
samskonar kensla látin fara frain
við fleiri enska háskóla.