Ísafold - 14.06.1928, Side 1
Afgreiðsla
f Austuratræti 8.
Árgangnrinn
kostar 5 kr.
Ojalddagi 1. júií
fóstbox 697.
Vikublað Morgunblaðsins.
Elsta og besta
frjettablað landsins
Jón Kjartansson
Valtýr Stefánsson
ritstjórar
Sími 500.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
Oisóknar»ðið
gegn pðlitiskum andstœðingum i opinberum
trúnaðarstfidum.
Peningalystarleysi — bitlingar og ný embætti.
Eftir að núverandi stjórn var
setst við stýrið, fór fljótt að brydda
á því, að hún vildi ekki aðra í
opinberar trúnaðarstöður en
trj'gga pólitíska flokksmenn. Þeg-
ar velja átti menn í slíkar stöð-
ur, var ekki spurt um hæfileik-
ana til þess að gegna stöðunni,
heldur um pólitískar skoðanir
manna. Sá sem trúði á Tíma- og
sósíalistaklíkuna, sem stjórnar
þessu landi, var fullfær í hvaða
stöðu sem í boði var. En væri
nokkur veila á trú hans var hann
„óalandi og óferjandi" til hvers
sem var.
Stjórnin var ekki fyr setst á
laggirnar en það kom í ljós, að
hún fór að búa til alskonar bitl-
inga handa gæðingum sínum. —
Þaunig skipaði hún einn foringja
sósíalista til þess að rannsaka hjá
embættismönnum. — Þrjá menn
(einn sósíalista og 2 Framsóknar-
menn) skipaði hnn í sparnaðar-
eða ríkisgjaldanefndina svo-
nefndu. Kostar nefnd þessi að
sjálfsögðu mörg þúsund ltrónur.
því upplýst er, að hver nefndar-
maður fær kr. 17.28 á dag. Var
farið fram á 5000 kr. fjárveit-
ingu á fjáraukalögunum fyrir á:r-
ið 1927 handa nefndinni, en sú
upphæð á eftir að aukast stórum
ennþá. Verk ríkisgjaldanefndar
var mjög auðvelt að vinna á
skrifstofum stjórnarráðsins, án
nokkurs verulegs aukakostnaðar.
Næsta r skref stjórnarinnar var
að stofna mörg ný embætti, sem
hún gat deilt út á meðal gæðinga
sinna. Þannig stofnaði hún 8 rík-
islöggæslumenn og dreifði þeim
út um landið. Embættismanna-
fjölgun þessi kostar ríkissjóð um
30 þús. kr. á ári.
Yms fleiri ný embætti eða bitl-
ingar liggja eftir stjórnina. Þann-
ig fjelck hún Björn frá Dverga-
steini, með 400 kr. laun á mán-
uði, til þess að grúska í áfengis-
lvfseðlum. Hefir klerkur gefið út
nokkrar skýrslur um starf sitt og
kostar sri útgáfa aukreitis marg-
ar þús. kr. Þá hefir stjórnin ný-
verið búið til nýtt hálaunað em-
bætti handa Ólafi Thorlaeiusi
lækni í Búlandsnesi. Á hann að
hafa eftirlit með framkvæmd
berklavarnalaganna. Sonur lækn-
isins, Sigurður, hafði föst laun
hjer í vetur, 150 kr. á mánuði;
enginn veit fyrir hvað. Og nú er
þessi efnilegi unglingur farinn út
í lönd, til þess að nema ilmvatna-
gerð. Fjekk hann að sögn ríflegan
stvrk úr ríkissjóði til fararinnar.
Fullyrt er að stjórnin hafi áður
verið búin að greiða Helga, syni
Lárusar alþm. á Klaustri, ríflega
fúlgu til utanfarar; en um er-
indi hans’ veit enginn!
H.
Þrátt fyrir öll þessi nýju em-
bætti og bitlingana mörgu, þurfti
stjórnin enn meira til þess að
geta rjett sem flestum sinna gæð-
inga einhvern bita. Var þá það
ráð tekið, að bola burt úr trún-
aðarstöðum pólitískum andstæð-
ingum, þar sem því varð við kom-
ið. Hendi næst var áfengisverslun
ríkisins. Var þar úr miklu að
moða.
Snemma s. 1. vetur fyrirskipar
stjórnin, að sagt skuli upp öllum
starfsmönnum áfengisverslunar
innar, bæði þeim er unnu við að-
alskrifstofuna hjer í Reykjavík
og birgðasöluna, svo og öllum
starfsmönnum við útsölurnar út
um land. Með þessari röggsemi
gat stjórnin fengið um 20 nýjar
stöð'ur til ráðstöfunar.
Afráðið mun vera að láta Guð-
brand Magnússon, kaupfjelags-
stjóra í Hallgeirsey fá forstjóra-
stöðu áfengisverslunarinna'r. Mun
eiga að búa til tvær til þrjár stöð-
ur úr því starfi er nviverandi for-
stjóri hefir. Guðbrandur á að fá
um 10 þús. kr. árslaun, og að-
stoðarmennirnir (lyfjafræðingur
o. fl.) eitthvað svipað. Helgi Lár-
ursson frá Klaustri ,kvað' eiga að
vera Guðbrandi til aðstoðar. Rang
æingar og Skaftfellingar þekkja
verslunarhæfileika Guðbrands og
Helga, því þeir hafa starfað við
kaupfjelögin þar eystra. Þótt ein-
hver kynni að efast um hæfileika
þeirra á þessu sviði, efast víst eng-
inn um hitt, að þeir eru dyggir
þjónar Tímaklíkunnar.
í 9. g'r. reglugerðar frá 18. júlí
]922, um sölu og veitingar vína,
er ákveðið að bæjarstjó'rnir geri
tillögur um hverjum skuli falið
leyfi til veitinga. Þeir útsölumenn,
sem liaft hafa þessi störf með'
höndum, voru skipaðir samkv. til-
lögum hlutaðeigandi bæjarstjórn-
ar.
Dómsinálaráðherrann núverandi
skipaði svo fyrir s. 1. vetur, að
öllum útsölumönnum utan Reykja-
víkur (nema, á Akureyri), skyldi
sagt upp. Og nú hefir hann valið
nýja menn í þessar stöður. Ekki
samkvæmt tillögum hlutaðeigandi
bæjarstjórnar, því þær hafa ekki
verið spurðar ráða; heldur hefir
ráðherrann farið landshornanna á
milli og leitað að pólitískum vika-
piltum til þess að setja í þessar
stöður.
Þannig ljet hann afdankaðan
kaupfjelagsstjóra austan úr Mýr-
dal, Bjarna Kjartansson, taka við
útsölunni á Siglufirði af Helga
Hafliðasyni, kaupmanni.
Á ísafirði kom Guðmundur Pjet
ursson, fyrv. bæjargjaldkeri, í
stað Ólafs Pálssonar, kaupm.
Til þess að taka við útsölunni
i Hafnarfirði af Böðvari Böðvars-
syni, kaupm., var óþektur maður
sóttur til Noregs. Yeit blaðið eng-
in deili á honum önnur en þau,
að hann kvað heita Bjöfn Sigur-
björnsson.
f Vestmannaeyjum verður fyrir
valinu fsleifur Högnason, kaup-
fjelagsstjóri, vildarvinur bolsa- og
Tímaklíkunnar. Áður hafði þar
útsöluna Sæmundur Jónsson, kaup
maður.
Á Seyðisfirði hlaut bnossið Guð
mundur Bjarnason, kaupfjelags-
stjóri, tók liann við af N. C. Níel-
sen kaupm.
Á Akureyri var engin breyting
gerð, enda mun ekkert að atbuga
við trúarsannfæringu Jóns Stef-
ánssonar, sem hafði útsöluna með
liöndum þar.
Á það var minst hjer að fram-
an, að dómsmálaráðherra hafi
ekki spurt bæjarstjórnir ráða áð-
ur en hann skipaði menn í þess-
ar stöður. Ffefir hann þar með
brotið rgj. frá 18. júlí 1922. En
ráðherrann hefir vafalaust óttast,
að bæjarstjórnirnar kynnu að
vilja benda á aðra menn en hina
xitvöldu. Þess vegna hefir hann
tekið það ráð, að brjóta lögin einu
sinni ennþá, til þess að fá sinn
vilja í gegn.
„Það' er lítið sem hundstung-
an finnu'r ekki“ segir máltækið.
Svipað má segja um stjórnina,
■ þegar um það er að ræða, að
finna bitlinga lianda gæðingum
' sínum.
! Enginn verður feitur af þóknun
' þeirri, sem greidd er fyrir að
starfa í yfirskattanefnd hjer á
landi. Þó mátti ómögulega sleppa
1 þeim bita í munn stjórnarand-
stæðinga nú í vór, þegar skipað
var í yfirskattanefndir. Leitað var
að leiðitömustu gæðingum bolsa-
og Tímaklíkunnar til þess að koma
í þesssar stöður. (Þó hikaði stjórnin
við að hafa yfirskattanefndina ein
lita hjer í Reykjavík). Og svo var
ákefð stjórnarinnar mikil, að hún
gaf sjer ekki tíma til að athuga
livort menn þeif, sem hvin skipaði,
mættu gegna starfinu. Henni var
nóg að vita um trú mannanna!
Kom það því allvíða fyrir, að
stjórnin í bráðlætinu skipaði menn
úr undirskattanefnd í stöður þess-
ar! Sýslumenn þurftu hjer að leið
rjetta flónsku stjórnarinnar, og
fór hún þá að leita fyrir sjer um
aðra menn rjetttrúaða og voru
þeir skipaðir!!
III.
Ekki alls fyrir löngu gat Tím-
inn þess, að það væri sameigin-
legt með öllum Framsóknarmönn-
um, (og sósíalistum), að þeir
liefðu ekki minstu lyst á pening-
um úr ríkissjóði. Þetta blað spurð-
Nobile er á lífi.
Hann „Ienti“ á ísbreiðu 45 kílometra norður af Spitzbergen.
Loftskipið gereyðilagt — Tveir skipverjanna meiddir.
Khöfn, F.B. 10 júní.
Frá Kingsbay er símað: Skip-
stjórinn á Citta di Milano kveðst
hafa haft radiósamband við No-
bile nokkrum sinnum í gær. Seg-
ist Nobile hafa lent við Foyns-
eyju, sem er smáeyja að norðan-
verðu við Norðaustur-Spitzber-
gen. Hyggur skipstjórinn, að all-
ir skipsmenn loftskipsins sjeu á
lífi. Álítur hann ólíklegt, að loft-
skeytin sjeu fölsuð. Riiser Larsen
flýgur af stað til Foyneyja undir
eins og veður leyfir.
Khöfn, F.B. 11. júní.
Vissa er fengin fyrir því, a&
Nobile hefir sent skeytin sem
Citta di Milano hefir móttekið-
Náði skipið radiosambandi við
Nobile aftur í gær. Lendingar-
staður Nobiles er tuttugu og
fimm kílómetrar austan við'
Foyneyjuna, en fjörutíu og
fimm norðan við Spitzbergen..
Víða sprungur í ísnum og erfitt
mun reynast að komast til lands.,
Loftskipið eyðilagt. Tveir 'skip-
verjar meiddir. Riiser-Larsen hef'
ir ráðlagt að fá rússneskan ís-
brjót til hjálpar.
Skip Nobile „Citta di Milano“.
ist þá fyrir um það, hvað Ásgeir
Ásgeirsson þm. V. ísfirðinga gerði
við j)á miklu fúlgu, 14—16 þús.
kr., er hann fengi í laun á ári
fyrir ýmiskonar störf. Þessari fyr-
irspurn hefir Tíminn ekki svarað
ennþá. Hann er e. t. v. að leita
sjer upplýsinga.
Hjer að framan hafa verið
nefnd allmörg dæmi, er sýna að
Framsókna'rmenn og sósíalistar
eru ekki svo lystarlausir á pen-1
inga sem af er látið í Tímanum.
Og enn er ótalið ýmislegt, sem
bendir til þess, að þessir menn1
hafi ekki aðeins fulla lyst á pen-
ingum, heldur sjeu þeir gráðug-!
ir í jiá!
Menn skyldu ætla, að það hefði
verið nægilegt fyrir stjórnina,1
fyrst um sinn m. k., að' fá ráð á i
öllum nýju embættunum, sem hún
stofnaði, bitlingunum mörgu og
þeim stöðum, sem hiin gat ráð-
stafað án þess að þurfa að leita
til þingsins (áfengisverslanirnar,
skattanefndir o. s. frv.). Sjálf-
j sagt skifta þeir tugum, stjórnar-
| gæðingarnir, sem komust í þess-
j ar stöður allar.
En þó nægði þetta ekki.
'i Á síðasta þingi flutti stjórnin
! eða hennar lið, mörg frumvörp
' sem voru þess eðlis, að þau gáfu
stjórninni aðstöðu til þess að
veita embætti nýjum mönnum. Er
það þegar farið að koma í ljós,.
livað fyrir stjórninni liefir vakað,
er liún kom með þessi mál inn á.
Jnngið.
Þannig má nefna bráðabirgða
ungmennafræðslu í Reykjavík. —
Þar eru búin til tvö föst embættí,.
og hefir stjórnin þegar ákveðið
menn í stöðurnar. Á sósíalistinn
Ingimar Jónsson á Mosfelli að
vera hæstráðandi í skóla jtessum.
Komið er í ljós hvað m. a. hef-
ir vakað fyrir stjórninni með
breytingunni á Landsbankalögun-
um. Það var að koma sínum
mönnum að í yfirstjórti bankans.
Stofnað var nýtt bæjarfógeta-
embætti á Norðfirði, og er það
að sögn ætlað syni Ingvars Pálma-
sonar, alþm.
Síldareinokunin hefir þegar ver-
ið látin gefa álitlega bitlinga, þar
sem framkvæmdarstjórarnir þrír
hafa 15 og 12 þús. kr. árslaun.
Þar fjekk Pramsóknarmaðurinn
Ingvar Pálmason loks lystina, og
kommúnistinn Einar Olgeirsson!
Væntanlega mun það koma í
ljós síðar, hvað stjórnin hefir ætl-
að sjer með frv. um samstjórn
tryggingarstofnana landsins. Þá
upplýsist e. t. v. hitt einnig, hvers
vegna forstjóri stofnunar þessar-
ar mátti ekki hafa sje'rþekkingu
á tryggingarmálum!
Einnig mun það upplýsast áðnr