Ísafold


Ísafold - 01.12.1928, Qupperneq 1

Ísafold - 01.12.1928, Qupperneq 1
AfgreiSsla f Auatunitræti 8. Árguugurizm kXMtar 5 kr. ðjalddagi 1. júli Póstbox 697. Vlkublað Morgunblaðsins. 53. árg., 65. tbl. — Laugardaginn 1. desember 1928. l&lsta og beata frjettablaö landsins Jón Kjartansson Valtýr StefánssoD ritstjórar Sími 500. Isafoldarprentsmiðja h.f. 1. Islendingar liáðu hvíldarlítið baráttu um rjettindi landsins frá því um 1830, er Baldvin Einarsson hóf kröfuna um endurreisn Al- þingis, þangað til 1918, er Danir viðurkendu fullveldi ís- lands. — Saga þeirrar baráttu er ennþá órituð, en nú er saga Jóns Sigmrðssonar í smíðum og verður þar gerð ítarleg grein fyr- ir hinum fyrsta þætti baráttunnar fram að 1874. En um miðþátt liennar hefir ennþá lítið sem eltk- ert verið ritað, og má ekki öllu lengur við svo búið standa. Bene- dikt Sveinsson var þá oddvit. Is- lendinga og var þá við óvenju- lega raman reip að draga, er of- ríki og ójöfnuður hægri manna var sem mestur í Danmörku. Varð' því sjálfstæðisbaráttan á þeiin árum ákafléga erfið og mæðusöm, enda veitti þá ekki af allri hinni óbil- andi stefnufestu og óslökkvandi hugsjónaást Benedikts Sveinsson- ar til þess að knýja íslendinga til sóknar. Vantár ennþá mikið á, að íslendingar kunni að virða þann mann svo sem þeim væri skylt. Hinn síðasti þáttur baráttunnar er öllum í fersku minni ennþá, og mun enn langt í land áður en vjer getum kveðið upp óhlutdræga dóma um þau tíðindi, sem þá gerð- ust. En víst er um það, að aldrei verða allar minningar frá því tímabili glæsilegar. Vopnaburður Islendinga var þá oft ófagur, enda börðust þeir um þær mundir ekki síður við sjálfa sig en við Dani. Flokkadirættir höfðu verið all- miklir hjer á landi alla stund síð- an er stjórnarskrár-frumvarp dr. Valtýs Guðmundssonar sá dags- ljósið, en þeir færðust í algleym- ing eftir 1904, er þingræðis-öld hófst hjer á landi. En þrátt fyrir alt urðu leikslok þau, að vjer átt- um fullkomnuin sigri að fagna 1918, og mun tvent hafa valdið þar mestu um: miklar og óvæntar efnalegar framfarir hjer innan- lands og tíðindi þau, er gerðust í álfunni, er alt gekk úr grópum af völdum styrjaldarinnar miklu. — Hjer skal eklci minst á foringja íslendinga á þessu síðasta tímabili sjálfstæðisbaráttuunar, en eins íit- lendings skal getið,sem vegnastöðu sinnar gat orðið oss að meira liði en nokkur annar og varð það líka. En sá maður var Friðrik konung- ur hinn áttundi. Hann átti áreið- anlega frumkvæðið að því, er nefnd íslenskra manna og danskra var skipuð til þess að rannsaka og gera tillögur um samband land- anna 1907. Og þó að íslendingar vildu ekki aðhyllast frumvarp það -1928 Fullveldinu fagnað 1. desember 1918. Laust fyrir hádegi hinn 1. desember 1918 tók fólk að streyma að Lækjartorgi. Fyrir framan Stjórnarráðið söfn- uðust þeir, sem sjerstaklega voru boðnir, svo sem ræðismenn erlendra rikja, embættismenn, blaðamenn o. s. frv., én meðfram brautinni á stjómarráðsblettinum stóðu sjóliðar af danska varðskipinu heiðursvörð. Sigurður Eggerz, þá- verandi fjármálaráðherra flutti ræðu, og lýsti yfir þvi, að upp frá þessari stundu væri ísland fullvaida ríki. Síðan var íslenski fáninn dreginn að hún á stjórnarráðshúsinu i fyrsta skifti, en varðskipið heUsaði honum með 21 fallbyssuskoti. — Fögnuður var tiltölulega lítili í bænum þennan dag, og olli því spanska veikin, sem þá hafði herjað hjer i 3 vik- ur og lagt hundruð manna i gröfina. til sambandslaga, sem sú nefnd bar fram, þá verður því aldrei neitað, að íslensku nefndarmenn- irnir liöfðu þokað dönsku nefnd- armönnunum furðu langt áleiðis til rjetts skilnings á málstað vor- um. Friðrik konungur mun hafa veitt þeim íslendingunum drjúgan stuðning, enda sagði hann við þá að nefndarstörfum loknum, að liann liefði veitt þeim alt það lið, sem honum hefði verið unt. („Jeg liar gjort alt for Dem, som en konstitut’onel Konge kan göi’e“). Friðrik konungur varð fyrstur allra konunga vorra til þess að líta á' íslands mál frá íslensku sjónarmiði. Öllum lcom á óvart, er liann nefndi ísland ríki á Kolvið- arhól, og er ekkert vissara en að liann mismælti sig elcki, svo sem Danir vildu halda. Árinu áður liöfðu íslenskir blaðamenn lýst því yfir, að þeir vildu ekki, að ísland yrði rílci („ísafold“, 14. nóvember 1906). Friðrik konungúr mun ekld hafa aukið vinsældir sínar í Dan- mörku með þessu fylgi sínu við málstað íslendinga, en hjer á ligndi ætti minning hans aldrei að fyrn- ast. 2. Hinar miklu framfarir og stakka- skifti íslenskra atvinnuvega. hefj- ast eftir að íslandsbanki var stofn- aður (1904) og ritsímasamband fengið við umkeiminn (1906) .Ekki skyldi oss íslendingum gleymast, hve mikinn þátt þau tíðindi áttu í lieppilegum úrslitum sambands- málsins, enda vitnaði Záhle for- sætisráðherra til framfaranna á Is- landi, er hann lagði sambandslaga- frumvarpið fyrir ríkisþingið 1918. Hjer fara á eftir nokkrar tölur, sem menn hafa gott af að átta sig á. Skal þá fyrst minst á tekjur og gjöld landssjóðs. Ár. Tekjur. Gjöld. 1880 390,817 344.072 1890 589,866 483,277 1900 815,488 791,177 1910 1,692,186 1,777,901 1917 14,642,871 13,858,026 1918 10,488,189 10,193,388 1919 16,425,901 16,693,325 1920 16,639,999 16,111,786 1921 12,851,791 12,161,785 1922 10,221',163 12,136,209 1923 8,106.675 10,*341,378 1924 11,148,442 9,503,352 1925 16,034,169 10,910,711 1926 12,437,357 12,640,685 Utfluttar vörur námu: Ar 1900 ... ... 9,000,000 kr. — 1910 .... ... 14,406,000 — — 1917 .... ... 29,715,000 — — 1918 .... ... 36,920,000 — — 1919 ... ... 75,014,000 — — 1920 .... ... 60,512,000 — — 1921 ... ... 47,504,000 — — 1922 ..., — 1923 ... ... 58,005,000 — — 1924 ..., ... 86,310,000 — — 1925 ... ... 78,640,000 — — 1926 ... ... 53,070,000 — En innfluttar vörur: Ár 1900 ... ... 6,528,000 kr. — 1910 ..., ... 11,323,000 — — 1917 ... ... 43,466,000 — 1918 ... ... 41,028,000 — — 1919 ... ... 62,566,000 — — 1920 ... ... 82,301,000 — — 1921 ... . .. 46,065,000 — — 1922 ... ... 52,032,000 — — 1923 ... ... 50,739,000 — — 1924 ... ... 63,781,000 — — 1925 ... ... 70,191,000 — , — 1926 ... ... 57,767,000 — Þess þarf nú væntanlega ekki að geta, að þessar töiur verður að' endurmeta að því er til hinna síð- ustu ára kemur, því að hjer er reiknað með seðlakrónum, en ekki. gullkrónum, og ekki haft tillit til þeirra breytinga, sem orðið hafa á verðgildi seðlakrónunnar, og hefir þó einkum einu sinni, haustið 1925, orðið ákaflega snögg breyting á gildi liennar. En það mun þó aldrei verða vefengt, þrátt fyrir alt og alt, að lijer liafa gerst stórfeldar og liraðstígar framfarir á síðustu ár,atugum, þó að miklu muni, að þær hafi náð til allra atvinnu- greina landsmanna. Einkum hefir annar liöfuð-bjargræðisvegur ís- lendinga, landbúnaðurinn, orðið hart úti, því að’ þó að vitanlega megi benda á ýmsar mikilvægar framfarir í sveitum, svo sem kaup- fjelagsskapinn, — þar sem honum er st jórnað af skynsamlegu viti og samkvæmt heilbrigðum viðskifta- reglum, — aukna jarðrækt, betri nýting áburðar, hollari og vist- legri híbýli o. s. frv., — þá er nú svo komið, að landbúnaðurinn er í raun og veru orðinn ófær til þess að keppa um vinnukraft við sjáv- arútveginn. Tölurnar tala: 1917 vcru fluttar út landvörur fyrir 10,5 milj., en sjávarafurðir fyrir 26,3 milj., 1919 er hlutfallið 10,5. milj.: 26,3 milj., 1919 23,9: 50.1» 1920 9,5: 50, 1921 7,1: 39,7, 1922 7,4: 41,9, 1923 6,9: 49,7, 1924 13,2:. 72, 1925 7,6 : 70, 1926 7,3 : 45. — Þessar tölu lýsa ægilega,- hvílík- ur nú er orðinn máttarmunur land- búnaðar og sjávarútvegs. Enginn íslendingur, sem hefir ást á heil- brigðu og óspiltu sveitalífi og kann nokkur skil á þeim menn- ingargróðri, sem hingað til hefir þó þrifist í sveitum landsins, get- ur horft rólegur á þann barningr sem sveitabóndinn verður nú að þreyta gegn andviðri og öfug- streymi. En engum heilvita manni ætti að geta komið til hugar, að þetta mikla mein verði bætt með skömmum og flokksæsmgum. Ef menn brjóta alt þetta mál til mergjar iaf skynsamlegu viti og með rólegum geðsmunum, munu menn væntanlega verða á eitt sátt- ir um, að engar ráðstafanir muni geta reist við landbúnaðinn, ef meginhjeruðum landsins er eigi sjeð fyrir svo greiðum og traust- um samgöngum sem þeim, er nú gerast bestar í Evrópu. Annars lilýtur þetta nauðsynjamál að vekja margvíslegar spurningar í hugum hugsandi manna. Verður vorri fámennu þjóð kleift að halda öllum hinum víðlendu og strjálu

x

Ísafold

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.