Ísafold - 01.12.1928, Síða 2

Ísafold - 01.12.1928, Síða 2
z I S A F 0 L D hjeruðum íslands bygð'um á kom- andi öld? Mun ekki hitt, að lands- lýðurinn færist saman í megin- hjeruðin, en útkjálkamir að minsta kosti fari í auðn? Engum mun sú hugsun ljúf, að nokkur hygður blettur þessa lands verði að þúst. En hvers er að vænta, þar sem hlutfall landmegins og þjóðmegins er í svo háskalegu mis- rærni, sem hjer á íslandi?------ Um framsóknarvilja og orku þjóðarinnar á þessum áratugum mætti rita langt mál. Vjer erum hyrjendur, landnámsmenn í gömlu ■sögulandi og ráðnir í því að skapa nýja sögu, námfúsir nýsveinar í skóla Evrópumenningarinnar, en fomlyndir og fastheldnir á gömul •verðmæti. Eða svo ættum vjer að vera! Einskis er betra að minn- ast en þess, hve mikið vjer höfum numið af Evrópuþjóðum á síðustu tímum. Vjer eigum nú Evrópu- mentaða söngmenn og tónlistar- menn, myndhöggvara og málara, «g hafa sumir þeirra hlotið mikla viðurkenning í öðrum löndum. Jeg ■er óviss um, að margir Islend- ingar kunni að meta þann sigur, sem íslenskir málarar unnu, er þeir sýndu verk sín í Danmörlc •og á Þýskalandi síðastliðið ár. Hinum útlendu dómurum kom nokkurn veginn saman um. að listamenn vorir væri að vísu læri- ■sveinar útlendrar listmenningar, en þó brytist fram í verkum sumra þeirra eitthvað nýtt, — náttúra nýs lands og nýrrar þjöð- ar, — eitthvað, sem væri áður •ósjeð og óþekt. Hinir snjöllustu þeirra hafa kunnað að læra. En allur rækilegur og djúptækur lær- dómur gerir mennina sanna og sjálfstæða, — kennir þeim að uppgötva það, sem mest er um vert: sjálfa sig. — Einnig má minnast þess í þessu sambandi, að nýlega fór flokkur íslenskra leik- fimiskvenna til annara landa, og vakti þó nokkra eftirtekt, svo að jafnvel útlendir kunnáttumenn á því sviði dáðust að æfingunum og töldu sig geta lært nokkuð af þeim. Margir munu láta sjer fátt um finnast, að slíkra hluta 'er minst. En þeir menn, sem enn eru á ljettasta skeiði, og lauina þó að minnast þess, hvílíka óvirðing ís- lendingar enn þá lögðu á sjálfa sig fyrir 20—30 árum, láta ekki slík tíðindi sem vind um eyrun þjóta. Jeg minnist þess, að þegar jeg var í skóla vorum við skólapiltar sum- ir allhreyknir yfir því, að einn nafnkunnur sjómaður að vestan hafði orðið háseti á „Láru.“ Börn vorum við að vísu, en eldri kyn- slóðin var ekki miklu stoltari eða djarfsýnni. „Miklu tíðkast það nú meir en áður, að íslendingar fari utan,“ sagði einn skólakennarinn, ■er Davíð frá Stöðlakoti var sendur með fjárfarmi til Englands. Slíkur var þá þjóðarmetnaður íslendinga, — stundum að vísu hlægilega mik- ill í orði, en altof hlægilega lítill á borði.Allir hinir eldri menn voru í rauninni hjartanlega sannfærðir og sammála um, að enginn maður af íslensku bergi brotinn gæti staðist útlendum manni snúaing, allra síst í andlegum viðskiftum. Þetta var raunar þungbærasti og ískyggilegasti arfurinn frá liðn- um óláns öldum. Danir höfðu geng ið svo frá okkur, að við þorðum varla að líta á sjálfa okkur sem rnenska menn. 3. Hefir nú viðurkenning liins ís- lenska fullveldis knúð fram eða örvað þá framsókn, sem gert liefir vart við sig í svo mörgum efnum? Sumir íslendingar vilja helst vera þeirrar skoðunar. En þó er sann- ast að segja, að viðurkenning sjálf stæðisins hefir ekki út af fyrir sig valdið neinum straumhvörfum eða stefnubreytingum, nje haft nein veruleg álirif á þroska og sjálfs- traust þjóðarinnar. Hinn sami vilji og metnaður, sem leiddi til stjómmálasjálfstæðis, hafði gert vart við sig áður á nálega öllum sviðum þjóðlífsins. A næstu árum eftir 1874 þóttust menn verða var- ir við óvenjulega mikinn og al- mennan áhuga til umbóta og framsóknar ,eftir því sem menn höfðu átt að venjast og efni stóðu til. En hjer varð engin nýbreytni eftir 1918, enda urðum vjer fyrir því óhappi, að óvenjulega erfið ár fóru ’ í kjölfar sjálfstæðisins og bar því meir á önn og áhyggju á þeim árum, en fögnuði yfir fengnum sigri. En eins munu þó flestir hafa vænst: áð stjómmála- líf vort yrði heilbrigðara og frið- samlegra eftir en áð'ur. Sambands- málið hafði fram af þeim tíma kasað nálega öll önnur mál vor undir sjer, og bjuggust menn nú við, að íslensk flokkaskifting yrði mun eðlilegri og sæmilegri. Margir voru orðnir leiðir á hávaðamönn- um sjálfstæðisbaráttunnar og víg- orðum þeirra, og vonuðust nú eft- ir að betri og bjartari öld myndi rcnna upp. Hafa þær vonir rætst? Björnson sagði einu sinni, að aldrei væri logið meir í löndunum en á sunnudögum. En ef sunnu- dagjarnir eru nú orðnir svo rúm- helgir, þá væri ekki illa til fallið að velja einliverja daga, — og þótt ekki væri nema einn dag á ári — til þess að segja satt.Ættum vjer íslendingar að gefa öldum og óbornum það boðorð, að. aldrei mætti Ijúga á fullveldisdaginn, — síst prjedika lýgi í ræðu eða riti. Nú í dag er því best að segja att og er þá einsætt að svara purningunni hjer fyrir ofan neit- :ndi. Sjaldan eða aldrei hafa verið eitraðri flokkadrættir á íslandi, en síðan fullveldið var viðurkent. — Það má fullyrða, að vanstilling vor í umræðum um stjórnmál hefir aldrei verið eftirtektarverðari og iskyggilegri heldur en á þessum síðustu árum. Og stundum hefir hún náð slíku hámarki, að eklti Jón Magnússon. hefir mátt tæpara standa. Sumir vor á meðal hafa gert, alt sem í þeirra valdi Iiefir staðið, til þess að egna stjett á móti stjett, sveit- ina . móti sjávarsíðunni, verka- manninn móti verkafrömuðinum Og þjóðinni hefir verið prjedikað það eins og heilagt evangelíum, að stjettabarátta væri bæði nauð- syn og siðferðisleg skylda. Nú mun engum koma til hugar að neita, að Samtök verkamannn sjeu eðlileg og hafi jafnvel verið ólijá- kvæmileg, eftir að sjávarútvegur- inn komst í það liorf, sem hann er nú í. En hvaða vit hefir verið í því að egna bóndann móti sjávar- manninum? Hvað græðir bóndinn á því að liata útgerðarmanninn, án þess þó að geta náð sjer niðri á lionum, þ. e. a. s. lceppt um vinnukraftinn við hann? I'að er ekki auðsjeð, einkum þegar þess er gætt, að forvígismenn sjávarút- vegsins hafa margsinnis sýnt og sannað, að þeir Iiafa glöggan skilning á þörfum og nauðsynj- um landbúnaðarins og engu minni rækt til sveitanna, heldur en þeir bændaforingjar, sem liámæltastir eru og mikillátastir. Þetta er eitt hófuðeinkenni fullveldisáranna, að ákafar tilraunir hafa verið gerð- ar til þess að ala á stjettagrein- ing meðal þessarar vesælu þjóðar, þar sem fátækt og mannfæð hafa öldum saman sljettað alt þjóðfje- lagið, svo að vai-la hefir risið hundaþúfa upp úr þeirri óræktar- flöt. Og stundum liafa þessar til- raunir verið svo ofstækisfullar og öfuguggalegar, að sæmcl og full- veldi andans, — fullveldinu, sem í dag er einna tíu ára gam- alt, — hefir staðið háski af þeim. Jeg vil nefna aðeins eitt dæmi til þess að færa sönnur á þetta. Arið 1925 lagði Jón heitinn Magn- ússon frumvarp fyrir þingið, þar sem farið var fram á, að stofnuð yrði ríkislögregla á íslandi. Frum- varpið var ekki svo vel úr garði gert, sem venja var til um frum- vörp Jóns Magnússonar. En hvað gerðist? Andstæðingar stjórnarinn- ar, — Framsóknarmenn og Jafn- aðarmenn, — risu gegn frumvarp, inu eins og sjálfur djöfullinn liefði birtst í deildinni í eigin persónu og líkamlegri mynd. Þeim kom ekki til hugar, að ljá lið sitt til þess að umbæta frumvarp- ið, enda sáu þeir ofsjónir eða ljet- ust Sjá ofsjónir. Þeir ærðust að Jón Magnússyni vegna ]>ess, að hann hefði með þessu frumvarpi egnt „yfirstjettina“ í höfuð al- múganum og stofn,að til vígaferla og blóðsútliellinga. Slíkar ásakanir ljetu menn sjer sæma að bera á einn hinn frið'samasta og væru- gjarnasta mann, sem nokkru sinni hefir Hfað í friðsömu og væru- gjörnu þjóðfjelagi. Á þennan liátt var frumvarpið myrt. En sá ís- lendingur, sem nú er spurður, hversvegna við eigum engan vott eða vitund landvarna, — nema Sambandslaganefndin 1918 Sitjandi umhverfis borðið, talið frá vinstri: I. C. Christensen, Einar Arnórsson, Jóhannes Jóhannesson, Þorsteinn M. Jónsson, Bjami Jónsson frá Vogi, Christopher Hage, Erik Arup og Borgbjerg. Að baki þeirra standa skrifaramir. Myndin er tekin í lestrarsal Háskólans, þar sem nefndin hjelt fundi sina. þessa tvo fallbyssubáta, — og ekki einu sinni lögreglulið, sem geti haft hemil á g’ötu-uppþotum útlends eða innlends skríls, — hann verður að svara: „Vjer get- um ekki átt ríkislögreglu, svo mjög stöndum vjer öðrum þjóðum að baki að skapfestu og dreng- lyndi. Oss er að vísu kunnugt, að öll önnur ríki, bæði hvít, svört og gul, telja sjer skylt að eiga að minsta kosti svo miklum vopnuð- um mannsafla á að skipa, að-þau geti ráðið við óvopnaða óróaseggi og upphlaupsmenn. En vjer Is- lendingar treystum oss ekki til þess að færast slíkt í fang. Stjetta- hatrið er svo magnað hjer á landi, að stofnun ríkislögreglu hlyti óhjá kvæmilega að leiða til hinnar mestu ógæfu, — mannvíga og annars ófarnaðar.“ Slík orð og ummæli væru fullkomlega í anda stjórnarandstæðinga 1925, en ekki bera þau vott um mikið traust til þjóðarinnar eða mikla virðingu fyrir fullveldi hennar. 4. í dag höldum vjer fullveldishá- tíð og minnumst um leið, hvað vel okkur hafi tekist að vera hús- bœndur á voru eigin heimili um síðustu 10 ára skeið. Ef heitstreng- ingar tíðkuðust enn vor á meðal, færi vel á, að fullveldisdagurinn væri almennur heitstrengingardag- ur. Vjer skyldum þá strengja þess heit: að láta aldrei stjettagreining sprengja þetta fámenna og ein- steypta þjóðfjelag, þar sem ættir flestra manna koma saman, ef rak- tar eru 7—8 liði aftur í tímann; að gjalda jafnan varhuga við útlend- um yfirgangi og rangindum, eftir því sem við höfum vit og mátt til, en þola aldrei innlendum mönnum, hvort sem þeir eru valda- menn eða ekki, að fótum troða lög landsins eða rjett einstaklings- ins, því að oss er í sjálfsvald sett, að kenna slíkum mönnum betri siði og sæmilegri hegðun; að halla aldrei rjettum dómi, hvort sem í hlut á meiri maður eða minni; að gleðjast aldrei yfir óförum íslend- ings, en fagna í hvert sinn, er ís- lendingur vinnur sjer eitthvað til ágætis, og sýna þann fögnuð í orði og gerð! Árni Pálsson. ÓÖinn tekur tvo þýska togara. Vestmannaeyjum í gær. „Óðinn“ ltom hingað í morgun með tvo þýska togara, sem hann hafði tekið í landhelgi hjá Ing- ólfshöfða. Eru þeir báðir frá Bremerhafen og heita „Consul Pust“ og „Hanseat." Rjettarhöld voru í dag og með- gengu báðir skipstjórarnir og er búist við því að báðir fái fulla sekt, en dómur verður ekki kveð inn upp fyr en í kvöld eða fyrra- málið. „Óðinn“ var að koma úr leið- angri sem hann var sendur í til þess að sækja þá póstmálanefndar- mennina Jón Sigurðsson í Ysta- felli og Björn Hallsson á Rangá. Með skipinu voru ýmsir farþegar af Austfjörðum. Það fór hjeðan í dag til Reykjavíkur.

x

Ísafold

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.