Ísafold - 01.12.1928, Side 4

Ísafold - 01.12.1928, Side 4
4 í S A F 0 L D yrini fyrir og livað’ Búnaðarfjelag- inu, með því að jeg vissi það fyrir að til mín mundi verða leitað um ýmsar leiðbeiningar og mælingar meðan á byggingum stöðvanna stæði, varð það sanieiginlegt álit okltar .Tónasar Jónssonar að hent- ugast. mundi að gera Búnaðarfje- laginu reikning að hálfu fyrir þess um dögum, og það gerði jeg með góðri samvisku, því upplýsinga og mælingastörfin urðu meiri en jeg hafði búist við, meðan á stöðva- smíðinni stóð. I>á skal jeg geta þess, að jeg hefi mörgum mönnum leiðbeint víðsvegar, og ekki síst á Suður- landsundirlendinu, og engan reikn irig gert Búnaðarfjelaginu eða bændunum fyrir það. Þ.vkir mjer eigi líklegt, þegar jeg nú hefi skýrt málið frá minni hlið, að nokkur maður finni á- stæðu til þess að telja eftir þá þóknun sem Búnaðarfjelagið hef- ir greitt mjer, nje heldur að það þurfi að skapa hættuleg fordæmi. Reykjavík, 13. nóvember 1928. Bjarni Runólfsson, frá Hólmi. Aths. Það er bygt á misskilningi hjá Bjarni í Hólmi, ef hann held- ur að ísafold eða Morgunblaðið hafi verið að ,telja eftir' þá þókn- un, sem Búnaðarfjelag íslands hefir greitt honum. Síður en svo; Bjarni er alls góðs maklegur. Hinu hjeldum vjer fram, og erum sömu skoðunar ennþá, að fái þingeyskir bændur styrk af opinberu fje til þess að koma upp rafmagnsstöðv- um hjá sjer, eiga aðrir bændur rjett til styrks líka. — Hitt nær auðvitað engri átt, að Jónas Jóns- son, dómsmálaráðherra, hafi nokk- urt. úrskurðarvald um það, hvað Bfj. Isl. beri að greiða; hann er ekki í stjórn Bfj. Isl.-Og þótt for- maður eða framkvæmdarstjórar (búnaðarmálastj.) fjelagsins hafi ekki verið viðstaddir þegar Bjarni fór norður í vor, átti þetta ekki að koma að sök. Búnaðarfjelagið var búið að ráða Bjarna í þjónustu sína fyrir ákveðið dagkaup (12 kr. auk ferðakostnaðar), sem það greiddi honum eftir reikningi að afloknu starfi. Jónas dómsmálaráð herra hafði ekkert vald til þess að breyta þessum samningi. Ritstj. FyiirtilBðsla Miikaifliöts. Vatoafjelag verðuir stofnað á miðvikndaginn. í Rangárvallasýslu á nú að fara að mynda svokallað vatnafjelag, og hefir það fyrirhleðslu Markar- fljóts á stefnuskrá sinni. Er þetta alveg sjerstakur fjelagsskapur, sem ætlar að beita sjer fyrir því að lög um fyrirhleðslu Þverár og Markarfljóts, fái frámgang. Það má kalla að fjelagsskapur þessi liafi verið stofnaður í Fljótshlið hinn 23. september í haust. Var þar kosin nefnd m'anna til að íhuga og undirbúa málið og eru í henni þeir Sigurþór í Kollabæ, Guðjón hreppstjóri í Hallgeirsey, Ágúst hreppstjóri í Hemlu og Ingimundur bóndi í Hala. Hefir Búnaðarfjelagið stutt þá með ráð- ii m og hefir Pálmi Einarsson bun- aðarráðuuautnr mætt á fundum nefndarinnar. Fundur verður haldinn á mið- vikudaginn kemur og þá á að stofna hið svokallaða vatnafjelag. Skfilamðl Rangœinga. Á laugardaginn var hjeldu Rangæingar sýslufund Og voru skólamálin' þar tekin til umræðu. Kom þar fram tillaga um það að sýslunefnd Rangæinga skyldi ieggja fram fje til Laugarvatns- skólans, en sú tillaga var feld. Onnu rtillaga kom fram um að leita samvinnu við Vestur-Skaft- fellinga um skólamál, en hún var einnig feld. Sýslunefnd leit svo á, að með byggingu Laugarvatnsskólans, væri rofið alt skólasamband milli Ár- ness- og Rangárvallasýslu og sam- þykti því að skora á þingið að setja heimildarlög fyrir sýslu og bæjarfjelög að þau mætti starf- rækja lýðskóla með því fyrirkomu- lagi að nemendur fengi sltóla- rjettindi fyrir skylduvinnu. Þá var og samþykt að sýslan skyldi mynda sjóð til skólahalds í Rangárþingi, og er stofnfjeð 1000 krónur. [Tlánaðarlegar heilbrigðisjrjettir. Miðstöð Þjóðabandalagsins í Genf safnar heilbrigðisskýrslum úr öllum löndum heims. Víða eru sendar vikulegar yfirlitsskýrslur og sendar skrifstofu bandalagsins, en úr fjarlægari löndum eru skýrslur sendar mánaðarlega. Fram til þessa hefir Þjóðabanda lagið eigi fengið þessar skýrslur hjeðan. En nú hefir Guðmundur Björnson landlæknir tekið sjer .yrir hendur, að safna skýrslnm frá öllum hjeraðslæknum lands- ins, og senda bandalaginu mánað- aryfirlit. Jafnframt er ákveðið að vikuyfirlit verði gert fyrir Reykja- vík. Skýrslur lækna út um land eru sendar landlækni símleiðis. — Mánaðaryfirlitið fyrir október birtist hjer. Rvík Suður- land Vestur- land Norður- land Austur- land Sam- tals Hálsbólga 153 16 11 41 13 234 Kvefsótt 194 69 36 14 66 379 Influensa 350 157 140 579 111 1337 Kveflungnabólga 56 4 1 4 3 68 Lungnabólga (taksótt) .. 3 1 3 6 1 14 Iðrakvef 84 45 15 54 6 204 Taugaveiki 1 1 2 Mislingar 58 21 10 429 17 535 Barnaveiki 1 3 4 Gigtsótt 3 1 2 6 Barnsfararsótt 1 1 Rauðir liundar 2 2 Heimakoma 4 2 3 9 3 21 Hlaupabóla 2 5 6 2 15 Hjer eru talin þau tilfelli, sem læknar hafa sjeð. En í raun og vcru hafa t. d. inflúensa- og mislingatilfellin verið miklu fleiri en tölurnar segja til. Báðar þessar sóttir hafa verið einkar vægar, þó munu kveflungnabólgutilfellin flest komin til upp úr inflúensu. G. B. Hiun forni bðknll í Skálholtskirkju. Myndin hjer er af hinum forna hökli, sem enn er notaður í Skál- holtskirkju, og margir hafa heyrt talað um. Hökull þessi er sennilega gerð- ur í tíð Jóns Árnasonar biskups á fyrri hluta 18. aldar. En bún- ingur hökulsins, myndasaumurinn í hinum gotneska krossi er mikið eldri, áreiðanlega frá kaþólsku tímunum. Sennilega er búningur hökulsins samtíningur frá höklum og kórkápum, og má vel vera, að sumt af honum sje með því elsta sem tii er hjer á landi af því tagi. Hökullinn er nú allur mjög slit- inn, enda er hann notaður enn, og oft handleikinn af gestum sem koma á staðinn og fá að skoða hann. Væri mjög æskilegt að hann kæmist sem fyrst á Þjóðminjasafn- ið til varðveislu. Húsbruni á Akureyri. Hús það sem sjera Geir Sæ- mundsson vígslubiskup á Akur- eyri átti, brann í gærkvöldi til kaldra kola á röskum klukku- tíma. Fólk bjargaðist ómeitt úr eldinum, en húsmunir brunnu, að mestu óvátrygðir. Um upptök eldsins er enn ókunnugt. Tókst að varna því að eldurinn bærist' í næstu hús. Oprentuð rlt og kvœðl sjera Matthíasar Jochumssonar. Eins og mörgum er kunnugt hefi jeg síðustu 3 ár verið að hóa saman brjefum og öðru óprentuðu eftir föður minn sáluga. — Fyrsta árið barst mjer ýmislegt, einkum brjef, næsta árið mimna og nú orðið kemur varla fyrir að nokkuð sehdist. Ræður þar auðvitað mestu að’ margt hefir glatast með árun- um, en þar næst veldur gleymska. Jeg er sannfærður um, að margir eiga í fórum sínum sitthvað óprent að í bundnu eða óbundnu máli eftir föður minn, og þeir hinir sömu mundu finna það, ef þeir vildu gera svo vel og rumska og fara að leita. Það er máske til mik- iis mælst af mjer að vera að ónáða menn, en þakklátur verð jeg hverj um, sem vill gera sjer ómakið og forða frá glötun og gleymsku þó ekki sje nema lítilli stöku eðastuttu brjefi. Mjer er áhugamál að' geta farið að láta eitthvað birtast af því, sem þegar er komið, og þá líka að geta nokknrn veginn áttað mig á, hve rítsafnið í heild á að vera stórt. Hjer um daginn gladdi það mig mjög að kona í Fnjóskadal, var svo væn að senda mjer vísur, sem hún hafði lært af móður sinni og jeg lærði sem bam í Odda og allir á heimilinu lærðu og rauluðu um stund, en sem jeg var buinn að gleyma að mestu Ieyti. Faðir minn hafði það til, að orða okkur .bræðurna saman við dætur kunningja sinna, þannig, að jeg fjekk unnustu útnefnda þegar jeg var þriggja ára, Gunnar bróð- ir minn aftur aðra, þegar hann var á svipuðu reki o. s. frv. Og svo orkti faðir minn undir okkar nafni ljóðabrjef eða ástavísur tn litlu stúlknanna. Þessar vísur, sem jeg gat um voru stílaðar til Yiggu á Selalæk frá Gunnari, en Vigdís þessi er nú valinkunn liúsfreyja í Hafnarfirði. Skal jeg leyfa mjer að setja hjer vísurnar til gamans og vona jeg að hvorki frú Vigdís þykkist við mig fyrir, nje Gunnar. Gunnar var í þá daga ætíð kall- aður Gaui, en hann er nú lyfsali vestur við Kyrrahaf. i i. Væna besta Vigga mín, vandi er nú að lifa. Mætti jeg vera að vitja þín, væri jeg ekki að skrifa. Jeg á að geyma bæ og bú, bæði slá og róa. Hirða lambið, kálf og kú, kríu, hrafn og spóa. Svo er hún litla systir mín, sem er kölluð Ela. Hún er mesta hljóðaskrín, hafi hún ei fullan pela. - v . -r . ^ I Efnið var það', Vigga mín: — vantar þig ekki koddaf — að biðja nú um blíðu þín og bjóða þjer heim að Odda. I Sykurmola sendi jeg þjer — svona rjett í spaugi, — innan í honum ástin er, unnusti þinn, Gaui. Jeg get ekki neitað því, að mjer hafa orðið vonbrigði að þvf^ hve dræmt hefir gengið að innheimta það litla, sem komið er af því mikla, sem jeg veit að' faðir minn sendi sitt í hverja áttina til kunn- ingja frá skrifborði sínu og ekki hefir komið fyrir almenningssjón- ir, en sem var þó margt þess vert. Jeg vil ekki fara að lýsa mínu vaxandi svartsýni á ódauðleika mannanna, jafnvel skáldanna af guðs náð — og á jeg þar að vísu aðeins við ódauðleikann í minni manna og þjóða (því um ódauð- leikann bak við tjaldið er jeg — viti menn — talsvert bjartsýnni). Jeg vildi aðeins með línum þess- Martha Sahl’s Husholdnings- skole, Helenevej 1A Köbenhavn V. Nýtt dag- og kvöldnámskeið byrjar í janúar og febrúar. Nem- endur teknir með' og áh heimavist- ar (með heimavist 125 kr. á mán- uði). Biðjið um skólaskýrslu. um ýta við' einum og öðrum, sem ætti vald á því að forða frá tíman- legri glötun einhverjum andan^ neista föður mas í iínu eða Ijóði Akureyri, 28.' okt. 1928. Steingrímur Matthíasson.. Frjettir víðsvegar aS. Önundarfirði, FB 22. nóv. Fiskafli hefir verið góður í haust og þar sem verðið er einnig gott má búast við góðri afkomu manna. Síldarbræðslan á Sólbakka hefir veitt nokkra atvinnu í sumar svo hagur almennings mun í góðu lagi. Getum vjer Önfirðingar með sanni sagt, að nú er góðæri fyrir oss. Unglingaskólinn að Núpi í Dýra- firði er í vetur sóttur af nokkrum Önfirðingum, svo sem venjuleg- ast endranær. Hann hefir nú eins marga nemendur og hann getur tekið' á móti eða 25 talsins. — Skólastjórinn er enn áhugasamur og ungur í anda, þ.rátt fyrir ald- ur sinn og langt starf. Trúir hann á framtíð skólansj vöxt bans og viðgang, eins og hann er sann- færður um þýðingu hans og ann- ara slíkra skóla fyrir þjóðina f heild sinni. Æskir hann því fast- lega, að meiri endurbætur verði gerðar á skólanum innan skams, heldur en þær, sem gerðar hafa verið nú undanfarin ár, og eru hinar myndarlegustu. — Kenslu- krafta hefir skólinn góða, einkum er Björn Guðmundsson ágætur kennari. Sjera Sigtryggur Guð- laugsson, skólastjórinn, hefir nú slept kenslu sjálfur, nema söng- kenslu. Rit Ungmennafjelaga fslands, Skinfaxi, er gefið út á Tsafirði í vetur. Rauðasandshreppi, FB 22. nóv. Að jarðabótum og byggingum hefir verið unnið alt að þessu. — Bráðapest í sauðfje hefir gert vart við sig á tveimur bæjum og var bólusett á öðrum þeirra. Almennur áhugi er á því að fá fje til ak- vegargerðar frá Rauðasandi a8 Skeri. Er það hið mesta nauð- synjamál, því á Rauðasandi eru góð skilyrði til landbúnaðar, en samgöngur erfiðar við Patreks- fjörð og yfir fjall að fara. Á Patreksfirði hefir verið nám- skeið í hjúkrun, vel sótt. í haust hefir verið leitt vatn í flest hús á Vatneyri, sem ekki höfðu vatns- leiðslu áður. — Síld liefir veiðst í firðinum, smásíld og hafsíld, og hefir fengist ágætur afli af vænura fiski á síldina. Smjörbítill og Gullintanni heit- ir gamalt æfintýri, sem frú Ing- unn Jónsdóttir hefir fært í letur og gefið út. Er það með myndum eftir Tryggva Magnússon. Mimu börn hafa gaxnan af æfintýrinu og það mun geta, vakið þau til um- hugsunar um gildi gleðinnar.

x

Ísafold

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.