Ísafold - 03.01.1929, Blaðsíða 1

Ísafold - 03.01.1929, Blaðsíða 1
Afgreiðsla f Austurstræti 8. Árgangurimi koatar 5 kr. öjalddagi 1. júlí Póstbox 697. Vfkublað Morgunblaðsins. 54. árg., 1. tbl. — Fimtudaginn 3. janúar 1929. Elsta og besta frjettablað landsins Jón Kjartansson Valtýr Stefánsson ritsf jórar Sími 500. Isafoldarprentsmiðja h.f. Frá stjúrnmálunum 1928 Ef tir J ó n Þorláksson. Stjórnmálasvipur ársins 1928 er, eins og vænta mátti, fyrst og fremst mótaður af samvinnunni og bandalaginu milli Alþýðuflokks- ins og Framsóknarflokksins. Ann- ar þessara flokka telur sig aðal- lega verkamannaflokk, hinn telur sig aðallega bændaflokk. Báðir eiga þeir sammerkt í því, að þeir setja markið ekki hærra en það, að telja sig fyrirsvarsmenn sjer- hagsmuna eða stjettarhagsmuna innan þjóðfjelagsins. Hið göfugra verkefnið, að vinna fyrir heill og hagsmunum alþjóðar — það eftir- láta báðir þessir flokkar góðfús- lega andstæðingum sínum, íhalds- flokknum og þeim Frjálslyndu. Hið langmerkasta, sem fram befir komið í þessari sambiið frá Alþýðuflokksins hálfu, eru hinar skýru yfirlýsingar, sem hr. Har- aldur Guðmundsson flutti af flokksins hálfu á landsmálafund- unum í haust, þess efnis, að Al- þýðuflokkurinn vill taka eignar- rjettinn að jörðunum af bændum, hefir þetta beinlínis á sinni stefnu- skrá og ætlar sjer að vinna a8 því. Formaður flokltsins Jón Baldvins- j son, var á þessum fundum, tóf þar til máls og galt þessu samþ/kki. Menn vissu nú áður, að Alþ.fiokk- urinn hefir það á stefnuskrá sinni, aS „þjóðnýta“ öll framleíðslu- tæki, og meðal þeirra eru titan- lega jarðirnar. En samt hefir ekki fyr en á þessu ári verið unt að fá alveg hrein svör um þetta frá ýms- um af helstu mönnum flokksins. Jeg minnist þess til dæmis, að á landsmálafundi á Akureyri fyrir fám árum var hr. Erlingnr Frið- jónsson spurður um það, hvort skilja bæri j>etta stefnuskráratriði þeirra svo, að flokkurinn vildi taka túnin af bændunum. Eftir ofurlitla um'iugsun svaraði hr. E. Fr. eitthvað á þá leið, að þeir vildu ekki tíka túnin af bændun- um, nema ai því leyti, sem þau væru stærri en þörf bóndans krefði. Nú liggnr þetta atriði j skýrt fyrir t’rá flokknum. Bænd- j urnir eiga tð fá að verða lands- sjóðsleiguliðir á jörðum sínum, | þegar búið er að taka af þeim; eignarrjettim. Valdhafarnir eiga 1 svo að skanta stærð túnanna og velja ábúencurna. Ekki er mðvelt að sjá hversu þessi enduPýjun á harðstjórn Haralds hárftgra gæti orðið verka mannastjett l’andsins sjerstaklega að liði, eða bett hennar hag. Miklu fremur er íætt við að svifting eignarjettariis mundi draga stór- um úr áhusa bændastjettarinnar á jarðrækt cg hverskonar býlabót- um, og þá im leið að clraga úr þeirri atvimu fyrir verkamenn, sem þessar indurbætur hljóta að veita. Sannldkurinn er víst sá, að þetta stefniskráratriði Alþýðu- flokksins er útlend kreddukenn- ing, sem leiðtogarnir hafa tekið ástfóstri við, og engum getur orðið t._ gagns í framkvæmdinni, öðrum en þeim valdhöfum, sem fá í sín- ar hendur þann rjett, sem sjálfs- eignarbændur landsins eiga nú. - Ennþá erfiðara mun þó verða að koma bændastjettinni í skilning um jjað, að ]>essi rjettarmissir muni verða henni sjálfri til blessunar. Af hálfu Framsóknarflokksins hefir sambúðin við bandamennina mótast aðallega af eftirlátssemi, bæði í stefnumálum og smámálum. Eins og kunnugt er hefir Fram- sóknarflokkurinn haldið mjög fram samvinnumálum, og jafnvel stundum talið samvinnustefnu vera nokkurskonar þungamiðju Tflokks- ins. Nú bauðst á árinu sjerstaklega hentugt tækifæri til þess að vinna samvinnustefnunni hjer nýtt land, meðal sjávarútvegsmanna, með ríkisstuðningi til stofnunar sam- vinnu-síldarbræðslu meðal smærri síldarútvegsmanna. En í þessu má'li fliiði flokkurinn frá fyrver- andi stefnu sinni, undir forystu dómsmálaráðherra Jónasar Jóns- sonar, og yfir á þjóðnýtingarstefnu Alþýðuflokksins. Lögin um síldar- bræðslustöð heimila elcki að ríkis- stuðningur sje látinn í tje sam- vinnufjelagi síldarveiðimanna, heldur einungis að versksmiðjan verði stofnsett sem hreint ríkis- fvrirtæki. Annað stórmál kom fyrir á ár- inu, sem ekki snertir heint sam- búðina við Alþýðuflokkinn, en varpar skýru ljósi á hina raun- verulegu afstöðu Framsóknarfor- kólfanna til bændastjettarinnar og samvinnufjelagsskapar hænda. - Sláturfjelag Skagfirðinga hafði sótt um lán úr Yiðlagasjóði, sem heimild var fyrir í fjárlögum, til þess að koma upp frystihúsi á Sauðárkróki. Tilætlunin auðvitað sú, að nota sjer kæliskip Eim- skipafjelagsins til þess að flytja nokkuð af kjöti Skagfirðinga út kælt eða frosið. Sýslunefnd hafði lofað ábyrgð sinni, og alt virtist vera í lagi. En þegar til lands- stjórnarinnar kom, þá neitar hún þessu samvinnufjelagi, Sláturfje- laginu, um lánið, en veitir það ICaupfjelagi Skagfirðinga, sem el;ki hafði ábyrgð sýslunefndar. Með þessu móti tókst stjórninni að útiloka þann hluta bændastjettar- innar í Skagafirði, sem ekki kaup- ir erlendar nauðsynjar sínar hjá Kaupfjelaginu, frá þeim fríðind- um, sem Viðlagasjóðsláninu fylgja. í Sláturfjelaginu geta allir verið, sem framleiða sláturfje, hvort sem þeir kaupa erlendar vörur hjá kaupfjelaginu eða annarstaðar. - Meira að segja var fult samkomu- lak um það innanhjeraðs, að tiyggja einnig kaupfjelaginu sjálfu afnot frystihússins fyrir það fje, sem kynni að ganga beint þangað frá kaupfjelagsmönn- um. Ekki er annað sjáanlegt, en að frá stjórnarinnar hálfn sje hjer á ferðinni tilraun til þess að kúga bændur inn í Kaupfjelagið, og eyðileggja Sláturfjelagið. Og skýr- ingin sú, að vonast sje eftir stjórn málastuðningi frá leigtogum Kaup- fjelagsins, en ekki frá Slátnrfje- laginu. Auðvitað mistekst kúgun- ártilraunin. íslendingar eru nú orðið ekkert hneigðir fyrir að láta kúga sig. En afleiðingin verður m. a. sú, að á þessum stað verða frystihúsin tvö, með meiri stofn- kostnaði og rekstrarkostnaði held- ur en þörf var á, þar sem komast mátti af með eitt. Og landsstjórn- inni hefir með þessu tekist að sýna það ómótmælanlega, að það er ekki hægur bændastjettarinnar ,í heild, sem hún ber fyrir brjósti, og ekki samvinnufjelagsskapur bænda alment, heldur aðeins flokkshagsmunir. Af sama tæi er vitanlega hin smásálarlega hlutdrægni í veit- • ingum embætta og sýslana, og stofnun nýrra sý-slana handa flokks bræðrum, sem sjerstaklega hefir einkent feril hr. Jónasar Jónsson- ar, síðan hann varð dómsmálaráð- herra, og ennfremur misbeiting þingvaldsins og ráðherravaldsins til þess að bola andstæðingum burt frá störfum, sem þeir voru löglega til kjörnir, svo sem gert var við bankaráð Landsbankans. Þingræoistilhögunin hefir það í för með sjer, að þegar stjórnar- skifti verða, þá taka venjulega forystumenn einhvers eins floklts við völdnnnm. í öllum löndum, þar sem þessi stjórnmálatilhögun hefir náð nokkrum þroska, er sú krafa gerð til slíkra flokksfor- ingja, að um leið og þeim eru fengnir stjórnartaumarnir í hend- ur, þá skilji þeir það, að nú eru þeir ekki lengur' aðeins flokksfor- ingjar, heldur eru þeir stjórnend- ur allrar þjóðarinnar, hafa jafn- ar skyldur til að styðja alla heil- brigða framfaraviðleitni, hvprt sem hún er borin fram af stuðn- ingsmönnum eða andstæðingum, og hafa umfram alt skyldur til að fara alveg hlutdrægnislaust með þau umráð yfir ríkisfje, sem þeim er fengin í hendur. í sæmilega fjölmennum ríkjnm hefir' þetta nú yfirleitt reynst svo, að ekki hafa aðrir komist það langt, að verða forystumenn stórra stjórn- málaflokka, en þeir, sem svo mik- ið er í spunnið, að þeir hafa getað vaxið með verkefninu, þ. e. orðið hærilegir þjóðarleiðtogar þegar þeir voru kvaddir frá flokksfor- ustunni til hins verkefnisins. Og þá sjaldan út af þessu hefir brugð- iö, og ráðherrarnir hafa ekki get- að vaxið upp úr því að vera flokksforingjar eingöngu, þá hafa þeir orðið skammlífir i völdunum, því að í sjerliverjum stórum stjórnmálaflokki er alls- staðar mesti fjöldi kjósenda, sem skilur það alveg rjett, hverjar kröfur á að gera til ráðherranna, og lætur flokkinn gjalda þess við fyrsta tækifæri, ef kröfurnar eru ekki uppfyltar. I jafn sára-fámennu ríki, og ís- land er, verður náttúrlega öllu meiri hætta á því, að til flokks- forustu kunni að veljast menn sem ekki er nægilega mikið í spunnið' til þess að þeir geti vaxið frá flokksforustu npp í þjóðar- forustu. Að öðru jöfnu er hætt við að úrvalið verði rýrara þar sem úr fáum er að velja. En vjer höfum nú sett oss það mark, að fleyta landi voru og þjóð áfram i fullu sjálfstæði þrátt fyrir mann- fæðina. Þess vegna verða kjósend- ur hjer á landi að vera ennþá kröfuharðari en annarstaðar um það, að þola eklci að á fyrstu sjálf- stæðisárunum myndist illar stjóm- arvenjur. Viðhald og varðveisla þjóðarsjálfstæðis vors er sjálfsagt fremur öllu öðru undir því komið, ao vjer sýnum sjálfum oss og öðrnm, að vjer sjeum sjálfir færir um að stjórna oss vel. Dóinur almenning^sálitsms um þá forustumenn Framsóknarflokks ins, sem nú fara með völdin, er á þessum áramótum sá, að ennþá sjeu þeir ekki vaxnir upp úr því að vera flokksforingjar og upp í það að vera þjóðarráðsmenn. — 1 utdrægnin rekur upp höfuðið svo að segja hvar sem litið er á undangenginn stjórnarferil þeirra. En þó segi jeg það satt, að marg- ir þeir af núverandi stjórnarand- stæðingum, sem þektu herra Þór- hall heitinn Bjarnarson, eiga bágt með að gefa upp allar vonir nm það, að nokkuð af þeim stjórn- málamannkostum, sem prýddu þann m'ann svo ríkulega, komi fram hjá syni hans með vaxandi rcynslu. Stjómarskifti í Jugo-Slafiu. Eft- ir að' ráðherrafundur var haldinn í höfuðborg Jugo-Slafa í gærmorg- un, lýsti forsætisráðherra því yfir, að stjórnin segði af sjer. Er mælt, að stjórnarskifti þessi stafi m. a. af óeirðum þeim og óánægju, sem átt hefir sjer stað upp á síðkastið í Króatíu. Liðsforingij í spanska hernum í Marokko hefir nýlega verið myrt- ur. Morðingjarnir innlendir menn, er'flúið hafa inn í franska svæðið í Marokko. Líðan Bretakonungs var hin sama í gær og undanfarna daga. Ýmsar yfirlitsgreinar nm hið liðna ár, birtast í næstu blöðum. Guttormur Uigfússon í Geitagerði. Hann var fæddur í Geitagerði 8. ágúst 1850. Faðir hans var Vig- fús bóndi í Geitagerði, sonur síra Guttorms Vigfússonar að Valþjófs stað (alþingismanns), en móðir Margrjet Þorláksdéttir, prests að Stafafelli. Guttormur fór nngur til Noregs, var þar við búnaðarnám í 2% ár og láuk þar húfræðisprófi — £ Stend — 1878. Eftir að hann kom heim, var hann við búfræðisstörf á sumrum, fyrst í Norðnrmúla- sýslu en síðan í Þingeyjarsýslu. Einn vetur (1880—81) kendi hanm búfræði í Möðruvallaskólanum. Næsta vetur dvaldi hann í Kanp- mannahöfn og stundaði búfræði í Landbúnaðarháskólanum þar. Hann fjekk þannig góða ment- nn í æskn og var hinn efnilegasti maður og áhugasamasti um alt, er að búnaði leit. Því var bann kjör- inn skólastjóri búnaðarskólans á Eiðum, þegar sá skóli var stofn- aður, en það var 1883. Gegndi hann því starfi í 5 ár, og fórst það prýðilega úr hendi. En þó sagði hann þeirri stöðu lausri, og er tal- ið, að það hafi valdið, að hann þóttist ekki geta komið skólannm í viðunandi horf vegna of lítilla fjárframlaga. Vorið 1888 reisti Guttormur bú á Strönd á Völlum og bjó þar 6 vetur. Vorið 1894 flutti hann að Geitagerði og þar bjó bann ransn- arbúi til dauðadags. Hann andaðist 26. þ. m. Guttormur var atkvæðamaður i hjeraði og gegndi þar alla tíð margskonar trúnaðarstörfnm. Hann var þingmaður Sunnmýl- ÍDga frá 1893 til 1908. Fylti hann flokk Heimastjórnarmanna, þegar áá flokkur var stofnaðnr. Hann gat sjer jafnan góðan orðstír á þingi, var einbeittur maður og ötull til vinnu og vandaði manna best orð sín og athafnir. Árið 1883 gekk Guttormur að eiga Sigríði Sigmundsdóttnr bónda Pálssonar á Ljótsstöðum í Skagá- firði (f.1862, d.l922).Þau hjón eign uðust 8 börn, sem öll eru á lífi og hafa tekið sjer ættarnafnið Þorm- ar (dregið af Got-Þormr). Þau eru þessi: Páll hreppstjóri á Norðfirði, Vigfús bóndi í Geitagerði, Stefán í Geitagerði, Arnheiður ráðskona Bjarna hjeraðslæknis á Brekku,

x

Ísafold

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ísafold
https://timarit.is/publication/315

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.