Tíminn - 24.06.1980, Page 16
Gagnkvæmt
tryggingafélag
A fgreiðslutimi
1 til 2 sól- fe»~_^ Ji
arhringar Stimplagerö Félagsprentsmiðjunnar iif.
Spítalastíg 10 — Sími 11640
FIDELITY
HLJOMFLUTNINGSTÆKI
Pantiö myndalista.
Sendum í póstkröfu.
C mUWAI Vesturgötull
OJUTIVML simi 22 600
mmm Þriðjudagur 24. júní 1980
Samkomulagið við Norðmenn
„í hærra lagi
en lofar samt
góðu”
Kás — „Þetta er aö vlsu aöeins
hærri tala en isiensku fiskifræö-
ingarnir mæltu meö, en þeir voru
þó tilbúnir aö hækka sig upp I 750
þús. tonn. Þaö má þvi segja, aö
þarna hafi veriö farin nokkurs
konar millileiö, frá þvi sem þeir
lögöu til og norski starfsbróöir
þeirra ”, sagöi Steingrimur
Hermannsson, sjá varútvegsráö-
herra, I samtali viö Timann, en
eins og kunnugt er hefur náöst
samkomuiag á milli tslands og
Noregs um 775 þús. tonna há-
marksafia á loönu viö Jan Mayen
á komandi vertiö. Þar af mega
Norömenn veiöa 15% þessa afla.
„Fiskifræöingar hafa lagt á þaö
áherslu, aö þeir eigi ákaflega
erfitt meö aö leggja nokkuö til um
hámarksafla fyrr en aö lokinni
- segir Steingrímur
Hermannson,
sjávarútvegsráðherra
seiöatalningu i haust. Þessi tala
gæti þvi komiö til endurskoöunar
I haust, en aö visu ekki meö tilliti
til afla Norömanna. Svo ég tel
þetta vera i hærra lagi”, sagöi
Steingrimur Hermannsson.
„Hins vegar er ég mjög ánægö-
ur meö þaö, aö samkomulag náö-
ist um þetta atriöi, og tel þaö
reyndar lofa góöu út af fyrir sig.
Þetta er fyrsti fundurinn sem
haldinn er eftir aö samkomulagiö
var gert viö Norömenn, og ég held
aö menn læri smátt og smátt aö
feta sig fram aö þeim vinnu-
brögöum sem allir geta veriö
ánægöir meö”.
„Ég tel einnig mjög mikilvægt
aö Norömenn gengust inn á þaö,
aö aflahámarkiö næöi einnig til
loönuveiöa þeirra við Grænland”,
sagöi Steingrimur Hermannsson.
Byggingarvisitalan
hækkar um 12.6%
Þessa dagana er statt i Reykjavikurhöfn, franska hafrannsóknarskipiö L’Esperance (Vonin). Skipiö
sem tilheyrir franska flotanum veröur almenningi til sýnis i dag og á morgun frá kl. 14-17.
Tímamynd Róbert
Kás —Hagstofan hefur reiknað út
nýja visitölu byggingarkostnaöar
eftir verölagi i byrjun þessa mán-
aöar, sem gilda á til september-
loka nk. Samkvæmt útreikning-
unum hefur byggingavisitalan
hækkaö um 12.6% frá siöasta
gildistimabili, þ.e. april-júni.
Visitala byggingarkostnaöar er
nú 490 stig, en var á siöasta gildis-
timabili 435 stig. Visitala bygg-
ingarkostnaðar var sett á 100 stig
i október áriö 1975.
Borgarstjórn vill ekki semja
við SVFR um klak- og eldistöðina:
„Óskiljanlegt”
— segir Karl Ómar Jónsson, formaður SVFR
Kás — „Máliö I heiid er óskiljan-
legt og ber mjög undarlega aö.
Borgarstjórn var búin aö ákveöa
sig fyrir hálfum mánuöi aö semja
viö okkur um leigu á klak- og
eldisstööinni viö Elliöaár. Ég átti
þvi von á aö samningsdrögin yröu
samþykkt á siöasta fundi borgar-
stjórnar, en ekki aö þeim yröi vis-
aö frá og öörum aöila falin rekst-
ur stöövarinnar”, sagöi Karl
Ómar Jónsson, formaöur Stanga-
og veiöifélags Reykjavikur I sam-
tali viö Timann.
A slðasta fundi borgarstjórnar
var samþykkt tillaga þar sem
samningsdrögum milli Raf-
magnsveitu Reykjavikur og
SVFR um leigu á klak- og eldis-
stööinni viö Elliöaár næstu þrjú
árin var visaö frá, en Veiöi- og
fiskiræktarráöi I þess staö falin
rekstur stöövarinnar.
Ber þessi samþykkt undarlega
að, þar sem borgarstjórn haföi á
fundi sinum fyrir rúmum hálfum
mánuöi samþykkt aö ganga til
samninga viö SVFR um leigu
stöövarinnar. Meirihluti mynd-
aöist fyrir frávisunartillögunni
þegar nýr varamaöur, Sveinn
Björnsson kaupmaöur sat fund
borgarstjórnar I staö Alberts
Guömundssonar, en annar vara-
maöur haföi setiö fund borgar-
stjórnar I forföllum Alberts fyrir
hálfúm mánuöi.
„Mér finnst mjög óeölilegt aö
borgarstjórn skipti um skoöun
meö hálfmánaöarmillibili”, sagði
Karl ómar Jónsson, formaöur
SVFR i samtali viö Timann. I
sama streng tók Fríörik Stefáns-
son, framkvæmdastjóri SVFR,
sem sagöi aö borgarstjórn gengi
fram og aftur eins og jó jó, sam-
þykkti eitt I dag en annað á morg-
un.
„Meö þessari samþykkt sinni,
hefur borgarstjórn kippt fótunum
undan frekari seiöaræktun
SVFR”, sagöi Karl ómar. En á
undanförnum árum hefur SVFR
getaö selt seiöi ódýrari en á al-
mennum markaöi.
Lögfræöingar munu nú vera aö
velta þvi fyrir sér hvort hægt
sé aö skjóta samþykkt borgar
stjórnar frá siöasta fundi til Fé-
lagsmálaráöuneytisins til úr-
skuröar, en eins og komiö hefur
fram gengur hún þvert gegn fyrri
samþykkt borgarstjórnar.
í ööru lagi velta menn þvi fyrir
sér, hvort SVFR kunni aö eiga
skaöabótarétt á hendur borginni
vegna frá hvarfs frá fyrri sam-
þykkt sinni.
Sólarlandaíerðir hafa
lækkað um 40%
— á 10 árum, ef miðað er við þann tima sem
tekur að vinna sér inn fyrir þeim
Kás — Samkvæmt könnun sem
nokkrir viöskiptafræöinemar i
Háskóla tslands hafa gert á veröi
sólarlandaferöa, viröist svo sem
sólarlandaferöir i ár, séu allt aö
40% ódýrari miöaö viö þau verö
er giltu fyrir 10 árum, ef miöaö er
viö þann tima sem tekur aö vinna
sér inn fyrir þeim.
1 könnuninni kemur m.a. fram
aö áriö 1970 tók þaö skrifstofu-
mann i Verslunarfélagi Reykja-
vikur 1,6 mánuöi aö vinna sér inn
fyrir tveggja vikna sólarlanda-
ferö, en nú tekur þaö hann hins
vegar einn mánuð, eða 37.6%
skemmri tima.
Einnig kemur fram i könnun-
inni aö á meöan verölag hefur
sautjánfaldast á árabilinu 1970-
1980, þá hefur verð á sólarlanda-
feröum fjórtánfaldast.
Fyrrnefndar upplýsingar koma
fram i nýjasta fréttabréfi Sam-
vinnuferöa. 1 þvi segir enn frem-
ur, aö óhætt sé aö fullyröa aö
þessa hagstæöu veröþróun megi
einkum þakka hagstæöum samn-
ingum og sjálfstæöu leiguflugi
feröask rifstofa nna.
farþegar tíl
Fara vinsældir sólarlandaferða sifellt dvinandi?
15% f ærri
sólarlanda í ár
— en í fyrra
JSS — ,,Ég gæti trúaö aö þaö
færu um 15% færri sólarlanda-
farþegar úr landi núna, sam-
anboriö viö siöastliöiö ár” sagöi
Steinn Lárusson formaöur Félags
islenskra feröaskrifstofa, þegar
Timinn spuröi hann i gær hvort
rétt væri aö minni eftirspurn væri
eftir sólarlandaferöum nú en oft
áöur á sama árstima.
Samkvæmt þvi sem blaðið hef-
ur fregnaö, er talsvert minna um
bókanir I sólarlandaferðir nú,
einkum I júlf, heldur en veriö hef-
ur á sama árstima áöur. Mun
þetta einkum stafa af þvi óvissu-
ástandi sem nú rikir i kjaramál-
um t.d. og óttast margir aö þeirra
bföi verkfall er heim kemur aö
loknu frii.
Steinn Lárusson sagöi aö I ár
væri talsvert minna framboð á
markaðinum en veriö heföi I
fyrrasumar, en bókanir væru
afturheldur betri i prósentum. Sl.
ár heföi veriö flogiö meö talsvert
mikiö af tómum sætum og þvi
heföi sætaframboö verið minnk-
aö, um 20-25%. Bókanir hjá sér
væru nú 8-10 % betri miðað viö
sama tima i fyrri I prósentvis.
Heildardæmið kæmi þannig út að
um 15% samdrátt væri aö ræöa,
og þá miöaö viö aö sætamagniö
væri minna, þannig aö ekki væri
flogiö meö auö sæti.
Ekki kvaöst Steirin veröa var
viö aö afpantanir væru meiri I ár
en áður. Hins vegar væri þaö
nokkuö truflandi, aö veröiö væri
háö gengi á hverjum tima, þannig
aö þaö gæti veriö nokkuö sveiflu-
kennt. Þetta heföi alltaf einhver
áhrif, en afpantanir væru þó ekki
meiri en áöur, eins og komiö heföi
fram.
Aðspuröur um fækkun sólar-
landafarþega i ár, sagöi Steinn aö
af einhverjum ástæöum færi fólk
eitthvaö annað. T.d. heföu veriö
sett á markaöinn nokkur þúsund
sæti af næturflugi til Kaup-
mannahafnar og einhverja þyrfti
til aö fylla þau sæti. Væri ekki
ólíklegt aö nokkurn veginn sami
farþegafjöldi yröi fluttur út úr
landinu á þessu ári og heföi verið
sl. ár.