Tíminn - 29.06.1980, Page 6

Tíminn - 29.06.1980, Page 6
6 Wwúwsí V. Útgefandi Framsóknarfiokkurinn. Framkvæmdastjóri: Jóhann H. Jónsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Jón Helgason og Jón Sigurösson. Ritstjórnarfull- trúi: Oddur ólafsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og auglýsingar Sföu- múia 15. Simi 86300. — Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 250. Áskriftargjald kr. 5000ámánuöi. Blaöaprent. Forsetakjör í dag ganga íslendingar að kjörborði og velja sér æðsta fulltrúa sinn, forseta Lýðveldisins Is- lands. Embætti forseta Islands er i senn mikil- vægt fyrir þá sök að forsetinn er sameiningar- tákn og fulltrúi þjóðarinnar út á við og hefur miklu hlutverki að gegna við að tryggja þjóðinni sem best og vinsamlegust samskipti við aðrar þjóðir, jafnt viðskiptaþjóðir sem aðrar. Reyndar er fulltrúahlutverk forsetans ekki sið- ur mikils virði inn á við, sem tákn heildarinnar og rikisins i augum og hugum þjóðarinnar sjálfrar. Það er þannig mikils um vert að þessu embætti sé þjónað af reisn og myndugleika. En embætti forsetans er einnig mikilvægt fyrir þá sök, að til forsetans verður leitað þegar mikið þykir liggja við i stjórnmálunum. Einkum á þetta við þegar flóknar viðræður um stjórnarmyndun standa yfir, en forsetinn hefur lika aðra mögu- leika á þvi að láta til sin taka, enda þótt þingræði riki i landinu. Það er fráleitt, sem sumir menn hafa verið að halda að fólki, að embættið sé aðeins fólgið i til- gagnslitilli eða jafnvel óþarfri „veislustjórn”. Það skiptir mjög miklu máli hvernig komið er fram fyrir okkar hönd út á við, og það skiptir þjóðina ekki siður miklu máli að æðsta embættið sé mynduglega og virðulega skipað i augum hennar sjálfrar. Hvort tveggja er þáttur virðingar og sjálfsvirð* ingar allrar þjóðarinnar. Islendingar hafa notið þess að afbragðsmenn hafa valist til forsetaembættisins. Bessastaðir hafa verið haldnir af reisn og myndarskap og það hefur kveðið að fremsta fulltrúa islensku þjóðar- innar i samskiptum við útlendinga. Engu siður hefur þjóðin fyrir sjálfri sér fundið i forseta sin- um verðugan fulltrúa heildarinnar, bæði á fagnaðarstundum og þegar alvara eða harmur hefur rikt. Mitt i önnum þessa kosningadags hlýtur þjóðin þvi að þakka fráfarandi forseta sinum, dr. Kristjáni Eldjárn og frú Halldóru gifturik störf og mikla þjónustu við landið og lýðveldið. Betri full trúa islenskrar menningar, eins og hún hefur erfst og ávaxtast i byggðum landsins og svo sem hún enn lifir og dafnar, var ekki völ á að fá. Þeim fylgir blessun og þökk þjóðarinnar allrar. Það verður vissulega erfitt að feta i fótspor þeirra sem hingað til hafa skipað æðsta embætti islenska lýðveldisins. Og þjóðin nýtur þess, enn nú i dag, að hún hefur um afbragðsfólk að velja til þessa embættis, og það er gæfa þjóðarinnar að svo skuli vera þegar kjósa skal til sliks trúnaðar. Um leið og dr. Kristjáni Eldjárn verður vottuð óvenjuleg og innileg virðing og þökk alþjóðar, mun þjóðin fagna nýjum fulltrúa sinum og óska honum farsældar og giftu. JS Sunnudagur 29. júni 1980. Erlent yfirlit Þórarinn Þórarinsson: Þó er hann ekki í flokknum Tanaka og Fukuda HORÐ barátta er nú fram- undan i Frjálslynda flokknum i Japan um forsætisráöherraem- bættiö. Þessi barátta veröur sennilega enn haröari en ella vegna hins mikla sigurs flokksins I þingkosningunum siöastl. sunnudag. Nú er eftir enn meiru aö sækj- ast, þvl aö eftir kosningasigur- inn eru góöar horfur á, aö rikis- stjórn flokksins geti setiö áfalla- laust til loka kjörtimabilsins. Japan mun hafa styrkari stjórn eftir en áöur. Þaö veröur sérkennilegt viö þessa keppni um forsætisráö- herraembættiö, aö sennilega ræöur maöur, sem ekki er i flokknum, mestu um þaö hver hreppir hnossiö. Þessi maöur er Kakuei Tanaka, sem var for- sætisráöherra Japans á árunum 1972-1974. Hann varö aö fara frá völdum vegna ásakana um aö hann heföi þegiö stórfelldar mútur af bandariskum flug- vélaverksmiöjum (Lockheed) Jafnframt varö hann aö segja sig Ur flokknum og hefur veriö utanflokka síöan. Dómur hefur ekki gengiö enn um ákærurnar á hendur Tanaka og þvi hefur hann getaö boöiö sig fram #til þings utan flokka. Hann náöi endurkosn- ingu nú meö yfirburöum. Þingflokkur frjálslynda flokksins hefur um lengra skeiö skipst I fleiri klikur og gerir þaö ekki minna eftir kosningarnar nú. Tanaka var valinn forsætis- ráöherra 1972 sökum þess, aö hann réöi yfir fjölmennustu kllkunni. Hann ræöur yfir henni enn, þött hann sé ekki i flokkn- um. Eftir kosningarnar nú, hefur Frjálslyndi flokkurinn 284 þing- sæti I neöri deildinni og 135 I efri deildinni, eöa um 420 þingmenn samanlagt. ATHUGUN, sem hefur veriö gerö á þingstyrk klikuhópanna 1 flokknum, þykir leiöa I ljós, aö Tanaka eigi öruggt fylgi 85 þingmanna. Næst kemur klika Fukuda fyrrv. forsætisráöherra, en hún er talin hafa fylgi 76 þing- manna. Alíka sterkur er hópurinn, sem fylgdi Ohira aö málum, en hann hefur enn ekki valiö sér forustumann. Hópurinn, sem fylgir Nakasone, fyrrverandi varnar- Tanaka málaráöherra, er talinn skipaö- ur 50 þingmönnum. Næst á eftir koma fylgismenn Miki, fyrrverandi forsætisráö- herra, 42 talsins aö sögn. Fámennastur er hópurinn undir forustu Nakagawa, en hann telur ekki nema ellefu þingmenn. Aörir þingmenn flokksins.um 80 talsins., hafa ekki tekiö af- stööu. Baktjaldamakk milli þessara hópa hefur ráöiö þvl mest hver hefur oröiö forsætisráöherra á undanfömum árum. Tanaka er t.d. sagöur hafa ráöiö þvl, aö Ohira var valinn forsætisráö- herra I desember 1978. Ýmsir spá þvl, aö nú muni hópar Tanaka, Ohira og Naka- sone sameinast og gera hinn siöastnefnda aö forsætisráö- herra. Tanaka hefur þó enn ekki látiö neitt endanlega I ljós og hefur aö sögn gefiö fleiri undir fótinn en Nakasone. TANAKA var um skeiö talinn álitlegasta foringjaefniö I Frjálslynda flokknum. Margir spá þvl, aö hann eigi eftir aö komast á efsta valdatindinn aftur. Hann er tiltölulega ungur, miöaö viö japanska stjórnmála- menn, eöa 62 ára. Tanaka er kominn af fátækum ættum, og hefur ekki notiö neinnar æöri skólamenntunar. Hann fór aö heiman 16 ára og vann alls konar verkamanna- störf næstu árin, en reyndi aö nema vélfræöi I tómstundum. Ariö 1939 var hann kvaddur I herinn, en afskráöur þar tveim- ur árum síöar sökum heilsu- brests. Hann kom sér þá upp vélaverkstæöi, sem dafnaöi svo vel undir stjórn hans, aö hann varö auöugur maöur. Tanaka hóf afskipti af stjórn- málum eftir slöari heimsstyrj- öldina. Hann var kosinn á þing 1947 og hefur átt þar sæti slöan. Hann vann sér þar fljótlega gott álit og voru honum falin ýmis ráöherrastörf, unz hann varö forsætisráöherra 1972. Tanaka varö þá einn yngsti forsætisráöherrann I sögu Japans, aöeins 54 ára gamall. Hann þótti reynast allvel sem forsætisráöherra og var spáö aö hann myndi halda stjórnarfor- ustunni lengi. Sennilega heföi þaö llka oröiö, ef bandarískir fjölmiölar heföu ekki komiö þeim sögum á kreik, aö hann heföi þegiö stórfelldar mútur, eins og áöur er sagt frá. Hann varö þvl aö láta af stjórnarfor- ustunni og fara úr flokknum. Tanaka dró sig samt ekki I hlé. Þeir Miki, sem var for- sætisráöherra 1974-1976, og Fukuda, sem var forsætisráö- herra 1976-1978, vildu ekkert hafa saman viö hann aö sælda. Hann studdi þvl Ohira til valda 1978 og þykir nú áhrifamesti stjórnmálamaöur Japana. Úrslit þingkosninganna á sunnudaginn uröu þau, aö Frjálslyndi flokkurinn vann mikiö á, Sóslalistaflokkurinn stóö I staö, en Kommúnista- flokkurinn tapaöi. Flokkur Búddatrúarmanna, Komeito, tapaöi og Sosialdemókratar einnig. Hins vegar vann nýr frjálslyndur flokkur nokkuö á. óháöum þingmönnum fækkaöi. Tanaka ræður mestu 1 Frjálslynda flokknum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.