Tíminn - 29.06.1980, Síða 20
28
Sunnudagur 29. júni 1980.
★ ★ ★ ★ ★ Frábœr - ★ ★ ★ ★ Eiguleg - ★ ★ ★ Áhegrileg - ★ ★ Sœmileg - .★ Afleit
Graham Parker
— The Up
Escalator
Stiff Rec. / See323
★ ★ ★ ★ +
Ein af bestu plötunum sem
teknar voru hér til umfjöliunar
á slöasta ári, var „Squeezing
out sparks” meö breska ný-
bylgjurokkaranum Graham
Parker. Nú er Graham Parker
og hljómsveit hans, The
Rumour, aftur komin á stúfana,
aö þessu sinni meö plötuna „The
Up Escalator”, sem viröist gefa
hinni fyrrnefndu lftiö eftir.
Þaö eru trúlega engar ýkjur,
aö segja aö Graham Parker sé
einn hæfileikarlkasti tónlistar-
maöurinn, sem borist hefur á
öldum nýbylgjunnar — inn i
rokkiö I dag. Auk þess aö vera
prýöilega frambærilegur söngv-
ari og hljóöfæraleikari, er
Graham Parker frábær laga-
smiöur og meö aöstoö The
Rumour ætti hann aö geta lagt
heiminn aö fótum sér.
Hljómsveitin The Rumour
sem aöstoöaö hefur Graham
Parker, svo lengi sem elstu
menn muna eftir, er skipuö
þeim Brinsley Schwarz (áöur i
samnefndri hljómsveit), Martin
Belmont, Andrew Bodnar,
Stephen Gouldman og Nicky
Hopkins, sem frægur er fyrir
samstarf sitt meö Rolling
Stones o.fl., en hann hefur leyst
Bob Andrews af hólmi I hljóm-
sveitinni, en sá er nú genginn I
liö meö Iggy Pop. Eins og sést á
þessari upptalningu er hér um
frábæra hljóðfæraleikara aö
ræöa og þaö hafa þeir sannað
áþreifanlega, bæöi á plötunum
meö Graham Parker, og sinum
eigin. Af öðrum þeim sem aö-
stoöa Parker á plötunni má
nefna aö Bruce Springsteen
syngur bakraddir I einu lagi,
hljómborös- og synthesizerleik-
arinn Peter Wood lætur til sin
heyra og Danny Fererici úr E
Street Bandi, Bruce Springsteen
kemur einnig viö sögu..
„Up the Escalator” (-Upp
Rúllustiginn) er e.t.v. ekki eins
gripandi og „Squeezing out
sparks”, en hún vinnur stööugt
á viö nánari hlustun og þegar
upp er staöiö má vart á milli sjá
hvor er betri. -ESE
B.A. Robertson,
- Initial Success
Asylum Rec. /
K 52216_____________
★ ★ ★ ★
„I may look dumb.but I 'm
stupid” syngur B.A. Robertson
m.a. fullum hálsi á nýjustu
plötu sinni, „Initial Success” og
má segja aöhann hafi nokkuö til
slns máls. B.A. Robertson er
annars skoskur aö ætt og upp-
runa og plata hans hefur gert
þaö feikigott I landi Elfsabetar,
aö undanförnu.
Ferill B.A. hófst I Memphis i
Bandarikjunum, eftir nokkrar
misheppnaöar tilraunir i
heimalandi hans, Skotlandi.
B.A. sneri þó fljótlega baki viö
Bandarikjunum og hélt aftur til
Bretlands, þar sem hann fékk
samning hjá Stax Records.
Arangurinn af þvi samstarfi var
platan „Wringing Applause”,
fyrsta plata B.A. Plötunni var
tekiö meö kostum og kynjum af
gagnrynendum, en þvi miöur
(fyrirB.A.) þá var almenningur
á ööru máli — og þvi seldist
platan ekki. Fljótlega eftir þetta
tókst samstarf meö B.A. og
Herbie Flowers, sem nú leikur á
' bassa meö Sky, hljómsveit John
Williams og aö sjálfsögöu leiddi
þetta samstarf til nýrrar plötu,
„Shadow of a thin man”, sem
vakti talsveröa athygli. Platan
varö til þess aö B.A. fékk tæki-
færi til þess aö halda tvo stóra
hljómleika, aöra I heimabyggö
sinni, auk þess sem hann kom
fram I útvarpi og sjónvarpi.
Um þessar mundir var B.A.
oröinn töluvert þekktur sem
lagasmiður og jókst fræöarorö
hans töluvert er hann tók upp
samstarf við lagasmiöinn, upp-
tökustjórann og hljóöfæraleik-
arann Terry Britten, sem veriö
hefurhægri hönd Cliff Richards.
B.A. haföi sjálfur samiö nokkur
lög fyrir Richard og á nýjustu
plötu hans, „Rock n roll Juven-
ile” eiga þeir Britten i samein-
ingu alls sjö lög. En hvaö um
þaö. Fyrsta lag B.A. og Britt-
ens, „Goosebumps” var þrykkt
á plast snemma á sföasta ári og
veröur ekki annaö sagt en aö
þaö hafi falliö einstaklega vel i
kramiö hjá almenningi. 1 kjöl-
farið fylgdi „Bang Bang”, sem
m.a. er á K-Tel plötunni „Night
Moves”.
„Initial Success” veröur trú-
lega best íyst sem fyndinni, en
þegar fram liöa stundir er ekki
ótrúlegt aö hennar veröi fyrst og
fremst minnst sem mjög góörar
plötu. Lög eins og „Golse-
bumps”, „Kool in the Kaftan”,
„Bang Bang” og „Knocked it
off”, bera þess öll vitni aö B.A.
(og reyndar Britten) er frábær
lagasmiöur og ekki sakar aö
hann hefur rika kimnigáfu.
Ekki má gleyma þætti Terry
Britten á plötunni, þvi aö hann
stjórnar upptökum, semur lög
og leikur auk þess á gitara. —
Pottþétt plata, sem eins og hlát-
urinn, lengir lifiö. —ESE.
Judas Priest -
British Steel
CBS / 84160
★ ★ ★
Þungt rokk hefur löngum átt
upp á pallboröiö hjá islend-
ingum og þvi ekki óliklegt aö
margir eigi samleiö, hvað tón-
listarsmekk varöar, meö bresku
þungarokkshljómsveitinni
(Heavy Metal Rock) Judas
Priest, en hún sendi nýlega frá
sér plötuna „British Steel”.
Saga Judas Priest hófst i
Birmingham fyrir u.þ.b. 7-8 ár-
um sföan, en þá voru hljóm-
sveitir eins og Deep Purple,
Uriah Heep og Black Sabbath
einmitt upp á sitt besta og eins
og svo margar aörar hljóm-
sveitir, þá tóku Judas Priest
þessar hetjur rokksins sér til
fyrirmyndar.
Nú átta árum og sjö plötum
siöar, hefur tónlist Judas Priest
litiö breyst., þó að gömlu
hetjurnar hafi helst úr lestinni.
Hvaö tónlistarlega samsvörum
snertir, þá eiga Judas Priest
einna helst leiö meö rokkurum
eins og Van Halen, Scorpions og
UFO. Tónlistin hefur eins og
áöur segir litiö breyst', kraf-
turinn situr I fyrirrúmi og aö
mlnu viti er þessi plata hvorki
betri né verri en aðrar svipaöar
tegundir. Af gamalli reynslu má
þó fullyröa aö tónlist Judas
Priest á örugglega upp á pall-
boröiö hjá mörgum hérlendis og
er ekki nema gott eitt um þaö aö
segja, .þó aö Judas Priest séu
full mónótónlskir fyrir minn
smekk.
—ESE