Tíminn - 24.10.1980, Qupperneq 3

Tíminn - 24.10.1980, Qupperneq 3
Föstudagur 24. október 1980 3 Ný 5 ára landgræðsluáætlun að líta dagsins ljós: JAFNVIRÐI ÞJÓÐAR6JAF- ARINNAR NÆSTU 5 ÁRIN — nýmæli varðandi skóg- og skjólbeltarækt HEI — Timabili landgræðslu- áætlunar þeirrar, sem sam- þvkkt var á Þingvöllum árið 1974 „Þjóðargjöfin", lauk sem kunnugt er með árinu 1979. Snemma á þvi ári fól Stein- grimur Hermannsson, þáv. landbúnaðarráðherra, sam- starfsnefnd um landgræðslu- áætlun að gera úttekt á þvi sem áunnist hefði á timabilinu og jafnframt að gera tillögur það hvernig best verði staðið að áframhaldi þannig að ekki komi til afturkipps i landgræðslu- og gróðurverndarstörfin þegar Ijárveitingar samkvæmt Þjóðargjöfinni nýtur ekki leng- ur við. Nú mun komið að þvi að þessu áliti fyrir timabilið 1981-1985 verði skilað. Munu tillögur nefndarinnar miðast við það að samsvarandi ljármagni verði varið til þessara mála næstu 5 árin og var á timabili fyrri áætl- unar. Þjóðargjöfin var sem menn muna 1 milljarður króna, eða 200 milljónir á ári á timabilinu. Féð var verðtryggt og verð- tryggingin á framkvæmdafé hvers árs greidd ári eftirá. I ár voru þvi til framkvæmda verð- bætur á 200 milljónirnar frá siðasta ári, sem nam nú orðið rúmum 900 milljónum króna. Þar sem i samstarfssáttmála núverandi stjórnar er gert ráð fyrir gerð nýrrar landgræðslu- áætlunar hefur það vakið athygli, að i fjárlagafrumvarp- inu fyrir árið 1981 eru 850 milljónir áætlaðar til þessara mála, sem er þá lægri fjárhæð en nam verðbótum af ársfram- laginu i fyrra, sem fyrr segir. Snemma á þessu ári mun nefnd- in hafa áætlað að ársíramlagið þyrftiaðnema um 1.200 milljón- um á ári miðað við þágildandi verðlag. Framlag ársins 1981 þyrfti þvi liklega að vera á bil- inu 16-1800 milljónir króna. Samkvæmt áliti samstarfs- nefndarinnar mun áfram verða stefnt að sömu heildarmark- miðum næstu 5 árin, en hinsveg- ar nokkur breytt áhersluatriði. T.d. mun það vera nýmæli að reiknað verður með sameigin- legum verkeínum stofnana m.a. um skjólbeltarækt, i samvinnu búnaðarfélaga, skógræktar- og rannsóknaraðila. Einnig mun reiknað með nokkurri héraðs- skógræktun, sem þá er ætlað að vera upphaf að þvi að skógrækt verði búgrein. Höfuðáherslan mun, eins og fyrr, lögð á starf- semi Landgræðslu rikisins, þar sem aðalverkefnin eru stöðvun jarðvegseyðingar og upp- græðsla. Einnig verður rik áhersla lögð á gróðureftirlit. Kirkjuþing hefst í dag AB — Kirkjuþing hefur störf i dag, föstudaginn 24. okt. kl. 14.00 i Ilallgrimskirkju með guðs- þjónustu. Þingið kemur saman annað hvert ár og eru þingmenn 17 talsins. Auk kirkjumálaráð- herra og biskups, sem er forseti þingsins, eru 14 fulltrúar kjörnir úr hinum 7 kjördæmum iandsins og einn fulltrúi frá guðfræðideild Háskólans. Aðalmál þingsins verður frum- varp að nýrri handbók kirkjunnar sem samþykkt var i öllum grund- vallaratriðum mótatkvæðalaust á Prestastefnunni i vor. Handbókarfrumvarpið hefur verið alllengi i bigerð. Drög að nýrri handbók voru send út til reynslu 1976 og siðasta kirkjuþing skipaði siöan 11 manna nefnd guðfræðinga og tónlistarmanna undir forystu dr. Einars Sigur- björnssonar, sem lagði frum- varpið fram i vor. Var samstaða i nefndinni um frumvarpiö. Samkvæmt tillögunum er gert ráð fyrir fleiri valkostum við helgihald kirkjunnar, sérstaklega hvað tónlistina áhrærir. Má að sjálfsögðu hafa áfram tónsöngva Sigfúsar Einarssonar og Bjarna Þorsteinssonar svo og hinn klassiska tónsöng, sem oft er nefndur gregorianskur. Æskilegt þykir að fá einnig nýjan tónsöng. Allmörg önnur mái verða væntanlega lögð fram á Kirkju- þingi. Milliþinganefnd mun skila áliti um tillögu um stjórn og skip- an prófastsdæma frá siðasta Kirkjuþingi. Nefndir sem kanna fræðslumál kirkjunnar gefa skýrslur sinar. Kirkjuþing mun formlega Framhald á bls. 19. Alfheimabakarihefur nú fært út kviarnarog opnaö nýja verslun aö Hagamel 67 I Reykjavik. Eru útsölu- staðirnir þá orönir tveir, en Alfheimabakarliö hefur veriö rekiö aö Alfheimum 6 I yfir tuttugu ár. Nýju versluninni i Vesturbænum er m.a. ætlaö aö mæta óskum fjölmargra viöskiptavina úr hverfinu, sem á undanförnum árum hafa lagt leiö sina alla leiö inn I Alfheima og veriö á meöal tryggustu viöskiptavin- anna þar. Landsráðstefna her- stöðvaandstæðinga AB — Hina árlegu landsráð- stefnu herstöðvaandstæðinga, sem haldin var á Akureyri 18. og 19. okt. sóttu um 100 herstöðva- andstæðingar. Á ráðstefnunni var gefin skýrsla um starfið á liðnu starfsári, fjallað var um stöðu tslands i kjarnorkuvigbúnaði, baráttuleiðir ræddar, ályktanir samdar, kosiö I miðnefnd o.fl. Miðnefndin kaus sér siðan þriggja manna stjórn, en frá þvi hefur nú þegar verið greint hér i blaðinu. Þriggja manna fram- kvæmdanefnd hefur einnig verið valin, en hana skipa Arthúr Morthens, Erling Olafs- son og Jón Ásgeir Sigurðsson. Herstöðvaandstæðingar sem nú eru komnir i stærra og betra húsnæði, að Skólavörðustig 1 A, vænta mikils og blómlegs starfs á komandi starfsári. Ályktun samþykkt á Landsráðstefnu herstöðvaa ndstæðinga. Samtök herstöðvaandstæð- inga vara við öllum tilraunum til að breiða yfir dvöl ameriska hernámssetuliðsins á lslandi. Hinsvegar telja samtökin að vinna beri að þvi eftir öllum mögulegum leiðum að rjúfa tengsl hersetunnar við islenskt menningar- og atvinnulif. Stórt skref i þá átt væri að loka út- varpi ameriska hersins á Kefla- vikurflugvelli. tslenskt sjúkraflug verður nú þegar að koma i stað sjúkra- ílutninga hernámssetuliðsins. Suðurnesjaáætlun ber og að framkvæma. Samtök herstöðvaandstæð- inga krefjast þess að rikisstjórn tslands standi við það ákvæði rikisstjórnarsáttmála að umsvif hernámssetuliðsins á Miðnes- heiði verði ekki aukin. Fyrirætlanir um stórauknar eldsneytisgeymslur fyrir NATÓ i Keflavik svo og tilburðir utan- rikisráðherra að betla aðstoð ameriska hersins til handa Flugleiðum er gróft brot á þvi ákvæði rikisstjórnarsáttmála sem fyrr er vitnað til. ítrekun herstööva- andstæöinga Landráðstefna Sam- taka herstöðvaand- stæöinga haldin þann 18. og 19. október á Akureyri ítrekar baráttumarkmið samtakanna og telur að þróun vígbúnaðar ásamt breyttu eðli herstöðva Bandaríkjanna hérlendis i stjórnstöð i kjarnorku- vígbúnaði Bandarikjanna og NATó/ renni enn frek- ari stoðum undir mikil- vægi baráttu herstöðva- andstæðinga gegn her- stöðvum hérlendis og aðild að NATÓ. Kristján Ted Arnason Kristján Ted Árnason endur- kjörínn bæjarstjórí á Gimli í gær var kosinn bæjarstjóri á Gimli I Manitoba, Kanada, til næstu tveggja ára I almennum kosningum. Kosningin fór þannig, að Kristján Ted Arnason fékk 78% greiddra atkvæða. Er ánægjulegt til þess að hugsa, að maður af islenskum ættum verður bæjarstjóri á hundrað ára afmæli Gimli, sem verður næsta ár. Eiginkona Teds er Marjorie Arnason, sem stjórnað hefur ferður Vestur-tslendinga hingað. Kosningastjóri var Stefán J. Stefánsson fyrrverandi formaður Þjóðræknisfélags tslendinga.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.