Tíminn - 09.12.1980, Qupperneq 13

Tíminn - 09.12.1980, Qupperneq 13
Þriöjudagur 9. desember 1980 13 Paradísarheimt forsýnd á Hótel Loffleiðum Sýningunni var afskaplega vel tekiö og virtist ánægja gesta með verkið vera jöfn ánægju höfunda Frá blaðamannafundinum sem haldinn var aö lokinni forsýningunni á Paradísarheimt. Frá vinstri Hin- rik Bjarnason, Rolf Hadrich og Halldór Laxness. Timamynd — Róbert. AB — Siðastliðinn laugardag yar kvikmyndin Paradisar- heimt i leikgerð Rolf Hadrich forsýnd að Hótel Loftleiðum en hún verður frumsýnd i islenska sjónvarpinu um jól og áramót. Viðstaddir sýninguna voru margir þeirra sem komið hafa við sögu i gerð myndarinnar, s.s. Halldór Laxness, Roif Hád- rich, leikarar o.fl. Sýning myndarinnar stóð frá kl. 10.00 um morguninn til ki. 17.30 i eftirmiðdaginn með hádegis- verðar-og kaffihléi. M jög góður rómur var gerður að myndinni og er ekki að efa aö islenskir sjónvarpsáhorfendur eiga eftir að fagna þessu mikla verki. Aðsýningunni lokinni svöruðu Halldór Laxness og leikstjórinn Rolf Há'drich spurningum blaðamanna. Halldór var fyrst að þvi spurðurhvort hann væri hrifinn af verkinu i kvikmyndarformi. „Ég er undrandi yfir þvi hve verkið er unnið af mikilli þraut- seigju og miklum skilningi. Ég get í rauninni ekki hugsað mér myndina i öðru formi en þessu. Fyrir mig var það þægileg til- finning að sjá mitt eigið hug- verk iþessu nýja formi, a stund- um sérstök unun.” Hadrich var að þvi spuröur hvernig heföi staðið á þvl að Paradlsarheimt varð fyrir val- inu. ,J’aradisarheimt er afskap- lega mikilvægt bókmenntaverk. Ég vildi með þessu vali stuðla að þvl að hreint bókmenntaverk næði til sem flestra. í Þýska- landi hefur myndinni verið mjög vel tekiö. Yfir 24% þýskra sjónvarpsáhorfenda hafa séð myndina, eða í kring um 6 milljónir, sem telst mjög gott. Almenningi hefur fallið myndin vel i geð og sú staðreynd að Steinar bóndi, þessi einfaldi maður, er fær um aö hugsa og hugsa djúpt, hefur vakið mikla athygli. Þá virðist hin innri spenna myndarinnar einnig hafa náð góðum tökum á þýsk- um áhorfendum. Fari svo að is- lenskir áhorfendur taki mynd- inni vel, þá á ég eftir að verða afskaplega hreykinn. Miðað við undirtektir þær sem myndin fékk hjá íslensku áhorfendunum hér I dag, þá er ég afskaplega bjartsýnn á framhaldið.” — Hver var kostnaðurinn við gerð myndarinnar? „Það eru nú ekki öll kurl kom- in til grafar hvað kostnaðinn snertir, en einhvers staðar i kring um 2.5 milljónir þýskra marka gæti veriö nærri lagi.” gera kvikmynd á Islandi og I Þýskalandi. „Það er náttúrlega mjög frá- brugðið að starfa á Islandi. 1 fyrsta lagi þá eru engin „stúdió” hérna. Það er kannski ekki það erfiðasta, heldur er veðrið á tslandi stóra vanda- málið fyrir kvikmyndagerðar- menn. Veðrið er með öllu óút- reiknanlegt. Annars finnst mér afskaplega gott að starfa með tslendingum og mér leið eins og ég væri heima hjá mér strax eftir að ég kom hingað f fyrsta skipti.” — Ertu vanur þvi að nota áhugaleikara þegar þú gerir kvikmyndir f Þýskalandi? ,,Ég nota yfirleitt aldrei áhugaleikara i svona bók- menntaleg verk. Hins vegar nota ég þá oft og iðulega þegar ég geri heimildamyndir. Ég er afskaplega ánægður með sam- vinnuna við leikarana i þessari mynd, og á það jafnt við um at- vinnuleikarana sem áhuga- leikarana. Sérstaklega vil ég i þessu sambandi nefna Friöu Gylfadóttur sem leikur Steinu. Frfða var aðeins 14 ára þegar tökur myndarinnar hófust. Hún var með öllu reynslulaus, en svo áköf og viljug aðlæra að það var hreint heillandi að vinna með henni”. — Nú er þetta annað bók- menntaverkiö eftir Halldór Laxness sem þú færir I kvik- myndagerö og kvikmyndar. Getur þú ncfnt eitthvað sem þér finnst einkenna verk hans? „Það er útilokað að svara spurningu sem þessari I örstuttu máli. Meginstyrkur Laxness liggur einmitt i fjölbreytileik hans. Hann er aldrei að endur- taka sjálfan sig, hann velur stöðugt ný og frumleg form, sem að minu mati eru afskap- lega athyglisverð og ávallt rétt valin.” Að lokum voru þeir Halldór Laxness og Rolf Hádrich að þvi spuröir hvort islenskir sjón- varpsáhorfendur mættu eiga von á áframhaldandi samstarfi þeirra i milli. Svör þeirra voru á einn veg: að áhugi fyrir áframhaldandi samstarfi væri fyrir hendi hjá þeim báðum. Slíkt færi þó að sjálfsögðu eftir því hvernig við- tökur Paradisarheimt fengi hérlendis. Hvaða verk kæmi til greina aö kvikmynda næst sögðu þeir aö væri með öllu órætt, en Hádrich brosti þó við og sagði að lokum „Halldór er nú að semja nýja skáldsögu.” Jón Laxdal, en hann leikur Steinar bónda I Paradlsar- heimt. Hér skýtur Hinrik Bjarnason dagskrárstjóri Lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins þvl að að kostnaðarhluti is- lenska Sjónvarpsins hafi verið 35 milljónir króna og þetta séu vafalaust bestu kaup sem Sjón- varpið hafi nokkum tima gert. Há’drich var að þvi spurður hver væri helsti munurinn á að Friða Gylfadóttir sem leikur Steinu, dóttur Steinars. Frá Maruzen nýkomið Stimpilklukkur Q- rafheftarar / Shrifyéiin hí 0(3 Suðurlandsbraut 12 — S 8 52 77 Raftækjaverkstæði Þorsteins s/f Höfðabakka 9. Simi 83901. Tökum aðokkur viögeröir á: Þvottavélum —Þurrkurum. Kæliskápum Frystikistum —þeytivindum. Breytingar á raflögnum — Nýlagnir. Margra ára rey'sla. Stærðir: 116 verö gkr. 27.000 nýkr.270 Stærðir: 128-140 verð gkr. 31.400 nýkr. 314 Stærðir: 152/164-176 verðgkr. 34.200. nýkr. 342 Póstsendum CÍnnDTl/rtl samdægurs Í?PURTVAL LAUGAVEGI 11«. VIO HLEMMTOR& SIMAR 14390 t» 26690 * ................... ' Nýkomnir Barna- og unglingaskiöagallar 16 litir og gerðir

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.