Tíminn - 09.01.1981, Blaðsíða 5
Föstudagur 9. janúar 1981
Samningur milli Áburðarverksmiðjunnar og
franska fyrirtækisins Grande Paroisse:
Ný saitpéturs-
sýruvericsmiðja
ris í Gufunesi
Áburða rverks miðja
rikisins hefur gert
samning við franska
fyrirtækið Grande
Paroisse um nýja salt-
pétur ssýru v erk smiðju
i Gufunesi. Var samn-
ingur þar að lútandi
undirritaður þann 19.
desember s.l. Samn-
inginn undirrituðu
Gunnar Guðbjartsson
stjórnarformaður og
Hj álmar Finnsson
framkvæmdastjóri
fyrir hönd Áburðar-
verksmiðju ríkisins, en
Mr. Bonnet fyrir hönd
hins franska fyrir-
tækis. Samkvæmt
samningum mun hið
franska fyrirtæki
hanna verksmiðjuna og
selja allar þær vélar og
tæki sem nauðsynleg
eru.
Mál þetta hefur verið i undir-
búningi undanfarin ár. 1 janúar
1979 heimilaði þáverandi land-
búnaðarráðherra, Steingnmur
Hermannsson Áburðarverk-
smiðjunni aöleita tilboða i sýru-
verksmiðju i Gufunesi. Var þá
hafist handa um gerð Utboðslýs-
ingar og tilboða leitað i Þýska-
landi, Frakklandi, Englandi og
Bandarikjunum, með tilboðs-
fresti til 1. september 1979.
Höfðu þá borist fimm tilboð, tvö
þýsk en eitt frá hverju hinna
landanna. Við mat á hinum
ýmsu tilboöum kom i ljós, að til-
boð frá frönskum og þýskum að-
ilum voru hagstæðust. En við
nánari könnun og arðsemismat,
sem Aburðarverksmiðjan lét
gera með aðstoð Seðlabanka Is-
lands, reyndist hagfelldast að
semja við franska fyrirtækið
Grande Paroisse. Þann 18. júnl
1980 heimilaði landbúnaðarráð-
herra, Pálmi Jónsson, Aburðar-
verksmiðjunni að ganga til
samninga um byggingu nýrrar
sýruverksmiðju I Gufu-
nesi.Samningsgerðin fór fram i
Reykjavik og lauk eins og fyrr
segir með undirritun samnings
við Grande Paroisse.
Við gerð Utboðslýsingar, mat
á tilboðum, svo og samnings-
gerðina sjálfa naut Aburðaar-
verksmiðjan aðstoðar og ráða
verkfræðideildar Norsk Hydro i
Osló.
Með hinni nýju saltpéturs-
sýruverksmiðju i Gufunesi næst
tvennt fram: í fyrsta lagi
verður unnt að framleiða i land-
inu mestallan þann áburð, sem
þörf er fyrir, en fram til þessa
hefur um þriðjungur notaðs
áburðarmagns verið innfluttur.
1 öðru lagi hverfur hinn hvim-
leiði guli reykur, sem lagt hefur
upp frá verksmiðjusvæðinu og
stafar frá hinni gömlu sýru-
verksmiðju.
Gert er ráö fyrir að fram-
kvæmdir við hina nýju verk-
smiðju, hefjist á komandi
sumri, en um það er samið að
hún verði tilbúin til framleiðslu i
febrúar 1983. Aætlaður stofn-
kostnaður, þegar samningurinn
var undirritaður, er um 47
millj. nýkr.
mminn 5
AUGLÝSING
UM INNLAUSNARVERD
VERÐIRVGGDRA
SRARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍ M ABIL INNLAUSNARVERÐ*1 10.000 GKR.SKÍRTEINI
1968 — 1. fl. 1968 - 2. fl. 1969- 1.fl. 1970- 2. fl. 1972 — 1. fl. 1973- 2. fl. 1975- 1.fl. 1975 - 2. fl. 1976- 1.fl. 25.01.81 25.02.81 20.02.81 - 20.02.82 05.02.81 - 05.02.82 25.01.81 -25.01.82 25.01.81 - 25.01.82 10.01.81 - 10.01.82 25.01.81 -25.01.82 10.03.81 - 10.03.82 nýkr. 7.920,38 nýkr. 7.490,96 nýkr. 5.574,93 nýkr. 3.702,02 nýkr. 2.907,69 nýkr. 1.707,94 nýkr. 961,87 nýkr. 725,68 nýkr. 690,98
*) Innlausnarveró er höfuöstóll, vextir, vaxtavextir og veröbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóös fer fram í afgreiðslu
Seölabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, janúar 1981
SEÐLABANKI ÍSLANDS
Sími auglýsingadeildar Tímans er 86-300
t el U-Aku'
Omtoo6*"" 6vml 25666 6&70
, 662Í6
***»*>»&»<#■*
. pvigetu V
w-tsSV**'**
***** -
vmmmr*
Nö'o'
Pab9*°aú* 06"". S>n"40960
e\ií&riw
m
wm
S8Wii*
Wm .. M1'