Tíminn - 18.01.1981, Blaðsíða 12

Tíminn - 18.01.1981, Blaðsíða 12
XI Sunnudagur 18. janúar 1981 Sunnudagur 18. janúar 1981 21 „Menn hafa löngum velt fyrir sér þeirri spurningu, hvernig gróöri var háttaö hér á landi viö upphaf landnámsins. Um þaö verður varla deild, aö þá var gróður- lendið stærra og gróskumeira en nú gerist”. Þetta éru orð, sem birt eru til kynningar á grein, sem Hörður Kristinsson, prófessor i grasa- fræði hefur skrifað i timaritið Týli, sem gefið er út af Bókafor- lagi Odds Björnssonar i samlög- um við náttúrugripasafnið á Akureyri og lýtur ritstjórn Helga Hallgrimssonar náttúrufræðings — eins fegursta og vandaðasta timarits, sem gefið er út hér á landi, þótt smátt sé i sniðum. t framhaldi af þessum kynning- arorðum ersíðan sagt, að i grein- inni leitistHörður við að gera sér hugmynd um upprunalegan gróð- ur heiðanna húnvetnsku og hafi þar til leiðsagnar gróður þann, sem dafnar á hólmum fjalla- vatna, er lengi hafa verið friðað- ir. Alkunn eru þau orð Ara fróða og nálega hverju mannsbarni munntöm, að landið hafi verið viði vaxið milli fjalls og fjöru, er norrænir menn komu hér að landi. Ekki er þvi þó að leyna, að nokkuð hefur menn greint á um það, hversu bókstaflega beri að skilja þau, en til eru einnig þeir, er hafa viljað hafna þeim að miklu leyti. En djarft er þó að slá sliku fram, núá tuttugustu öld, án þess að geta fært fram gild rök, og svo óliku betur var Ari settur til þess að vita hið sanna, fæddur aðeins tvö hundruð árum eftir upphaf landnámsaldar, sem aftur þýddi, að hann gat á unglingsár- um hæglega hlýtt á tal þeirra, er mundu land og fólk á fyrstu árum kristins siðar. Fáar kynslóðir geta spannað yfir einkennilega löng timabil, og er skemmst til þessaðvitna, aðá afmæli rikisú't- varpsins á dögunum hlýddi fólk á Axel Thorsteinsson lesa fréttir — þann mann, er átti afa á barns- aldri i móðuharðindunum. Þar hafa þrjár kynslóðir þvi lifað nokkurn veginn jafnlangt timabil og leið frá komu Ingólfs Arnar- sonar til landsins til fæðingar Ara Þorgilssonar. Þess vegna virðist eðlilegt að lita á getgátur nútima- manna, sem vilja að litlu eða engu hafa orð fornra sagnfræð- inga, sem ekki áttu tiðindi um lengri veg að spyrja en þetta um atriði, þarsem ekkertvirðist hafa getað ýtt undir þá að halla réttu máli, eins og anga af dálitið rang- snúinni tizku i eltingaleik við það, sem á að heita frumlegt. Frjórannsóknir þær, sem Þor- leifur Einarsson gerði eitt sinn, bentu og til þess, að hér i ná- grenni Reykjavikur hefði verið skóglendi mikið á landnámsöld, en birkið eyðst fljótt, og kemur hvort tveggja heim við hina fornu lýsingu á gróðurfarinu — viðáttu skóga i öndverðu og þá rýrnun þeirra, fljótlega eftir að búseta norrænna manna hófst, er álykta má af þvi, að þar er skirskotað til þess, sem var. Langsennilegast viröist, að meginhluti láglendis hafi verið vaxinn birkiskógi, nema mestu votlendissvæði og sandar með sjó fram, og þaðan svo hátt til fjalla sem vaxtarskilyrði voru. Þá er einnig liklegt, að hálendið hafi veriö algróið landsfjórðunga á milli, og má þvi til rökstuðnings benda á, aö menn hafa tæpast haft járn undir alla þá hesta, er þeir þurftu til, þegar hundruð manna riðu milli Suðurlands og Norðurlands eins og gerðist til dæmisi herförum á Sturlungaöld, en án hestajárna hefðu þeir ekki komizt leiðar sinnar, ef þá hefði verið um blásið og ógróið land að fara. Raunar þurfum við einskis að spyrja um þaö, hvaöa áhrif bú- seta og beit hefur á gróðurfarið. Þar blasir við augum, þar sem ó- Kænunes, þrjú hundruö metra frá hólmanum: Skilyrði hin sömu og i hólmanum að frátekinni friöuninni. Gróöurinn aöeins mosaþembur og fjalidrapi. — Ljósmynd: Höröur Kristinsson ræktarland hefur verið girt og friðað — allt situr við hið sama ut- an girðingar, þó innan hennar hafi gróðurinn þotið upp. Þetta blasir við norður á Hornströnd- um, einum harðbýlasta hluta landsins, þar sem undraverð blómlendi og blómstóð og kvistur hefur þotið upp síðan byggð féll niður. Og úr Viöidal I Stafafells- fjöllum höfum við vitni um það, hvernig gróðri hrakaði, þegar þar var reist bú, oftar en einu sinni, en tók siðan jafnskjótt við sér, þegar byggðin lagðist af. Um þetta er ekki að fara fleiri leikmannsörðum, en snða sér að þeirri rannsókn, sem Hörður Kristinsson, einn lærðasti grasa- fræðingur landsins, hefur gert á húnvetnsku heiðunum og niður- gróðurhnignunin nær svo langt, að uppblástur siglir i kjölfariö. Uppblásturinn er aðeins lokastig i langri röð hægfara gróðurbreyt- inga — svo hægfara, að þær dylj- ast auðveldlega einni kynslóö. Orðugt er að afla áreiðanlegra upplýsinga um hinn upprunalega gróður landsins, nema þar sem svo hagar til, að náttúrulegar að- stæður hafa varið landið gegn á- sókn manna og búfjár. Slikir staðir finnast hér og hvar og vekja oft undrun og aðdáun þeirra, sem þar koma. Helzt eru það hvammar i torsóttum gljúfr- um, klettasyllur eða hólmar i vötnum og ám, sem veita innsýn i náttúrulegan gróður landsins”. Hann getur þess siðan að þau svæði, sem friðuð hafa verið á vestra á Auðkúluheiði, sem er i 440 metra hæð yfir sjávarmáli”, segir hann. „Hólmi þessi er til- tölulega flatur og lágur. Nærri honum gengur lágt nes, Kænunes, út i vatnið. Virðast þar vera eink- ar lik gróðurskilyrði og i hólman- um sjálfum, að þvi undanskildu, að hólminn hefur ætið verið frið- aður fyrir bdfjárbeit, en fé og hestar ganga um nesiö eins og aöra hluta heiðarinnar. Við þann samanburð, sem þarna gat að liía, varð mér ljós- ara en áður, hversu gifurleg um- skipti hafa orðið á gróðurfari landsins i kjölfar þeirrar landnýt- ingar, sem hér hefur tiðkazt frá fornu fari”. Með þvi að hólminn i Frið- mundarvatni var fremur einhæf- ur að landslagi, en augljós nauð- syn þess að afla meiri þekkingar á beitarfriðuðum gróðri, var ann- ar leiðangur gerður út frá Akur- eyri sumarið 1977 til þess að skoða fleiri hólma, þar sem landslag var fjölbreyttara. Með Herði var þá þrettán ára drengur, Stefán Stefánsson, sem tileinkað hafði sér mikla þekkingu á is- lenzkum plöntum. Skoðuðu þeir þá hólma i þremur vötnum — Eyjavatni og Lómatjörnum á Höröur Kristinsson prófessor lendi. Einkum er það bezti beitar- gróðurinn, af svipuðu tagi og enn finnst i hólmanum i Friðmundar- vatni vestra og i Lómatjörnum, sem hefur horfið f heiðunum. I hans stað eru komnar mosa- þembur með fjalldrapa og þursa- skeggi, sem hafa margfalt rýrara beitargildi”. Hörður segir, að nærri megi fara um það, hvernig þessar gróðurbreytingar hafi orðið. Fullnaðarsönnunum verði að visu aðeins við komið með tilraunum, sem hljóta að taka afarlangan tima. En þá tilgátu, sem hann telur sennilega, rekur hann á þessa leið: ,,Ég fjalla hér aðeins um likleg- ar breytingar á þvi gróðurlendi (kjarr- og blómlendi), sem áður var lýst i hólmanum i Friðmund- arvatni vestra, en gera má ráð fyrir, að samsvarandi breytingar hafi orðið á ýmsum öðrum gróðurfélögum. Við litum fyrst á hávöxnustu tegundirnar, sem veita öðrum skjól — hvönn, loð- viði og gulviði. Féð er afarsólgið i ætihvönn og gerir henni og burni- rótinni skil á undan flestum öðr- um tegundum. Undir Arnarfells- múlum i Þjórsárverum, þar sem hvönn og burnirót mynda sums Bakki hóimans i Friöarmundarvatni, þakinn stórvaxinni burnirót, er fengiö hefur aö dafna i friöi, sama, hversumikil beitin er, hon- um verður ekki útrýmt eins og hvönninni. Þegar hvönnin er horfin og við- irinn hefur verið klipptur niður, hverfa ýmsar aðrar tegundir, sem háðar eru þeirri vernd, sem runnarnir gefa. Gildir það liklega um skrautpunt, reyrgresi, linarfa ogeski. Þetta-hefur einnig þau á- hrif, að kjarrið hættir að draga til sin jafna snjóþekju á veturna, snjórinn blæs af hávöðum i land- inu og eftir verður berangur. Þar með er brostin forsenda þess, að blágresið geti almennt dafnað gamburmosi að öðru nafni, sem þrifst ekki innan um viðikjarrið og þolir illa snjóþekju á vetrum, verður fljótlega rikjandi tegund og myndar mosaþembur, sem ekki nýtast til beitar. Er og al- þekkt þau áhrif langvarandi of- beitar, að lélegum og litt eftir- sóttum beitarplöntum fjölgar, og getur það skýrt aukna hlutdeild þursaskeggs og fjalldrapa á heið- unum. Samkvæmt rannsóknum, sem Yngvi Þorsteinsson hefur gert, er liklegt, að gróðurlendi, sem búið hefur við langvarandi beit, hafi einn sjöunda hluta blómlendi á raklendum stöðum, þar sem gulviðirinn þreifst, en þar hafi þá verið þeim mun meira afstör og grösum. Um útbreiðslu ætihvannarinnar sé erfiðara að segja, en hún unir sér bezt við læki, íindir og vötn, enda dreifist fræ hennar auðveldiega með vatni. Hæðir og bungur ætlar hann alltaf hafa verið með mosa- þembugróðri og lyngi, þvi að þær hafi verið of áveðurs fyrir viöinn og snjór fokið af þeim, en á hitt bendi rannsóknir, að mosa- þemban hafi verið flétturikara á meðan beitar gætti ekki og varizt Fyrrum átti ég fagurt land Rannsóknir Harðar Kristinssonar, grasafræðiprófessors á upphaflegum gróðri á húnvetnskum heiðalöndum Hvannstóö á friöuöu landi i 440 metra hæö yfir sjávarflöt. uppiá heiðunum. Viö þá veöráttu, sem þar rikir, þarf að snjóþekja. Ef viðikjarrið tryggir ekki slika snjóþekju, verður blágresið að láta sér nægja djúpar snjódældir. Blágresið finnst nú hvergi á Auð- kúluheiði nema i slikum snjó- dældum að undanskildum hólm- unum, þar sem hávaxinn gróður skýlir þvi og jafnar snjóbreiðuna. Ekkier vafi á þvi, að blágresið og fleiri tegundir (mariustakkur, reyrgresi, klukkublóm, skraut- puntur) væru mun útbreiddari um heiðina en nú er, ef gulviðir- inn fengi að veita þeim skjól”. Hörður drepur siðan á aðra al- varlega afleiðingu þess, að snjó - inn blæs af landinu. Grámosi, fóðurgildis á við gróðurlendi eins og er i hólmanum i Friðmundar- vatni. Hörður segir, að „þær gróður- breytingar, sem lýst er aö fram- an, þegar viðkjarr með blágresi, hvönn og burnirót breytist i mosaþembu með fjalldrapa, þursaskeggiog fléttum”, muni þó aðeins hafa orðiö á hluta Auð- kúluheiðar. Fjarri fari, að hún hafi öll verið þakin gróðurlendi af þvi tagi, sem nú eru i hólmanum i Friðmundarvatni vestra. Hann telur sennilegt, að útbreiðsla gul- viöisprota i gróðursverðinum gæti gefið góða visbendingu um fyrri útbreiðslu kjarrs og blóm- lendis. Trúlega hafi þó ekki verið betur uppblæstri. Fióar ætlar hann, að hafi verið með grósku- miklum fifu-og stargróðri, svipað og nú. Þeim er litil hætta búin af fjárbeit. Aftur á móti getur gæs gengið nærri þeim eins og kunn- ugt er úr Þjórsárverum. Flóa- jaðra og brekkurætur sem nú eru beztu beitilöndin, hyggur hann svipaðs eðlis og áður var, enda snjóskaflar til hlifðar á vetrum, og ráði hagstæð rakaskilyrði og skjól eflaust mestu um grasgefni þessara bletta. Sennilegt er þó, að viðikjarr hafi jafnað jarðvegs- rakann og svipað og verður i skóglendi, og þess vegna hafi beitin haft áhrif á þá átt að gera ásana þurrari og flóana blautari með þeim gróðurfarsbreytingum, sem þvi eru samfara. „Þær kenningar, sem hér hafa verið settar fram um breytingar gróðurs á Auðkúluheiði, eru byggðar á athugunum, ályktun- um, dregnum af samanburði og grasafræðilegri reynslu viðs veg- ar um land”, segir Hörður. „Hægt er að komast lengra meö ýmsum viðbótarathugunum, gróðurmælingum, uppskerumæl- ingum og ekki sizt með þvi aö kanna beitarfriðaðan gróður, sem ekki hefur orðið fyrir verulegum áburðaráhrifum. Þegar hafa ver- ið undirbúnar framhaldsrann- sóknir á þessum vettvangi á veg- um Liffræöistofnunar háskól- ans”. Að leiðarlokum vikur Hörður að þvi, að grasáfræðilegar frum- rannSóknir hafi setið mjög á hak- anum hérlendis, liklega vegna þess að menn hafi ekki talið þær hagnýtar. Hagnýtar rannsóknir verði þó að byggjast á uftdir- stöðuratinsóknum, ef árangur á að nástán blindrar tiíraunastarf- semi og mikils tilkostnaðar. Hann segir: „Ef svo reynist, aö hinn nátt- úrulegi gróöur landsins hafi tekiö stööum þeim, sem hann birti i Týli. Upphafsorð hans eru þessi: „Flestum þeim, sem þekkingu hafa á islenzku gróðurfari mun ljóst, að miklar breytingar hafa orðið á gróðri landsins siðan land- nám hófst. Mest ber á hnignun birkiskóganna á láglendi. Hvar- vetna þar sem birkiskógar heyra til hinum náttúrulega, uppruna- lega gróðri, vex birki og viðikjarr sjálfkrafa upp, ef landinu er gef- inn friöur til þess. Færri munu hafa leitt hugann að þvi, að mikl- ar gróöurbreytingar kunni einnig að hafa átt sér stað á hálendinu fyrir ofan skógarmörkin. Afleið- ingarnar leyna sér þó ekki, þegar seinni árum vegna skógræktar, séu flest svo ung, að þar gæti að- eins fyrsta stigs framvindu i átt til þess gróðurfars, sem landinu er eiginlegur án búfjárbeitar við það loftslag, sem hér er. Og öll eru þessi svæði á láglendi, þar sem birkiskógar eru náttúrulegur gróður. . Að svo mæltu vikur hann að þvi, að hann vann sumarið 1976 að gróðurrannsóknum vegna fyrir- hugaörar Blönduvirkjunar á Auð- kúlu- og Eyvindarstaðaheiðum, ásamt Helga Hallgrimssyni nátt- úrufræðingi og Þóri Haraldssyni menntaskólakennara. „Þá gafst tækifæri til aö kanna gróöur i hólma einum i Friðmundarvatni Auðkúluheiði og Bugavatni eða Aöalmannsvatni austan Blöndu. Af þvi erskemmstaðsegja, að i hólmum þessum reyndist hinn fegursti og þroskamesti gróður, einkum i hólmanum i Friðmund- arvatni vestra — gulviðir, loðvið- ir og hvönn um hálfan annan metra hæð og breiður af blágresi og brennisóley og burknirótar- búskum, puntir, hófsóleyjar, elft- ing og klukkublóm og stórgerð stör, þar sem mýrlent er, en lyng á hæstu bungum. „Samanburður hólmanna við heiðalöndin umhverfis þá bendir eindregið til þess, að gifurlegar breytingar hafi sums staðar orðið á gróðurfari heiðanna á liðnum öldum vegna beitarinnar”, segir Hörður. „Allar aðstæður virðast mjög sambærilegar i Kænunesi og hólmanum i Friðmundarvatni vestra, svo sem landslag, jarð- grunnur, nærvera vatnsins og hæð yfir vatnsborð. Það, sem skilurá milli, er að hólminn hefur ætiö verið friðaður fyrir búfjár- beit, en nesið ekki. Gróðurinn i Kænunesi virðist vera dæmigerð- ur fyrir þurrlendisgróður á Auð- kúluheiðinni, og gróðurinn i hólmanum er svipaðs eðlis og friðaður gróður er annars staðar við sambærilegar aöstæður. Svo virðist sem beitin verði smátt og smátt til þess, að ákveðin svæði bókstaflega skipti um gróður- staðarsamfelldar breiður, verður flag eitt eftir, þegar búfé hefur farið þar um og valið gómsætustu beitarplönturnar. Ef fé kemst snemma i hvönnina, nær hún hvorki að blómgast né mynda fræ. Þar sem hún er háð fræ- myndun til að viðhalda stofnin- um, hverfur hún innan tiðar eftir mikla árlega beit allt sumarið. Gulviðirinn þolir beitina betur, þvi að hún verkar með timanum eins og klipping, svo að hann myndar stutta, jarðlæga sprota, i stað eins til tveggja metra hárra runna (hærri i innsveitum á lág- lendi). Hann verður oft svo litið á- berandi i gróðrinum, að menn taka varteftir honum. Það virðist Gróöur í hólma i Friömundarvatni vestra, þar sem engin beit hefur veriö um aldir, vekur undrun og aödáun. — Ljósmynd: Helgi Hallgrimsson. t - " ' ' Vatnsbakkinn sjálfur, þar sem búpeningur kemst aö, er ber og nakinn og meö sama svip og mikill hluti Auökúluheiöar. verulegum breytingum, sem rýra beitargildi hans margfalt, vegna óskipulegrar beitar siöan á land- námsöid, skiptir sú staöreynd verulegu máli viö öll framtlöará- form um endurbætur á beitar- löndunum. Slíkar niöurstööur ættu i raun og veru aö vera mikiö fagnaðarefni landsmönnum öll- um — og ekki sízt bændum. Þær myndú I fyrsta lagi þýöa, aö hinn náttúrulegi gróöur landsins er margfalt meiri en núverandi útlit hans gefur visbendingu um. 1 öðru lagi ættu beitarlöndin auð- veldlega aö geta borið núverandi fjölda sauöfjár, og liklega tölu- vert meira, ef þau aðeins fengju fyrst aö jafna sig aö fullu og mynda klimaxgróður, og beitinni yröi siöan stýrt eftir þeim leiöum, sem hagkvæmastar reynast. Þótt áburöargjöf, meö eöa án sáningar grasfræs, muni eflaust bezt bæta ýmis beitarlönd lág- lendis, ekki sizt sandana sunnan lands, og viöar þar sem jarðraki er nægur, er liklegt aö langvar- andi friöun væri hagkvæmari lausn á þeim hlutum hálendisins, sem enn hafa óskertan jaröveg. Aö sjálfsögöu yröi slikt aö gerast i áföngum. Samkvæmt vistfræðilegum lög- málum myndast klimax-gróður af sjálfu sér, ef beitarálagi er af- létt, án annars tilkostnaðar en hólfunar beitarlandanna með girðingum, sem nauðsynleg er til timabundinnar friðunar og einnig til að stýra beitinni á þann veg, að klimax-gróður haldist. Eigi hins vegar að viðhalda graslendi á öll- um þessum svæðum til lengdar með og áburðargjöf, leiðir það til mikils kostnaðar um ókomin ár. Að öðrum kosti myndast með timanum klimax-gróður eða beit- arklimax eftir þvi, hvernig beit- arálag er mikið og hvernig þvi er stýrt. Auk þess myndi hinn tilbúni gróður sifellt vera i hættu fyrir ýmsum skakkaföllum af völdum veðráttu, kals og uppblásturs, sem klimax-gróðurinn er betur lagaður að, vegna langvarandi erfðafræðilegrar mótunar við is- lenzkar umhverfisástæður og önnur staðbundin skilyrði. Það eina, sem myndi réttlæta ræktun á hálendinu væri, að imi ræktuðu lönd gæfu svo mikRrmeiri og betri uppskeru en klimax-gróður- inn, að hún væri tilkostnaðarins og áhættunar virði”. Hér hefur aðeins verið stiklað á sumum atriðanna i hinni merki- legu grein Harðar Kristinssonar prófessors. Rannsóknir hans eru hinar merkustu og timabært að kenningun hans sé gefinn gaum- ur. Hann leiðir rök að þvl, að stór- irhlutarheiöalandanna á hálend- inu hafi veið vaxnir svo fögrum gróðri, að menn rekur i roga- stanz, þegar þeir nú sjá bletti, sem varðveitzt hafa óspilltir. Hann leggur á ráðin um það, hvernig endurheimta megi nokkuð af þvi, sem tapast hefur, svo að þessar heiðar verði marg- falt verðmætari en nú er með gætilegri notkun, og bendir þar raunar á hliðstæða leið og farin er i skiptum við fiskstofnana i sjón- um nú siðustu ár — að veita þeim þá vernd, að þeir geti eflzt og stjórna siöan veiðum þannig, að þeim sé ekki misboðið eða á þá gengið. Hann segir okkur, að heiða- gróðurinn, sem viða virðist svo ó- sköp rýr, þegar yfir landið er lit- ið, leyni á sér, þvi i sverðinum dyljist sprotar, sem geta náð sér á legg, ef þeim er ekki sifellt varnað þess, og orðið öðrum gróðri til skjóls og hlifðar. Og hann varar við fálmkenndum að- ferðunr, sem ekki byggjast á rannsóknum, og gætu orðið kostn- aöarsamari leið en vera þyrfti til þess að ná æskilegum árangri. Þeir,sem tilhlitar vilja fylgjast með rannsóknum Harðar á hún- vetnsku heiðunum og viðar ættu að verða sér úti um Týliheftið, þar sem grein hans birtist.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.