Tíminn - 24.01.1981, Page 5
Laugardagur 24. janúar 1981.
Eitt fullkomnasta kammer-
verk fyrr og síðar flutt
Þriöju áskriftartónleikar
Kammersveitar Reykjavikur á
þessu starfsári veröa haldnir i
Austurbæjarbiói n.k. mánu-
dagskvöld, þann 26. janúar kl.
7,15. A efnisskrá eru tvö önd-
vegis kammerverk, sem bæöi
tvö eru talin meö merkustu tón-
verkum tónbókmenntanna.
Fyrst veröur fluttur klarinett-
kvintett op. 115 eftir Johannes
Brahms, en þaö verk hafa tón-
listarfræöingar taliö fullkomn-
asta kammerverk sem samiö
hefur veriö fyrr og siöar. Þótt
liðin séu tæp 90 ár siöan verkiö
var frumflutthefur þaö einungis
heyrst fjórum sinnum leikið á
tónleikum hér á landi. Siðara
verkiö á tónleikunum er Pierrot
lunaire eftir Arnold Schönberg
samið og frumflutt áriö 1912.
Pierrot lunaire er timamóta-
verk sem olli miklum straum-
hvörfum I tónlistarheiminum
þegar það var frumflutt. Hafa
fá tónverk haft jafn viötæk áhrif
á samtið sina og þetta fræga
verk Schönbergs. Pierrot
lunaire er eitt af erfiöustu
kammerverkum i flutningi sem
þekkjast og heyrist þvi sjaldan
á tónieikum. Kammersveit
Reykjavikur flutti verkið á
Listahátiö 1980 viö fádæma
hrifningu þeirra sem lögöu leið
sina i Þjóðleikhúsið einn fagran
sumardag i júni s.l. Vegna
fjölda áskorana þeirra sem þá
heyröu verkiö flutt svo og þeirra
sem fóru á mis viö tónleikana i
sumar ákvaö Kammersveitin
aö flytja verkiö aftur á þessu
starfsári. Rut Magnússon fer
með lykilhlutverkiö i Pierrot
lunaire, en stjórnandi verksins
er bandariski hljómsveitar-
stjórinn og fiðlusnillingurinn
Paul Zukovsky. Ennfremur
mun Zukovsky ieika meö i
strengjakvartettinum i klari-
nettkvintett Brahfns, en Gunn-
ar Egilson fer meö klarinett-
hlutverkiö.
Verkamannafélagið
Dagsbrún 75 ára
Opið hús í
Lindarbæ
á morgun
HEI — Verkamannafélagið
Dagsbrún i Reykjavik verður
75 ára næst komandi mánu-
dag. Félagið var stofnaö i
Bárubúö hinn 26. janúar 1906.
Að sögn Eðvarðs Sigurðs-
sonar, formanns Dagsbrúnar
hefur félagið opið hús i
Lindarbæ klukkan 15-18
sunnudaginn 25. janúar, þar
sem félagsmenn og makar
þeirra auk annarra velunnara
félagsins eru boðnir velkomn-
ir. Hann sagði ekki áformað
að efna til neins sérstaks til-
stands i kringum þetta
merkisafmæli.
Jóhann Einvarðsson
Ólafur G. Einarsson.
Sighvatur Björgvinsson
Fundur um Þingmannasam-
tök Atlanshafsríkj anna
Samtök um vestræna samvinnu
(SVS) og Varðberg gangast sam-
eiginlega fyrir fundi um Þing-
mannasamtök Atlantshafsrikj-
anna („North Atlantic Assem-
bly”) laugardaginn 24. janúar.
Frummælendur verða alþingis-
mennirnir Jóhann Einvarðsson,
Ólafur G. Einarsson og Sighvatur
Björgvinsson en þeir eru fulltrúar
tslands hjá samtökunum. Þeir
munu fjalla um sögu samtakanna
og starfsemi, skýra frá siöasta
þingi þeirra og ræða almennt um
Island og NATO.
Fundurinn sem er ætlaður
félagsmönnum SVS og Varðbergs
og gestum þeirra, verður haldinn
i Atthagasal Hótel Sögu (suður-
enda) og hefst kl. 12.15.
(Fréttatilkynning).
Borgarstjórn
samþykkir:
Ananda Maiga
fái styrk til
að reka
barna-
heimili
Kás — Borgarstjórn sam-
þykkti á fundi slnum si.
fimmtudagskvöld, þegar fjár-
hagsáætlun borgarinnar fyrir
þetta ár var til seinni umræöu,
að veita félagasamtökunum
Ananda Marga rekstrarstyrk
til dagvistunarheimilis sem
þeir reka. Var þessi fjárveit-
ing samþykkt að tillögu Al-
berts Guömundssonar,
borgarfulltrúa, meö átta sam-
hljóða atkvæðum.
Aöur haföi félagsmálaráö
fjallaö um máliö, en erindiö
hlaut ekki stuöning þar. Hins
vegar var þaö upplýst á fundi
borgarstjórnar aö mjög litil
aðsókn heföi veriö undanfariö
að barnaheimili Ananda
Marga, þannig aö forsvars-
menn þess hefðu leitaö til for-
stöðumanns dagvistunar-
stofnana hjá Reykjavikurborg
og boðist til að taka börn af
biðlista hjá þeim.
Styrkurinn sem borgar-
stjórn veitti Ananda Marga er
2.7 millj. gkr. Reykjavikur-
borg veitir styrk til þriggja
annarra barnaheimila sem
ekki eru i eigu borgarsjóðs.
Þaö eru dagheimilin ösp og Ós
og leikskóli KFUM.
mmn
OHKU SPARN AÐUR
Okkar framlag í orkusparnaði
SÝNUM GÆÐINGA
um helgina kl. 2-5 s.d.
í Varahlutahúsinu v/Rauðagerði
CHERRY GRAND LUX
þann sparneytnasta frá Datsun
Framhjóladrifinn. Fylgihlutir m.a.:
Klukka - útvarp - snúningshraðamælir.
Opnun á skuthlera og bensinloki
úr ökumannssæti ásamt fleiru er fylgir
luxusgerð bila Nú á ótrúlega góðu verði.
Veruleg hækkun á næstu sendingu
DATSUN
PICK UP DIESEL
Burðargeta 1200 kg. - Vél sem hefur
margra ára reynslu islenskra
leigubifreiðastjóra. - Luxus innrétting
VERIÐ VELKOMIN AÐ SKOÐA
GÆÐINGANA
Datsun €* umboðið
INGVAR HELGASON
Vonarlandi við Sogaveg Simi 33560