Tíminn - 29.01.1981, Qupperneq 8

Tíminn - 29.01.1981, Qupperneq 8
8 Fimmtudagur 29. janúar 1981 Upplýsing'ar frá Hagstofu íslands Hvað er manntal? Manntal er annað og meira en talning mann- fólksins á landinu. Manntal er hagfræðileg út- tekt, sem hefur fólkið i landinu að viðfangsefni. Meginatriði sérhvers manntals má teljá þrjú: 1) Hvað starfar fólkið i landinu? Þau störf, sem hver þjóð innir af hendi, sú vinna, sem lögð er fram i samfélagi fólks, er þriþætt: atvinna, heimilisstörf og nám. 2) Hvernigskiparfólkið i landinu sér i frumhópa samfélagsins, fjölskyldur og heimili? 3) Við hvaða aðbúnað býr fólkið i landinu, að þvi er varðar húsakost og fleira. Manntalið þáttur í alþjóðlegu samstarfi Manntalið 1981 er hið 22. i röð svokallaðra aðalmanntala á Islandi. Það er tekið samkvæmt lögum nr. 76. 19. desember 1980. Manntöl eru svo mikilvæg undirstaða allrar vitneskju um stöðu þjóöar, að bæði Þjóðabanda- lagið gamla og arftaki þess, Sameinuðu þjóðirnar, hafa staðið fyrir alþjóðlegu sam- starfi um manntöl: til hvaða efnis skuli taka, hvernig ýmis hugtök skuli skýrgreind, o.s.frv. og siðast en ekki sist hvenær þau skuli fara fram. 1 samræmi við tillögur hagstofu Sameinuðu þjóðanna eru manntöl tekin i flestum löndum heims 1980 eða 1981. Manntal var t.d. tekið i Bandarikjunum 1. april i fyrravor, i Svi- þjóð, 15. september, i Noregi og Finnlandi 1. nóvembersiðastliðinn, og manntal verður tekið i Efnahagsbandalagslöndunum i vor. 1 einungis fimm rikjum heims hefur alls- herjarmanntal aldrei farið fram. Þessi riki eru Eþiópia, Ginea og Miðafrika i Afriku, og Laos og Óman i Asiu. Trúnaðarskylda manntalsaðila 9. grein manntalslaganna hljóðar svo: „Upplýsingar skráðar á manntal um einkahagi manna eru einvörðungu ætlaðar til hagskýrslu- gerðar og er óheimilt aö láta aðila utan Hagstof- unnar fá vitneskju um þær. Heimilt er þó að láta viðurkenndum rannsóknaraðilum og opinberum stofnunum i té upplýsingar skráðar á manntal, enda sé þá nöfnum og auökennisnúmerum ein- staklinga sleppt. Orvinnslu manntalsskýrslna skal Hagstofan ein annast, og hlutaðeigandi starfsmennhennarskulu bundnir þagnarskyldu. Teljarar við manntalið og starfsmenn sveitar- félaga, sem vinna að framkvæmd þess, eru einnig bundnir þagnarskyldu.” Manntalsupplýsingar er ekki hægt að nota neinum einstaklingi 1 óhag Engar upplýsingar, sem einstaklingar gefa um sig og sina hagi, verða notaðar á neinn hátt viðkomandi eða öðrum i óhag. Trygging fyrir þessu er i fyrsta lagi eðli manntalsatriöanna: Ekkert þeirra varðar fjármuni eða eignir, nema að þvi er tekur til húseignar. Spurt er um eiganda ibúðar, en slikar upplýsingar eru i öðru samhengi ekki trúnaðarmál, samanber vottorð úr veðmálsbókum. Upphæð tekna kemur ekki fram i manntali, né hvernig einstaklingar eða heimili verja tekjum sinum. Manntalsskráning getur ekki orðið sönnunargagn um neins konar fjárhagsleg málefni, enda trúnaðarskyldan tekin fram á eyðublaðinu. Ekkert manntalsat- riðanna getur talist nærgöngult persónulegum högum fólks, enda alls ekki spurt um tómstundir fólks, áhugamál eða skoðanir. I öðru lagi er trygging gegn óhlutvandri með- ferð upplýsinganna veitt i þeirri lögvernd, er trúnaðarskylda manntalslaganna kveður á um, og skýrð var hér að framan. Liður i þeirri vernd er það, að enginn nema framkvæmendur mann- talsins, þ.e. teljarar og aðrir trúnaðarmenn sveitarstjórna, og starfslið Hagstofunnar við úr- vinnslu manntalsins, hefur aðgang að frum- gögnum manntalsinsþ.e. þeim eyðublöðum, þar sem manntalsatriðin eru skráð. Eftir úrvinnslu liggja upplýsingarnar fyrir sem slikar, sviptar öllum einstaklingsauðkennum, þannig að úti- lokað er að rekja þær til nafngreindra manna. I þriðja lagi felst trygging i viðteknum hefðum við hagskýrslugerð, en þar er nafnleynd varð- andi upplýsingagjafa og hagi þeirra grund- vallaratriði, enda brýnt hagsmunamál fyrir þá stofnun, sem að hagskyrslugerðinni stendur. Störf Hagstofunnar byggjast öðru fremur á þvi, að stofnanir, fyrirtæki og almenningur geti treyst henni fyrir upplýsingum. Þetta gildir um manntal ekki siður en aðra upplýsingasöfnun. Enn fremur má benda á, að manntalslög frá 1920 voru endurskoðuð 1980 og ný lög sett, meðal annar sérstaklega i þeim tilgangi að tryggja rétt einstaklings við manntal. Skipulag manntals Manntaiinu er nú hagað á nokkuð annan hátt en áður. 1960 og fyrr fóru manntöl þannig fram, að teljarar gengu i hús og skriíuðu sjálfir niður eftir fyrirsögn heimilismanna allar upplýsingar um fólkiö, ibúðir og hús á eitt og sama éyðu- blaðið fyrir allt húsið. Við þetta manntal er fólki ætlað að fylla sjálft út skýrslu sina. Formi eyðublaðanna er breytt þannig, að viðfangsefni manntalsins er skipt á þrjú blöð: Einstaklingsskýrslu, sem gera skal um alla 12 ára og eldri um siðustu áramót, ibúðarskýrslu og hússkýrslu. Svokallað krossa- prófskerfi er notað, en það gefur færi á að orða spurningar nákvæmar og einhlitar en annars, og aubveldara verður að svara. Þessi aðferð er nú notuð við manntöl i flestum löndum. T.d. getur gamall maður, sem er hættur að vinna og stundaði ekki nám eftir fermingu, útfyllt sina einstaklingsskýrslu einvörðungu með þvi að setja krossa, nema hvað hann þarf að skrifa heimilisfang i 1. lið, og heiti lifeyrissjóðs, ef það á við. Sama á við alla aðra, sem stunda ekki at- vinnu, hvort heldur það eru unglingar, hús- mæður, öryrkjar eða aðrir — þeir geta svarað einstaklingsskýrslunni á þennan einfalda hátt. örvar á eyðublaðinu visa, hvernig svara skal, og hverju má sleppa, þegar svo ber undir. Auk þess sem hægt er að nota „krossapróf” leiðir sú tilhögun, að hver maður gerir sina ein- staklingsskýrslu, til þess, að allir geta fyllt út skýrsluna samtimis, eftir leiðbeiningum i fjöl- miðlum. Föstudagskvöld 30. janúar kl. 21.15 verður 30 minútna þáttur i sjónvarpinu, þar sem farið verður yfir spurningar einstaklingseyðu- blaðsins i þvi skyni, að hver og einn útfylli það fyrir sig eftir leiðbeiningum i þættinum. Hann verður endurtekinn i sjónvarpi kl. 16 á laugar- dag 31. janúar. Fimmtudagur 29. janúar 1981 4 I íiiiiuiíj 13 MANNTALIÐ 1981 Einstaklingsskýrslu á að gera um alla, sem fæddir eru 1968 eöa fyrr. Hana þarf hver og einn að gera sjálfur, eöa aðrir fyrir hann, þar sem hann á sólarhringsdvöl 31. janúar. Fyrir þá, sem dveljast annars staöar en á lögheimili sinu, þarf annað heimilisfólk að gera einstaklingsskýrslu. Sérstök áhersla er lögð á, að einstaklings- skýrsla skal ekki gerð á dvalar- staö fyrir þá, sem liggja i sjúkra- húsi til timabundinnar dvalar, og er þvi nauðsynlegt, að heimilis- menn, sé um þá aö ræða, vandi til einstaklingsskýrslugerðar fyrir þá, sem eru fjarverandi vegna sjúkrahúsdvalar. Gera skal einstaklingsskýrslu um alla Islendinga, sem eru i skólanámi eða ööru námi erlend- is, svo og fjölskyldu þeirra nema fyrir liggi, að þeir séu alfluttir til útlanda. Á sama hátt skal skrá aðra tslendinga erlendis, ef taliö er, aö þeir muni setjast aftur að á Islandi. Nánustu venslamenn Islendinga erlendis gera ein- staklingsskýrsluna fyrir þá. Sam- kvæmt eðli máls er ekki krafist tæmandi útfyllingar einstaklings- skýrslublaðsins fyrir þá, sem búðar og hjónabands, þar eð þá kemur fram, hvort óvigð sambúö er undanfari hjónabands, og hve lengi hún stóð. Athugið sérstaklega, að einung- is er spurt um sambúö og hjóna- band, sem er við lýði manntals- daginn. Ekkert skal upplýsa um sambúð og hjónaband, sem nú er lokiö, hvort sem það varð við and- lát maka eða skilnað. Allir þeir, sem eru ekki i hjónabandi 31. janúar, ógift fólk, fráskilið fólk, ekkjur og ekklar, segja „Nei” i 3. liö. Veitið þvi enn fremur athygli, aö viökomandi aðilar meta það sjálfir hvort sameiginlegt heimilishald þeirra er með þeim hætti, að það teljist óvigð sam- búð. Þó mun verða að lita svo á, aö fólk, sem býr saman i ibúð og hefur eignast barn saman, en er ekki gift, sé i óvigöri sambúð. Að sjálfsögðu er barn ekki skilyröi þess, að fólk teljist vera I óvigðri sambúð. Manntalsupplýsingar má alls ekki nota til neins annars en hag- skýrslugerðar. Þjóðskráin, sem er deild i Hagstofunni, fær þvi ekki aögang að neinum upplýs- Leiðbeiningar um gerð eins taklings skýr slu dveljast erlendis, t.d. þarf engu að svara, sem varðar vikuna 24,- 30. janúar 1981. Auðkenning skýrslunnar, heimilisfang Eins og eyðublaöið ber með sér skal skýrslan auökennd viðkom- andi einstaklingi efst meö nafni hans og fæðingardegi. 1 linuna, sem merkt er „Staður”, skal skrifa dvalarstaö einstaklingsins, nema skýrslan sé gerð af öðrum en honum sjálfum vegna fjarveru hans frá lögheimili 31. janúar, þá skal rita lögheimilið þarna. Séu fleiri en ein ibúö i húsi, þarf að til- greina hvaða ibúö skýrslan til- heyrir, t.d. 2. hæð til hægri eða þess háttar. 11. spumingaliö á að tilgreina, hvar viðkomandi átti heima á til- teknum timum. Séu menn i vafa um, hvernig skuli svara þessu, t.d. vegna þess að þeir dvöldust annars staöar en á lögheimili sinu, eða muni ekki nákvæmlega, hvenær þeir fluttust, nægir að svara eftir bestu trú, enda er alls ekki ætlast til fullrar samsvör- unar meö þvi, sem þarna er ritað, og skráningu i þjóöskrá á sinum tima. Sambúð, hjónaband 1 2., 3. og 4. lið einstaklings- skýrslunnar eru spurningar, sem lúta að fjölskyldugerö. Hlutverk 2. og 3. liðs er fyrst og fremst að leiða i ljós umfang ó- vigðrar sambúðar á Islandi. Talið er, að hún hafi farið I vöxt undan- farin ár, en eins og kunnugt er mun óvigð sambúð hafa tiökast i meiri eða minni mæli mjög lengi hér á landi. Undanfarin ár hefur löggjafinn reynt aö tryggja rétt- indamál þeirra, sem eru i óvigöri sambúö, og er hún þvi nú laga- leg’a viðurkennd að nokkru leyti sem hjónabandsform. Það er mikilvægt að fá fram, hve margt fólk telur sig nú vera i óvlgöri sambúð á íslandi, og hve lengi sú sambúð hefur staöið. Ýmislegt bendir til þess að óvigð sambúö sé oft undanfari vigörar sambúöar, þ.e. hjónabands I hefðbundinni merkingu. Einmitt þess vegna er spurt um upphafsár bæöi sam- ingum úr manntalinu um óvigða sambúð. Kunnugt er, að margt fólk vill ekki, af fjárhagsástæðum eða af öðrum orsökum, að sam- búð þess sé skráð i þjóðskrá. Sambúðarfólk á þvi allt að geta tilgreint sina sambúð óhikað, enda hagsmunamál þess, að óvigð sambúð sé ekki vanmetin sem fjölskylduform hér á landi. 1 úrvinnslu manntalanna 1950 og 1960 var fólk talið I óvigðri sambúð eftir sérstökum reglum Hagstofunnar. Nú þótti hins vegar rétt, að hver og einn mæti þetta sjálfur, eins og áöur sagði. Börn Það er öllum kunnugt, hve miklar breytingar hafa orðið á fjölskyldugerð I tlð núlifandi fólks. Einn mikilvægasti þáttur- inn I þessum breytingum er tengdur tölu barna, sem konur eignast. Upplýsingum kvenna i 4. lið er ætlað aö leiða I ljós, hverjar breytingar hafa oröið á barnatöl- unni með nýjum kynslóöum. Sams konar spurningar gáfu góöa raun 1950 og 1960, en þá voru þær nokkru ýtarlegri. Nám, skólaganga, próf I 5., r6., 7. og 8. lið eru spurningar, sem varða yfirstand- andi nám og skólagöngu, nám, sem menn hafa stundað, og próf, sem þeir hafa lokiö. Efnisinnihald spurninganna er nokkurn veginn það sama og var 1950 og 1960. Tilgangur þeirra er fyrst og fremst sá, að leiöa i ljós, hvaða þjóðarauður liggur i menntun íslendinga, hvernig hún er nýtt I atvinnuvegunum, og hvaöa námi menn eru I nú. Nám er vinna, og eitt þeirra starfssviða fólks, sem manntalier ætlað aðupplýsa um. Athugið, að hafi menn hætt I námi áður en prófi var lokiö, skal engu að stður tilgreina skólann og ártalið I 5. lið. Sé um skóla I út- löndum að ræða, þarf aö tilgreina landið. Þetta á einnig við I 6. lið. Þar á að tilgreina öll próf að loknu námi, sem er til undir- búnings tilteknum störfum, hvort sem prófin veita bein starfsrétt- indi eða ekki. Margir hafa lokið fleiri en einu réttindaprófi eða starfsaðgangs- prófi, t.d. sveinsprófi fyrst og tækniprófi slðar, og þá á aö til- greina hvort tveggja i 6. lið, en aðeins síðari skólann i 5. lið. Þá geta menn einnig lokiö starfsrétt- indaprófi slðaren þeir ljúka prófi til aðgangs að sömu störfum, t.d. uppeldisfræðiprófi nokkrum ár- um eftir að þeir luku B.A.-prófi til kennslu. Þá á aö fara eins að. I 7. liö skal svara þvi hvort maöur hefur lokiö stúdentsprófi. Með stúdentsprófum skal telja aðfararpróf Kennaraháskóla á fyrstuárum þess skóla. Stúdents- próf tekið erlendis skal hér einnig telja, og er þá átt við próf úr framhaldsskóla, sem veita aö- gang að háskólanámi. 18. lið er spurt um nám á árinu 1980. Þarna á bæöi að telja skóla- nám og verklegt nám samkvæmt námssamningi við atvinnurek- anda. Þeir, sem eru á námssamn- ingi, tilgreina I næstaftasta hluta 8. liðs þann fjölda mánaða, sem þeir voru á skólabekk I námi öðru en verklegu námi utan skóla. Heimilisstörf 9. liður er nýtt atriði I manntali hérlendis. Eins og tekiö var fram i upphafi, eru heimilisstörf eitt þeirra þriggja starfssviöa, sem eru undirstaöa framfærslu fólks i landinu. Við fyrri manntöl hefur, með réttueða röngu, ekki þótt vera á- stæða til að spyrja um þann þátt þjóðarbúskaparins, sem heimilis- störf eru. Astæöa þessa er vafa- laust sú, að verkaskipting var miklu meiri hér áöur hvað snerti atvinnu annars vegar og heimilis- störf hins vegar. Nú sinnir fólk þessum verksviðum jafnari höndum, og er þvi nauðsynlegra en áöur að spyrja sérstaklega um heimilisstörfin. Eins og orðalag spurninganna I 9. lið ber með sér, er það lagt I mat hvers og eins að ákveöa, hvaöa störf sin, sem hann inniraf hendi fyrir heimiliö, hann telur heimilisstörf. Til almenns sam- ræmis er æskilegt aö telja eftir- talin atriði til heimilisstarfa: 1) Innkaup á vörum og öðru til heimilidialds. 2) Eldhússtörf og þvottastörf. 3) Þrif húsnæðis, lóðar og heimil- ismenn. 4) Fatagerð o.þ.h. fyrir heimilis- menn. 5) Umönnun barna og annarra, sem hennar þarfnast. Rétt er að vekja athygli á þvl, að ekki er ætlast til neins konar timamælinga eða þess háttar. Tlmamörkin, er viö skal miðaö, eru svo við, að ekki ætti að vefjast fyrir neinum að velja sér viðeig- andi reit i þessum lið. Atvinna 1 vikunni fyrir manntalið Þessari spumingu er ætlað aö leiða i ljós', hve stór hluti lands- manna þáö er, sem telst „virkur viö atvinnustörf” manntalsvik- una. Þaö, að spurt er, hvort maö- urhafihaft tekjur I vikunni (ekki hverjar þær voru) stafar af þvi, aö atvinna er skýrgreind sem sú vinna, sem maður hefur tekjur fyrir. Maður telst „virkur við at- vinnustörf”, þótt hann sé i orlofi eða fjarverandi frá vinnu vegna veikinda. Vinnustaður, vinnutími og ferðir til vinnu í mann- talsvikunni Efni 11., 12. og 13. liðs má heita nýtt I manntali hér. Þó eiga 11. o^ 12. liöur sér óbeina samsvörun í atvinnuspumingum manntalanna 1960 og fyrr. 1 11. liö skal upplýsa, hvar at- vinnustörfin fara fram nákvæm- lega, t.d. Ihvaða sveitarfélagi og hvar I þvl. Með samanburði viö dvalarstaö kemur fram, milli hvaða staöa viðkomandi þarf að fara til vinnu. Liðir 11 og 13 hafa aðallega upplýsingagildi fyrir skipulagsviðfangsefni á vegum sveitarfélaga. Ef fyrirtæki eða stofnun hefur bækistað á einum stað, en við- komandi vann fyrir það á öðrum stað, á I 11. lið að tilgreina þann stað, þar sem maöur taldist fyrst vera kominn til vinnu, hvort sem það var I bækistöð eðá á öðrum vinnustað. 12. lið er ætlað að upplýsa vinnutima fólks i atvinnu sinni. 1 siðari hluta 12. liðs er aö sjálf- sögöu aðeins beðiö um, að sagt sé af eða á, hvort þessi vinnuvika megi kallast venjuleg. Ekki er ætlast til nákvæms samanburðar við meöaltalsvinnuviku eða neitt þess háttar. 13. liður snýr að feröum til vinnu. Athugið að ferðatímann á að miða viö venjulega leið, þann- ig að það telst með I ferðatíman- um, ef bami er komið i gæslu eða aðrir reglubundnir snuningar gerðir I leiðinni til vinnu. Uppruni framfæris 1980 Efni 14. og 15. liðs lýtur aö þvi, hvaðan menn höfðu framfæri sitt á liðnu ári. Þessar spurningar eru þjóðhagslegs eðlis, og þriskipting framfæris I 14. lið er I samræmi viö flokkun I þjóðhagsreikning- um. Efni 14. liðs hefur tilheyrt islenskum manntölum frá upp- hafi, en 15. liður er nýtt atriði. Upplýsingagildi hans er mikið fyrir þá umræðu, sem nú fer fram i þjóðfélaginu um skipan lifeyris- mála. Athugið, að i 14. lið er ekki gerður munur á tekjum lifeyri o.þ.h. eftir þvi hvort það er manns sjálfs eða annarra. Enn fremur þarf að gæta að þvl, að einungis skal setja kross við einn þátt, þann, sem mestar tekur gaf 1980. Langflestir hafa framfæri sitt af þessum þáttum sameiginlega, I misinunandi hlut- föllum, en þarna þarf sem sagt að tilgreina mikilvægasta þáttinn I upphafi 15. liðs merkja við „Já”, allir, sem eru i lifeyris- sjóði, og allir, sem fá lifeyri úr slikum sjóði, þó þeir séu ekki I honum sjálfir, t.d. ekkjur manna, sem voru i lifeyrissjóði og þær fá lífeyri eftir. Ekki þurfa menn að tilgreina orörétt heiti llfeyrissjóðs, t.d. má tilgreina stéttarfélag, ef viðkom- andi man ekki heiti llfeyrissjóðs- ins. Aðalatriði er, að þarna komi fram grundvöllur að flokkun eftir tegund lffeyrissjóöa, t.d. flokkun i verötryggöa og óverðtryggöa lifey rissjóði. Atvinna 1980 1 16. liö er fengið fram, hverjir teljast skulu „virkir við atvinnu- störf” slðastliðiö ár. Efni spurninganna er óbreytt frá fyrri manntölum, nema hvað slðasti hlutinn, um veikindafjarvistir, er nýr. Um þær er spurt að undirlagi landlæknis, en tilgangur með þvl er sá, að samanburðargrundvöll- ur fáist við rannsóknarniöurstöð- ur Hjartaverndar. Sama spuming hefur verið lögð fyrir alla, sem rannsakaöir hafa verið hjá Hjartavernd. Varðandi 2. spurningu I 16. lið skal athuga, að samanlögö tala mánaða I 8. lið og þessum lið get- ur farið yfir 12. Enn fremur þarf að gæta að þvi, að kennarar, sem fá 2-4 mánaða sumarleyfi, svara 2. spurningunni með „Já”, hafi þeir veriö I kennarastöðu allt ár- ið. Farmenn, fiskimenn og aðrir, sem yinna I skorpum en taka sér fri á milli, svara „Já”, hafi þeir einugnis sleppt túr og túr eða þ.h. Þeir sem voru I atvinnu allt áriö merkja við „Já” i öllum mánuð- unum I mánaðaspurningunni, eins þótt þeir hafi veriö I sumar- frli allan júllmánuð. Þar sem talað er um daga I slð- ustu spurningunni, er átt við heildartfma, sem maður hefur verið veikur, þannig að hann hefur forfallast frá vinnu, en ekki virka daga einungis. Þarna verö- ur aö sjálfsögðu að styðjast við mat hlutaöeiganda sjálfs á þvi, hvaða svar muni réttast, og er ekki ætlast til nákvæmrar upp- rifjunar á veikindaforföllum 2980. Heimilismaður fjarverandi einstaklings er beðinn að gera skýrslu fyrir hann. Nánari upplýsingar um atvinnuna Allir, sem teljast hafa veriö „virkir við atvinnustörf” 1980, þ.e. svarað upphafi 16. liðs játandi, þurfa að tilgreina 117. liö, og 18. og 19. lið ef við á, hvaða at- vinnu þeir stunduðu. Beðið er um svo ýtarlegar upp- lýsingar, sem skýrslan ber með sér, til þess að hægt sé að flokka atvinnugrein manna og starfsteg- und nákvæmlega eftir alþjóðleg- um flokkunarreglum, sem hag- stofa Sameinuðu þjóðanna sem- ur, og Hagstofan lagar að islensk- um aðstæðum. Heiti íyrirtækis, starfsheiti o.fl., sem er beðið um, hefur sem sagt ekki sjálfstætt upplýsingargildi, en er grundvöll- ur þessarar ýtarlegu flokkunar. A eyöublaöinu sjálfu er útskýrt, hvernig svara skal atriöunum „Hjá hverjum vannst þú?” og „Við hvaö vannst þú? ” Til frekari skýringa skal itrekað, að við siðarnefndu spurningunni þarf aö gefa dyggjandi svar og frekar skal skrifa fleiri orð en færri ef vafasamt getur verið að eöli starfsins sé fullljóst úrvinnsluf- ilki. Vinnustað þarf aö tilgreina, og ef hann er ekki fastur, t.d. við húsbyggingar eða viðgeröavinnu, er rétt aö tilgreina bækistöð ef hún er fyrir hendi, annars verður aö láta nægja heiti sveitarfélags, eða stærra svæðis ef svo ber undir. Þetta þarf aö athuga varðandi flokkun I atvinnurekendur, ein- yrkja og launþega: Atvinnurek- endur eru hér þeir einir, sem standa fyrir fyrirtæki I eigin nafni og hafa haft aðkeypta vinnu sem svarar minnst 3 mánuðum á ár- inu. — Bændur (bændahjón) eru einyrkjar nema þeir hafi haft að- keypta vinnu utanheimilisfólks 16 ára og eldra sem svarar 3 mánuð- um eða lengur á árinu, þá eru þeir atvinnurekendur. — Heimilisfólk annað, sem vinnur i landbúnaði, er launþegar. — Þeir sem taka aö um eða lengur á árinu, þá eru þeir atvinnurekendur. — Heimilisfólk annað, sem vinnur i landbúnaði, er launþegar. — Þeir sem taka að sér sjálfstæð verkefni sem þeir vinna einir að, t.d. smiðir, bók- haldarar o.þ.h., eru einyrkjar, og skiptir ekki máli hvaða form er á greiðslum til þeirra gagnvart skatti (t.d. þótt greiðslur til þeirra séu taldar fram sem laun). —■ Allir starfsmenn opinberra fyrirtækja, samvinnufyrirtækja og hvers konar félaga eru laun- þegar. Forstjórar hlutafélaga eru þannig launþegar, og skiptir ekki máli þótt hlutafélagið sé i raun einkafyrirtæki þeirra. Greint skal á milli þeirra tveggja flokka launþega sem eyöublaöið sýnir á eftirfarandi hátt: 1 neðri flokkinn koma allir, sem fá greidd föst mánaðarlaun, föst vikulaun eða fast tlmakaup. Auk þessara launa getur að sjálf- sögðu verið um aö ræða kaup fyrir yfirvinnu. Fastar yfirborg- anir teljast til fasts kaups. — 1 hinn flokkinn koma allir, sem fá greidd laun, sem eru háö afköst- um eða mældum árangri, hvort heldur I framleiöslu-, viögerðar-, sölu-, þjónustu- eða stjórnunar- störfum. Skipt um atvinnu, aukavinna Um atvinnuna er spurt þrisvar, ? liðum 17, 18 og 19. Það er vegna þess, aö atvinnuspurningarnar' taka til alls ársins 1980, og það er algengt, að menn flytjist milli starfa hér á iandi. Þá er einnig algengt, að menn sinni fleiri en einu starfi samtimis. Til þess að fá fram fullnægjandi mynd af at- vinnu landsmanna yfir árið, þarf að spyrja svona ýtarlega. Eins og skýrslan ber með sér, er aðeins spurt um þau tvö störf, sem menn gegndu lengst á árinu sem aðalatvinnu, komi fleira til greina. Það er mánaöafjöldi i starfi, sem ræður, hvort starfiö á að tilgreina i 17. liö eða I 18. lið. 1 17. lið kemur það starfiö, sem hlutaðeigandi stundaöi lengur á árinu 1980. Sé um aukaatvinnu að ræða, sem nemur 120 klst. eða meira 1980, skal tilgreina hana i 19. lið, en aðeins skal tilgreina eitt auka- starf, þótt um fleiri geti verið aö ræöa. Eftirfarandi er til leiðbeiningar um það, hve mikil breyting þarf aöverða á störfum manns svo að það teljist skipta um atvinnu. Maöur skiptir um atvinnu þegarhann: 1) Byrjar störf fyrir annan atvinnurekanda en hann vann fyrir áöur. 2) Skiptir um starf fyrir sama atvinnurekanda 3) Flyst milli staðbundinna vinnustaða (t.d. skipa, útivinnu- flokka o.þ.h.) og gegnir. sama starfi fyrir sama atvinnurek- anda. 3) Fær nýtt starfsheiti i vinnu sinni, sem felur fremur i sér breytingu á launaflokki en eðlismun á störfum. Mörkin milli þess aö skipta um atvinnu og að vera I aukaatvinnu 1 orlofi frá aöalatvinnu eru þessi: Þeir sem stunda aðra atvinnu i venjulegu sumarleyfi sinu til- greina hana alltaf I 19. liö, eins þótt sumarleyfið sé lengra en al- mennt gerist. Þetta á þannig einnig við um t.d. kennara og þingmenn. Þeir, sem taka sér fri frá venju- legu starfi sinu til þess að stunda annaö starf styttri tima en aðal- starfiö, og þeir, sem stunda aðra atvinnu I hléi sem verður á aðal- atvinnu, tilgreina það einnig i 19. !ið. Þetta á t.d. við bændur sem vinna I sláturhúsi um haustið, þá sem bregöa sér úr vinnu til þess að fara eina veiöiferð á togara, þá sem taka að sér timabundin verk- efni o.s.frv. Þeir sem skipta reglulega um atvinnu eftir árstiðum, stunda t.d. sjó á vetrar- og vorvertið en eru I byggingarvinnu yfir sumar- iö og fram á haustiö, þeir segjast hins vegar skipta um atvinnu, i þessu tilviki tvisvar (byrjuð sjó- mennska, byrjuö byggingar- vinna), og tilgreina 1 18. liö þaö starfið, sem þeir stunduöu skem- ur á árinu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.