Tíminn - 13.06.1981, Qupperneq 4
Laugardagur 13. júní 1981
stuttar fréttir
??Kal ekki með
versta móti
í Adaldæla-
hreppi”
AÐALDÆLAHREPPUR:
„Það er að visu voðalegt gróð-
urleysi ennþá, en við erum
samt nokkuð bjartsýnir. Kal
er dálitið hjá okkur en ekki
með versta móti. Það hefur oft
verið verra”, sagði Dagur Jó-
hannesson, bóndi og oddviti á
Haga II i Aðaldælahreppi i
samtali við Timann.
Dagur sagði að kalið
væri breytilegt eftir bæjum,
en hann hefði ekki heyrt um að
það væri neins staðar mjög al-
varlegl i Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Sem dæmi um kuldann að
undanförnu nefndi Dagur að
aðfararnótt 9. júni hefði mælst
mesta frost i Aðaldal sem
mælst hefði siðustu áratugina
eða 6 stig.
— JSG
Rekstrartekjur
Ú.S. 2713
milljónir gkr.
SAUÐARKRÓKUR: Aðal-
fundur Útgerðarfélags Skag-
firðinga var haldinn á Sauðár-
króki nylega.l máli formanns
útgerðarstjórans Marteins
Friðrikssonar og i skýrslu
framkvæmdastjóra Stefáns
Guðmundssonar, alþingis-
manns kom m.a. fram:
Rekstrartekjur á árinu 1980
voru kr.2713 milljónir, sem er
56% hækkun frá árinu 1979.
Rekstrargjöld voru kr. 2848
milljónir, sem er 61% hækkun
frá 1979. Þar af eru afskriftir
kr.405 milljónir. Tap ársins
var kr.60 milljónir, sem er 2%
af rekstrartekjum. Launa-
greiðslur námu kr.956 milljón-
um. Meðalárslaun voru kr.17.5
milljónir. Bókfært verð eigna
voru kr.2936 milljónir. Vá-
tryggingarverð skipa er
kr.5933 milljónir, sem er
kr. 3708 milljónum umfram
bókfært verð. Bókfært eigið fé
er kr.365 milljónir.
Afli togaranna á árinu 1980
var 9800 tonn, að verðmæti kr.
2561 milljón. t Skagafirði
munu um 530-540 manns hafa
atvinnu af rekstri Útgerðarfé-
lagsins. Launagreiðslur þessa
fólks hafa verið um 2600 mill-
jónir kr.
Sem kunnugt er rekur út-
gerðarfélag Skagfirðinga
þrjá togara og hefur aflanum
verið skipt á þrjú frystihús:
Fiskiðju Sauðárkróks, Skjöld
hf. og Hraðfrystihúsið á Hofs-
ósi.
GÓ/AM
Nýtt félags-
heimili vígt um
næstu helgi
AÐALDÆLAIIREPPUR: Eft-
ir rúma viku eða 21. júni,
verður vigt nýtt félagsheimili
sem stendur i nánd við Hafra-
lækjarskóla i Aðaldælahreppi.
Félagsheimilið, sem er að
meirihluta i eigu Áðaldæla-
hrepps, verður notað bæði sem
samkomuhús og sem iþrótta-
hús fyrir Hafralækjarskóla.
Dagur Jóhannesson lýsti
húsinu þannig i samtali við
Timann að aðalsalur þess væri
22x12 metrar á stærð. „Siðan
kemur kaffistofa sem tekur
200manns. Og leiksviðið verö-
ur liklega eitt það stærsta á
landinu, svipað og i Þjóðleik-
húsinu!” sagði Dagur og hló
við.
Dagur sagði að við vigsluat-
höfnina yrðu allir núverandi
og fyrrverandi sveitarbúar
velkomnir. Hann lét það fylgja
með að húsinu yrði geíið sér-
stakt nafn, sem yrði þó haldið
leyndu fyrir fjölmiðlum fram
á vigsludaginn. — JSG
Ólafsfjarðarvatn kjörið
fyrir uppeldi laxaseiða?
ÓLAFSFJÖRÐUR: Nýlega
voru um 7000 laxaseiði sett i
þar til gerða körfu i Ólaís-
fjarðarvatni, sem er litiö vatn
sunnan við byggðina i ólafs-
fjarðarkaupstað, þa sem þau
verða alin i 5-7 vikur. Siðan
verður seiðunum sleppt til
hafbeitar, en þeir fiskar sem
snúa aftur til vatnsins á næstu
árum, veiddir i sérstakar
gildrur.
Þessar hafbeitartilraunir
eiga rætur að rekja til rann-
sókna sem Björn Jóhannes-
son, verkfræðingur, og Unn-
steinn Stefánsson, efnafræð-
ingur, hafa gert á Ólafsfjarð-
arvatni allt frá árinu 1978. I
ljós hefur komið að vatnið er
hið merkilegasta. Þannig er i
þvi 2,5 m djúpt ferskvatnslag
við yfirborð, en neðar er salt
vatn. Saltvatnslagið virðist
vera óvenjulega heitt, og
komst hiti þess upp i 20 gráður
sumarið 1980. Hitinn i salt-
vatnslaginu virðist haldast
vel, þvi 22. april i vor mældist
hitinn i þvi 8 gráður.
Þessi skilyrði eru, aö sögn
Jóns Eðvalds Friörikssonar,
bæjarstjóra á Ólafsíirði, mjög
hagstæð fyrir uppeidi laxa-
seiða. Þannig er taliö að þau
25 g. seiöi sem nú eru sett i
vatnið muni seltuherðast og
stækka i 40 g. á eldistimanum.
Eru Ólafsfirðingar vongóðir
um að laxaeldi geti átt góða
framtið fyrir sér á staðnum.
Það er Veiðifélag Ólafs-
fjarðar sem stendur fyrir
þeim eldistilraunum. _j§g
■ Ólafsfjörður: Veröur seiöauppeldi blómlegur atvinnuvegur I
plássinu?
■ Óskar Vigfússon, formaður Sjómannasambandsins: „Kvótakerfið” skapar togstreitu sem
nær inn I raðir sjómanna”.. Tfmamynd:GE
Sjómannadagurinn er á morgun:
??VETRARVERTÍÐIN
MIKIL BLÓÐTAKA”
segir Óskar Vigfússon? formaður
Sjómannasambands íslands
■ „Það sem mér er efst i huga,
og veldur okkur hugarangri, að
lokinni vetrarvertiö nú, er sú
mikla blóðtaka sem islensk sjó-
mannastétt varð fyrir en 17 sjó-
menn fórust við störf á vertið-
inni” segir Óskar Vigfússon, for-
maður S jómannasambands
Islands, I samtali við Timann er
,við töluðum viö hann i tilefni af
sjómannadeginum.
„Viö teljum okkur, rní að
undanförnu cg kannski um lang-
an tima, hafa átt i vök aö verjast
við að vernda hlut okkar manna i
þeirri verðbólguþróun sem verið
hefur.
„Þetta kemur til af þvi að verið
er aö semja um kaup og kjör okk-
ar manna allt að 3-4 sinnum á ári,
en þar á ég við svofellt hlutskipta-
kerfi, og frá 1961 hefur Verölags-
ráð sjávarútvegsins ákveöið verð
á fiski, sem er undirstaða kaups
okkar, 3-4 sinnum á ári.
„Fiskveröið fylgir ekki alltaf
veröbótatímabilum eins og þau
eru almennt reiknuð Ut fyrir land-
iö og þar af leiðandi gætir þeirrar
tilhneigingar hjá stjórnvöldum,
hver sem þau annars eru, að
halda fiskverði niðri til að hefta
framgang verðbólgunnar.
Það er ekki nema allt gott að
segja um viðleitni stjórnvalda að
sporna við verðbólgunni en hins-
vegar setja sjómenn, að sjálf-
sögðu, að meöan ekki er spyrnt
við fótum á öðrum sviðum þjóð-
félagsins, þá eiga þeir fullan
rétt á að fá sinar verðbætur i fisk-
verCá. Sjómenn eins og aörir gera
sér hinsvegar ljóst að hér er um
útflutningsatvinnugrein að ræða
og að við getum ekki alltaf boðið
kaupendum okkar að eta islenska
verðbólgu, en meðan að þessi
hrunadans stendur yfir þá verð-
um við að reyna að fylgja með.
Ég tel að staöa okkar i dag,
miðað viö 1977, sé með þeim hætti
að sjómaður á t.d. 150 lesta bát
þurfi að fiska 10 tonnum meira á
mánuöi til að hafa upp i sina
kauptryggingu, sem fylgir verö-
bótum verkafólks i landi”.
„Hvað önnur baráttumál okkar
snertir þá vildum viö fá viður-
kenningu Alþingis á sérstööu sjó-
manna tileftirlauna en við teljum
að hdn eigi rétt á sér. Á nýloknu
Alþingi voru sett lög þess efnis að
sjómenn geta tekið sin eftirlaun
við 60 ára aldur, eftir 25 ára sam-
fellt starf til sjós og ég tel þetta
vera vel gert af stjórnvöldum, en
þau hafa með þessu komið til
móts við óskir okkar.”
Kvótakerfi
Óskar Vigfússon var spuröur
um viðhorfin til kvótakerfa þeirra
sem hafa verið tekin i notkun, i si-
auknum mæli á undanförnum ár-
um.
„Maður getur skipt þessu i
tvennt. Allflestir sjómenn eru
sammála um það að varlega beri
að fara i það að ganga of nærri
fiskstofnum okkar þvi þeir eru
einu sinni sú auðlind sem við
byggjum mest á.” Það er sam-
dóma álit sjómannastéttarinnar
aö reyna að fara að ráðleggingum
þeirra sem gerst þekkja, fiski-
fræðinganna, þó ávallt séu menn
innan okkar raða sem hafa aðra
skoðun á þessum hlutum.
„Hinsvegar er þaö mat okkar
að kvótaskiptin og ýmsar tak-
markanir á veiðum skeröi að
sjálfsögðu tekjumöguleika okkar,
og þá sérstaklega með tilliti til
þessaö stjórnvöld, að okkar mati,
látaá sama tima undan þrýstingi
um aukningu á fiskiskipaflotan-
um sem við teljum vera of stór-
an”
„Annað atriði þessu tengt sem
við höfum áhyggjur af er að
kvótaskiptingin og aðrar tak-
markanirskapa vissa togstreituá
milli landshluta og þvi er ekki að
neita aðsU togstreita gengur inn i
raðir sjómannastéttarinnar, auk
útgerðarinnar og fiskvinnslunn-
ar.
Þetta gerir okkur erfiðara um
vik að sameina sjómannastéttina
og kannski lýsir þvi best það sam-
stöðuleysi sem varð meðal sjó-
manna á s.l. vetri I okkar kjara-
baráttu en þetta ástand hefur
varaðí 2-3 ár og skýringiná þvi er
það ástand sem nú rikir i fisk-
veiðum okkar.
Við töldum okkur hafa verið
búna að ná nokkuð langt i þvi að
sameina sjómannastéttina og
gera hana einhuga en á undan-
förnum árum hefur bryddað á þvi
að menn hafa viljað ganga nokk-
uð isitthvora áttina, sagði Óskar.
Óskar VigfUsson vildi nota
tækifærið og óska öllum sjómœin-
um, bæði til sjós og iands, til
hamingju með sjómannadaginn.
—FRI
FJölbreytt hátið-
ardagskrá í Naut-
hólsvík á morgun
■ Sjómannadagurinn er á morg-
un og hefjast hátiðarhöld hans að
venju með þvi að kl. 8 um morg-
uninn verða fánar dregnir að hUn
á skipum i Reykjavíkurhöfn.
LUðrasveit Reykjavikur leikur að
Hrafnistu kl. 10 og hátiðarguðs-
þjónusta verður i Dómkirkjunni
kl. 11.
1 Nauthólsvik hefjast svo
hátiðarhöld kl. 13.30 með leik
Lúörasveitar Reykjavikur, en
hátiðina mun svo setja Guðmund-
ur Hallvarðsson kl. 14. Avörp
flytja sjávarútvegsráðherra, full-
trUar Utgeröarmanna og sjó-
manna og loks mun formaður
Sjómannadagsráðs, Pétur Sig-
urösson, heiðra aldraða sjómenn
og afhenda björgunarverölaun.
Þá verða ýmis skemmtiatriði
svo sem kappsigling á seglbátum,
kappróður, koddaslagur og fleira.
Merki s jómannadagsins og Sjó-
mannadagsblaðið verða tU sölu á
hátiðarsvæðinu. Strætisvagna-
ferðir verða frá Lækjargötu og
Hlemmtorgi frá kl. 13 á 15
minUtna fresti. Þeim sem komaá
eigin bilum er bent á að forðast
öngþveiti. Hringakstur er um
Nauthólsvik og yfir öskjuhlið.
A sunnudagskvöld verður Sjó-
mannadagsskemmtun á Hótel
Sögu.sem hefst með borðhaldi kl.
19.30. Þá veröur á morgun sýning
og sala á handavinnu vistfólks
Hrafnistuheimilisins i Hafnar-
firði frá kl. 14.30-17.00 og kaffisala
á sama tima. Rennur allur ágóði i
skemmti og ferðasjóð vistmanna.
—AM