Tíminn - 13.06.1981, Blaðsíða 5

Tíminn - 13.06.1981, Blaðsíða 5
Laugardagur 13. júnl 1981 Mitterand hækk- ar lægstu laun Cheysson ræðir við Haig og Reagan erlendar fréttir Norræni barnasjóð- urinn svikamylla ■ KOSNINGAR til franska þingsins fara fram á morgun (14. júni) og aftur sunnudaginn 21. júni. Á morgun ná kosningu þeir frambjóðendur einir, sem fá meirihluta greiddra atkvæða. Sunnudaginn þar á eftir (21. júni) verðursvokosið milli þeirra tveggja, sem fengu flest atkvæði i kosningunni 14. júni, en náðu ekki kosningu. Kosið er i einmennings- kjördæmum. Að þvi leyti fara kosningarnar fram með sama hætti og verið hefur um skeið, að allir flokkar hafa frambjóðendur i kjöri 14. júni, en aðeins tvö kosninga- bandalög i siðari umferðinni 21. júni. 1 öðru kosningabandalaginu eru Gaullistar og Miðflokka- bandalagið, sem studdi Giscard i forsetakosningunum. I hinu eru sósialistar og kommúnistar og nokkrir minni vinstri hópar. Það gekk fljótlega að mynda bandalagið til hægri eftir að Mitterrand hafði rofið þingið og ákveðið kosningadagana. Chirac, leiðtogi Gaullista, tók strax frum- kvæðið og samdi við Lenanuet, formann Miðflokkabandalagsins. Þeir samningar komust i kring án þess að Giscard og Barre, fyrrv. forsætisráðherra, væru verulega spurðir ráða. Mjög litið hefur lika borið á þeim i kosningabarátt- unni, en þeim mun meira á Chirac. Það gekk ekki eins vel að ná samkomulagi um kosninga- bandalag sósialista og kommún- ista. Kommúnistar vildu helzt semja um stjórnarsamvinnu, en sósialistar vildu enga endanlega ákvörðun taka um það fyrir kosn- ingarnar. Að lokum náðist þó samkomulag milli flokkanna 4. þ.m. um bandalag þeirra i siðari umferðinni. í yfirlýsingu, sem gefin var út um þetta, voru nefnd mörg mál, sem flokkarnir hefðu samstöðu um, en jafnframt tekið fram að þeir væru ósammála um sitthvað annað. Ekkert var sagt um stjórnarsamstarf eftir kosning- arnar. SÍÐAN Mitterrand varð forseti hefur hann aðhafzt sitthvað til að skýra stefnu sina bæði i innan- landsmálum og utanrikismálum. Eitt af fyrstu verkum hans var að hækka svokölluð lágmarks- laun. Þau áttu að hækka um þetta leyti um 3,5%, en Mitterrand hækkaði þau um 10%. Jafnframt voru ellistyrkur, öryrkjastyrkur og fjölskyldubætur hækkuð og boðuð meiri hækkun á þeim. Þetta mun hafa i för með sér verulega aukin útgjöld fyrir rikið, en á móti kemur að eftirspurn eft- ir ýmsum nauðsynjum mun auk- ast og það örva viðskipti og fram- leiðslu. Þá hefur Mitterrand gert sitt- hvað til að skýra stefnu sina i utanrikism álum . Helmut Schmidt heimsótti hann eftir að hann ræddi við Reagan i Wash- ington. Tilkynnt var á eftir, að þeir hefðu verið i stórum dráttum sammála. Enn betur hefur þó utanrikis- stefna Mitterrands skýrzt eftir för Claude Cheysson utanrikisráð herra til Washington. Þar ræddi hann itarlega við Haig og einnig við þá Reagan og Bush. 1 þessum viðræðum kom fram, ■ Mitterrand. Helzt varð ágreiningur milli Cheyssons. og Haigs umafstöðuna til E1 Salvador, þar sem Cheysson óttaðist minna en Haig áhrif Rússa og Kúbumanna. Þá lagði Cheysson miklu meiri áherzlu á aðstoð við þróunarlöndin en Haig og Reagan. Akveðið var, að Bush varafor- ■ Cheysson. seti heimsækti Mitterrand 24. júni eða þremur dögum eftir siðari umferð kosninganna. KOSNINGABARATTAN hefur mjög einkennzt af þeim áróðri fylgismanna Mitterrands annars vegar, að stjórn hans þyrfti meirihluta á þingi til að koma fram stefnu hans, og þeim áróðri Chiracsog fylgismanna hans hins vegar, að koma i veg fyrir að kommúnistar komist i stjórn, en það verði afleiðingin af kosningá- sigri vinstri bandalagsins. Mitterrand hefur mjög varað við þeirri upplausn, sem kynni að myndast, ef meirihluti þingsins fylgdi annarri stefnu en rikis- stjórnin. A móti þessu hefur Chirac veif- að kommúnistagrýlunni. Skoðanakannanir benda heldur til þess, að bandalag vinstri manna beri sigur úr býtum, en allar spár eru þó erfiðar sökum þess að kosið er i einmennings- kjördæmum. Annað hvort banda- lagið getur þvi hæglega fengið þingmeirihluta, þótt það hafi ekki meirihluta kjósenda að baki sér. í siðari umferð forsetakosning- anna kusu allmargir Gaullistar Mitterrand vegna andúðar þeirra á Giscard, sem þeir töldu hafa brugðizt de Gaulle, þegar verst gegndi. Nú gerir Chirac sér vonir um að þessir kjósendur snúi heim til föðurhúsanna aftur og beinir þvi ekki sizt máli sinu til þeirra. Allmargir fylgismenn Giscards telja Chirac hafi brugðist honum i siðari umferðkosninganna og vilja ógjarnan launa honum það með þvi að efla hann til forystu. Það er ekki talið óliklegt, að þeir hefni sin nú með þvi að kjósa sósialista. ■ Nokkrir starfsmenn Nor- ræna barnasjóðsins, voru á miðvikudag handteknir i Nor- egi, Danmörku og Sviþjóö, grunaðir um stórfelld f jársvik i sambandi við starfsemi sjóðsins. Meðal hinna handteknu er norski presturinn Helge Nor- dahl, sem veitt hefur barna- sjóðnum forstöðu. Alls voru fimm starfsmenn sjóðsins handteknir og eru ■ öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjallaði i gær um kröfur þær, sem arabarlkin hafa lagt fram um refsiað- gerðir gegn tsraelum, vegna árásar þeirra á kjarnorkuver i trak siðastliðinn sunnudag. Hafa arabarikin lagt fram kröfur um slíkar aögerðir viðar, meöal annars hafa sendimenn þeirra i Evrópu- rikjum, farið þess á leit, að þar verði hætt allri hernaðar- aðstoð, svo og annarri aðstoð, sem geti komið ísraelum til gagns i baráttu þeirra gegn arabarikjum. Ekki var búist við þvi I gær, að öryggisráðið myndi samþykkja neinar beinar refsiaðgeröir. Sendimenn árabarikja I Bandarlkjunum gengu i gær á fund Reagan forseta og til- kynntu honum, aö stjórnvöld i löndum þeirra teldu þær refsi- aðgerðir, sem Bandarikja- menn hafa gripið til vegna á- rásarinnar, engan veginn ■ Lech Walesa, leiðtogi Ein- ingar I Póllandi, sagði á fundi starfsmanna bifreiðaverk- smiðju i Varsjá á fimmtudag, að Eining hefti lagt of mikla áherslu á stjórnmálalega and- stöðu i starfi sinu og sinnt of litið innbyrðis vandamálum samtakanna. Litið er á þessi orð leiðtog- ans, sem óbeina stuðnings- yfirlýsingu við Kania, leiðtoga ■ Ljóster mí, aö þrjú þúsund manns, að minnsta kosti, hafa farist I suð-austurhluta lran, i jarðskjálftanum sem þar gekk yfir á fimmtudagsmorgun. Er þetta mun meiri fjöldi, en fyrst var áætlað að heföi far- ist, en taliö var á fimmtudag, aö tala látinna væri ef til vill nær eitt þúsund. Aö sögn irsku fréttastofunn- ar er óttast aö leit I rústum leiöi iljós að mun fleiri en þrjú þúsund kunni aö hafa látist. Flestir fórust I tiu þúsund manna bæ á jaröskjálftasvæð- inu,en talið er aö I honum, svo þeir grunaðir um að hafa stungið I eigin vasa um átján milljónum norskra króna, eða sem nemur liðlega tuttugu og einni milljón islenskra króna. Fjármunum þessum hafði barnasjóðurinn safnað undir þvi yfirskyni að þeir ættu aö renna til aðstoðar börnum, viða um heim. Hins vegar fór aðeins litill hluti söfnunarf jár- ins, lengra en i vasa starfs- mannanna, að þvi er virðist. nægilegar. Forsetinn tilkynnti skömmu eftir árásina, að frestað yrði afhendingu á nokkrum herþot- um, sem ísraelar hafa keypt frá Bandarikjunum. Nú mun forsetinn hins vegar hafa til- kynnt stjórnvöldum i Israel, að samskipti Bandarikjanna og Israelsrikis ættu að veröa orðin eðlileg að nýju innan skamms og að engar breytingar yrðu gerðar á stefnu. Bandarikjamanna I málefnum Mið-Austurlanda. Begin,' forsætisráðherra Israel, lýstiþvi yfir I gær, að það myndi taka Iraka um fimm ár að endurbyggja kjarnorkuverið og að ef þeir gerðu það, yrði það eyðilagt að nýju. Kaddafi, leiðtogi Libýu, sagði á fimmtudag, að araba- riki ættu að gjalda liku likt og eyðileggja kjarnorkuver fyrir Israelsmönnum, i hefndar- skyni vegna loftárasarinnar á Irak á sunnudag. kommúnistaflokks Póllands, sem undanfarið hefur oröið fyrir hörðum árásum harð- linumanna innan flokksins, sem tekið hafa undir meö gagnrýni sovéskra stjórn- valda á þróun mála I Póllandi. Bent er á, i þessu sambandi, aö Valesa hafi nýlega lagt sitt til þess að viðvörunarverkfalli i fjórum héruðum Póllands, var aflýst. og i nágrannahéruðum, hafi um fimm þúsund manns graf- ist I húsarústum. Jarðskjálftinn á fimmtu- •dagsmorgun mældist 6.9 stigá Richterkvaröa. Björgunarlið vinnur nú að þvi að grafa lif- endur og látna úr rústum á skjálftasvæðinu. Fyrir fjórum árum fórust um fimm hundruö manns i miklum jarðskjálfta á þessu sama svæði I íran. Arið 1978 varð einnig mikill jarðskjálfti Inorö-austurhluta Iran. Týndu þá þúsundir manna lifi. að viðhorf stjórna Reagans og Mitterrands eru um margt svip- uð. Mitterrand og Cheysson hafa baðir lýst yfir fylgi sinu við eld- flaugaáætlun Atlantshafsbanda- lagsins, þótt Frakkar séu ekki að- ilar að henni, en leggja jafnframt áherzlu á viðræður um takmörk- un eldflauganna. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar Ekki búist við ref siadgerdu m ■ Kania og Jaruzelski. Stydur Kania Látnir að minnsta kosti þriú þúsund

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.