Fréttablaðið - 17.09.2008, Blaðsíða 7
H A U S
MARKAÐURINN 7MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2008
F R É T T I R
Með gjaldþroti Lehman Broth-
ers hverfur eitt sögufrægasta
fyrirtæki Wall Street af sjónar-
sviðinu. Það var stofnað 1850
í Montgomery í Alabama og
fékkst í fyrstu aðal lega við
bómullar viðskipti. Árið 1906
tók fyrirtækið að fást við verð-
bréfaverslun þegar það tók í
félagi við Goldman Sachs að
sér fyrstu hlutafjárútboð
margra mikilvægustu fyrir-
tækja Bandaríkjanna.
Lehman sérhæfði sig í fast-
eignatryggðum verðbréfum og
var með fyrstu fyrirtækjunum
á Wall Street til að bjóða upp
á fjármálagerninga og skuld-
vafninga byggða á þeim. Eftir
2001 nýtti fyrirtækið þessa
sérþekkingu til að sækja inn
á áhættusaman markað með
ýmis fasteignaskuldabréf.
Þegar fjármálakreppan skall á
var Lehman stærsti útgefandi
fasteignatryggðra skuldvafn-
inga í Bandaríkjunum.
Þegar undirmálslánakrepp-
an gerði vart við sig fullviss-
aði forstjórinn Richard Fuld
fjárfesta hins vegar um að
fyrirtækið stæði traustum
fótum og ætti lítið af áhættu-
sömum skuldvafningum.
Síðan þá hefur komið í ljós
að uppgjör félagsins voru
fegruð með bókhaldsbrellum.
Síðan í vor hefur Lehman af-
skrifað 8,2 milljarða og ljóst
var að afkoma þriðja ársfjórð-
ungs yrði síst skárri. Áætlað
hefur verið að Lehman hafi átt
um 61 milljarð dala í ýmsum
fasteignatryggðum skulda-
bréfum, og meira af eiginfé
fyrirtækisins var bundið í ills-
eljanlegum skuldvafningum en
nokkurs annars fjárfestingar-
banka, að Merrill Lynch frá-
töldum. Ólíkt Merrill átti Leh-
man hins vegar lítið af eign-
um sem auðvelt var að koma
í verð til að bregðast við tapi
og afskriftum. Eina leið Leh-
man út úr vandanum var því
að finna nýja hluthafa sem
hefðu getað endurfjármagnað
reksturinn, og þegar sú leit
bar engan árangur var gjald-
þrot óumflýjanlegt. - msh
S A G A N Á B A K V I Ð
Lehman
Brothers
HÖFUÐSTÖÐVAR LEHMAN
OG ENGIN
FÆRSLUGJÖLD
www.nb.is
M
iðast við m
eðal-yrdráttarvexti á sam
bæ
rileg um
reikningum
.
Kynntu þér málið og sæktu um á www.nb.is
eða hafðu samband við þjónustufulltrúa okkar
í síma 550 1800.
Nýir viðskiptavinir Netbankans sem sækja um debetkort
án færslu- og árgjalda, fá 18,45% yrdráttarvexti fyrstu
6 mánuðina sem þeir eru í viðskiptum. Að auki býðst
nýjum viðskiptavinum almennt e-Vildarkort án árgjalds
fyrsta árið.