Tíminn - 18.01.1983, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1983
Blakid um helgina:
VÍKINGAR AlHI STÓRlflK, EN
ÞRÓTTARAR ENN TAPLAUSIR
■ Er nú loksins komið að því? varð
mörgum hugsað á sunnudag, þegar
Þróttur mætti Víking í fyrstu deild karla
í blakinu. Þróttarar töpuðu annarri og
þriðju hrinu verðskuldað og Víkingar
voru í miklum ham.
En Þróttarvélin hrökk í gang í þriðju
hrinu og þá sýndi þetta sterkasta lið
íslensks blaks að það þarf að leika ofar
getu í þrjár hrinur, ef takast á að stöðva
sigurgöngu þeirra, sem hefur verið
stanslaus frá því haustið 1980. Þróttarar
sigruðu 3-2.
Þróttarar sigruðu örugglega í fyrstu
hrinu 15-5, léku af venjulegum styrk, og
Víkingar heldur sviplitlir eins og þeir
hafa verið í allan vetur. En það kom
heldur betur upp önnur staða í annarri
hrinu. Hrinan fór rólega af stað, og liðin
skiptust á að vinna stig. Smám saman
vöknuðu Víkingar til lífsins og fóru að
sýna stórgóðan leik. Þróttarar áttu
ekkert svar, og Víkingar komust í 14-6.
Þá lifnaði aðeins yfir Þrótturum og þeir
höluðu inn stig þar til staðan var 14-13.
Þá loks tókst Víkingum að ná fimmtánda
stiginu, og það virkaði eins og vítamín
á liðið.
Víkingar komu tvíefldir til leiks í
þriðju hrinu, og hreinlega jörðuðu
meistarana 15-5. En þar með var
úthald Víkinga þrotið, og meistararnir
léku eins og meisturum sæmir. Leifur
Harðarson fyrirliði fór loks að sýna lit,
og Jón Árnason sá ungi og bráðefnilegi
leikmaður sýndi allt sem í honum býr.
Þá var Gunnar Árnason mjög góður í
leiknum, og skyggði reyndar á Leif, sem
hefur verið fyrsti uppspilari Þróttara um
langt skeið, en það var Gunnar óumdeil-
anlega áður. Gunnar hefur líklega aldrei
veruð betri en nú, og á greinilega
heilmikið eftir, þrátt fyrir langan feril.
Þróttarar sigruðu létt í fjórðu og fimmtu
hrinu, 15-7 og 15-4.
Víkingar áttu stórgóðan leik á sunnu-
daginn eins og áður hefur verið minnst
á. Greinilegt er að þetta lið er að koma
til eftir erfitt haust, þar sem það hefur
tapað öllum sínum leikjum í fyrstu
deild. Eyfirðingar mega greinilega fara
að gæta sín, því að fallbaráttan stendur
að mestu milli þessara tveggja liða sem
stendur. Guðmundur Arnaldsson þjálf-
ari er á réttri leið með liðið. Bestur
Víkinga í þessum leik var Amgrímur
Þorgrímsson uppspilari, kominn í lands-
liðsform drengurinn, en hættir stundum
til að ætla að gera of mikið á eigin spýtur.
Þá var Skjöldur Vatnar sterkur í
sókninni.
ROMAENNA
SIGURBRAUT
Falcao skoraði
■ Roma bætti enn við einum sigri á
laugardaginn á Ítalíu, er liðið sigraði
Cagliari 1-0. Það var Brasilíumaðurinn
Roberto Falcao sem skoraði markið og
hrifsaði þar mcð tvö stig í safnið hjá
Roma. Flest liðin sem hafa ógnað
toppstöðu Rómarliðsins töpuðu, eða
gerðu jafntefli.
Verona, sem vann sig upp í fyrstu
deild á síðasta keppnistímabili stökk
upp í annað sætið með því að ná öðru
stiginu í miklum baráttuleik gegn Inter
Milan. Verona skoraði fyrst, en gestirnir
frægu jöfnuðu með marki hins unga
varnarmanns sem lék með heimsmeist-
araliðinu í sumar, Giuseppe Bertoni níu
mfnútum fyrir leikslok.
Stjarna ítala og kandidat fyrir páfa-
embætti, Paolo Rossi lék nú aftur með
Juventus gegn Sampdoria, liði Trevor
Francis. Ekki tókst Rossi að skora að
þessu sinni, en félagi hans, Roberto
Bettega skoraði á 85. mínútu. Gleði
Juventuskappanna var þó skammvinn
nokk, því Sampdoria jafnaði mínútu
síðar.
Útherjinn Daniele Massaro skoraði
mark Fiorentina gegn Catanzaro, og
Daninn ungi, Klaus Bergreen hélt áfram
uppteknum hætti við markaskorun er
hann tryggði liði sínu Pisa sigur l-0gegn
Cesena. En hér koma allir leikirnir í
fyrstu deild á Ítalíu:
Avellino-Torino 2-0
Catanzaro-Fiorentina 0-1
Genoa-Ascoli 0-0
Inter Milan-Verona 1-1
Juventus-Sanpdoria 1-1.
Pisa-Cesena 1-0
Roma-Cagliari 1-0
Udinese-Napoli 0-0
Staða efstu liða á Ítalíu er nú þessi:
Roma........ 16 10 4 2 25 12 24
Verona...... 16 3 6 2 23 14 22
Inter....... 16 6 3 2 23 13 20
Juventus .... 16 7 5 4 19 13 19
Fiorentina .... 16 6 5 5 20 15 17
Udinese..... 16 3 11 2 15 15 17
Torino...... 16 4 3 4 15 11 16
Sanpdoria ... 16 5 6 5 15 13 16
STAÐAN I
KÖRFUNNI
■ Staðan í úrvalsdeildinni eftir leiki helgarinnar er þessi:
Valur 11 9 2 1033-890 18 1. deild karla:
Keflavík 11 8 3 912-903 16 Haukar 9 8 1 845-644 16
Njarðvík 10 5 5 827-828 10 Þór 9 7 2 758-668 14
Fram 11 4 7 967-978 8 ÍS 8 5 3 718-546 10
KR 11 4 7 952-991 8 Grindavík 9 2 7 632-785 4
Ír 10 2 8 741-832 4 Skallagrímur 9 0 9 627-939 0
Þróttur sigraði líka í
kvennaflokki:
Þróttarastúlkur sigruður stöllur sínar
úr Breiðabliki 3-0, 15-6, 15-9 og 15-12.
Leikurinn var ætíð I öruggum höndum
Þróttara stúilknanna, þó Breiðablik
biti aðeins frá sér í þriðju hrinu.
Breiðabliksliðið hefur ekki sýnt neinar
framfarir í heild í vetur, var sterkt í fyrra
og þá í öðru sæti deildarinnar. Það sem
hefur breyst hjá Breiðabliki er að liðið
er nú miklu jafnara, þeir leikmenn sem
vermt hafa bekkinn standa nú hinum
ekkert að baki, en þær stúlkur sem léku
flesta leiki liðsins á síðasta keppnistíma-
bili hafa staðið í stað og jafnvel farið
aftur.
Þróttarliðið er sterkt um þessar
mundir, og allt bendir reyndar til þess
að þær hreppi ísdlandsmeistarabikarinn
í vor. Hulda Laxdal er orðin sterkasti
smassari deildarinnar og átti stórgóðan
leik að þessu sinni. Þá var Björg
Björnsdóttir sterk.
HK sigraði í 2. deild
■ Kópavogsliðin í annarri deild karla,
HK og Breiðablik kepptu síðasta blak-
leikinn á sunnudag. HK strákamir
sigruðu og hefndu þar með ósigursins í
fyrri umferðinni. Úrslitin urðu 3-0,15-2,
15-7 og 15-12.
Breiðabliksliðið lék langt undir getu í
leiknum og var fyrirhafnarlaust hjá HK
að hala inn stigin. Móttaka UBK í
molum og sóknin þar af leiðandi bitlaus.
Breiðabliksliðið sýndi aðeins tennurnar
í þriðju hrinu, en það var orðið of seint.
HK liðið átti góðan dag, liðið lék allt
nokkuð vel. Magnús Magnússon var
jafnbestur HK-manna að þessu sinni,
sýndi öryggi í uppspilinu og er greinilega
á réttri leið. Þá áttu Ástvaldur Arthúrs-
son og Kjartan Busk góða spretti.
Samhyggð sigraði
■ Gaulverjar skelltu sér upp á Skaga
á föstudagskvöldið og léku þar við
heimamenn í annarri deild karla. Akur-
nesingar komust í 6-0 í fyrstu hrinu, en
þar með var draumurinn búinn, þeir
skoruðu ekki nema 7 stig í viðbót í öllum
leiknum. Úrslitin urðu því 3-0Samhyggð
í hag og hrinumar fóm 15-9, 15-2 og
15-2.
FHSIGR-
AÐIÍR
■ FH sigraði ÍR í fyrstu deild
karla í handknattleik í gær
35-20. Staðan í hálfleik var 16-9
FH í hag. FH-ingar þurftu lítið
fyrir sigrinum að hafa, þar sem
klassamunur er á þessum liðum.
Kristján Arason var atkvæða-
mcstur FH-inga í leiknum, skor-
aði 12 mörk, Þorgils Óttar
Mathiesen skoraði 8 mörk, Hans
Guðmundsson 6, og Guöinund-
ur Magnússon og Guðjón
Guðmundsson 3 mörk hvor.
Þórarinn Tyrfingsson og
Gunnar Kristófersson skoruðu
mest ÍR-inga 4 mörk hvor. Atli
Þorvaldsson og Björn ISjörnsson
skoruöu 3 mörk hvor.
Staðan í fyrstu dcild er nú
þessi:
Víkingur
FH
KR
Stjarnan
Valur
Þróttur
Fram
ÍR
12 8 2 2 18
13 9 0
12 8 0
12 7 1
12 5 1
12 5 1
12 4 1
13 0 0 13 0
KEFUVÍK HÉLT KR (
SKEFJUM ALLAN TÍMANN
sigrudu 106:93 í Keflavík á laugardag
■ Keflvíkingar unnu enn einn sigurinn
í úrvalsdeildinni í körfubolta um helgina,
þegar þeir fengu KR í heimsókn til
Keflavíkur á laugardaginn.
Keflvíkingar sigmðu 106-93, munur-
inn 13 stig, og þau verða beint rakin til
góðs kafla Keflvíkinga í fyrri hálfleik,
þegar þeir skoruðu 15 stig ■ röð án þess
að KR*ingar svöruðu fyrir sig.
Leikurinn byrjaði rólega og liðin
skoruðu sitt á hvað. Hélst svo fram í
miðjan fyrri hálfleik, en þá tóku Kefla-
víkurdrengirnir heldur betur fjörkipp.
Axel Nikulásson, Jón Kr. Gíslason og
Brad Miley sáu um að skora næstu 15
stigin í einum rykk, án þess að KR-ingar
fengju rönd við reist. Viðar Vignisson
leikmaður þeirra Keflvíkinga sem ný-
kominn er frá Bandaríkjunum lék sinn
fyrsta leik með Keflavík í vetur og átti
eina körfu af þessum 15 stigum. Eftir
þennan kafla jafnaðist leikurinn aftur,
en ekkert gekk KR-ingum að saxa á
forskotið. Keflvíkingar voru síðan yfir
53-41 þegar 30 sekúndur voru til leikhlés,
léku upp völlinn og Brad Miley hélt
boltanum nokkuð lengi rekjandi, uns
hann þremur sekúndum fyrir leikhlé hóf
sig hátt og skoraði með gríðarlega
fallegu langskoti. 55-41 í hálfleik.
Leikurinn hélst í jafnvægi í síðari
hálfleik, munurinn rokkaði frá 15 stigum
niður í 7, eftir því hvernig lá á mönnum.
Stigin: Axel Nikulásson skoraði mest
Keflvíkinga 30 stig, Jón Kr. Gíslason
skoraði 29, Brad Miley 15, Þorsteinn
Bjarnason 14, Viðar Vignisson 14 og
Björn Víkingur 4. Stewart Johnson
skoraði 29 stig fyrir Vesturbæjarliðið,
Jón Sigurðsson 14, Jón Pálsson 13, Páll
Kolbeinsson 12, Ágúst Líndal 10, Stefán
Jóhannsson 7 og Birgir Guðbjörnsson 6.
Keflvíkingar voru flestir góðir í
leiknum. Miley var sterkur í vörninni,
og drjúgur í sókninni. Axel og Jón Kr.
iðnastir við að skora, mikið úr hraða-
upphlaupum ásamt Viðari. Stewart
Johnson skoraði mest KR-inga að venju,
en mesta athygli þeirra vakti Jón Pálsson
fyrir góðan leik.
Þ.P./SÖE
■ Þróttarstúlkur í hávörn ■ leiknum gegn Breiðabliki á sunnudag. Hulda Laxdal til hægri átti
stórgóðan leik. Við hlið hennar er Linda J ónsdóttir, sem kannske er frekar þekkt sem körfu -
knattleikskona úrKR. Tlmamynd: Ella
KR-INGAR
KÆRÐU ÍBK
telja að Viðar sé ólöglegur
■ KR-ingar kærðu Keflvíkinga eftir lcikinn á laugardag. Það sem KR-ingar ekki voru ánægðir
með í Keflavík, var það að Viðar Vignisson skyldi leika með Keflvíkingum, en Viðar hefur undanfar-
iðverið viðnámíLutherCollegeíBandaríkjunum. KR-ingar lýstu þvi yfir strax fyrir leikinn að þeir
myndu kæra ef Viðar léki með. Það er þvi heitt í kolum hjá körfuknattleiksmönnum þessa dagana,
og nóg af málum fyrir Körfuknattleiksssambandið og þá innan þess sem í hlut eiga tU að taka afstöðu
tu.
■ Það urðu Þórsarar á Akureyri sem
urðu til þess að stöðva sigurgöngu
Hauka í 1. deUdinni í körfuknattleik en
liðin mættust á Akureyri um helgina.
Þórsarar báru sigur úr býtum, skoruðu
100 stig gegn 91 eftir hörkuleik sem var
jafn að loknum venjulegum leiktíma.
Staðan þá 85:85. Fjölmargir áhorfendur
í Skemmunni á Akureyri fengu sitthvað
fyrir aurana sína að þessu sinni því
leikurinn sjálfur var ekki bara æsispenn-
andi, heldur var ýmislegt annað „krydd“
á boðstólumeins og vikið er að í annarri
grein hér á síðunni.
Það leit ekki út fyrir það í byrjun
leiksins að Þórsarar yrðu Haukunum
erfiðir. Haukarnir tóku strax forystuna
í leiknum í sínar hendur og komust í
19:11 og síðar mátti sjá tölur eins og
29:18 og 36:22 og 42:34 í hálfleik.
Fyrstu mínútur síðari hálfleiksins
hélst þetta bil en síðan komu 10 stig í
röð frá Þórsurum, staðan þá 51:51 og
Þór komst síðar 5 stig yfir. Haukar
jöfnuðu og náðu forustunni aftur og er
rúm mínúta var til leiksloka leiddu þeir
85:81. En fjögur vítaskot Robert Mc-
Field á síðustu mínútunni tryggðu
Þórsurum framlengingu.
Dakarsta Webster hafði fengið sína 5.
villu rétt fyrir lok leiksins og hjá Þór
voru Eiríkur Sigurðsson og McField
báðir með 4 villur. Það gat því brugðið
til beggja vona er framlengingin hófst.
Þór skoraði fyrst, Haukar jöfnuðu
87:87, McField kom Þór yfir og Eyþór
Árnason jafnaði. En þá komu 8 stig í
röð frá Þór og sigurinn var tryggður.
Þetta var hörkuleikur. Þórsarar voru
afar mistækir í skotum sínum lengst af
fyrri hálfleiks en hittnin batnaði mjög er
á leið. Varnir liðanna voru sterkar og
spiluðu Haukarnir t.d. þannig að
„dekka‘“ McField mjög stíft allan völl-
inn þannig að hann átti mjög erfitt með
að fá boltann. Bestu menn Þórs voru
þeir McField og Jón Héðinsson, en þeir
Konráð Óskarsson, Valdimar Júlíusson
og Guðmundur Björnsson komu einnig
vel frá leiknum. Eiríkur var í villuvand-
ræðum strax á 12. mínútu leiksins og var
lítið með eftir það.
Hjá Haukum báru þrír menn nokkuð
af. Pálmar Sigurðsson átti mjög góðan
leik og sömuleiðis Hálfdán Markússon
og Webster var mjög sterkur í vörninni.
Þessir þrír stóðu uppúr í Haukaliðinu
sem annars er mjög jafnt og efnilegt lið.
Stigahæstu leikmenn liðanna voru
McField hjá Þór með 61 stig og Jón
Héðinsson með 12 og hjá Haukum
Pálmar Sigurðsson með 34 og Webster
með 21.
gk-Akureyri
ÞÓR BATT ENDA A
SIGURGÖNGU HAUKA
sigraði 100:91 eftir framlengingu
■ Ballett?... nei, þetta eru bara Ríkharður Hrafnkelsson og Viðar Þorkelsson
andartaki eftir að skot Ríkharðar reið af. Úr þessu skoti urðu til tvö stig af þeim 28
sem Ríkharður gerði í leiknum. Timamynd: Ella
KÆRUMAUN GANGA A VfiO.
— Haukar kærðu dómarann
— Dómararnir kæra Einar
■ „Ég er búinn að vera viðloðandi körfu
knattleik meira og minna í 20-30 ár og hef
aldrei ásakað dómara um hlutdrægni í störfum
áður“ sagði Einar Bollason þjálfari Hauka eftir
leikinn gegn Þór á Akureyri um helgina. Mikill
hiti var í ýmsum mönnum eftir leikinn, og
Haukar ákváðu strax að leik loknum að kæra
annan dómara leiksins, Hörð Tuliníus.
„Ég vil taka það fram að kæra okkar beinist
ekki að neinu leyti gegn Þór. Þórsarar léku vel
og unnu sigur og ég óska þeim til hamingju“
sagði Einar. „Hins vegar er ekki verjandi fyrir
okkur Hauka að notfæra okkur ekki rétt okkar
til að kæra framkomu Harðar í garð okkar. Við
munum ákæra hann fyrir hlutdrægni og svívirði-
lega framkomu í okkar garð í von um það að
dómarinn verði til þess að þessi maður hætti
störfum sem körfuboltadómari.“
En kæra Haukana er ekki sú eina. Dómarar
leiksins hafa kært Einar Bollason til Aganefnd-
ar vegna framkomu hans í leiknum, en þess má
geta að Einar fékk alls 3 tæknivíti í leiknum.
„Ég er mjög óánægður með framkomu Einars
og hann verður kærður til Aganefndar fyrir
óprúðmannlega framkomu og mótmæli við
dóma okkar“ sagði Hörður.
Það er því ekki hægt að segja að tíðindalaust
hafi verið á „vígstöðvunum" á Akureyri um
helgina.
gk-Akureyri
VALSMENN ENN
A SIGURBRAUT
sigruðu Fram 100:94 á laugardag
■ Einar Bollason var ekki ánægður
með dómgæsluna á Akureyri.
■ Valsmenn sigruðu Framara á laugar-
daginn í úrvalsdcildinni í körfuknattleik
100-94. Valsmenn voru sterkari lengst
af, héldu aftur af Frömurum og höfðu
forystuna. Eftir 7 mínútna góðan kafla
í fyrri hálfleik hjá Val má segja að örlög
Fram hafi verið ráðin í leiknum. Vals-
menn komust í 25-12, og réði þar mestu
um að Valsmenn skoruðu úr hverri
sókn, en Framarar hittu ekkert á meðan.
Val Brazy var heldur sviplítill í
leiknum á laugardag. Hann missti bolt-
ann stundum, hitti illa og var hvorki fugl
né fiskur, miðað við hve afgerandi þessi
tilþrifamikli leikmaður venjulega er.
Símon var drjúgur, sérstaklega síðast,
en hitti illa framan af.
Valsmenn leiddu alltaf eftir miðjan
fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 58-49
Val í hag. Framarar tóku fjörkipp síðast
í fyrri hálfleik, skoruðu 6 síðustu stigin
og héldu áfram í síðari hálfleik framan
af, og munurinn varð minnstur 66-63 Val
í hag.
Síðari hálfleikur var býsna fjörugur,
villur hlóðust upp sérstaklega hjá
Valsmönnum og bæði lið komin með
bónus síðast í leiknum. Þegar staðan var
83-69 Val í hag, en þá höfðu Valsmenn
tekið öll völd í sínar hendur, fékk Tim
Dwyer sína fimmtu villu, og bjuggust þá
flestir við að Framarar myndu ganga á
lagið. En sú varð þó ekki raunin,
Valsmenn virtust aðeins styrkjast við
raunina og komust í 97-75.
Framarar fóru þá að sækja sig, en þá
var það orðið of seint, Valsmenn rufu
100 stiga múrinn og höfðu þá 10 stiga
forskot, og Torfi fékk sína fimmtu villu.
En þá var stutt eftir og lokatölur 100-94
eins og áður sagði.
Torfi Magnússon var bestur Vals-
manna í leiknum, geysisterkur leikmað-
ursem alltaf stendurfyrir sínu. Ríkharð-
ur var og góður, skoraði grimmt, en
hann mætti stundum gefa boltann í stað
þess að gera allt sjálfur. Ríkharður
skoraði mest, 28 stig, Torfi 26, Dwyer
18, Jón Steingríms 7, Tómas Holton og
Kristján Ágústsson 4 hvor og Leifur
Gústafsson 3. Brazy skoraði mest Fram-
ara 32 stig, en í þau fóru helst til mörg
skot. Símon skoraði 27 stig, Þorvaldur
20 stig, Viðar Þorkels 4, Ómar 6 og
Jóhannes Magnússon 5.