Tíminn - 22.02.1983, Qupperneq 1

Tíminn - 22.02.1983, Qupperneq 1
SIGRUBII MEB 16 MARKA MIIH enskar héldu adeins út hálfleikinn legt að bresku stúlkurnar eru tiltölulega byrjendur í íþróttinni, ef miðað er við aldur íþróttagreinarinnar í Bretlandi. Höfðu þær ekki úthald að sjá, en aftur á móti urðu íslensku stelpurnar betri eftir því sem á leikinn leið: Mörk íslands í leiknum skoruðu Guð- ríður Guðjónsdóttir 8, Erla Rafnsdóttir og Ingunn Bernódusdóttir 5 hvor, Magn- ea Friðriksdóttir2, Katrín Danivalsdótt- ir, EvaBaldursdóttir, Sigrún Bermunds- dóttir, Kristín Pétursdóttir og Oddný Sigsteinsdóttir 1 hver. Flest mörk Breta skoraði Melanie Chowns og Brenda Dobek 2 hvor. ■ isiana sigraoi nreuana ooru sinni a laugardag í Laugardagshöll 25-9 í lands- Ielk þjóðanna í handknattleik kvenna. Leikurinn var einkar köflóttur, og var þótt ótrúlegt megi virðast þegar litið er á tölurnar mjög jafn og spennandi í fyrri hálfleik. Liðin meira að segja skiptust á að hafa forystuna framan af fyrri hálf- leik, en staðan í hálfleik var 10-7 íslandi í hag. í síðari hálfleik gekk allt miklu betur hjá íslenska liðinu, og úrslit síðari hálf- ieiksins voru 15-2 íslandi í vil. Slíkt er frekar ótrúlegt í leik, en það var greini- Umsjón: Samúel Örn Erlingsson Erla Rafnsdóttir skorar eitt marka sinna í leiknum gegn Bretum á laugardag. Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn: ATU SKORAW FYRSTA DUSSELDORF SKRAÐI ■ Atli Eðvaldsson skoraði fyrra mark Fortuna Dusseldorf í leik liðsins gegn Borussia Munchengladback í Dussel- dorf um helgina. Atli skoraði strax á 4. mínútu leiksins. Þetta er níunda mark Atla á tímabilinu. Annars var sigur Dusseldorf frekar óverðskuldaður, því að fyrstu mínútunum undanskildum átti „Gladbach“ leikinn. Eins og fyrri daginn strönduðu sóknarlotur andstæðingsins á hinum trausta varnarmanni Dússeldorf, Zewe. Fortuna komst þó í 2-0 með ■ Eins og áður hefur komið fram í Tímanum hefur sóknarleikur Stuttgart liðsins verið þess helsti höfuðverkur. Frakkinn Six hefur verið óáreiðanlegur, og þeir Reichert og Kelpfs einfaldlega ekki nógu góðir. Vitað er að Benthaus þjálfari Stuttgart hefur verið að leita að góðum sóknarleikmönnum, en þeir eru ekki beint á lausu hér. Nú gengur það hins vegar fjöllunum hærra hér í Þýska- landi, að hinn frægi markaskorari Ham- borgarliðsins Hamburger Sportverein muni ganga til liðs við Stuttgart. Þrátt fyrir að Hrubesch sé kominn hátt á stórkostlegu marki Bochenfelds á 77. mínútu, en Ringels lagaði stöðuna fyrir Gladbach á 85. mínútu. Gladbach hefur nú aðeins fengið eitt stig úr síðustu sex leikjum. Óvæntustu úrslit helgarinnar voru jafntefli Bayern Munchen gegn Leverk- usen , sem hljóta að teljast góð úrslit fyrir lið eins og Stuttgart og Bremen. Aðalleik helgarinnar varð að fresta, en það var leikur Stuttgart og Bremen, og fertugsaldurinn, er hann einn af marka- hæstu leikmönnum Bundesligunnar með 10 mörk. Að mínu mati er Hrubesch einfaldlega markheppnasti leikmaður sem ég hef séð. Skallaboltar hans eru viðurkenndir sem þeir hættulegustu í Þýskalandi, og þrátt fyrir að hreyfing sé ekki ýkja mikil á Hrubesch á leikvellinum, hefur hann þann góða eiginleika að vera réttur maður á réttum stað. Hrubesch verður því áreiðanlega mikill liðsauki fyrir Stuttgartliðið. ekki er vitað hvenær hægt verður að leika hann. Hins vegar verður leikur Stuttgart og Hertha Berlin sem varð að fresta á dögunum, leikinn fyrsta mars. Berlinarliðinu hefur gengið frekar illa í Bundesligunni undanfarið, aðeinsfengið 2 stig af síðustu 12 mögulegum. Stuttgart spilaði um daginn æfingaleik við annarr- ar deildar liðið Stuttgart Kickers, og þar bar það helst til tíðinda, að hinn franski Didier Six misnotaði vítaspyrnu, þá þriðju sem liðið lætur fara í vaskinn í röð. - M.Ó. Úrslit leikja í vestur-þýsku fyrstu deildinni urðu þessi: Dússeldorf-Múnchengladbach ... 2-1 E. Braunswig-E. Frankfurt ......1-0 Schalke 04-Köln ................1-4 Leverkusen-Bayern M.............1-1 Dortmund-Kaisersiautem.........4-0 Nurnberg-Hertha Berlin..........4-2 Bielefeld-Bochum................1-1 Karlsruher-Hamburger SV ........1-2 Staða efstu liða er þessi: - Hamburger SV . 20 11 8 1 49-21 30 Bayem M..... 21 12 6 3 49-18 30 Stuttgart ..... 20 12 6 3 47-24 28 Dortmund .... 21 12 4 5 49-29 28 Köln........ 21 11 5 5 43-26 27 Birgir sigradi í ískrossinu ■ Birgir Þór Bragason sigraði í ískrossi Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur um helgina. Þetta var svonefnt Volvo ískross. Úrslitin í keppninni urðu þessi: 1. BirgirÞórBragasonSkodal30RS 2. Kristinn Svavarsson Datsun 3. Magnús Baldvinsson BMW Keppnin var liður í íslandsmeistara- keppninni. Efstur í þeirri stigakeppni er Kristinn Svavarsson með 27 stig, en næstir honum koma Birgir Þór Bragason og Þórður Valdimarsson, báðir með 20 stig. ■ Mun Horst Hrubnesch leika með Ásgeiri? H0RST HRUBESCH HL STUTTGART? MARKIÐ ÞEGAR „GLADBACH” ■ Atli Eðvaldsson skoraði gegn Múnchengladbach um helgina. Jón bikarmeistari Lagði alla í bikarglímunni ■ Jón Unndórsson KR sigraði í Bikar- glímu GLÍ um helgina, en keppnin var háð í Vogaskóla á laugardag. Jón fékk 8 vinninga af 8 mögulegum. Guðmundur Freyr Halldórsson Ármanni varð annar með 6 vinninga, og Eyþór Pétursson HSÞ varð þriðji með 5 og hálfan vinning, en hann varð að glíma aukaglímu við Kristján Yngvason HSÞ um 3. sætið. Þingeysku glímutröllin, Pétur og Yngvi Yngvasynir voru ekki meðal keppenda. ■ Jón Unndórsson KR.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.