Tíminn - 22.02.1983, Síða 4

Tíminn - 22.02.1983, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1983. UVERPOOL TAPABII BIKAR- KEPPNINNI FVRIR BRIGHTON ■ Brighton varö á sunnudag fyrsta löiö sem sigrar Liverpool í bikarkeppni. á Anfield Koad i níu ár. Þetta voru svo sannarlega óvæntustu úrslit helgar- innar. Það voru gamlir Liverpool menn sem áttu stærstan þátt í þessu stjörnuhrapi, Jimmy Casefyrrum leik- maöur Liverpool skoraði sigurmarkið, og framkvæmdastjórinn hjá Brighton er Jimmy Melia, fyrrum leikmaður Liverpool. Annar tapleikur Liverpool á stuttum tíma er staðreynd, þykja það tíðindi hin mestu, enda hefur liðið ekki bein- línis svnt af sér marga tapleiki þetta árið. I síðustu viku tapaði Liverpool 0-1 fyrir Burnley en að vísu risti það tap ekki djúpt, þar eð Liverpool fór áfram í þeirri keppni á markahlutfalli. Það virtist liggja fyrir Liverpool að tapa þessum leik, fyrir einmitt því liði ■ Phil Neal nýtti ekki vítaspyrnu gegn Brighton, og Liverpool tapaði. sem sigraði það síðast í deildakeppn- inni fyrir næstum ári, en Liverpool hefur heldur ekki tapað deildarleik síðan. Liverpool sem vægast sagt er talið stöðugasta lið á Englandi um þessar mundir, og jafnvel þó víðar væri leitað, klúðraði jafnvel víta- spyrnu. Það var Iandsliðs miðvörður- inn Phil Neal sem sá um að skora ekki úr henni. írski landsliðsmaðurinn Gerry Ryan skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Brighton. Varamaðurinn í Liverpool- liðinu þennan daginn, Craig Johnstone jafnaði eftir 24 mínútna leik í síðari hálfleik, aðeins 5 mínútum eftir að hann kom inn á fyrir David Hodgson. En Jimmy Case sköraði sigurmarkið, innan við hálfri mínútu síðar. Fyrrum aðdáendur Case á Anfield rak í roga- stans þegar hann skoraði markið með þrumuskoti af 25 metra færi, sem þeyttist framhjá Bruce Grobbelar í markinu, svo skömmu eftir að John- stone jafnaði glæsilega með hjólhesta- spyrnu eftir stangarskot Alans Kennedy. Liverpool sótti stíft að marki Brig- hton eftir þetta, en vonir Liverpool- manna urðu ansi tæpar eftir að Neal setti vítaspyrnuna framhjá. Kennedy var felldur innan vítateigs af Tony Grealish, og víti var dæmt enda sjálfsagt í því tilfelli. Ósigurinn gegn Brighton gerði að engu vonir Liverpool aðdáenda um að Liverpool mundi sigra í öllum keppn- um í ár, og Bob Paisley, sem síðast sá þann hlut gerast árið 1974, þá aðstoðarþjálfari Bills Shankleys. En það má þó teljast ólíklegt að Paisley sjái ekki nóg af silfurgripum með vorinu, þó þessi bikar sé úr sögunni í bili. TOTTENHAM LOKS FALUÐ ÚT EFTIR TÆP ÞRJÚ AR INNI ■ Langri samfylgd ensku bikar- keppninnar og Tottenham Hotspur lauk á laugardag. Þá voru bikarmeist- ararnir sigraöir af Everton á Goodison Park. Úrslitin urðu 2-0 fyrir liðið frá Liverpool, og lcikurinn var í fimmtu umferð bikarkeppninnar. Lundúnaliðið, sem ætlaði sér að vinna bikarinn í þriðja sinn í röð, hafði ekki tapað leik í þessari keppni síðan í mars árið 1980, en þá tapaði liðið einnig fyrir strákum frá Liverpool, nefnilega Liverpool, 1-0 á sínum eigin heimavelli, White Hart Lane. En Evertonliðið sýndi enga virðingu fyrir glæsilegum sigurferli Tottenham, sem spannaði 18 leiki í röð í ensku bikarkeppninni. Eftir markalausan fyrri hálfleik, þar sem vörn meistar- anna varð að sýna allt sem í henni bjó, braut Andy King ísinn. Síðara markið ■ Tony Morley átti stórleik, og var öðrum fremur maðurinn bak við stórsigur Aston Villa á Watford. kom á 63. mínútu, þá skoraði Graemc Sliarp með tausu skoti, eftir að þeir höfðu fallið hvor um annan. Andy King og markvörður Tottenham og enska landsliðsins, Ray Clemence. Villa í stuði En það áttu fleiri þægilegan dag í bikarkeppninni. Aston Villa sem virð- ist vera einkar vel heima í alls konar bikarkeppnum, komst einnig í átta liða úrslitin. Eftir einkar tilþrifamikla leikbyrjun hjá hinu skemmtilega liði Watford, í hverri Luther Blissett, sá marksækni kappi skaut tvívegis í stöng, náði Villa að bursta Watford liðið 4-1. Stórleikur Tonys Morley kom bikarsérfræðingunum af stað, hann átti sérlega fallega þversendingu beint á Gary Shaw og Shaw skoraði fyrsta markið á 32. mínútu. Fimm- tánda mark Shaw í vetur. Morley gerði síðan hið næsta sjálfur, með þrumu- skoti af 25 metra færi. Úrslitin voru ekki lengur nein spurning, þegar að Colin Gibson skoraði sitt fyrsta mark í vetur og um leið þriðja mark Villa í þessum leik, með skalla á 62. mínútu . Gordon Cowans skoraði síðan fjórða markið með góðu skoti, og seinbúið mark Luthers Blissett breytti engu um einstefnuna. Blissett, skoraði úr víta- spyrnu, seint í leiknum. United áfram Manchester United sem nú leikur ekki gegn Liverpool í úrslitum bikar- keppninnar eins og margir höfðu spáð, vegna taps Liverpool, komst í átta liða úrslitin með því að sigra Derby County 1-0 í Derby. Það var skærasta stjarna Norður íra, Norman Whiteside, sem gerði markið sem skildi, 1-0, í leiknum. Derby, sem sællar minningar, fyrir þá alla vega, sló út Nottingham Forest öllum á óvart úr bikarkeppninni á dögunum, náði ekki að veita Mancester United sömu afgreiðslu, enda líklega erfiðara verk- efni. Derby barðist þó mjög vel allan tímann, og United gat verið ánægt með að fara heim með sigurinn, þar eð marktækifærin voru ekki svo mörg. A 84. mínútu var það sem Whiteside gerði út um leikinn, með góðu skoti eftir sendingu frá Steve Coppell, en þá höfðu margir talið að Derby væri búið að útvega sér annan leik við stórveldið. í undanúrslit í fyrsta sinn Norwich náði að tryggja sér sæti í undanúrslitum í fyrsta sinn í sögu félagsins, þegar liðið náði að sigra Ipswich 1-0 á trððfullum velli á Carrow Road. Allir miðar seldir á leikinn, brjálaðir áhorfendur, og gaman fyrir heimamenn. Það var Keith Bertschin, fyrrum Ipswichleikmaður sem setti inn mark gegn sínum gömlu félögum á sjöttu mínútu leiksins. Sheffield Wednesday náði í undan- úrslitin með 2-1 sigri á félögum sínum úr annarri deild, Cambridge. Það var Gary Megson sem skoraði eitt mark í hvorum hálfleik fyrir Wednesday, og sigurinn var í raun aldrei í hættu. Chris Turner lagaði stöðuna fyrir liðið frá háskólabænum seint í leiknum. Tveir leikir voru enn leiknir í bikar- keppninni á laugardag, en báðir þurfa að leikast á ný, mun það verða á mánudag 28. febrúar. Strákarnir hans Malcolms Allison, Middlesborough, náðu að jafna gegn Arsenal, og knýja fram annan leik, þegar Hollendingur- inn Heine Otto jafnaði seint í leiknum, en Arsenal hafði haft forystuna lengi eftir mark Grahams Rix. Chrystal Palace fékk Burnley í heimsókn á Selhurst Park og þar þótti gott hjá Burnley að halda jöfnu, 0-0, sem var erfitt, þó liðið væri enn í stuði eftir sigurinn í Liverpool í mjólkurbik- arnum í síðustu viku, jafnvel þótt það næði skammt í það sinnið. Það verður að teljast líklegt að Burnley fari í átta liða úrslit, ef þeir hálda höfði á heimavelli. 1. deild: Loks tapaði Sunderland Þar koma að því að Sunderland tapaði í deildinni, fyrsta sinn í níu leikjum. ■ Justin Fashanu skoraði fyrir Notts County. Sunderland vörnin varð að láta sér lynda, að tvö mörk væru gerð þeirra megin á The Dell í leik liðsins við Southampton. Nick Holmes opnaði reikninginn og Mick Mills félagi hans bætti um betur þegar leið á leikinn. Enn skorar Justin Fashanu fyrir Notts County, nú gegn Manchester City á Maine Road. Heldur er deyfðin farin að hvíla þungt á' City og útlitið ekkert sérstaklega bjart. Aðeins voru þrír leikir leiknir á laugardag í fyrstu deildinni, sá þriðji Nottingham Forest og West Bromwich Albion var markalaus, og útslagið því jafntefli. Önnur deild: Tvö markalaus jafntefli voru í ann- arri deild á laugardag, Blackburn og Fulham, og Charlton og Carlisle gátu ekkert skorað þann daginn. En það var aftur á móti gert á Elland Road, þó jafntefli yrði þar eins og á hinum stöðunum tveimur. 3-3 urðu úrslitin þar í sviptingaleik. Chelsea komst í 2-0 með mörkum Clives Walker og Mikes Fillary, sá síðarnefndi skoraði úr vítaspyrnu, en Leeds var aldeilis ekki af baki dottið þrátt fyrir erfiða byrjun og komust þeir strákarnir í 3-2. Abel Butterworth, Frank Gray og Arthur Graham skoruðu fyrir Leeds, Gray úr víti. En Gray leikmaður Chelsea jafn- aði fyrir Chelsea á elleftu stundu og nóg af mörkum á Elland. Það var gamli jaxlinn Terry McDer- mott sem skoraði fyrir Newcastle á laugardag, Kevin og félagar því aðeins að hjama við, eftir dapran vetur. QPR ógnar úlfunum QPR náði að vinna stórsigur á Barnsley á heimavelli, og styrktu þar enn stöðu sína í annarri deild, og ógna nú Úlfunum með stigasöfnun sinni. Það voru John Gregory, Mike Flanag- an og Tony Sealey, sem skoruðu fyrir Rangers, og var QPR vel að sigrinum komið. Rotherham og Bolton skildu jöfn, enn eitt janteflið, þar urðu úrslit 1-1, McBride skoraði fyrir Rotherham, en Chandler jafnaði. Úrslit ■ Úrslit í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar urðu þessi um helg- ma: Aston Villa-Watford 4-1 Cambridge-Sheffield Wednesday 1-2 Chrystal Palace-Burnley 0-0 Derby-Manchestcr United 0-1 Everton-Tottenham 2-0 Liverpool-Bríghton 1-2 Middlesbrough-Arsenal 1-1 Norwich-Ipswich 1-0 Úrslit urðu þessi i fyrstu dcild: Manchester City-Notts County 0-1 Nottingh. Forest-West Bromwich 0-0 Southampton-Sunderland 2-0 Úrslit í annarri deild urðu þessi: Blackburn-Fulham 0-0 Charlton-Carlisle 0-0 Grimsby-Leicester 2-0 Leeds-Chclsea 3-3 Newcastle-Oldham 1-0 Q.P.R.-Barnsley 3-0 Rotherham-Bolton Wanderers 1-1 Stadari ■ Staöan í fyrstu deild er nú þcssi: Liverpool ..., ..27 19 5 3 64:22 62 Man. Utd. .., ,.26 13 8 5 36:20 47 Watford .26 14 4 8 47:27 46 Notth. For. ... .. 27 13 6 9 41:35 44 Coventry .... ,.27 12 6. 9 38:32 42 Aston Villa .. , 27 13 3 11 39:35 42 Everton , 27 11 6 10 43:34 39 Tottenham .. , 27 11 6 10 39:37 39 W.B.A .28 10 9 9 38:36 39 Southamton . 28 11 6 11 37:42 39 West Ham ... 26 12 1 13 42:40 37 Man City .... 28 10 7 11 36:45 37 Arsenal 26 10 6 10 34:34 36 Ipswich . 27 9 8 10 40:32 35 Stoke 26 10 5 11 37:40 35 Notts C 28 10 4 14 34:49 34 Luton .26 7 9 10 47:54 30 Sunderland .. .27 7 9 11 30:41 30 Swansea .... .27 7 6 14 32:40 27 Birmingham . 26 5 11 10 22:35 26 Norwich 7 6 14 26:45 26 Brighton .... .27 6 7 14 24:51 25 ■ Staöan i annarri dcild er nú þessi: Wolves 17 5 5 53:26 56 Q.P.R .. 27 17 4 6 44:22 55 Fulham .... ..27 15 6 6 48:32 51 Grímsby ... . 28 12 5 11 40:46 41 Oldham .... ..29 9 13 7 47:37 40 Leicester ... . 27 12 3 12 42:30 39 Sheff.Wed. . ..26 10 9 7 40:33 39 Blackburn .. ..28 10 9 9 39:38 39 Leeds ..27 8 14 5 33:30 38 Newcastle .. ..27 9 10 8 40:37 37 Bamsley ... ..27 9 10 8 38:35 37 Shrcwsbury ..26 10 7 9 31:35 37 Rotherham . . 28 8 10 10 31:39 34 Charlton ... . .27 9 6 12 39:52 33 Chelsea .... ..28 8 8 12 37:39 32 Bolton ..27 8 8 11 31:35 32 Cariisle .... ..28 8 7 13 47:51 31 CrystalPal. . ..26 7 10 9 28:33 31 Míddlesbro . . 27 6 11 10 29:48 29 Cambridge . ..27 7 7 13 28:42 28 Bumley .... ..26 6 5 15 36:48 23 Derby . 26 4 11 11 30:43 23 MARKAHÆSTIR: Þessir hafa skorað mest í fyrstu deild: Ian Rush, Liverpool, 25 Lulher Blissetl, Watford, 20 Bob Latchford, Swansea, 19 Kenny Dalglish, Liverpool, 16 Brian Stein, Luton, 16 Garth Crooks, Tottenham, 15 John Wark, Ipswich, 15 Gary Shaw, Aston Villa, 15 ÖNNUR DEILD: Kevin Drinkell, Grimsby, 25 Bobby Davison, Derby, 19 Gary Linekcr, Leicester, 16 Gordon Davies, Fulham, 16 Bobby Davison skoraði 16 af sínum 19 mörkum fyrir Halifax.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.